Morgunblaðið - 26.01.1992, Síða 40
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMI 091100, FAX 091181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRÍ: HAFNA RSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Hlýtt um
allt land
BÚIST er við ríkjandi sunnan- og
suðvestanáttum um land allt á
næstunni með tiltölulega mildu
veðri.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofunni er búist við nokkuð
hvassri sunnanátt og rigningu í dag
með allt að tíu stiga hita víðast hvar
á landinu. Hlýjast verður á Norður-
og Norðausturlandi. Rigning og súld
verður á Suður- og Vesturlandi en
minni úrkoma norðan- og austan-
lands.
Ennreyntað
heimta her-
vélarnar úr
Grænlands-
# # j Morgunblaðið/Sverrir
Dagmn lengir smatt og smátt
Svartasta skammdegið nefna menn gjarnan það tímabil sem nú er að líða og víst er að mörgum leiðist biðin eftir sumri og sól. Þeim ætti þó að
vera nokkur huggun í því að daginn lengir nú um eitt „hænufet“ á hverjum degi eins og gjarnan var sagt. Fræðingar mæla hins vegar lengd
daganna í mínútum og segja að þá lengi um 6 mínútur að meðaltali fyrsta mánuð ársins. í góða veðrinu í mánuðinum hafa menn gjarnán
notað hádaginn til að fara í boltaleiki, t.d. þessir piltar sem á dögunum spörkuðu bolta í Hljómskálagarðinum.
Ollu starfsfólki Landakots
sagt upp um mánaðamót
Ovíst hversu margir af 640 starfsmönnum verða endurráðnir
jökli í sumar
í SUMAR verður gerð enn ein til-
raun til þess að ná upp flugvélun-
um átta, sem legið hafa grafnar
í Grænlandsjökli síðan á stríðsár-
unum. Hyggjast bandarísku leið-
angursmennirnir beita nýrri og
flókinni tækni og ná flugvélunum
upp í bútum.
Helgi Björnsson jöklafræðingur,
sem fann vélarnar með íssjá fyrir
þá, er ekki jafn bjartsýnn og þeir
um að þetta takist. Mikið vatn er í
þíðjöklinum og sé því dælt upp fara
holurnar að síga saman undan ísfarg-
inu.
Flugvélarnar átta hafa í 50 ár leg-
ið á 85 metra dýpi í jöklinum. 1989
tókst að bora niður á þær og árið
eftir komust menn sjálfír niður og
töldu flugvélarnar svo heilar að hægt
yrði að fljúga þeim af jöklinum eftir
að þeim hefði verið náð upp. Þá kom
í ljós, eins .og Islendingamir höfðu
varað þá við, að ísfargið og skrið
jökulsins hafði klemmt þær og
skemmt.
Sjá grein á bls. 16-17 um fyrir-
hugaðan leiðangur og viðtal við
Helga Björnsson.
„Takist þjóðfélaginu að halda
verðbólgunni í núlli, þá verður
engin heimild til slíkrar útgáfu
jöfnunarhlutabréfa," segir
Thor. „Verði verðbólga ein-
hver, þá verður heimildin til
STJÓRN Landakotsspítala tók þá
ákvörðun á löngum sljórnarfundi
á föstudag að segja upp öllu
starfsfólki spítalans, 640 manns,
frá og með næstu mánaðamótum
og var starfsfólki tilkynnt um
þetta í gær, laugardag. Uppsagn-
irnar ná jafnt til lækna, hjúkrun-
útgáfunnar óveruleg. Ég slæ á
tvær til fjórar milljónir."
Thor segir að ef ákvörðun
verði tekin um að greiða hlut-
höfum í Sameinuðum verktök-
um út af eigin fé, þá verði þar
arfræðinga og annars starfsfólks.
Ólafur Örn Arnarson, formaður
læknaráðs Landakotsspítala, seg-
ir að þessi ákvörðun hafi verið
tekin til að skapa svigrúm til
endurskipulagningar í rekstri
spítalans vegna mjög skertra
framlaga ríkisins til hans. Starfs-
um skattskyldar útgreiðslur að
ræða. Slíkar útgreiðslur úr
félaginu, eftir að heimild til
útgáfu jöfnunarhlutabréfa hef-
ur verið nýtt til fulls, teljist til
tekna þeirra sem við þeim taki.
„Að vísu er lítill hópur hlut-
hafa sem er í þeirri aðstöðu að
hafa tapað miklum fjármunum
og jafnvel farið á hausinn," seg-
ir Thor. „Þessir aðilar geta tek-
ið við óhemju fjárhæðuin vegna
tapsins, án þess að þurfa að
fólk hefur almennt þriggja mán-
aða uppsagnarfrest.
Ólafur sagði að stjórnin hefði
fremur kosið að segja upp öllu
starfsfólkinu heldur en stórum hluta
þess til þess að hafa svigrúm til
endurskipulagningar rekstursins.
Annað hvort yrðu bráðavaktir lagðar
greiða skatta af greiðslunum.
Stærstur þeirra er auðvitað
Reginn hf. dótturfyrirtæki
Sambandsins. Engar þær
greiðslur sem Reginn hf. getur
náð út úr Sameinuðum verktök-
um munu nokkurn tíma fylla
upp í tapgötin hjá SÍS og þar
af leiðandi ekki verða skattlagð-
ar,“ segir Thor.
Sjá viðtal við Thor Ó. Thors:
„Tók nauðugur þátt í þessum
harmleik" bls. 10 og 12.
niður, en það hefði í för með sér
mikinn samdrátt starfseminnar og
fækkun starfsmanna á bilinu
200-250 manns, eða gengið yrði til
sameiningar við Borgarspítala, en
þá liti dæmið ef til vill öðru vísi út.
„Það eru það margir óvissuþættir
að þetta var eina leiðin sem við sáum
út úr þessu núna,“ sagði Ólafur Örn.
Hann sagði að á síðasta ári hefðu
3.580 bráðasjúklingar komið til
lækninga á Landakot og ef hinir
spítalarnir ættu að taka við þessum
sjúklingafjölda til viðbótar þeim nið-
urskurði á útgjöldum sem þeim væri
ætlaður væri gætu menn séð hvort
það væri nokkuð ofsagt að afleiðing-
in yrði öngþveiti. Landakot væri
fýrst og fremst bráðaspítali, því
bráðaþjónusta væri nú um % hlutar
af starfsemi hans.
„Það verður að segjast eins og
er að okkur finnst hart að fá svona
viðtökur þegar á síðasta ári komu
hingað fleiri sjúklingar heldur en
nokkru sinni fyrr í 90 ára sögu spít-
alans, eða yfír sex þúsund manns,
og útkoman rekstrarlega er að við
skilum 11-12 milljóna króna rekstr-
arafgangi. Við erum eini spítalinn
sem ekki hefur farið fram á auka-
fjárveitingu vegna síðasta árs og
þetta eru verðlaunin sem við fáum
fyrir það,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að niðurskurður á
launalið í ár væri um 354 milljónir
króna af um 900 milljóna króna
launaútgjöldum á síðasta ári. Nið-
urskurðurinn væri því í kringum 35%
hvort sem miðað væri við laun eða
heildarútgjöld og það væri ljóst að
eina ráðið væri að fækka fólki sem
þessu næmi.
* _
Thor O. Thors, framkvæmdastjóri Sameinaðra verktaka:
Heímíld til útgáfu á jöfnun-
arhlutabréfum nú fullnýtt
Aðeins þeir sem eiga skattatap geta hér eftir tekið við útgreiðslum
úr Sameinuðum verktökum án þess að greiða af þeim skatt
THOR Ó. Thors, framkvæmdastjóri Sameinaðra verktaka segir
heimild félagsins til útgáfu jöfnunarhlutabréfa nú vera fullnýtta,
þannig að ekki komi til þess að af útgreiðslum til hluthafanna á
þeim 2,3 milljörðum króna eigin fjár sem eftir er í félaginu geti
orðið, án þess að slíkar greiðslur yrðu skattlagðar. Frá þessu
greinir Thor í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í dag.