Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1992 Framkvæmdastj óri LandaJkots um SFR félaga: Ákvæði um hlið- stæð réttindi og ríkisstarfsmenn LOGI Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landakotsspítala, segir að það sé út af fyrir sig rétt að í kjarasamningi Starfsmannafélags ríkisstofnana sé ákvæði um að félagar í SFR skuli njóta hliðstæðra réttinda og kveðið sé á um í lögum um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna, en í Morgunblaðinu í gær segir Sigríður Kristins- dóttir, formaður SFR, að félagar í SFR hafi rétt til biðlauna í sam- ræmi við lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. í lögunum segir að sé staða lögð niður eigi starfsmaður rétt á bið- launum í sex mánuði frá því hann lét af starfi hafi hann starfað skem- ur en í 15 ár en í 12 mánuði hafi hann starfað lengur. Logi sagði að SFR væri eina stéttarfélagið sem hefði slíkt ákvæði í kjarasamning- um sínum. Þau væru ekki í kjara- samningum lækna eða hjúkrunar- fræðinga. Hann sagðist ekki sjá neina ástæðu til að úttala sig um þetta atriði nú, það væri fjölda ann- arra hluta sem þyrfti að leysa úr áður en þetta mál kæmi á dagskrá. Verulegur hluti þeirra sem sagt hefði verið upp störfum yrði endur- ráðinn og að sjálfsögðu yrði leitast við að standa við gerða kjarasamn- inga og lagaskyldur, en það væri seinni tíma mál að leysa úr því hveijar þessar lagaskyldur væru. Ratsjárstofnun: Tilraunarekstur norð- urstöðvanna hafinn Formleg opnun verður síðar á árinu tilraunarekstur í Bandaríkjunum, og þeir eru allir HAFINN norðurstöðva Ratsjárstofnunar Um er að ræða stöðvamar á íslenskir. íbúar Wathne- hússins fluttu það- an eftir bruna í nóvember en ráð- gert var að bæta húsið. Ekki er vit- að um eldsupptök en málið er í hönd- um rannsóknar- lögreglunnar í Reykjavík. Seyðisfjörður: Wathne-hús ónýtt eftir bruna Seyðisfirði. Svokallað Wathne-hús á Seyðisfirði gjöreyðilagðist í bruna aðfaranótt þriðjudags. Ibúar hússins fluttu þaðan út þegar eldur kviknaði út frá kyndingu í kjallara í nóvember. Töluvert innbú var þó enn í húsinu. Húsið var tveggja hæða norskt bjálkahús með hlöðnum kjallara byggt 1908. Siguijón Andri Guðmundsson, þá gjöreyðilagt. Ekkert hefur lögregluþjónn, varð fyrstur var við eld í húsinu upp úr 1 eftir miðnætti aðfaranótt þriðjudags. Eldurinn hafði komið upp í kjallar- anum en fljótlega læsti hann'sig í gólfið á hæðinni og varð húsið alelda á um það bil klukkutíma. Tæplega þijár klukkustundir tók að slökkva eldinn og var húsið fengist staðfest um eldsupptök. Norski athafnamaðurinn Otto Wathne og fjölskylda hans byggðu þijú hús í Seyðisfjarðarbæ um síðustu aldamót. Minnsta hús- ið var reist 1893 en stærra hús árið síðar. Komst það hús í eigu Landssímans árið 1906 en hýsir nú bæjarskrifstofur Seyðisfjarðar. Afkomendur Ottos Wathne byggðu yngsta húsið, sem nú er brunnið, árið 1908. Þá var Otto Wathne látinn. Hann lést 15. okt- óber árið 1898. Pétur Kristjánsson, þjóðhátta- fræðingur, segir að húsið sé eitt af fáum bjálkahúsum á landinu en þau sé aðallega að finna á slóð- um Norðmanna. Nokkur slík hús eru t.d. á Akureyri, Húsavík og Siglufirði auk Seyðisfjarðar. Líkur benda til að húsið sé frá Vestur- Noregi. - GarðarRúnar. Bolafjalli við ísafjarðardjúp og Gunnólfsvíkurfjalli við Bakka- Tillögur Verktakasambands íslands og fleiri aðila: fjörð. Formleg opnun stöðvanna tveggja verður síðar á árinu. Endurnýjun ratsjárskerfisins er grundvölluð á samkomulagi sem gert var við Bandaríkja- stjórn árið 1985. Ný braut lögð í stað þess að Guðjón Sigurðsson, deildarstjóri hjá Ratsjárstofnun, segir að til- raunareksturinn sé til þess að sjá hvernig merkin frá stöðvunum koma út. Merkin fara til Kefiavík- urflugvallar. Ekki liggur fyrir hve- nær nýju ratstjárstöðvarnar á Stokksnesi við Hornaíjörð og á Miðnesheiði á Reykjanesi komast í gagnið. Endurnýjun ratsjárkerfisins fer fram á grundvelli samkomulags sem gert var við Bandaríkjastjórn árið 1985. Ratsjárstofnun annast rekstur stöðvanna. Öll stöðvarhús- in eru tilbúin og uppsetning búnað- ar stendur yfir. Tæknimenn stöðv- anna eru komnir úr starfsþjálfun tvöfalda Reykjanesbrautina Samgöngnráðherra líst illa á þessar hugmyndir sem nú eru í athugun hjá Vegagerðinni UNDIRBÚNINGSFÉLAG sem hefur óskað leyfis samgönguráðherra að fá að kanna hagkvæmni þess að tvöfalda Reykjanesbraut hefur lagt nýja áætlun fyrir ráðherra sem gerir ráð fyrir að lögð verði ný braut á vegum sérstaks hlutafélags sem ræki hana með tekjum af veggjöldum þannig að gamla Reykjanesbrautin verði áfram skatt- Iaus. Halldór Blöndal samgönguráðherra hefur ákveðið að fela Vega- gerð ríkisins málið til frekari skoðunar. Halldór Blöndal segir að sér lítist illa á þessar hugmyndir sem nú eru í athugun hjá Vegagerðinni. „Hér er ekki um að ræða neina stökk- breytingu í átt til samgöngubóta á leiðinni milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur og þarna yrði um að ræða eina veginn á íslandi þar sem heimtur yrði vegtollur," segir Hall- dór. „Reynslan af slíkum tolli á þessum vegi hér á árum áður var slæm og ökumenn tóku því illa að þurfa að greiða vegtoll á leiðinni." I máli Halldórs kemur einnig fram að honum lítist betur á fyrirkomu- lag sem þetta í tengslum við jarð- göng undir Hvalfjörð. Þar yrði um að ræða styttingu á hringveginum um 40 km og þar að auki yrði gamli vegurinn enn til staðar svo öku- menn hefðu val um hvort þeir vildu borga vegtoll af samgöngubót þeirri eða ekki. Flugráð afgreiðir umsókn Atlantsflugs hf.: Mælt með endumýjun flug- rekstrarleyfis til eins árs FLUGRÁÐ afgreiddi umsókn leiguflugfélagsins Atlantsflugs hf. um endurnýjun flugrekstrarleyfis á fundi sínum í gær. Var samþykkt samhljóða í ráðinu að mæla með framlengingu leyfis til eins árs í stað fimm sem félagið hefði átt að fá úthlutað ef öll skilyrði reglugerð- ar hefðu verið uppfyllt. Að sögn Hilmars B. Baldurssonar, varafor- manns Flugráðs, sem stýrði fundinum í forföllum Leifs Magnússonar, formanns, var leyfið veitt með beitingu undanþáguákvæðis I reglu- gerð þar sem félagið uppfyllti ekki kröfur um eiginfjárstöðu. Halldór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Atlantsflugs, segist vera þokkalega ánægður með þessa niðurstöðu miðað við það sem á undan hefði gengið. „Astæða þess að undanþága var yrði fyrir endurnýjun flugrekstiar- veitt er sú að viðskiptasamningar sem fyrirtækið hefur gert á þessu ári benda mjög eindregið til að af- koma þess verði góð og að í lok tíma- bilsins muni það vonandi hafa náð því að uppfylla skilyrði reglugerðar- innar,“ sagði Hilmar. Samkvæmt breytingum sem gerðar voru á reglu- gerðinni á síðasta ári, ér það skil- leyfis að eiginfjárstaða flugrekstra- raðila samsvari a.m.k. þriggja mán- aða rekstrarkostnaði miðað við rekstraráætlanir til tveggja ára. „Við hefðum átt að fá fimm ára leyfi en þeir gefa okkur undanþágu þar sem við gátum ekki gefið þeim áætlun fyrir árið 1993. I ljósi þess að við höfum samninga á hendi fyr- ir þetta ár sem sýna heilbrigðan rekstur taka þeir þessa ákvörðun," sagði Halldór. Leyfið er veitt til 28. febrúar 1993. Halldór hefur gagnrýnt ítök starfsmanna Flugleiða í Flugráði og sagt þau hindra að hægt sé að leggja umbeðin gögn með rekstraráætlun- um fyrir ráðið. Hilmar sagði að rekstraráætlanir og uppgjör flugrek- enda færu til loftferðaeftirlits og auk þess fjölluðu tvær endurskoðunar- skrifstofur um málið og veittu um- sögn til Flugráðs. „Flugráð þarf ekkert að skoða þessi trúnaðargögn heldur aðeins niðurstöðurnar. Ef Flugráð telur hins vegar ástæðu til, hefur það rétt á að skoða öll gögn. Ég get fullyrt að þegar um viðkvæm mál er að ræða er það vinnuregla að enginn í ráðinu skoðar slík gögn. Við treystum endurskoðunarskrif- stofunum sem um þau fjalla,“ sagði hann. Aðspurður sagði Hiimar að þessari reglu hefði verið fylgt við afgreiðslu erindis Atlantsflugs. Halldór sagði að flugrekendur gætu ekki metið það hvenær trúnað- arupplýsingar sem veittar væru stöðvuðust hjá loftferðaeftirlitinu eða hvenær þær færu til yfírboðara þess. „Flugráð er æðsta stofnun í flugmálum á íslandi. Okkur finnst óviðunandi að af tíu aðal- og vara- mönnum, sem sitja í ráðinu, skuli fjórir vera fyrrverandi og núverandi starfsmenn Fiugleiða. Þetta er póli- tískt skipað ráð. Við höfum hins vegar ekkert út á þessa menn að setja persónulega," sagði Halldór. Harður árekst- ur á Miklubraut HARÐUR árekstur varð þegar lögreglubíll og fólksbíll skullu saman á mótum Kringlumýra- brautar og Miklubrautar um kl. 23 í gækvöldi. Bílarnir eru báðir mikið skemmd- ir. Lögreglumennirnir slösuðust ekki en einn íarþeganna í hinum bílnum var fluttur á slysadeild með minni- háttar meiðsl. Ökumaður bifhjóls var einnig fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl eftir að jeppi ók í veg fyrir hann á Breiðholtsbraut um kl. 20 í gærkvöldi. 1 I I i i Verktakasamband íslands, At- vinnuþróunarfélag Suðurnesja og Landsbréf hf. standa að undirbún- ingshópnum og lögðu nýjar áætlan- ir fyrir samgönguráðherra á mánu- dag. Pálmi Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Verktakasambands- ins, staðfesti að nýjar hugmyndir hefðu verið lagðar fyrir ráðherra en vildi ekki upplýsa hvað í þeim fælist. Ástæða þess að samgönguráð- herra hafnaði fyrsta tilboði hópsins var að vegfarendur hefðu ekki ann- an valkost en að greiða veggjald á þessari leið. Undirbúningsfélagið hefur endurskoðað áætlanir sínar með tilliti til óska ráðherra og er svars ráðherra og ríkisstjórnar að vænta í síðasta lagi í næstu viku, skv. heimildum Morgunblaðsins. í framhaldi af því fari forathuganir og arðsemisútreikningar fram sem miðist við að Alþingi geti afgreitt málið fyrir þinglausnir í vor. Ættu framkvæmdir þá að geta hafist næsta haust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.