Morgunblaðið - 29.01.1992, Page 13

Morgunblaðið - 29.01.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1992 13 Til stendur að færa safnið í nýtt húsnæði en í tvo staði í sömu bygg- ingunni. Gert er ráð fyrir að geyma allar bækur útgefnar á fyrri öldum í lokuðum sal neðanjarðar en bækur frá þessari öld á annarri eða þriðju hæð hússins þar sem frjáls aðgangur yrði að bókunum. Sjálfsagt ræður miklu um þessa ákvörðun að koma í örugga geymslu fágætum bókum safnsins. Ur fjarlægð sýnist þessi breyting ekki eiga að valda neinum straumhvörfum, en í huga Mitchells er þarna mikil alvara á ferðum. Hann gengur jafnvel svo langt að telja skiptingu safnsins í tvo hluta vera ógnun við framtíðarrannsóknir í íslenskum fræðum í Bandaríkjun- um; safnið muni smám saman glata sjálfstæði sínu og renna saman við aðalsafnið. Hann bendir ennfremur á að það sé ekki hægt að skipta safninu af einhveiju viti án þess að endurskráningu þess ljúki, en til þess hafa engir fjármunir verið veittir; auk þess sem einn maður eigi mjög óhægt með að sinna safninu ef því er komið fyrir á tveimur aðskildum hæðum. Þá álítur Mitchell að skipting safnsins sé lítilsvirðing við Williard Fiske, sem kvað svo á í erfðaskrá sinni að íslensku bækurnar skyldu vera sérstakt safn og að háskólayfir- völdum beri skylda til að virða óskir svo stórkostlegs velgjörðarmanns. Hefur Mitchell hótað afsögn ef af þessum breytingum verður. „Já, ég hef lýst því yfir að ég hætti ef safn- inu verður skipt,“ segir hann. Þegar hann var á ferð hér um jólin var hann mjög svartsýnn á að mál skipuðust á þann veg að hann gæti unað við niðurstöðuna, því að yfirmaður hans stæði á því fastar en fótunum að geyma safnið í tveim- ur stöðum. Meðan hann dvaldi hér ræddi Mitc- hell við ýmsa vini og kunningja, þar á meðal flesta þá sem á undanförnum árum hafa verið gesta-bókaverðir í íþöku og hafa látið sér annt um safn- ið. Hann sagði að þessir íslensku menn hefðu allir sem einn verið sama sinnis og hann sjálfur, og hrosið hugur við afleiðingum þess að skipta safninu að óbreyttu ástandi í tvo hluta. Það var augsýnilegt að þessi ein- dregni stuðningur gladdi Mitchell mjög. Hann kvað engum blöðum um það að fletta að það mundi hafa sitt að segja ef álit margra mætra fræði- manna á Islandi bærist til eyrna ráð- amanna Cornell-háskóla. Að öðru leyti vildi hann engu spá um fram- vindu málsins. Höfundur nemur sagnfræði í Oxford. ■ SAMTÖKIN Barnaheill minna á að framtíð íslands er fólg- in í börnunum. Samtökin hvetja því foreldra jafnt sem stjórnvöld til þess að skapa börnum okkar lífvænleg og mannbætandi vaxtar- skilyrði. Við hvetjum foreldra til þess að gefa börnum sínum tíma og við skorum á stjórnvöld að auðvelda foreldrum uppeldi bam- anna og koma til móts við þarfir fjölskyldunnar í nútíma samfélagi. Við teljum allt of algengt að börn axli of mikla ábyrgð á eigin lífi og skorti það aðhald og umhyggju sem öllum börnum og unglingum er nauðsynleg. Við teljum biýnt að velferðarkerfið verði styrkt og eflt með tilliti til ungviðisins. Við álítum að mál þau er lúta að börn- um eigi og verði að vera í hópi forgangsmála. Samtökin Barna- heill vara við bölsýni og armóði sem einkennt hefur þjóðfélagsum- ræður nú um hríð. Við bendum á að börn og unglingar eru þátttak- endur í þjóðfélaginu og að svart- sýni er ekki hollt vegnanesti þeim er standa á þröskuldi lífsins. Sam- tökin Barnaheill hvetja Islendinga til framsýni. Látum ekki stund- arerfiðleika spilla fyrir íslenskri æsku. Góðan daginn! Húsavík: Átak og áhugi fyrir fegrun og gróðurvemd Húsavík. VAXANDI áhugi er á Húsavík fyrir gróðurverndarmálum, verndun gróðurs fyrir uppblæstri og fegrun húsalóða og bæjarlandsins. Á síðasta fundi umhverfísmála- ráðs, sem starfar á vegum bæjar- ins, kom fram að ýmislegt hefur verið framkvæmt í þessum málum, en mest af því á vegum Land- græðslu ríkisins og Húsgulls, sem er áhugamannafélag einstaklinga á Húsavík og hefur það starfað ötul- lega síðan það var stofnað fyrir ekki mörgum árum. Dreift var 6 tonnum af áburði og 1,2 tonnum af fræi og var það borið á mela á nágrenni bæjarins og unnu Vinnuskóli bæjarsins og sjálfboðaliðar að þvi verki undir verkstjórn frá Landgræðslunni. Nokkuð var sáð af lúpínu. Gróður- settar voru 105 þúsund tijáplöntur og var árangur frábær samkvæmt úttekt Landgræðsluskóga. Til nefndra verka var veitt 11,7 millj. króna á síðasta ári. Skrúðgarðurinn við Búðarána fer stækkandi og er orðin hin mesta bæjarprýði. Mörg verkefni eru framundan og ef sá áhugi sem ver- ið hefur undanfarin ár á vernd gegn uppblæstri og fegrun bæjarlands- ins, getur Húsavík haldið þeim orðstír sem hún fékk fyrir mörgum árum að vera eitt af þrifalegustu, grænustu og fegurstu stöðum landsins. - Fréttaritari. Skrúðgarðurinn við Búðarána. Morgunblaðið/Silli ' r?J ' ^ ' rrJ ,__Hj -A. ■ n / yýr|i| SÉRÚTGÁFA Jjjj TAKMARKAÐUR FJÖLDI mCÐ EFTIHFARANDI SÉRBÚNABI: □ Stuðarar, vatnskassahlíf, hliðarllstar, hurðahandföng og útispeglar, allt í sama lit og yflrbyggíngin □ Heilir hjólkoppar ■ Rafstýrðir og rafhitaðlr útispeglar □ Vindkljúfur á framstuðara □ Sætaáklæði / gólfteppi - ný gerð □ Vlndkljúfur að aftan (Lancer stallbakur og Colt) □ Sportstýrishjól MITSUBISHI MOTORS MITSUBISHI COLT-EXE MITSUBISHI LANCER stallbakur-EXE MITSUBISHI LANCER hlaðbakur-EXE ALLIfí MEÐ 12 VENTLA HREYFIL MEÐ FJÖLINNSPRAUTUN ALLIfí MEÐ AFLSTÝRI - ALLIfí MEÐ HVARFAKÚT ÞRIGGJA ÁRA ÁRYRGÐ HVARFAKÚTIIR MINNI MENGUN m HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI695500 PRISMA ■ 9136

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.