Morgunblaðið - 29.01.1992, Síða 15

Morgunblaðið - 29.01.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1992 15 Jamaica - örugg ferð eftir Eyþór Guðjónsson Ástæðan fyrir skrifum mínum er grein eftir Oddnýju Björgvins- dóttur, sem birtist í Morgunblaðinu sunnudaginn 12. janúar undir nafn- inu Blóðsugur, hallelúja og amen. Þar lýsir höfundur óskemmtilegri reynslu á ferð sinni og maka síns til sólareyjunnar Jamaica. Ekki trúi ég því að allir þeir dag- ar sem þau eyddu á Jamaica hafi verið eins og sá sem skrifað er um. Gaman hefði verið að lesa um hina dagana líka. Af hennar skrifum mætti ráða að ferð til Jamaica væri síður en svo eftirsóknarverð. Það er aftur á móti annað hljóð í strokknum hjá mínum samferða- mönnum í gegnum árin. Ég held að nánast undantekningalaust hafi hver og einn einasti heitið sjálfum sér því að koma þangað aftur. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera fararstjóri nokkurra hópa er lagt hafa leið sína til Jamaica. Er fjöldi þeirra orðinn hátt á þriðja hundrað sem farið hafa með mér til lands „hins endalausa sumars“ eins og innfæddir kalla heimaland sitt stundum. Víðast hvar á Jamaica er nokkur fátækt ríkjandi. Þetta á sérstaklega við um Montego Bay og Kingston. Þegar fátækt er annars vegar eru glæpir því miður oft hennar fylgi- fískar. Þetta á ekki hvað síst við ef fólk gefur sjálft færi á því. Það er því forkastanlegt hjá Oddnýju að draga upp þá mynd af Jamaica sem hún gerir í grein sinni bara af því að hún sjálf lenti í hrakning- um. Hún ætti að vita sem ferðavön kona, að hún býður hættunni heim með því að fara að skoða fátækra- hverfí í fylgd tveggja innfæddra sem hún hefur aldrei áður séð. Þá skiptir ekki máli hvort hún er stödd á Jamaica, í Madrid eða Kaup- Reykhólar: \ íbúum hef- ur fjölgað um 20% Miðhúsum. ÍBÚAR Reykhólahrepps eru 370 og hefur fjölgað um 3% á árinu. Reykhólahreppur hefur tekið við rekstri Dvalarheimilis aldraðra á Reykhólum, en þar eru nú 11 vistmenn og þar af 7 i langlegu- rými. Um helgina var fjáhagsáætlun fyrir Reykhólahrepp samþykkt og eru tekjur og gjöld áætluð 71 millj- ón krónur. Helstu útgjöld hreppsins eru: Skólinn, Dvalarheimilið og svo á að ljúka við vatnsveituframkvæmd- ir og framkvæmdir við hitaveitu. Úr öðrum framkvæmdum verður dregið sem kostur er. 11 menn vinna í Þörungavinnsl- unni í vetur og verður byrjað að afla þangs í byijuðum apríl. — Sveinn. SPENHAþlW! -efþú áttmiða! mannahöfn svo einhver dæmi séu nefnd. Sá staður sem ég hef beint mín- um hópum til heitir Negril og er vestast á eyjunni. Þar þekkjast glæpir vart. Staðurinn hefur af að státa 10 kílómetra langri glæsilegri sandströnd með draumafögrum pálmatijám og ylvolgu, kristaltæru Karabíska hafínu, algjörlega óbreytt frá því að Kristófer Kolumb- us steig á land eyjunnar fyrir 498 árum (1494). Engin furða er því að þessi strönd sem nú er þétt- byggð hótelum og veitingastöðum skuli vera talin besta strönd Jama- ica. Negril hefur upp á allt að bjóða varðandi hótel. Allt frá litlum sæt- um tijákofum upp í lúxushótel sem „Umhyggja innfæddra í garð ferðamannsins sem leið sína leggur til eyjarinnar fögru skilar sér auðsjáanlega marg- falt til baka.“ eru engu lík. Þar er gestum boðið upp á stórkostleg veisluhlaðborð 5 til 6 sinnum á dag þar sem töfrar Karabíaeyjanna koma fram á þjóð- legri skemmtun með söngvum, dönsum og skemmtiatriðum. Allir drykkir eru innifaldir. í raun og veru er allt innifalið á þessum hótel- um, sama hvort þú skellir þér á ' Eyþór Guðjónsson sjóskíði, í tennis, köfunarkennslu, eða á Jet-ski. Þú tekur aldrei upp budduna. Heimamenn eru stoltir af landi sínu og gera allt til þess að halda því eins og náttúran skapaði það. Þeir hafa flestir sitt lífsviðurværi af ferðamönnum og koma því fram við hvern og einn sem hann væri konungborinn. Því auðvitað vilja þeir að þú komir aftur. Umhyggja innfæddra í garð ferð- amannsins sem leið sína leggur til eyjarinnar fögru skilar sér auðsjá- anlega margfalt til baka. Það sést best á því, að þegar ég dvaldi á Jamaica núna yfir síðustu áramót var hvert og eitt einasta hótel í Negril fullbókað og allir ánægðir. Að lokum vil ég benda Oddnýju á að Jamaicabúar eru ekki trúvill- ingar. Aðaltrúarbrögðin eru róm- versk kaþólsk trú og evangelísk lúterstrú. Með ferðakveðju. Höfundur er háskólanemi og fararstjóri. Hjalpargagn fyrir heimilisbökhaldið og skattframtalið Eitt afmarkmibum íslandsbanka er aö standa vel aö upplýsingagjöf til viöskiptavina bankans. Því eiga þeir nú kost á aö fá sent heildaryfirlit yfir viöskipti sín viö bankann á árinu 1991. Á viöskiptayfirliti íslandsbanka kemur fram staöa innlána og skulda viöskiptavinarins um áramót, ásamt ýmsum upplýsingum um vexti og margt fleira. Hér er um aö rœöa hjálpargagn sem kemur aö góöum notum viö heimilis- bókhaldiö og þá ekki síöur viö gerö skattframtalsins. Þú pantar yfirlitiö í nœstu afgreiöslu íslandsbanka, þjónustugjald er 190 kr. s Innlánsreikningor: Fram koma allar bankabœkur, Sparileibir, orlofsreikningar, gjaldeyrísreikningar og abrir sparireikningar sem skrábir eru á kennitölu vibskiptamanns. Tilgreindir eru innborg- abir vextir og verbbœtur á árinu og staba í árslok. Tékkareikningar. Fram koma, auk innvaxta og stöbu um áramót, þeir yfirdráttarvextir sem vibskiptamabur hefur greitt á árínu vegna yfírdráttarheimildar. Víxlar Sýnd er upphceb víxla, gjalddagi, forvextir og kostnabur vib kaup á víxlum (þ.m.t. stimpilgjöld), greiddir dráttarvextir og vanskilakostnabur og staba í árslok (ógreiddir víxlar). Skuldabréf: Fram koma gjaldfallnar afborganir, verbbœtur og vextir, afborganir af nafnverbi, greiddir dráttarvextir og vanskilakostnabur. Áfallnir vextir frá síbasta gjalddaga til áramóta og eftirstöbvar skulda um áramót. ISLANDSBANKI - í takt viö nýja tíma!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.