Morgunblaðið - 29.01.1992, Síða 17

Morgunblaðið - 29.01.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1992 17 Morgunblaðio/RAX Frá æfingn á Otello í Islensku óperunni. Frá vinstri Jón Rúnar Ara- son, Elsa Waage, Tómas Tómasson, Keith Reed, Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir og Garðar Cortes. A Islenska óperan frum- flytur Otello eftir Verdi ÍSLENSKA óperan minnist þess um þessar mundir að 10 ár eru liðin frá því er hún fékk fastan samastað í Óperuhúsinu við Ing- ólfsstræti. Af því tilefni er nú frumflutt á íslandi eitt af stór- virkjum óperuheimsins Otello eftir Verdi. Frumsýning verður sunnudaginn 9. febrúar. Helstu söngvarar í uppfærslunni eru Garðar Cortes í hlutverki Otell- os, Óiöf Kolbrún Harðardóttir í hlut- verki Desdemónu og Keith Reed í hlutverki Jagós. Leikstjóri er Þór- hildur Þorleifsdóttir og hljómsveit- arstjóri Robin Stapleton. Leikmynd gerði Sigurjón Jóhannsson og Una Collins annaðist búningahönnun. Ljósahönnuður er Grétar Svein- björnsson og sýningarstjóri Kristín S. Kristjánsdóttir. Auk þriggja fyrr- nefndra söngvara syngja þau Elsa Waage, Bergþór Pálsson, Þorgeir J. Andrésson, Tómas Tómasson, Jón Rúnar Arason og Þorleifur M. Magnússon einsöngshlutverk í Ot- ello. Lag Sykurmolanna lækkar á breska vinsældalistanum SMÁSKÍFA Sykurmolanna, Hit, sem farið hefur upp breska vinsælda- listann undanfarið, lækkaði sig um fjögur sæti á sunnudag, úr sautj- ánda sæti í það tuttugasta og fyrsta. Á sama tíma komst lagið í efsta sæti „óháða“ listans breska og situr þar enn. Að sögn útgefanda hljóm- sveitarinnar ytra eru miklar líkur á að væntanleg breiðskífa sveitarinn- ar fari beint inn á top tíu á breska breiðskífulistanum. Hit, sem kom út í Bretlandi á gamlársdag, hefur náð hærra en nokkuð lag Sykurmolanna til þessa og útgefandi hljómsveitarinnar í Bretlandi, Derek Birkett, segir að allt bendi til þess að breiðskífan, Stick Around for Joy, fari beint inn á top tíu á breska breiðskífulistanum og jafnvel inn á top fimm. Hann segir það ekki koma á óvart að lagið iækki á listum, því svo stutt sé í breiðskífuna að það dragi úr sölu á smáskífunni. Stick Around for Joy kemur út um heim allan utan Islands 10. febrúar, en hér á landi kemur platan út 3. febrúar nk. Fregnir af Hit í Bandaríkjunum herma að því sé mun betur tekið en nokkru lagi hljómsveitarinnar til þessa. Ekki segja menn þó gott að átta sig á stöðu þess þar, þar sem ekki eru nema tvær vikur síðan því var dreift til útvarpsstöðva og banda- ríski vinsældalistinn byggist á út- varpsspilun en ekki sölu. Færri spyija um silíkon- ígræðslu í bijóst hérlendis Niðurstöðu rannsókna FDA á efninu að vænta í febrúar MATVÆLA- og heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur mælst til þess að læknar hætti að nota silíkon til ígræðslu í brjóst á meðan verið er að rannsaka hvort ónæmiskerfi líkamans stafi hætta af efninu. Búist er við niðurstöðu úr þeirri rannsókn um miðjan febrúar. Að sögn Sigurðar E. Þorvaldssonar formanns Félags lýtalækna, hefur félagið í samráði við Ólaf Ólafsson land- lækni ákveðið að bíða átekta en koma saman til fundar þegar niðurstaða þessarar rannsóknar er fengin en þess hefur orðið vart að færri spyrja um þessa aðgerð hér á landi en áður. Matvæla- og heilbrigðisstofnun- in óskaði eftir að dreifing silíkons yrði stöðvuð og jafnframt var mælst til þess að það yrði ekki notað þar til niðurstaða rannsókna væri fengin um miðjan febrúar. „Á síðastliðnu ári kom nýr maður að stofnuninni og bað hann fram- leiðendur um að senda sér allt sem þeir hefðu um rannsóknir á silí- koni,“ sagði Sigurður. „Hann taldi að ekki lægi alveg nægilega ljóst fyrir hvort efnið væri nægilega vel rannsakað með tiliiti til áhættu á sjálfsofnæmissjúkdómum. Nið- urstaðan var sú að hann bað um frest fram í miðjan nóvember og aftur fram í byijun janúar á með- an farið væri yfir þau gögn sem bárust og nú síðast kom yfirlýsing um að hann yrði búinn að fara yfir gögnin og meta um miðjan febrúar næstkomandi.“ Sagði Sigurður að það væru einkum tvö atriði sem rætt væri um í fjölmiðlum, krabbameins- hættu og sjálfsofnæmissjúkdóma. Um 150 þúsund konur hafa árlega gengist undir silíkon-bijóstaað- gerð síðustu þijá áratugina í Bandaríkjunum og tölfræðilega hafa þessar aðgerðir ekki sýnt aukna fylgni nýkrabbameina. Sig- urður sagði það rétt að erfiðara væri að leita krabbameina með röntgenrannsókn í bjóstum sem í væri silíkon en í slíkum tilvikum eru teknar fleiri myndir og gengið úr skugga um að þær gefi nægi- lega góða mynd af bijóstinu. „Allir aðskotahlutir sem settir eru i likamann bera með sér ör- litla aukna áhættu á ígerð í beinu framhaldi af aðgerðinni,“ sagði Sigurður. „Það gildir einnig til dæmis um mjaðmalið en þetta er ekki algengt og þessar konur eru yfirleitt settar á fúkkalyfi fyrir og eftir aðgerð. Eg held að það sem valdi ruglingi sé svokölluð örband- svefsmyndun í kring um aðskota- hlutinn, sem er þá örvefur. Ef það er bandvefur í merkingunni ör þá er mögulegt að 10-20% kvennanna kvarti undan að bijóstið sé óeðli- lega stinnt. Það er ekki sjúkdómur en efnið má þá fjarlægja." Kveikjan að spurningunni um hvort silíkon geti valdið sjálfs- ofnæmissjúkdómum er vegna dóms sem nýlega gekk i Banda- ríkjunum og lyktaði með háum bótum til konu sem taldi sig hafa fengið bandvefssjúkdóm af völd- um silíkons. „Læknir konunnar, sem hafði meðhöndlað hana í mörg ár áður en hún fór í aðgerð- ina, sagði að hún hefði verið kom- in með sjúkdóminn áður,“ sagði Sigurður. „Eftir stendur að himn- an á silíkon-pokunum er úr silí- koni og þannig gerð að möguleiki var á að silíkon smitaði út um himnuna og var talið hafa getað átt þátt í myndun bandvefsöra. Eins og málin standa núna er ver- ið að kanna hvort þetta silíkon geti átt þátt í að eitlar bólgna. Af þeim 150 þúsund konum sem gangast undir silíkon-brjóstaað- gerð á ári er alltaf einhver hluti sem fær sjálfsofnæmissjúkdóma, sem og aðra sjúkdóma, og þess vegan vilja bandarísk yfirvöld biðja lækna og aðra að bíða þar til rannsókn er lokið,“ sagði Sig- urður að lokum. UTSALA CRAFT tvískiptir barnagallar, st. 120-160, kr. 5.990,- CRAFT stakar úlpur, st. 120-170, kr. 3.490,- Dúnúlpur f/fullorðna kr. 6.950,- K2 Core-tex barnagallar - 25% afsl. S?D7T - gegnt Umferðarmiðstöðinni, sími 19800 og 13072 Kynntu þér sérstöðu okkar í bílatryggingum! © Engir bakreikningar, þ.e. engin sjálfsábyrgð í ábyrgðartryggingu ökutækja, burtséð frá því hver ekur eða hversu mikið er ekið. Sex mónaba greibslutímabil, minni fjárútlát fram í tímann og þægilegri greiðslumáti. Samkvæmt nýlegri könnun hlutlausra aðila eru iðgjöld okkar fyllilega samkeppnishæf. Allar nánari upplýsingar í síma 26466. TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF -þegar mest á reynir!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.