Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1992 Vélsmiðjan Vík, Grenivík: Smíði að hefjast á ní- unda snjóblásaranum Morgunblaðið/Rúnar Þór Lionsmenn í Hrísey safna einnota öl- og gosumbúðum og reikna með að hafa um 100 þúsund króna tekjur á ári af söfnuninni. Lionsklúbbur Ilríseyjar: Safna einnota drykkjar- umbúðum til tekjuöflunar „VIÐ HOFÐUM um 120 þúsund krónur í tekjur af þessari söfn- un í fyrra,“ sagði Asgeir Hall- dórsson í Lionsklúbbi Hríseyj- ar, en félagar safna sama ein- nota drykkjarumbúðum á eynni og senda til endurvinnslu. íbúar á eynni gefa Lionsmönn- um umbúðirnar og þeir safna þeim saman, flokka þær og senda síðan með Sæfara til Dalvíkur, en flutn- ingur þangað er endurgjaldslaus. Frá Dalvík er ekið með umbúðirn- ar til Reykjavíkur til endurvinnslu. „Þetta er lítill klúbbur og fjár- öflunarleiðir hér fáar, þannig að við reynum að nýta allt sem býðst,“ sagði Ásgeir. Lionsrpenn vinna að nokkrum verkefnum og má nefna að síð- asta haust komu þeir fyrir leiða- lýsingu í kirkjugarðinum og var töluyerður kostnaður því samfara, en Ásgeir reiknaði með að hann yrði greiddur á tveimur árum. Þá er stefnt að því að koma fyrir heitum nuddpotti við sundlaugina og ætlar klúbburinn að styðja hreppinn í þeirri framkvæmd. Hugmyndin er að klúbburinn leggi fram fé fyrir pottinum sjálfum og hreppurinn sjái_ um kostnað við framkvæmdir. Á stefnuskránni er að hefjast handa strax í vor og þess vænst að aðsóknin að laug- inni aukist í kjölfarið. Loks má nefna að Lionsmenn í Hrísey hafa boðið eldri borgurum til myndasýninga og fleiri sam- verustunda auk þess að gefa þeim jólagjafir fyrir hver jól. Frystihús KEA á Dalvík: Stefnt að vínnslu allt að 1.000 tonna af fiski í neytendapakka Unnið nær alla laugardaga frá því í september sl. VÉLSMIÐJAN Vík hf. á Grenivík hefur smíðað átta snjóblásara, sem ganga undir nafninu Barði. Byrjað var að smíða slíka blásara í árslok árið 1988 og hafa þeir reynst vel. Jakob Þórðarson framkvæmda- stjóri Vélsmiðjunnar Víkur sagði að snjóblásarinn Barði hefði verið seldur víða um land, m.a. væru tveir á Vestfjörðum, einn við Blönduvirkjun, Vegagerðin hefur keypt tvo blásara, en sá fyrsti var smíðaður fyrir Grýtu- bakkahrepp. Þá er að hefjast smíði á einum blásara fyrir Hitaveitu Reykjavíkur sem staðsettur verður við Nesjavallavirkjun, en hann verður afhentur í lok febrúar og verður sá níundi sem smíðaður er. Vélsmiðjan Vík var stofnuð fyrir 6 árum, einkum til að sinna viðhalds- vinnu fyrir báta og skipaflota heima- manna. Snjóblásarasmíðin kom upp sem uppfyllingarverkefni er minnst var að gera í viðhaldsverkefnum. „Það vantaði verkefni yfir vetrar- mánuðina og okkur datt í huga að prófa þetta, en það vildi svo vel til að hreppinn vantaði snjóblásara. Við Gilfélagíð: Mikil vinna framundan í Grófargili STJÓRN Gilfélagsins á nú í samn- ingaviðræður við Akureyrarbæ um stórbætta aðstöðu fyrir lista- og menningarstarfsemi í bænum. Um er að ræða húsnæði í Mjólkur- samlaginu og Kaupvangstræti 23, sem félagið hefur til afnota og umsjár. Fyrirhugað er að í umræddu hús- næði verði aðstaða fyrir listafólk og handverksmenn með vinnustofur og verkstæði og sýningaraðstöðu. Einn- ig er áætlað að koma upp gestavinn- ustoftLsem nýst gæti fyrir listafólk "Air ýmsum greinum. Þá er fyrirhugað að koma upp sal sem riota mætti til ýmissa listviðburða; leikflutning, tón- flutning eða fundahalda. Framundan er mikil vinna við vandasöm verkefni og liggur því mikið við að allir þeir sem vilja vinna að því að koma framtíðardraumnum um miðstöð lista- og menningar á Akureyri í framkvæmd gangi til liðs við félagið. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku í Gilfélaginu eru hvattir til að hafa samband við Ragnheiði Þórs- dóttur ritara félagsins eða Guðmund Ármann formann þess. fengum Guðmund Pétursson hjá Teiknistofu Karls G. Þorleifssonar á Akureyri til að teikna hann fyrir okkur. Þetta hefur gengið þokkalega vel og við erum bjartsýnir á fram- haldið,“ sagði Jakob. ------»■ ♦ ♦--- Eyjafjarðarsveit: Grænum lit slær á tún Ytri-Tjörnum ÓVENJU langvarandi og mikil hlýindi hafa verið mestallan jan- úar hér í Eyjafirði. Stefnir allt í að þetta verði einhver hlýjasti jan- úarmánuður í áratugi. Ekki er einungis snjólaust í byggð, heldur eru fjöll víða snjólaus upp í eggjar, þó þau nái þúsund metra hæð. Grænum lit slær á tún og þar sem búfjáráburður var borinn á í haust er kominn svolítill nýgræðing- ur. _ Útlendar runnategundir eru byij- aðar að bruma og sem dæmi má nefna að á gljámispli sem hér er í garði við húsið eru fyrstu blöðin kom- in í ljós. Ósagt skal þó látið hvernig þeim gengur að þreyja þorrann og góuna, en margra vikna hlýindi í viðbót hljóta að vera afleit fyrir við- kvæman gróður sem ekki þekkir landið og duttlungafulla veðráttu þess. Þeim fáu kindum sem hér eru eft- ir á bæjum er hleypt út flesta daga, það getur ekki talist algengt í þorra- byrjun, en virðist þeim líka það vel. - Benjamín MIKIL vinna hefur verið í Frysti- húsi KEA á Dalvík og hefur ver- ið unnið þar svo til alla laugar- daga frá því í september síðast- liðnum. Unnið er að fullum krafti í smápakkningar, en nýlega var gerður samningur um sölu 200 tonna af fiski í slíkum pakkning- um fyrir fyrstu þrjá mánuði árs- ins. Stefnt er að því að vinna í húsinu á milli 800-1.000 tonn af fiski í smápakkningum í frysti- húsinu á ári. Samdrætti í afla á þessu ári verður mætt með því að draga úr saltfiskverkun. Gunnar Aðalbjörnsson frystihús- stjóri sagði að yfirleitt væri unnið í 10 tíma nær alla laugardaga í húsinu frá því í september á síðasta ári. „Við höfum sett markið á að salta sem minnst og frysta sem mest auk þess sem við erum bund- in samningum um sölu á fiski í smápakkningum,“ sagði Gunnar. Fyrir liggur samningur um sölu á 200 tonnum af fiski í smápakkn- ingum á fyrstu þremur mánuðum þessa árs, sem m.a. er seldur til Frakklands, Bretlands og Svíþjóðar. Gunnar sagði að stefnt væri að því að fullnýta þann sal er pakkningin fer fram í, en það þýði að á bilinu 800-1.000 tonn af fiski verði pakk- að í smápakkningar á ári, en það eru um 40% framleiðslunnar. Pökk- unarlínan var sett upp í frystihúsinu í apríl á síðasta ári, en fór ekki að fullu í gang fyrr en eftir sumarfrí og voru framleidd um 350 tonn af fiski í slíkar pakkningar á liðnu ári. „Það er engin spurning, að það gefur ákveðinn virðisauka að vinna fiskinn á þennan hátt. Verðið er líka mun stöðugra, bæði skríður það hægar upp á við og eins lækkar verð á neytendapakkningum ekki eins hratt og til að mynda svokallað- ar „bulkepakkningar" sem seldar eru verksmiðjum og veitingahús- um,“ sagði Gunnar. Vinnsla hófst í frystihúsinu 8. janúar síðastliðinn og hafa verið unnin þar um 350 tonn af fiski, en á liðnu ári hófst vinnsla ekki fyrr en um miðjan mánuð og voru þá unnin í allt 200 tonn í húsinu. Heild- armagnið sem unnið var í húsinu jókst um 15% á milli áranna 1990 og 1991, en verðmætið um 30%. Búast má við að samdráttur í afla verði á þessu ári miðað við það fyrra á bilinu 800 til 1.000 tonn og sagði Gunnar að hann myndi fyrst og fremst bitna á saltfisk- vinnslu. Á liðnu ári voru um 2.000 tonn verkuð í salt og 4.200 tonn fóru í frystingu, en reikna mætti með að í ár yrði helmingi minna verkað í salt en var í fyrra, eða um 1.000 tonn. íþróttamaður Þórs: Haukur Eiríksson skíðamaður valinn HAUKUR Eiríksson, skíðamaður, var kjörinn íþróttamaður Þórs 1991, en tíu íþróttamenn voru tilnefndir í kjörinu, þrír knattspyrnu- menn, þrír handknattleiksmenn, tveir skíðamenn og tveir körfu- knattleiksmenn. Haukur, sem einnig var kjörinn skíðamaður Þórs 1991, hefur stað- ið sig afar Vel og er einn fremsti skíðagöngumaður landsins. Hann hefur verið við æfingar og nám í Svíþjóð og tekið þátt í mótum þar og víðar og gengið vel. Hann varð íslandsmeistari í 15 km göngu, 3x10 km boðgöngu ásamt félögum sínum og Islandsmeistari í göngut- víkeppni. Þá vann hann til fjölda verðlauna annarra. Auk þess sem valinn var íþróttamaður Þórs, var einnig kunngjört um val á bestu íþrótta- mönnum í einstökum íþróttagrein- um, en handknattleiksmaður Þórs er Rúnar Sigtryggsson, einn af máttarstólpum meistaraflokks Þórs í handknattleik. Konráð Ósk- arsson var valinn körfuboltamaður Þórs, en hann er einn af burðarás- Morgunblaðið/Rúnar Þór Á myndinni eru taldir frá vinstri Júlíus Tryggvason, Sigurður Davíðsson, sem hlaut verðlaun fyrir besta ástundun, Eiríkur Ás- mundsson, sem tók við verðlaunum fyrir son sinn Iiauk Eiríksson, Konráð Óskarsson og Rúnar Sigtryggsson. unum í Þórsliðinu og knattspyrnu- maður var kjörinn Júlíus Tryggva- son, en hann stóð sig afar vel í flest öllum leikjum liðsins á síð- asta ári og skoraði mörg mikilvæg mörk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.