Morgunblaðið - 29.01.1992, Page 34

Morgunblaðið - 29.01.1992, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1992 The Platters. The Platters væntan- legir á Hótel Island THE PLATTERS eru væntanlegir til íslands og koma fram á Hótel Islandi dagana 7. og 8. febrúar nk. Þekkt- ustu lög þeirra eru: Smoke Gets in Your Eyes, The Great Pretender, The Magic Touch, Remember When. Fyrir nokkrum árum lést forsprakki Platters, Paul Robi, óvænt úr krabbameini. Það varð til þess að söng- flokkurinn hætti að koma fram opinberlega um skeið, þótt aðrir flokkar með sama nafni hafí notað tækifærið og troðið upp með gömlu Platters-lögin. Síðasta sumar komu svo The Platters saman að nýju á heilmiklum hljómleikum í Hollywood. í stað Paul Robis hafði dóttir hans, Franchesca Robi, slegist í hópinn. The Platters hafa nýlega endurhljóðritað mörg af vin- sælustu iögum sínum, enda hafa nokkur þeirra verið not- uð í frægum kvikmyndum nýlega s.s. í myndunum „Always“ og „War of the Roses“. Þeir hafa líka bætt nokkrum lögum við þessar upptökur s.s. Earth Angel og Goodbye Sweetheart, en á því lagi enda þeir alla hljómleika sína. Helgi Pétursson og Trausti Sigurðsson markaðsstjórar Samvinnuferðar-Landsýnar og Vífilfells afhentu verð- launin í hófi á Hótel Sögu. ■ ÞÁTTTAKA í fjölskyld- uleik sem Coea Cola, Euro Disney og Samvinnuferð- ir-Landsýn efndu til í nóv- embermánuði varð miklu meiri en nokkurn hafði órað fyrir. 83.427 lausnir bárust frá 40.853 einstaklingum þegar skilafresturinn rann út 1. desember sl. Verðlaun eru ferð fyrir fímmtán fjögurra manna fjölskyldur i til vikudvalar í Frankaskógi í Normandy í boði Samvinnu- ferðar-Landsýnar með heim- sókn í Euro Disney skemmti- garðinn við París. Euro Di- sney skemmtigarðurinn verður opnaður í byrjun apríl nk. og verður stærðist skemmtigarðurinn í Evrópu til þessa. Við verðlaunaaf- hendingu nú um helgina komu verðlaunahafar sam- an, en þeir eru alls staðar að af landinu, hinn yngsti rétt um eins árs, en barna- fjölskyldur í miklum meiri- hluta. ■ FÉAMKVÆMDA- STJÖRN SUF lýsir áhyggj- um sínum yfir vinnubrögðum ríkisstjórnar landsins. Verk- lag hennar í fjölmörgum málum ber vott um slakan undirbúning og skort á sam- vinnu innan þingflokka hennar. Forysta stjórnar- flokkanna, með forsætisráð- herra í fylkingarbrjósti, legg- ur lítið á sig til að ná sam- stöðu um mál jafnt innan eigin flokka sem og við stjórnarandstöðuna. Slíkir stjómarhættir rýra traust almennings á ríkisvaldinu og skapa öryggisleysi meðal landsmanna, segir í ályktun- inni. ■ FÉLAGSFUNDUR var haldinn í Póstmannafélagi íslands miðvikudaginn 22. janúar sl. I félaginu eru um þúsund manns og vinna þeir póststörf í pósthúsum um land allt. Kjarasamningar póstamannafélagsins hafa verið lausir frá því 1. sept- ember. Félagið lagði fram kröfugerð sína 15. septemb- er og hefur aðeins fengið tvo samningafundi með samn- inganefnd ríkisins. Á þeim samningafundum hefur ekki á verið tekið á neinum þeim þáttum sem í kröfugerðinni eru. Ekkert atriði verið rætt, en formaður samninga- nefndar og aðrir þeir tals- menn hennar sem þar hafa verið, hafa haldið uppi enda- lausu málþófí um skerðingu á veikindarétti, lífeyrisrétti og barnsburðarleyfí. Einnig hefur nefndinni orðið mjög tíðrætt um hagræðingu í störfum opinberra starfs- manna, sem þá gætu komið þeim til góða. Félagsmenn póstmannafélagsins eru eins og allir aðrir opinberir starfs- menn og launþegar orðnir langþreyttir á því að fá ekki kröfugerð sína rædda, Iang- þreyttir á því að þurfa að þola og sitja undir vondum ákvörðunum og skerðingum ríkisstjórnarinnar á velferð fólksins í landinu. Á mjög fjöimennum fundi félagsins kom fram að sterkur vilji er hjá félagsmönnum til að fara í mótmælaðagerðir af ein- hveiju tagi. „Eðlilegur" vinnuhraði gæti m.a. orðið vænleg leið til að vekja ráða- menn til umhugsunar varð- andi störf og laun ^sóst- manna. ■ Á STJÓRNARFUNDI Norræna foreldrafélags- ins gegn vímuefnum (Nord- en Mot Narkotika), sem haldinn var 15.-16. nóvemb- er sl. í Reykjavík, var rætr um starfsemi þeirra aðila sem vilja lögleiða meðferð og neyslu ávana- og fíkni- STORA SVIÐIÐ: IKATTHOLTI eftir Astrid Lindgren Þýðandi leiktexta: Vilborg Dagbjartsdóttir. Þýðandi söngtexta: Böðvar Guðmundsson. Tónlist: Georg Riedel. Hljómsveitarstjóri: Jóhann G. Jóhannsson. Dansahöfundur: María Gísladóttir. Lýsing: Páll Ragnarsson. Leikmynd og búningar: Karl Aspelund. Leikstjóri: Þórhalllur Sigurðsson. Leikarar: Emil: Jóhann Ari Lárusson/Sturla Sighvatsson. Ida: Anita Briem/Álfrún Ömólfsdóttir. Bessi Bjarnason, Margrét K. Pétursdóttir, Gísli Rúnar Jóns- son, Margrét Guðmundsdóttir, Helga Bachmann, Briet Héð- insdóttir, Bryndís Pétursdóttir, Randver Þorláksson, Gísli Alfreðsson, Þór H. Tulinius, Erling Jóhannesson og Þorsteinn Guðmundssson. Frumsýning: mið. 5. feb. kl. 20 2. sýn. lau. 8. feb. kl. 14 3. sýn. sun. 9 feb. kl. 14 4. sýn. sun. 10. feb. kl. 17 5. sýn. mið. 12 feb. kl. 17. RÓMEÓ OG JÚLÍA eftir William Shakespeare Lau. 1. feb. kl. 20. Fim. 13. feb. kl. 20. Lau. 8. feb. kl. 20. Fös. 21. feb. kl. 20. Himeeski!: er aá Sun. 2. feb. kl. 20. Fös. 7. feb. kl. 20. cftir Paul Osborn Fös. 14. feb. kl. 20. Lau. 22. feb. kl. 20, - . ,__ næst síðasta sýn. Æ 3Su eftir David Henry Hwang Fös. 31. jan. kl. 20. Lau. 15. feb. kl. 20. Fim. 6. feb. kl. 20. Fim. 20. feb. kl. 20. LITLA SVIÐIÐ: KÆRA JELENA eftir Ljudmilu Razumovskaju Fös. 31. jan. kl. 20.30 uppselt. Uppselt er á allar sýningar út febrúarmánuð. Ekki er hægt að hleypa gcstum í salinn eftir að sýning hefst. Miðar á Kæru Jelenu sækist viku fyrir sýningu, ella seldar öörum. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ: ÉG HEITI ÍSBJÖRG, ÉG ER IJÓN eftir Vigdísi Grímsdóttur s Lau. 15. feb. kl. 20.30. Sun. 16. feb. kl. 20.30. Fös. 21. feb. kl. 20.30. Sun. 23. feb. kl. 20.30. Fös. 31. jan. kl. 20.30 uppselt. Lau. 1. feb. kl. 20.30 uppselt. Lau. 8. feb. kl. 20.30 uppselt. Sun. 9. feb. kl. 20.30 uppselt. Mið. 12. feb. kl. 20.30 uppselt. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning hefst. Miöasalan cr opin frá kl. 13-18 alla daga nema mánudaga og fram að sýningu sýningardagana. Auk þcss cr tekið við pöntun- uin í síma frá kl. 10 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta - Græna línan 996160. Leikhúskjallarinn cr opinn öll fostudags- og laugardagskvöld. Leikhúsveisla; leikhúsmiði og þríréttuð máltíð öll sýningar- kvöld á stóra sviðinu. Borðapantanir í miðasölu. Leikhúskjallarinn. Munaðarlaus börn í Rúmeníu. efna í Evrópu. Stjórnin vek- ur athygli ríkisstjórna Norð- urlanda á þeirri þróun sem á sér stað. Formælendur slíkrar lögleiðingar neyslu og meðferðar ávana- og fíkni- efna reyna nú að afla málinu stuðnings meðal æðstu manna í sveitarstjórnum, að sögn NMN. ■ HJÁLPARSTOFNUN Ananda Marga á Islandi (Ananda Marga Universal Relief Team-Amurt) vill koma á framfæri þökkum til þeirra sem gáfu litlar eða stórar fjárhæðir til hjálpar- starfs meðal bama í Rúme- níu, Indlandi, Rússlandi, Bangladesh og Litháen. Því Sími 16500 Laugavegi 94 Stórmynd Terrys Gilliam: r„Tvímælalaust ein eftirminnilegasta mynd, sem eg hef séö á árinu. Gott handrit og fráhær leikur." Valdís Gunnarsdóttir. [Bókin Bilun i beinni útsendingu fæst 1 bókaverslunum og söluturnum. Sýnd í A-sal kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.30. Sýnd kl. 5og 11. Bönnuð innan 16. Bönnuð innan 14 ára. Framlag íslands til Óskarsverðlauna. Sýnd í B-sal kl. 7.20 og9. Á myndinni situr Steinunn Halldórsdóttir sem hlaut 1. verðlaun í verðlaunagetraun húsgagnaverslunarinnar Utskála ásamt dóttur sinni. Að baki standa eigendur húsgagnaverslunarinnar Útskála þeir Ingi Ingason og Gunnar Guðmundsson. fé sem safnaðist verður skipt milli ýmiss konar þróunar- verkefna í áðurnefndum löndum, s.s. heimili fyrir munaðariaus börn, skóla og sjúkrahús. Þar sem starfí ÁMURT er haldið uppi af sjálfboðaliðum rennur söfn- unarféð nær óskert til þeirra verkefna sem unnið er að. Það fé sem safnaðist árið 1990 hefur aðallega verið notað til kaupa og endurbóta á húsi í Búkarest sem notað verður sem barnaheimili. ■ NÝVERIÐ var dregið í Verólít unngetm un hús- gagnaversliinarinnar Út- skála, en hún fólst í því að svara tveimur spurningum í bæklingi sem fyrirtækið lét dreifa á höfuðborgarsvæðinu í nóvember sl. og koma svör- um síðan í happakassann í Útskáium. I boði voru hús- gagnavinningar. Eftirtaldir höfðu heppnina með sér: 1. verðlaun: Balmoral borðstof- usett með 6 stólum að verð- mæti kr. 170.800 kr. hlaut Steinunn Halldórsdóttir, Laugavegi 135, Reykjavík. 2. verðlaun: Ingrid 3+1+1 sófasett frá Meaubleco að verðmæti kr. 134.500 hlaut Súsanna Jónmundsdóttir, Hamraborg 34, Kópavogi. 3.-4. verðlaun: Standlampi Evrópa að verðmæti kr. 14.550 hlutu Guðlaug G. Jónsdóttir, Hvassaleiti 26, Reykjavík og Diana S. Svein- björnsdóttir, Stelkshólum 2, Reykjavík. Álls bárust rúmlega 10.000 svarseðlar. ■ FRAMKVÆMDA- STJÓRN SUF harmar stefnu ríkisstjómar hægri flokkanna í menntamálum landsins, segir í ályktun frá sambandinu. f ályktuninni segir, að vikið sé í veigamikl- um atriðum frá nýlegu frum- varpi til laga um grunnskól- ann sem þó hafði náðst breið samstaða um á Alþingi. ■ FRAMKVÆMDA- STJÓRN SUF harmar að- stöðu ríkisvaldsins að vel- ferðarkerfínu, segir í álytun sem blaðinu hefur borizt. „Vegið er að fjölmörgum hópum samfélagsins með skerðingu kaupmáttar, þyngri skattlagningu og minni þjónustu. Hópar eins og almennt launafólk, náms- menn, barnafjölskyldur, ör- yrkjar, aldraðir og sjúkir em látnir bera byrðarnar. Með óréttlátum aðgerðum af þessu tagi er vegið að vel- ferðarkerfí okkar og þróun samfélagsins beint út á hálan ís þar sem hver og einn á að bjarga sjálfum sér, en samhjálpin er látin víkja,“ segir í ályktuninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.