Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 29.01.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1992 wc&mrm n Sagéi kp^-eéa, s&géi '&j gJz/zí, blýlaust benzi*. ? " * Ast er____ ... að gleðjast á afmæl- isdeginum. TM Reg. U.S Pat Otf — all rights reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate SECRET SERVICE. Með morgunkaffínu inn þinn byrjar kl. hálf tíu . . . Tvísköttun Ágæti lesandi, mig langar að vekja máls á þeirri ósanngjörnu stefnu skattayfirvalda að ráðast alltaf á garðinn þar sem hann er lægstur. Núna síðast, fyrir um það bil einu og hálfu ári síðan, var tekin upp sú stefna hjá skattinum að skattleggja meðlagsgreiðslur til þeirra unglinga á aldrinum 18—20 ára sem rétt áttu á þessum greiðsl- um, vegna náms. Dæmið lítur þannig út. Unglingurinn fer í nám á þessum árum, hann býr með öðru foreldri, hitt foreldrið sam- þykkir að borga meðlag á meðan á náminu stendur, þó ekki lengur en í 2 ár, foreldrið sem meðlagið greiðir fær sín laun o£ af þessum launum sínum borgar það skatta og skyldur, síðan borgar það Tryggingastofnun umsamið með- lag sem er í dag 7.425 kr. Tryggingastofnun reiknar síðan aftur skatt af þessrai upphæð sem er nú 39,86% og hafi unglingurinn ekki skilað inn skattkorti er skatturinn umsvifalaust dreginn af, í þessu tilfelli 2.958 kr. og þá er eftir til greiðslu 4.467 kr. Þetta er tvísköttun af grófustu skort og vil ég hér með mótmæla henni harðlega, því að þetta hátterni skattayfirvalda skýtur svolítið skökku við; að láta unglinga borga skatt af vasapeningum sem for- eldrar láta þeim í té í gegnum Tryggingastofnun á meðan örfáir íslenskir milljónamæringar fá frá nokkrum milljónum og upp í tugi milljóna króna í skattfijálsar arð- greiðslur fyrir tugmilljóna króna hlutaijáreign í hinum og þessum hlutafélögum. Út frá þessu vaknar vissulega ein spurning bæði hjá mér og án efa hjá þér lesandi góður, það er spuming sem ég myndi vilja fá svar við. Spumingin er: Hvar fær skattstjóri sínar tekjur? Hjá ríkinu, eða hjá þessum örfáu áðumefndu milljónamæringum? Ég vil engin mótmæli við þessari spurningu, því hún hlýtur að vakna þegar málum er háttað eins og hér er lýst. Takk fyrir. Guðjón Rúnarsson. HIN ANDLEGA SÓL Ef við hugsum okkur sólina þá er hún nauðsynleg hveijum manni. Hún er ávallt til staðar og gerir okkur lífið mögulegt. Við skulum ekki hengja okkur föst við sólina heldur lifa lífinu og vera meðvituð um það sem hún er mik- ilvæg og hvað hún gerir fyrir okkur. Ef við reynum að fela okk- ur fyrir henni, með því að búa í ljóslausum helli,..gætum við það eflaust, en það sér hver og einn Þessir hringdu . ., Athyglisverð kvikmynd Guðlaug hringdi: Ég vil hvetja fólk til að sjá kvikmyndina Aldrei án dóttur minnar sem sýnd er í Bíóborg- inni. Þetta er athyglisverð og lær- dómsrík mynd sem sýnir okkur inn í menningarheim sem mörgum hvernig líf það væri. Við gætum heldur ekki legið í sólbaði allt lífið. Ef við hugsum okkur Guð sem andlega sól, þá er hann ávallt til staðar og hann sendir ást (geisl- ana) sína stanslaust yfir mann- kynið án þess að gera þar nokkurn manna mun. Þannig er mikilvægt fyrir hvern og einn að vera þess meðvitaður alla daga, að Guð er hluti af lífinu finnst undariegur en er þó raun- verulegur. Hálsmen Gullhálsmen með perlu tapaðist fyrir löngu á röntgendeild Borgar- spítalans. Vinsamlegast hringið í síma 33813 ef það hefur fundist. Vettlingar Bleikur vettlingur tapaðist við sundlaugina í Efra-Breiðholti. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 76798. Skór Svartir háhælaðir skór töpuð- ust úr bíl við Sólvallagötu eða á horni Blómvallagötu og Brávalla- götu. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 10806. hvað svo sem við gerum, hugsum og segjum. Þannig eigum við að vera meðvituð um nærveru Guðs hvert einasta augnablik og vera meðvituð um það sem Hann gerir fyrir okkur og lífið án geislanna frá honum væri hið andlega líf, eins og að lifa í skugga þar sem vöxturinn verður veikburða ef hann verður þá nokkur. Þannig er mikilvægt fyrir hvern mann (sem mannkyn) að lifa lífinu í fullri meðvitund um stöðugt út- streymi frá Guði og hneigja höfuð- ið undir vilja hans en á sama tíma að nýta á réttan hátt allt það sem Hann hefur birt og gefið mann- kyninu. Þannig ættum við að geta séð Guð fyrir okkur sem andlega sól sem vermir og nærir allt and- legt og huglægt, sem uppsprettu þess sem stjórnar efninu. Ef and- legur þroski er lítill eða enginn, berum við litla sem enga virðingu fyrir hinu andlega og efninu, sem í raun hefur gert mennina ríka, og notum efnið oft á vafasaman hátt sem er oft í mótsögn vilja Guðs, sem við sjáum birtast í ritn- ingunni birtenda Guðs. Það að slíta einn úr samhengi er það sama og koma í veg fyrir skilninginn á heildinni og tilgangi og áætlun Guðs meðal manna. S.J.- HOGNI HREKKVISI i'þESSl TONKJ LITUK ILLA ÖT ! " Vík\erji skrifar eir sem hlusta á útvarp verða fljótt varir við að umsjónar- menn þátta grípa oft til þess ráðs að vitna í dagblöðin eða fara yfir það, sem þeim finnst fréttnæmast á síðum blaðanna þann daginn. Víkveiji sér ekki ástæðu til að liggja á þeirri skoðun sinni, að honum finnst þetta dæmalaust leiðinlegt útvarpsefni, einkum af þeirri ástæðu, að það er yfirleitt flausturs- lega unnið og alls ekki til þess.fall- ið að gefa hlustandanum neina heildarsýn. í stuttu máli þakkar Víkverji fyr- ir að geta slökkt á viðtækinu eða stillt á aðra útvarpsstöð þegar þessi svokallaða yfirferð yfir dagblöðin hefst í einhveijum morgunþátt- anna. XXX eir sem heimsækja Perluna sjá fljótt, að þar hefur ekki ein- ungis risið glæsilegt mannvirki heldur hefur verið gengið vel frá akvegum að því og bílastæðum. Er unnt að aka að Perlunni frá Bú- staðavegi og komast síðan frá henni eftir nýjum vegi, sem er fyrir sunn- an Bústaðaveg. Þá hefur verið gert hringtorg, sem ekið er um, áður en aftur er haldið upp á Bústaðaveg. Meðfram þessum nýja akvegi hefur síðan verið lögð göngu- eða hjóla- braut og strætisvagn 7, sem fer þarna um, ekur eftir þessum nýja vegi í áttina að Fossvogskirkju- garði. Þar sem vagninn stöðvar næst Perlunni er komið lítið rautt skýli. Ástæða er til að fagna því, hve vel hefur verið gengið frá allri að- stöðu fyrir þá gesti, sem koma ak- andi á eigin bílum eða í strætis- vagni til Perlunnar: Hið sama verð- ur ekki sagt um þá, sem ætla að komast þangað fótgangandi. xxx Eins og áður sagði ekur strætis- vagn 7 inn á hina nýju ak- braut til Perlunnar, þegar hann fer í austurátt, og farþegar hafa þar aðgang að skýli. Þegar vagninn fer í vestur er hann númer 6. Þá ekur hann eftir Bústaðaveginum. Þeir sem ætla að taka hann og koma úr Perlunni lenda í erfiðleikum, því að það hefur greinilega gleymst að leggja göngustíga frá Perlunni að Bústaðaveginum eða gera nokkrar ráðstafanir til að auðvelda fótgang- andi að fara yfir Bústaðaðveginn og frá viðkomustað vagnsins við veginn hefur skýli verið fjarlægt. 1 tengslum við endurnýjun á Bústaðaveginum var hitaveitu- stokkurinn, sem var vinsæl. göngu- leið fjölda manna, rifinn. Enginn göngustígur hefur fyllt skarðið. Lít- ill hellulagður stígur, sem tengdi Háuhlíð við Bústaðaveginn var fjar- lægður og nú þurfa þeir, sem ætla að ganga þar að fara um moldar- flag. Niðurstaða Víkveija af athugun- um hans á þessu svæði er í stuttu máli sú, að við vegaframkvæmdir þar hafi aðeins verið tekið tillit til bílsins og hagsmunir annarra vegf- arandi hafi með öllu verið fyrir borð bornir. Skorar Víkveiji á borg- aryfii’völd að gera nú þegar ráðstaf- anir til að draga úr þessu misrétti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.