Morgunblaðið - 09.02.1992, Page 13

Morgunblaðið - 09.02.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR -9.-FEBRÚAR 1-992 <13 ár og eru árgangar 1984 og 1985 sterkir og einnig árgangar 1989 og 1990 eftir því sem rannsóknir benda til.“ Takmörkuð sókn „Flestir landsmenn munu vita, að ástand íslensku sumargotssíldar- innar hér við land er gott og hefur stofninn stækkað jafnt og þétt frá árinu 1973. Þetta stafar einfaldlega af því að síldveiðar hafa frá 1973 verið takmarkaðar við hæfilega sókn. Markvisst hefur verið unnið að uppbyggingu síldarstofnsins og hefur árangurinn ekki látið á sér star.da," segja þeir Ólafur og Gunn- ar. Hrygningarstofn síldarinnar er nú um 400 þúsund tonn, eða álíka stór og hann hefur verið stærstur síðustu fjóra áratugina. „Raunar er síldin nokkuð sérstök meðal fisk- stofna að því leyti, að hjá henni er að finna nokkuð augljóst samband milli stærðar hrygningarstofns og nýliðunar. Engin ástæða er til að ætla annað en að áframhaldandi skynsamleg nýting stofnsins geti leitt til þess að hann gefi áfram góðan afrakstur. Hinsvegar virðist jafn augljóst, að ef stofninn er veiddur af miklu meiri hörku en nú er gert, þá mun hrygningarstofninn minnka og um leið nýliðun. Ekki má heldur gleyma, að hinn stöðugi síldarafli að undanförnu er því að þakka, að margir árgangar eru í veiðinni á hveijum tíma. Þannig hafa einn eða tveir lélegir árgangar nánast engin áhrif á aflabrögð." Ekki farið að ráðum Sérfræðingar Hafrannsókna- stofnunar benda á að ekki hafi ver- ið farið að ráðum þeirra sem viljað hafa byggja upp þorskstofninn og afleiðingarnar þekktu sjómenn hvað best. „Reynsla íslendinga af upp- byggingu síldarstofnsins og reynsla annarra þjóða, s.s. Kanadamanna og Norðmanna, af uppbyggingu þorskstofna sýnir að þetta er einnig hægt að gera fyrir íslenska þorsk- stofninn. Það er hinsvegar ekki jafn einfalt og áður, fyrst ekki var farið að ráðum Hafrannsóknastofnunar á árunum 1986-1987, þegar lagt var til að stóru árgangarnir 1983 og 1984 yrðu notaðir til að byggja upp þorskstofninn. í staðinn voru þessir stóru árgangar veiddir að mestu áður en þeir náðu kyn- þroska. Nú er staðan sú, að stofn- inn er lítill og von er á hveijum veikum árganginum á fætur öðrum. Á slíkum tímum er mjög erfitt að halda í horfinu, hvað þá að reyna að byggja upp.“ Beitarþol Hafrannsóknastofnun hefur ver- ið gagnrýnd fyrir það að ekki sé tekið tillit til beitarþols fiskimiðana. „í því efni horfa menn gjarnan til beitarþols stöðuvatna, sem er af allt annarri stærðargráðu og er mun fyrr komið að endimörkum beitar- þols í stöðuvatni en í úthafi,“ segir Ólafur Karvel. „Úthafið hefur miklu meiri innbyggða eiginleika til þess að stjórna og hafa áhrif á beitarþol- ið í gegnum ástand sjávar og ástand annarra fiskistofna heldur en gerist í stöðuvatni þar sem eru aðeins einn, tveir eða þrír fiskistofnar. Þannig er sjálfsstýringarkerfið mun virkara í úthafinu en í stöðuvatn- inu. í stöðuvatni er hægt að fá nýliðun á hveiju ári sem ofbýður algjörlega framleiðslugetu þess, en á það fyrirbæri horfum við ekki upp á í úthafinu. Þó ég geti fallist á að grundvallarlögmálin séu þau sömu, er skalinn allt annar. Þess vegna er ekki vænlegt til árangurs að setja jafnaðarmerki þama á milli. Við gerum okkur ljóst að beitarþol- ið er breytingum háð. Við afneitum ekki viðurkenndum lögmálum þó við séum ekki alveg tilbúnir til að samþykkja að þau virki nákvæm- lega eins í úthafinu og í stöðuvatn- inu. Okkur er ljóst að verulegar breytingar liafa orðið í hafinu hringinn í kringum landið sem markast kannski einkum af þeim umskiptum sem urðu á hafísárun- um, 1965-1971, en leiða má að því líkum að þá hafi beitarþolið minnk- að verulega. Hallæri í sjónum - En ef hallæri er í sjónum og beitarhólfið er að fyllast, eru þá ekki líku'r á að litlir fiskstofnar séu færari um að gefa af sér meiri af- rakstur en stórir stofnar? „Jú, það'er alveg hægt að hugsa sér það, en þó er það ekkert sjálf- gefið,“ segir Ólafur Karvel og bæt- ir við að þó einhver vaxtaminnkun eigi sér stað vegna ónógs beitiþols sé samt sem áður hægt að hafa fleiri fiska í sjónum svo út úr stofn- inum komi svipað aflamagn og fengist ef stofninn yrði minnkaður. „I meginatriðum höfum við tvo möguleika á að stjórna veiðunum, annars vegar út frá þorskstofninum sjálfum og hins vegar út frá fæðu- framboði stofnsins. Hvað því við- kemur er nærtækast að takmarka loðnuveiðar með hliðsjón af þeirri fæðuþörf sem við teljum að sé fyrir hendi hjá þorskstofninum, fremur en að ganga í skrokk á þorsk- stofninum sjálfum með grisjun. Árið 1983 voru háværar raddir uppi um það að vegna þess að þorskstofninn færi minnkandi, bæri að grisja til þess að auka vaxta- hraða þeirra fiska sem eftir yrðu. Síðan gerðist það að loðnustofninn tók mjög skarpt við sér á árinum 1984 og 1985 og þá um leið jókst vaxtarhraði þorsksins, menn verða aðeins að hugleiða þann möguleika að hafa nægilega mikið af ungviði til að nýta þá möguleika sem geta opnast skyndilega, sérstaklega vegna þess að loðnustofninn er stofn sem er miklum sveiflum háð- ur. Undanfarin tvö ár hefur hann verið í lægð, en nú sjáum við fram á vaxandi loðnustofn á næsta hausti," segir Ólafur Karvel. Nýliðunarferli Líkan Beverton-Holt gerir ráð fyrir að eftir að hrygningarstofninn hafi náð ákveðinni stærð haldist nýliðun stöðug. Líkan Ricker hins vegar gerir ráð fyrir að nýliðun minnki þegar hrygningarstofninn verður stór. Þorskafli og stofnstærð 1955-1990 Frá 1955 til 1969 er veiðistofninn talinn hafa verið á bilinu 1.400.000 til 2.600.000 tonn, en frá 1969 er veiðistofninn talinn hafa verið á bilinu 800.000 til 1.600.000 tonn. Línuritið sýnir að fylgni er á milli aflamagns og veiðistofn þ.e. stór veiðistofn skilar miklum afla og öfugt. Fjöldi nýliða A Líkan Ricker Líkan Beverton-Holt 200- A Þorskafli 1955-69 100- Stærð hrygningarstofns o Þorskafli 1970-90 °i i i i i i i----------------------------1-----1----1-----r 600 800 1000 1200 1400 1600 1800 2000 2200 2400 2600 Veiðistofn, þús. tonn Hámarksafrakstur ekki fólginn í friðun fisks - segir Jón Kristjánsson, Iiskif ræáingur „Friðunaraðgerðir Hafrannsóknastofnunar drógu snögglega úr afla á smáfiski eins og til var ætlast. En jafnframt fór að draga úr vexti þorsksins og náði stærð eftir aldri lágmarki 1983. Það ár snarminnkaði stofninn og afli var svo lélegur að okkar stóri og tæknivæddi floti náði ekki einu sinni að fiska upp í veiðiheimildir. I framhaldi af þessu voru kvótalögin sett, timabundið, þar til ástand- ið myndi breytast til batuaðar," segir Jón Kristjánsson, fiskifræðing- ur, en hann starfar sjálfstætt og hefur verið ötull við að gagnrýna verndarstefnu Hafrannsóknastofnunar. Að mínu mati leiddi tilraunin til uppbyggingar stofnsins í Ijós að ekki hafði verið fæðugrund- völlur fyrir stækkun stofnsins. Minnkað veiðiálag á yngri árganga leiddi til meiri samkeppni um fæðu sem kom fram í hægari vexti og ■ öðru sem af leiðir eins og auknum náttúrulegum afföllum. Orlög hins fræga 76-árgangs bera þessu glöggt vitni: Sá árgangur mældist í feiknarlegu magni sumargamall, ársgamail og tveggja ára en guf- aði svo upp eins og frægt var. Náttúrulegu afföllin tóku þarna í taumana, það skorti mat og pláss fyrir allan þennan fisk. Rök Hafró við uppbyggingu stofnsins hafa verið þau að hann hafi verið rúmar tvær milljónir tonna upp úr 1950 og það beri að ná honum í þá stærð. Þau rök eru mjög hæpin því möguleg stærð einstakra fiskstofna hlýtur að ráð- ast af ástandi vistkerfisins hverju sinni, svo sem fæðuframboði, stærð annarra stofna og svo fram- vegis. Nýlega hefur gripið um sig mik- il hræðsla vegna þess að svo virð- ist sem nýliðun þorsksins hafi brugðist nokkur ár í röð. Helst er á tali ráðamanna að heyra að dreg- ið verði úr veiðum á hrygningar- fiski strax á næstu vertíð til þess að fleiri fiskar fái að hrygna í þeirri von að það gefi meiri nýliðun. Þó hefur Hafró alltaf sagt að ekki finnist neitt samband milli stærðar hrygningarstofns og nýliðunar. Kennisetningar Hafrannsókna- stofnunar um nýtingu stofna eru tvær: Annars vegar að stór hrygn- ingarstofn sé nauðsynlegur til þess að nýliðun verði mikil og örugg. Hinsvegar að stór stofn sé nauð- synlegur til þess að hámarksaf- rakstur geti náðst. Tvær meginkenningar eru uppi innan fiskifræðinnar um samband hrygningarstofns og nýliðunar. Önnur kenningin, sem kennd er við Beverton og Holt, gerir ráð fyrir að nýliðun aukist með aukn- um hrygningarstofni upp að vissu marki og eftir það nái hún hám- arki. Síðan sé sama hve mikið hrygningarstofninn aukist, nýliðun verði alltaf sú sama. Ekki er gert ráð fyrir að stór hrygningarstofn hafi neikvæð áhrif á afkomenda- fjöldann. Þessi kenning felur það í sér að fkri hrygningarstofninn niður fyrir ákveðin mörk verði við- komubrestur og stofninn hrynji. Fiskifræðingar hafa gjarnan bent á að ekki sé vitað hvar þessi svo- kölluðu „krítísku mörk“ séu fyrir einstaka stofna og þess vegna beri að fara varlega. Hin kenningin, sem kennd er við W.E. Ricker, segir að tengsl hrygningarstofns og afkomenda séu þannig að fyrst vaxi nýliðunin í takt við stærð hrygningarstofns- ins, nái ákveðnu hámarki, og minnki síðan eftir því sem hrygningarstofninn stækkar. Of stór hrygningarstofn geti með öðr- um orðum verið meira tii bölvunar en hitt. Ástæðuna má m.a. rekja til aukinnar innbyrðis samkeppni og sjálfáts. Þegar gögn um stærð hrygning- arstofns og nýliðunar hjá þorski á Islandsmiðum eru skoðuð, er ekki með nokkru móti hægt að sjá að nýliðun vaxi með stærð hrygning- arstofnsins heldur koma sterkir árgangar oftar þegar hann er lítill. Samsvarandi gögn um ýsu sýna að þau falla að ferli Rickers, lítill hrygningarstofn gefur mesta nýliðun og hún er lélegust þegar hann er stærstur. Sama ferli gildir um þorskinn í Barentshafi. Það er því með öllu óskiljanlegt að Hafró skuli enn halda fast við þá kenni- setningu að það þurfi að stækka hrygningarstofninn til þess að tryggja nýliðun. Þá. er það fullyrðingin um að stór stofn gefi hámarksafrakstur. Samkvæmt línuriti, sem sýnir þor- skaflann miðað við stofnstærð hveiju sinni, sést að á meðan afl- inn er á bilinu 300 til 500 tonn, er stofnstærðin að sveiflast á bilinu 800 til 2.600 tonn. Aflinn eykst alls ekki í sama hlutfalli og stofn- stærðin. Enda er það margreynt að mestur afrakstur fæst úr stofn- um af meðalstærð. Ástæðan er auðvitað sú að þá er vaxtarhraðinn mestur og það er hann ásamt nýlið- uninni sem ræður mestu um af- raksturinn. Ekki gefa þessi gögn tilefni til þess að friða fisk fram í rauðan dauðann til þess að „byggja upp“ stofnana svo megi fá úr þeim há- marksafrakstur, seinna. Enda hef- ur þetta „seinna“ aldrei komið og það er alveg sama hve sultarólin verður hert mikið, stofninn mun ekki gefa meira af sér fyrir það,“ segir Jón Kristjánsson. a en vísindum - segir Halldór Hermannsson, verkstjóri á isaffirói „Sú skoðun Hafrannsóknastofnunar um að ástaud þorskstofnsins sé óvenju lélcgt, hefur leitt til þess að veiðar nú hafa vcrið skornar niður um einn sjötta hluta frá því á fyrra ári. Árið 1977 taldi þessi sama stofnun að útlit væri mjög gott fyrir það haust og vcrtíðina 1978. Þær spár brugðust algjörlega. Þorskganga sú, sem koma átti, lét ekki sjá sig. Skýringar á því fyrirbæri voru ekki á takteinuin. Allt síðasta ár hefur þorskveiði verið mjög góð í Barentshafi. Algeng- ur afli á togara var 60 til 70 tonn á sólarhring. Og í febrúar á síð- asta ári veiddu Lófótenbátarnir í Noregi árskvóta sinn á sex dög- um. Fyrir tveimur árum síðan voru þar dauð mið og allt annað var á islcnskum fiskifræðingum og formanni LÍÚ að hcyra þá, en að þar kæmi varla fiskur meir,“ segir Iialldór Hermannsson, verk- stjóri á ísafirði. |álfur annar áratugur er liðinn síðan Svend Aage Malmberg, haffræðingur, skrifaði grein í Ai- þýðublaðið þar sem hann lýsti þeim skoðunum sínum að hiti sjávar og straumaskil í hafinu fyrir norðan ísland réðu mestu um göngu fiskj- ar á miðin umhverfis landið. Hann taldi að kalda sjávartungan, sem kom upp að landinu á árunum milli 19þ0 og 1960, hafi orðið þess vald- andi að síldin hvarf. Þessar skoðan- ir fengu engan hljómgrunn. Þeir, sem stjórnuðu Hafrannsóknastofn- un, stögluðust sífelit á ofveiði sem. væri eina orsökin á minnkandi þorskgengd. Á sl. hausti lét Svend Aage Malmberg til sín heyra um sama efni, varðandi ástand sjávar með tilliti til.fiskgengdar. Ég hef orðið var við að skoðanir hans hafa nú hlotið talsverðan hljómgrunn meðal sjómanna. Nú um jólin lædd- ist köld tunga sjávar inn á Vest- fjarðamið, allt frá Djúpál að Reykj- afjarðarál, 20 mílur frá landi og út. Hitastig lækkaði á nokkrum dögum úr 5 gráðum i 0 gráður á Celcíus. Á þessu svæði er engin fiskur. Á þessum slóðum hefur híýr sjór, 5 til 6 gráðu heitur, verið ríkj- andi í fímmtán mánuði samfleytt sem er eitt lengsta hlýsjávarskeiðið í mörg ár. Það er spuming hvað þessi kalda tunga gerir, en veit Hafrannsóknastofnun af henni? Friðunarráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar hefur nú staðið hátt í tvo áratugi. Þó ekki hafi verið farið eftir þeim í einu og öllu, þá liefur það verið gert í verulegu mæli. Má þar nefna stækkun möskva í trollneti sem er það mesta sem þekkist, miklar lokanir veiðisvæða vegna ungfisks, talsverð friðun hrygningarsvæða og umtalsverð minnkun heildarafla mörg árin. Ég held að óhætt sé að segja að árang- ur hafí vægast sagt verið lélegur ef nokkur. Það sem telja verður mesta áhyggjuefni í sambandi við þorskveiðarnar er hve sjórinn við landið er ætissnauður. Állt æti er horfið af grunnslóð og af venjuleg- um miðum úti á regindýpi. Svona hefur þetta ástand verið um tveggja ára skeið og er enn. Það breytir engu um tilurð þorskstofns- ins hvort reynt verður að veiða 20 til 30 þúsund tonnunum meira eða minna. Þorskurinn vill einfaldlega ékki vera þar sem ekkert æti er. Skoðun mín er sú sama og fjöl- margra annarra Vestfirðinga. Við hefðum átt og eigum að miða þorskveiðar okkar við 325 þúsund tonn árlega, sem er fyrir neðan það sem ætia má að íslandsmið beri.en- „saga fiskveiðanna" hefur kennt okkur að raunhæfur þorskafli ár- lega sé 350 til 400 þúsund tonn. Með því hefðum við losnað við óæskilegar sveiflur í afla, bæði upp á við og niður á við. Geysimikiil afli árlega hefur ævinlega komið okkur í koll síðar. Hinsvegar er ársafli, sem ekki er meiri en 250 til 260 tonn, skelfilegur. Á síðast- liðnum 20 árum sem loðnuveiði hefur verið stunduð að einhveiju marki, virðist 750 til 800 þúsund tonna afli, vera ákjósanleg veiði. Það ættum við að ákveða árlega, en ekkert fram yfir það, enda þótt horfur þættu góðar. Stöðvun loðnu- veiða algjörlega árið 1982 og svo að verulegu leyti á síðastliðnu ári, er eitthvert mesta hneyksli, sem átt hefur sér stað í íslenskri fisk- veiðisögu. Þar voru 30 loðnuverk- smiðjur og jafnmörg skip því sem næst sett á hausinn, að ástæðu- lausu. Sú staðreynd að við skuluni ekki hafa efni á því að láta fiski- fræðinga okkar fylgjast með loðnu- göngunum er furðulegri en orð fá lýst,“ segir Halldór Hermannsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.