Morgunblaðið - 09.02.1992, Side 27

Morgunblaðið - 09.02.1992, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1992 Nanna Olafs- dóttir - Kveðjuorð Góður vinur hefur kvatt þetta líf og söknuðurinn er sár. En söknuður er jafnan í réttu samhengi við_ gildi þess sem genginn er. Nanna Olafs- dóttir lést 30. janúar, 77 ára að aldri, eftir skammvinn veikindi. Segja má að hún hafi kvatt í fullu fj'öri og miðju verki, en hún vann að því að undirbúa bréf Baldvins Einars- sonar til útgáfu. Nanna var fædd í Reykjavík 28. janúar 1915, dóttir hjónanna Ólafs Gunnarssonar læknis (Ólafssonar frá Ási í Hegranesi) og Rögnu Gunnars- dóttur (Gunnarssonar kaupmanns í Reykjavík). Nanna’ólst upp fyrst á Hvammstanga til 8 ára aldurs og síðan í Reykjavík en þangað fluttist fjölskyldan er heimilisfaðirinn varð að láta af störfum sern héraðslæknir vegna heilsubrests. Ólafur lést fyrir aldur fram þegar Nanna var 12 ára gömul, elst 6 systkina. Systurnar voru tvær auk Nönnu, Sigrún sem lifir ein systkina sinna og Kristín sem lengi var sjúklingur og lést fyrir fáum árum. Bræðurnir voru þrír, Gunnar, Björn og Ólafur er allir létust í blóma lífs síns. Nanna ólst upp í miðbæ Reykjavíkur, fyrst á Laugavegi í húsi Laugavegsapóteks, þá í Hafnar- stræti í skjóli móðurafans, og síðan á Hverfisgötu. Nanna hlaut hefð- bundna barnamenntun og lauk barnaprófi frá Barnaskóla Reykja- víkur (Miðbæjarskólanum). Stúdentsprófi lauk hún frá Menntaskólanum í Reykjavík 1934. Eftir það og þegar á námsárunum vann hún við skrifstofu- og banka- störf í Landsbankanum allt til ársins 1947. Og það má segja að snemma beygðist krókurinn, í starfsmanna- blaði Landsbanka Islands sem' kom út um sama leyti og Nanna lést er mynd, á baksíðu, tekin á Þingvöllum 1946 og þar segir í myndatexta: „Starfsstúlkur aðalbanka Lands- bankans kveðja Nönnu Ólafsdóttur, sem var frumkvöðull í baráttu fyrir launajafnrétti kvenna í bankanum“. Nanna hóf nám í íslenskum fræðum við Háskóla íslands 1947, las við Kaupmannahafnarháskóla 1951 —3. Lauk mag. art. prófi frá Háskóla ísiands haustið 1958 og fjallaði loka- prófsritgerð hennar um Baldvin Ein- arsson. Hann hefur löngum fylgt henni síðan. Bók skrifaði hún, sem byggir á þeirri ritgerð: „Baldvin Ein- arsson og þjóðmálaskrif hans“, kom út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi árið 1961 og bréf Baldvins Einars- sonar til föður síns Einars Guð- mundssonar bjó hún til prentunar og birti í Skagfirðingabók 1983. Hún hafði í mörgu að snúast á námsárun- um, hafði mikil afskigti af stjórnmál- um og sat í borgarsfjórn Reykjavíkur fyrir Sósíalistaflokkinn, fyrst sem varafulltrúi árin 1950-2 og aðalfull- trúi 1952-4. Hún fór til Kína sem borgarfulltrúi. Lengi minntist hún þeirrar ferðar og oft varð henni á orði: „Dæmalaust merkir Kínakall- ar“, og segir frá þeim ferð í Mel- korku í mars 1953. Melkorka tíma- rit kvenna kom út frá í maí 1944- 1962. Nanna skrifaði töluvert í það blað, fyrsta greinin eftir hana birtist í nóvember 1945 og enn meira skrif- aði hún eftir að hún varð ritstjóri í júní 1949, þegar blaðið kom aftur út eftir tveggja ára útgáfuhlé og var hún ritstjóri þess svo lengi sem það kom út. Þar var hún í góðum sel- skap; Þóru Vigfúsdóttur, Málfríðar Einarsdóttur, Petrínu Jakobsdóttur, Katrínar Thoroddsen og margra fleiri kvenna, sem of langt mál væri upp að telja og urðu þessar konur ævar- andi vinkonur hennar. Það var fyrst og fremst jafnréttisbaráttan, barátt- an fyrir bættum hag kvenna og barna, sem átti hug hennar allan. Hún hafði óbilandi trú á konum og gladdist yfir hvetju einu sem konur gerðu og henni þótti horfa til fram- fara. Hún vildi helst ekki þurfa að trúa neinu illu upp á kvenmann og ef hún þurfti að gera það, taldi hún líklegast að þar væri karlmaður á bak við. Því lá það beint við að kjósa Kvennalistann þegar hann kom fram, þó hún væri dyggur sósíalisti alla sína tíð og segði alltaf um Alþýðu- Vilborg Þorvarðar- dóttir - Minning Fædd 29. maí 1899 Dáin 25. janúar 1992 Ástkær amma okkar lést að morgni 25. janúar sl. að Sólvangi í Hafnarfirði. Hún var jarðsett 3. febrúar í kyrrþey að eigin ósk. Amma fæddist 29. maí 1899 í Gróttu á Seltjarnarnesi þar sem hún ólst upp. Foreldrar hennar voru hjón- in Þorvarður Einarsson frá Stöðlum í Ölfusi, vitavörður og Guðrún Jóns- dóttir frá Morastöðum í Kjós. Þau eignuðust íjögur börn, Guðrúnu, hús- freyju i Oddgeirsbæ í Reykjavík, Albert, vitavörð í Gróttu, en þau eru bæði látin, ömmu og Ástu, fyrrum húsfreyju á Sólvangi á Seltjarnar- nesi. Ásta dvelst nú á Sólvangi í Ilafn- arfirði. Guðrún og Þoivarður tóku að sér kjördóttur, Sigríði, húsfreyju á Ti-yggvastöðum á Seltjarnarnesi, sem einnig er látin. Amma giftist afa okkar, Sigmundi Friðrikssyni, 6. júní 1931. Afi starf- aði sem bifreiðastjóri, lengst af hjá Eimskipafélagi íslands. Hann var einn af stofnendum vörubílstjórafé- lagsins Þróttar. Amma og afi eignuð- ust fjórar dætur, Ingveldi, gift Grét- ari Sigurðssyni. Ingveldur var tví- buri, en systir hennar dó í fæðingu. Svövu Erlu, gift Flemming Andres- en, búsett í Bandaríkjunum, Guð- rúnu, gift Valdimar K. Jónssyni. Barnabörn afa og ömmu urðu tíu, en eitt lést af slysförum árið 1990. Barnabarnabörn eru nú sjö. Amma og afi bjuggu fyrstu árin sín á Ránargötu en lengst af á Hjarð- arhaga. Afi lést árið 1985, þá 87 ára að aldri. Amma hélt heimili fram til 88 ára aldurs. Amma var mikil húsmóðir og hafði gaman af að fá fólk í heimsókn, enda var ætíð gestkvæmt hjá þeim. Heimili ömmu og afa var hlýlegt og fallegt og ávallt vorum við barna- börnin tekin opnum örmum. Var mikil eftirsókn að fá að gista hjá þeim um helgar. Þá höfðu þau ofan af fyrir okkur til að gera dvölina sem ánægjulegasta, hvort sem var við spilamennsku eða þá að ræða um daginn og veginn. Oft fengum við að heyra sögur frá æskuárum þeirra. Ósjaldan leiddi amma okkur barna- börnin um „Grótturíki", eins og hún nefndi það, þar tíndum við skeljar og hlustuðum af aðdáun á frásagnir hennar af bernsku sinni þar. Amma var aldrei aðgerðarlaus, og hafði hún gaman af útsaum og í dag má sjá margt fallegt eftir hana á heimilum dætra hennar. Langt fram eftir aldri gekk hún rösklega um bæinn og hafði gaman af því að skoða í verslanir og sjá mannlífið. Er við barnabörnin urðum henni samferða um bæinn var oft komið við á kaffihúsi til að fá sér rjóma- kökusneið og heitt súkkulaði. Ömmu þótti gaman að elda góðan mat og þau voru ófá skiptin sem hún bauð fjölskyldunni ti! veislu og er við höfðum lokið við að borða, mátti strax finna angan af yndislegum pönnukökum sem amma gat ein gert. Hún lagði alltaf mikið upp úr því að enginn færi ómettur úr sínu húsi. Við munum minnast ömmu okkar með hlýhug og væntumþykju. Minn- ingin um góða konu ristir djúpt í hjörtum okkar. Þyri, Orn, Vilborg Erla og Jón Rafn. bandalagið og það sem því tilheyrði: flokksi, mínir menn og blaðið okkar. Og ekki þurfti hún að lifa að blaðið hennar hætti að koma út. Að háskólanámi loknu starfaði Nanna í áratug sem bréfritari hjá Borgarfelli. Hún réðst svo til starfa á handritadeild Landsbókasafns 1968, frá 1. janúar að telja. Grímur M. Helgason tók um sama leyti við stöðu forstöðumans deildarinnar af Lárusi Blöndal, sem þá varð borgar- skjalavörður. Tókst með þeim hið ágætasta samstarf sem hélst til dauðadags Gríms, en í áratug voru þau einu föstu starfsmenn handrita- deildar með opnunartíma frá 9-7 alla daga nema sunnudaga. Helstu störf Nönnu A handritadeild voru skráning bréfasafna, afgreiðsla gesta og taldi hún ekkert eftir sér við að leysa mál þeirra, hvaðeina sem þá vanhagaði um. Auk þessa fór hún yfir svo til allan safnkostinn, kann- aði og skráði ástand handritanna og valdi úr þau handrit sem brýnast þurftu viðgerðar við. Hún var í fullu og föstu starfi til ársloka 1985 þegar hún fyrir aldurs sakir lét af því en var áfram í hlutastarfi til haustsins 1990. Nanna deildi heimili með systur sinni, Kristínu, svo lengi sem Kristín gat búið í heimahúsi, en hún þjáðist af mænusiggi og var Nönnu afar annt um hag þessarar systur sinnar. Eftir að ég kynntist Nönnu bjó hún ein, oftast, en systkinabörn hennar bjuggu stundum hjá henni um lengri eða skemmri tíma, stundum heil fjöl- skylda. Þótt hún eignaðist ekki af- komendur komu systkinabörn henn- ar í sama stað. Nanna átti fallegt heimili sem stóð öllum vinum og vandamönnum opið og bar það vitni áhugamálum hennar mörgum. Það var fagurlega prýtt listaverkum enda hafði Nanna áhuga á hverskyns myndlist. Hún átti góð hljómflutn- ingstæki hafði Iöngu eignast geisla- spilara og sótti hún ötullega tón- leika, leikhús og aðra listviðburði. Hún las mikið og átti gott bókasafn og fylgdist vel með bæði í sínum fræðum og heimsviðburðum. Hún ferðaðist víða utanlands og innan einkum á yngri árum. Til Bandaríkj- anna fór hún á bankaárunum, í námsferðalag og dvaldi þar fyrri hluta árs 1942 og hún fór til Kína eins og áður segir, en einnig til Rúss- lands, Egyptalands og fleiri landa. Ilún skrifaði töluvert alla tíð fyrst í Melkorku, en einnig fræðigreinar í Andvara, Skírni, Árbók fornleifafé- lagsins og eftir að hún réðst til Landsbókasafns í Árbók þess, fyrstu greinina árið eftir að hún kom til starfa þar 1969. Síðasta grein henn- ar birtist í Árbókinni 1988 eftir að Nanna var komin í hlutastarf en það var grein um Halldóru Bjarnadóttur heimilisráðunaut. Þegar hún lést var hún í miðju kafi að búa bréf til Bald- vins frá Kristrúnu Jónsdóttur unn- ustu hans til birtingar, en að því verki vann hún eftir að hún hætti með öllu launastarfi. Eftir að leiðir okkar lágu saman á handritadeild árið 1980, tókst með okkur vinátta sem stöðugt óx og aldrei bar skugga á. Enda var Nanna einstök kona: hún var geðgóð, glað- sinna og áreitnislaus, hélt alla tíð með lítilmagnanum, einkum þeim sem aðrir lögðust á. Börn höfðu næstum alltaf rétt fyrir sér að henn- ar mati og í hennar munni voru þau: „Litla hjartað" og fannst henni þau eiga mjög undir högg að sækja í okkar þjóðfélagi. Hún var mjög sjálf- stæð og sjálfri sér næg en engu að síður mannblendin og gladdist með glöðum á góðri stundu. Hún ræktaði vináttuna og vinir hennar voru á öll- um aldri, hún talaði ævinlega við börn og unglinga eins og jafningja. Hún þekkti sín takmörk og ætlaði sér aldrei um of, hún var metnaðar- full en ekki metnaðargjörn og æðrað- ist ekki. Vildi ekki eiga í illdeilum en erfði ekki heldur misgjörðir. Óvenju heilsteypt og vel gerð sem og samstarfsmaður hennar og vinur Grímur M. Helgason. Égtel mig láns- manneskju að hafa fengið að deila með þeim dögum og eiga vináttu þeirra. Séu bæði sæl kvödd og megi orðstír þeirra lifa með vinum og í hjörtum þeirra sem þau voru kær. Sjöfn Kristjánsdóttir. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- , is- og ininningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með • góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA SIGURÐARDÓTTIR, Hrafnistu, áður Smyrilsvegi 22, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn 10. febrúar kl. 13.30. Stella Thomas, Guðbjartur Ásgeirsson, Einar Ásgeirsson, Sigurður Ásgeirsson, Þórir Ásgeirsson, Jerry Thomas, Paola Ásgeirsson, EinaraMagnúsdóttir, Marý Ói.afsdóttir, Oddný Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GERD HALLVARÐSSON, sem lést 2. þ.m. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 11. febrúar kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Birgir Sigurjónsson, Hallvarður Sigurjónsson, Helga María Sigurjónsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðursystir mín og ömmu- systir okkar, JÓHANNA GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR, áður til heimilis Laugaveg 39, lést 29. janúar sl. á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd vandamanna Lára Ásgeirsdóttir, Ruth Sörensen, Hanna Rún Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.