Morgunblaðið - 09.02.1992, Side 21

Morgunblaðið - 09.02.1992, Side 21
MOKGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. FEBRUAR 1992 21 Morgunblaðið/Stefán Snúlla á Efri-Brunná sem mjólkaði allra kúa mest í fyrra og setti nýtt íslandsmet. Mesta ársnyt kúa frá upphafi skýrsluhalds: Snúlla 61 frá Efri- Brunná mjólkaði yfir 10 þúsund kg AFURÐAHÆSTA kýrin á síðasta ári var Snúlla 61 á Efri-Brunná í Saurbæjarhreppi, Dalasýslu, en hún mjólkaði 10.259 kg, og er það nýtt Islandsmet. Fyrra met átti Fía 153 á Hríshóli í Eyjafirði, en hún mjólkaði 9.551 kg árið 1983. Eigandi Snúllu er Sturlaugur Eyjólfsson, og var hann með afurðahæsta kúabúið á landinu í fyrra, en kýr hans mjólkuðu að meðaltali 6.468 kg, og er þar jafnframt um nýtt íslandsmet að ræða. Meðalársnyt kúa í fyrra var sú mesta frá því skýrsluhald nautgriparæktarfélaganna hófst, eða 4.179 kg mjólkur að meðaltali. Sturlaugur Eyjólfsson sagðist í samtali við Morgunblaðið meðal annars þakka hagstæðu tíðarfari og góðum heyjum það hve kýrnar hans mjólkuðu vel á síðasta ári, og einnig hefði kynbótastarfíð skilað árangri. Sturlaugur er með rúmlega meðalbú, eða 120 þús. lítra fullvirðisrétt, og yfírleitt með 20-25 kýr. Hann er eingöngu með kúabúskap og dálítið kálfaeldi. „Ég er eingöngu með bundið þurrhey og fóðurbæti, en hvorki vothey né rúllur. Það hafa verið mjög góð hey síðustu tvö árin, og það hjálpar auðvitað til að fá góða nyt. Fóðurbætisnotkun hjá mér hefur verið svipuð undanfarin ár, en sú sem mjólkaði mest núna fékk nokkuð mikinn fóðurbætir. Afkoman af búinu er alveg þokka- leg þar sem ég er með gamlar fjárfestingar og litlar skuldir, en í þessu eins og öðru munar það öllu hvort menn eru með gamlar eða nýjar fjárfestingar," sagði hann. Mesta ársnyt frá upphafi skýrsluhalds Ársnyt í fyrra var sú mesta frá því skýrsluhald nautgriparæktar- félaganna hófst, eða 4.179 kg mjólkur að meðaltali. Það er 38 kg meira en árið 1990, sem var metár, en þá gáfu kýmar að með- altali af sér 136 kg meira en árið 1989. Jón Viðar Jónsson, ráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands, sagði að afurðaaukningin á síðasta ári væri sérstaklega mikil í ljósi þess að kjarnfóðurnotkun hefði þá enn dregist saman, en samdrátturinn var að meðaltali um 12% á grip. „Síðastliðið ár var einnig ein- stakt til framleiðslu vegna hag- stæðs tíðarfars, og þá hefur rækt- unarstarfið sem við höfum unnið að skilað sér sérstaklega vel við þessar aðstæður. Það er því sam- virkni allra þátta sem tryggir þennan árangur," sagði hann. Snúlla á Efri-Brunná, sem mjólkaði mest í fyrra, er dóttir Þorra 78001, og sem fyrr segir mjólkaði hún 10.259 kg. í öðru sæti varð Búbót 145 á Raufar- felli, A-Eyjaíjallahreppi, en hún mjólkaði 9.204 kg, og í þriðja sæti var Barbara 150 á Nýabæ, Andakílshreppi, sem mjólkaði 9.007 kg. Aðrar kýr sem mjólkuðu yfír 8.000 kg eru Rák á Gautlönd- um, Mývatnssveit, Kolgríma á Oddgeirshólum, Hraungerðis- hreppi, Mjöll og Hosa á Litlu- Tungum, Holtum, Skjalda á Minni-Hattardal, Súðavík, Skvetta á Syðri-Bægisá, Öxnadal, Laufa á Efra-ási, Hólahreppi, Frekja á Holtsdal, Eyjafjarðar- sveit, Stjama á Miðkoti, V-Lan- deyjum, Pía á Dýrastöðum, Norð- urárdalshreppi, og Skúta á Gröf, Breiðuvík. Bestu meðalafurðirnar voru sem fyrr segir 6.468 kg hjá Stur- laugi Eyjólfssyni á Efri-Brunná. í öðm sæti varð bú Guðlaugs Jónssonar á Voðmúlastöðum, A- Landeyjum, en kýmar hans mjólkuðu 6.175 kg að meðaltali. Önnur afurðahæstu búin eru: Klemens Halldórsson, Dýrastöð- um Norðurárdal, Viðar Þorsteins- son, Brakanda, Skriðuhreppi, Hallsteinn Haraldsson, Gröf, Breiðuvík, Jón og Sigurbjörg, Búrfelli, Ytri-Torfustaðahreppi, Iðunn Jónmundsdóttir, Örnólfs- dal, Þverárhlíð, Félagsbúið Holts- eli, Eyjafjarðarsveit, Reynir Gunnarsson, Leirulækjarseli, Álftaneshreppi, og Félagsbúið Efri-Brúnavöllum II, Skeiðum. Ráðunautafundur 1992: Staða landbúnaðar í ljósi nýrra viðhorfa Á ÁRLEGUM ráðunautafundi Búnaðarfélags íslands og Rannsóknar- stofnunar landbúnaðarins, sem hefst á mánudag og lýkur á föstu- dag, verður fjallað um stöðu landbúnaðar og dreifbýlis í ljósi nýrra viðhorfa. Fjallað vðTður um þær breytingar viðræðna um evrópskt efnahags- sem verða á rekstrarumhverfi land- svæði. búnaðarins og úrvinnslugreina hans þegar nýr búvörusamningur tekur gildi næsta haust, og jafnframt stöðu landbúnaðarins með tilliti til Fundinn sitja ráðunautar búnað- ar sambandanna, landsráðunautar, bændaskólakennarar og sérfræðing ar RALA. GATT-samkomulags og samninga- Greinargerð um brottnám og ígræðslu líffæra: Samvinna við ígræðslu- miðstöðvar undirbúin Stutt í endanlega ákvörðun segir Páll Asmundsson yfirlæknir Öfullnægjandi upplýsingar frá ígræðslusjúkrahúsum í London eru nú það sem helst tefur að taka megi ákvörðun um hvaða ígræðslumiðstöð íslendingar muni eiga samstarf við í framtíð- inni. Hugmyndin er að skipta ein- ungis við eina ígræðslumiðstöð og myndi hún sjá um að sækja hingað líffæri úr nýlátnu fólki og koma þeim til hentugra líf- færaþega. I staðinn myndi mið- stöðin taka Islendinga á biðlista og veita þeim sömu ígræðsluþjón- ustu og fólki i viðkomandi landi. Nefnd á vegum læknaráðs Borg- arspítala, Landakotsspitala og Landspítala um brottnám líffæra og ígræðslu líffæra telur að til greina komi að ganga til sam- starfs við 3 norræn sjúkrahús auk Royal Brompton-sjúkrahússins í London. Norrænu sjúkrahúsin skipta öll við Scandiatransplant stofnunina sem sér um dreifingu ígræðslulíffæra á Norðurlöndun- um en þaðan hafa komið flest þeirra nýrna sem grædd hafa verið í íslenska sjúklinga í 20 ár. Páll Ásmundsson, yfírlæknir á Landspítalanum og formaður nefnd- arinnar, sagði að kveikjan að hlut- verki hennar væru lög frá því í mars á síðasta ári þar sem opnuð- ust möguleikar á að fjarlægja líf- færi úr nýlátnu fólki til ígræðslu. Störf nefndarinnar hefðu miðað að því að gera tillögur um hvernig nýta mætti líffæri samkvæmt lögum þessum. Þó ekki hafí áður verið tekin líf- færi til ígræðsju úr íslendingum hafa allmargir íslendingar gengist undir líffæraígræðslur á erlendri grund. Má þá sérstaklega nefna að rúmlega 40 íslendingar hafa fengið nýru úr nýlátnum á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn í gegnum Scan- diatransplant stofnunina án þess að nokkur líffæri kæmu á móti og grædd hafa verið 3 hjörtu í íslend- inga á vegum dr. Magdi Yacoub á Royal Brompton-sjúkrahúsinu í London. Þá hafa 2 lifrar verið græddar í Kings Collega Hospital í London og 1 í Pittsburgh. Ólíklegt að íslensk líffæri verði grædd í íslendinga Engu að síður er sá fjöldi fólks sem árlega þarf á nýjum líffærum að halda ekki nægilega mikill til þess að nefndin telji ráðlegt að hefja hér ígræðslu að svo stöddu. Hún leggur hins vegar til að leitað verði eftir samstarfí erlendis. „Við mælum með sambandi við eina ígræðslumiðstöð erlendis og myndi hún sjá um að sækja hingað líffæri með mjög stuttum fyrirvara, taka þau út með sér aftur og græða í hentugan líffæraþega," sagði Páll Ásmundsson í þessu sambandi. „Annars er skylt að benda á að það yrði algjör tilviljun að íslenskt líf- færi hentaði íslendingi af biðlista. Hvað samstarfíð við ígræðslustöð- ina varðar mundum við á móti vilja að hún tæki alla íslendinga á bið- lista hjá sér hvaða ígræðslulíffæri sem þá vantaði og að þeir nytu sömu réttinda og fólk á staðnum.“ Hér má bæta því við að líklega verður hægt að nýta líffæri úr 8-10 íslendingum með umtöluðum hætti árlega og svarar sá fjöldi nokkurn veginn til þarfa okkar fyrir ígræðsl- ulíffæri. Líffæri úr einum manni geta bjargað allt að 5 líffæraþegum. Ekki mælt með útgáfu gjafakorta Fjallað er um ýmsa þætti er tengj- ast líffæraflutningi í greinargerð og tillögum nefndarinnar. Má þar nefna umfjöllun um hvaða sjúkrahús skuli leggja fram líffæri og kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurspítalarnir þrír ættu í byijun að leggja til þau líffæri sem nýtileg verða. Þá er lögð áhersla á Páll Ásmundsson yfirlæknir á Landspítala og formaður nefnd- ar um brottnám og ígræðslu líf- færa. þátt heilbrigðisyfirvalda í almenn- ingsfræðslu um brottnám líffæra til ígræðslu og fræðslu til starfsfólks sjúkrahúsa. Ekki er mælt með út- gáfu gjafakorta (donor cards) af hálfu heilbrigðisyfirvalda þar sem reynslan sýni að þau skili fáum líf- færum og leyfís sé hvort sem er Ieitað hjá ættingjum hins látna. Hins vegar segir að tæpast verði amast við dreifingu slíkra korta á vegum samtaka eða einstaklinga enda geti þau vakið gagnlegar um- ræður. Nefndin leitaði til 5 sjúkrahúsa vegna hugsanlegs samstarfs um brottnám líffæra hérlendis ,og ígræðslu í íslenska sjúklinga. Þau eru Rigshospitalet í Kaupmanna- höfn, Rikshospitalet í Osló, Sahl- grenska sjukhuset í Gautaborg, Akademiska sjukhuset í Uppsölum og Royal Brompton og Kings Coll- ege Hospital í London. Akademiska sjukhuset hefur nú helst úr lestinni og Páll Ásmundsson segir að enn hafí ekki borist fullnægjandi upplýs- ingar um þjónustu Lundúnasjúkra- húsanna. „Það má eiginlega segja að beðið sé þessara upplýsinga til þess að hægt sé að taka ákvörðun um samstarf," segir hann.„Allar njóta ígræðslumiðstöðvar þessar álits og hafa sýnt góðan árangur. Margs er þó að gæta við valið og verður það hlutverk heilbrigðisyfir- valda.“ Skyldum að gegna við Scandiatransplant Öll norrænu sjúkrahúsin skipta við Scandiatransplant og er ítrekað í greinargerð nefndarinnar að Ís- lendingar eigi skyldum að gegna gagnvart hinni samnorrænu stofn- un. Segir orðrétt í kafla um mat á innsendum tilboðum: „Við höfum notið góðs af starfi þeirrar stofnun- ar um 20 ára skeið, þar sem eru flest þeirra rúmlega 60 nýrna sem grædd hafa verið i íslenska sjúkl- inga, en aldrei höfum við lagt þar nein líffæri af mörkum. Við höfum átt fullgildan fulltrúa í mörg ár f norrænu ígræðslunefndinni, sem er eins konar stjórnarnefnd Scandiatr- ansplant. Hefur þessi starfsemi ver- ið talin lýsandi dæmi um samstarf Norðurlandaþjóða eins og það gerist best. Hagsmunum okkar virðist vel borgið innan ramma þessarar stofn- unar.“ í nefndinni sátu, auk Páls, pr. Jónas Magnússon, Landspítala, dr. Ólafur Jónsson, yfírlæknir á Borg- arspítala, Torfí Magnússon, sér- fræðingur í taugasjúkdómum, Borg- arspítala og Viðar Hjartarson, yfír- læknir á Landakoti. Mjög falleg og ljóðræn tónlist - segir Marta G. Halldórsdóttir sem syngur einsöng 1 Máríuvísum MARTA G. Halldórsdóttir syng- ur einsöng með Kór Mennta- skólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkómum í Máríuvís- um eftir Hróðmar I. Sigur- björnsson í Hallgrímskirkju mánudaginn 10. febrúar kl. 19.10. Verkið er hluti af tónlist- ardagskrá í tilefni 1100 ára sönghefðar á íslandi. Tónleik- unum verður útvarpað beint til 20 Evrópulanda í samvinnu við Evrópubandalag útvarpsstöðva. Marta stundaði söngnám í Tón- listarskólanum í Reykjavík undir leiðsögn Sieglinde Kahmann og lauk þaðan einsöngvaraprófi 1988. Um haustið hóf hún nám í tónlistarháskólanum í Múnchen í Þýskalandi. Þar nemur Marta hjá Daphne Evangelatos. Þegar spurst var fyrir um Már- íuvísurnar sagði Marta að þær væru af andlegum toga. „Þær eru eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson við texta Lilju eftir Eystein munk. Tónlistin er hljómmikil og byggist á hljómaklösum fremur en melód- íum. Hún er mjög falleg og ljóð- ræn,“ sagði hún. Marta reiknar með að halda áfram námi í Múnchen næsta vet- ur. Hvað þá tekur við er ekki ákveðið. „Það er erfitt að fá vinnu úti um þessar mundir. Allt er að fyllast af Bandaríkjamönnum og Áustur-Evrópubúum. Annars verður að vaða á þennan markað Marta G. Halldórsdóttir vegna þess að því er ekki endilega þannig farið að besti söngvarinn fái hlutverkin heldur er spurningin oft um réttan mann á réttum stað,“ sagði hún og bætti við að algengt væri að samið væri til skamms tíma í einu þannig að hægt væri að ráða nýtt fólk og komast hjá því að hækka_ laun þeirra sem fyrir væru. „Ég er svona að hugsa minn gang. Hvort ég eigi að fara þessa hefðbundnu leið og syngja fyrir umboðsmenn eða reyna að koma hingað heim í baslið," segir hún létt í bragði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.