Morgunblaðið - 09.02.1992, Page 16

Morgunblaðið - 09.02.1992, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1992 - SEGIR SIGHVATUR BJÖRGVINSSON HEILBRIGÐISRÁÐHERRA eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur TÖLUVERT hefur mætt á heilbrigðisráðherranum okkar að undanförnu í kjölfar samþykktar „bandormslaganna“ umtöluðu á Alþingi. Heilbrigðisráðherrann þarf, eins og aðrir ráðherrar ríkisstjórnar, að beita niðurskurðarhnífn- um óvægið, ef takast á að ná fram þeim sparnaði, sem boðaður er. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti er fjárfrekasta ráðuneyti þjóðarinnar. Þangað fer um 40% af fjárlögum hvers ár. Þrátt fyrir það hafa margir gagn- rýnt harkalegar aðgerðir gagnvart þeim stofnunum, sem undir ráðuneytið heyra. Því er haldið fram að niðurskurður- inn komi fyrst og fremst niður á þeim sem síst skyldi, sjúk- um, börnum, gamalmennum og öryrkjum. „Þetta eru skref, sem við erum neyddir til að stíga. Þetta eru hvorki fljót- fæmislegar né vanhugsaðar ákvarðanir. Þetta em erfiðar ákvarðanir, sem skerða lífskjörin. Ég er ekkert að draga dul á það. En við emm að reyna að framkvæma þetta eins og best við getum þannig að þeim, sem minnst mega sín, verði hlíft,“ segir Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráð- herra, í samtali við Morgunblaðið. Heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytinu er gert að spara 3,4 til 3,6 milljarða króna af tæpum 44 millj- örðum,- sem fara áttu til heilbrigðis- og tryggingamála, áður en frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum var samþykkt á Alþingi 23. janúar sl. í stórum dráttum á sparnaðurinn að skiptast þannig: Almennur rekstur 90 milljónir, sjúkrahús á höfuðborg- arsvæðinu 460 milljónir, sjúkrahús á landsbyggðinni 60 milljónir, gjald- taka af heilsugæslustöðvum, sjúkra- húsum og sérfræðingum 600 millj- ónir, lækkun á elli- og örorkulífeyri 300 milljónir, lyfjakostnaður 800 milljónir, stofnkostnaður 60 milljón- ir, ferðakostnaður 100 milljónir, Framkvæmdasjóður aldraðra 140 milljónir, tannlæknakostnaður 270 milljónir, auk ýmislegs annars. En mestu fjaðrafoki undanfarið hefur valdið 5% flatur niðurskurður á öllum sjúkrastofnunum landsins, sem ætlað er að spara um 1.250 milljónir, 38% niðurskurður á Landa- kotsspítala og 25% niðurskurður á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, sem þýðir að núverandi rekstrargrund- velli þessara tveggja stofnana hefur verið kippt undan þeim. Ráðherra fór fram á það við forráðamenn allra sjúkrastofnana landsins að þeir skil- uðu inn tillögum um sparnað fyrir 1. febrúar, sem þeir gerðu allflestir. I ljósi þeirra mun ráðherra meta hvetja stofnun fyrir sig og úthluta, að öllum líkindum í næstu viku, þeim 500 milljóna króna varasjóði, sem hann hefur til ráðstöfunar, til að milda niðurskurðinn hjá einstökum stofnunurh. En hvaða vinnureglu ætlar ráðherrann að viðhafa þegar kemur að úthlutun þeirra fjármuna? Fátt má við niðurskurði „Ég mun setjast niður með sparn- aðartillögumar og skoða þær stofn- un fyrir stofnun. Ég mun kanna hvaða þjónustuniðurskurð menn eru að ráðgera á hveijum stað og hvar hægt er að beita almennri hagræð- ingu. Jafnframt verð ég að átta mig á því hvort ég er tilbúinn til að axla þá pólitísku ábyrgð sem samdrætti í þjónustu fylgir á hverjum stað. Ef ég er það ekki, þá spyr ég mig að því hversu mikið hægt sé að taka úr varasjóðnum, til að draga úr sár- asta sviðanum. Ég vil varðveita móttöku ojg meðferð bráðveikra sjúklinga. Eg vil eins og ég mögu- lega get standa vörð um aðhlynningu gamla fólksins og ég vil jafnframt standa vörð um þá sérhæfðu þjón- ustu, sem byggð hefur verið upp hér á landi, t.d. augnlækningar, hjarta- skurðlækningar, krabbameinsmeð- ferðir og fleira." — Hvaða starfsemi í heilbrigðis- þjónustunni má við niðurskurði? „Út a_f fyrir sig má fátt við niður- skurði. Ég get ekki á þessari stundu nefnt eitt öðru fremur. A hinn bóg- inn er ég sannfærður um að hægt Morgunblaðið/Ámi Sæberg. „Það getur enginn verið dómari í sjálfs sín sök, en ef ég á að segja alveg eins og er finnst mér ég standa ansi mik- ið einn í þessu erfiða starfi,“ segir Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráðherra. er að nota peningana á sumum svið- um í heilbrigðiskerfinu mun betur en gert er. Eg leyfi mér að nefna í því sambandi lyfjainnkaup, útboð á rekstrarvörum svo og á ýmsum verk- um, sem unnin eru innan stofnana. í því sambandi má nefna ræstingu, þvott og matarframleiðslu, svo og samnýtingu spítalanna. Og með skipulagningu á fyrirkomulagi bráðaþjónustu Landakotsspítala og Borgarspítala mætti jafnframt spara. Þá hafa sumar þjóðir gripið til þess ráðs að gera læknana í meira mæli ábyrga fyrir rekstri stofnana, en því miður er talsvert um það í sjúkrahúsrekstrinum að verið sé að gera mörgum sinnum sömu rann- sóknarvinnuna og sömu skýrslurnar, til dæmis ef sjúklingur er færður til á milli deilda." — Hversu langt geturðu gengið pólitískt? „Ég á svolítið erfitt með að svara því núna, vegna þess að ég veit satt að segja ekki hvernig þetta lítur út. Ég er að upplifa það sama núna og ég upplifði í sumar þegar við vorum að gera tillögur um breytingar í lyfj- amálum. Mikil múgæsing er að koma upp á yfirborðið, bæði meðal al- mennings og starfsfólks stofnanna. Fólk er óskaplega hrætt. Það veit ekki, hvað er að gerast. Og við kom- umst ekki í gegnum múrinn til að útskýra málin. Við náum ekki sam- bandi við fólkið í landinu til þess að útskýra fyrir því, hvað verið er að gera. Ég er t.d. alveg sannfærður um að meginþorri ellilífeyrisþega stendur í þeirri trú, að búið sé að skerða stórkostlega hjá því ellilífeyr- inn. Staðreyndin er sú að um 90% ellilífeyrisþega fá enga skerðingu. Aðeins þeir, sem hafa umtalsverðar atvinnutekjur fá skerðingu. Við er- um búnir að reyna að segja þetta hvað eftir annað, en fólkið heyrir ekki hvað við erum að segja. Stjórn- arandstæðingarnir tala vísvitandi þannig að fólki sé ekki ljóst, hvað í þessu felst. Þeir tala sífellt um árás á ellilífeyrisþega og árás á öryrkja. Allir eru sannfærðir um að við séum að segja upp mörghundruð manns; við séum að bera út sjúklinga og loka heilu sjúkrastofnunum. Og að við ætlum okkur að koma í veg fyr- ir að veikt fólk fái aðhlynningu. Við erum ekki að gera neitt af þessu. Við erum aðeins að reyna að stánda vörð um þjónustuna með þeim hætti að nota þá fjármuni, sem þjóðin á, eins vel og hægt er.“ — Þú og þinn flokkur kennið ykk- ur við alþýðuna í landinu. Flokkur þinn barðist fyrir velferðarkerfinu. Ertu ekkert hræddur um að verða úti í þessum slag? „Nýlega var ég á fundi úti í Stokk- hólmi, þar sem að ég hitti marga flokksbræður mína, en þeir ástunda núna mikla naflaskoðun og eru að reyna að leita orsakanna fyrir því, af hveiju þeir töpuðu kosningunum. Þeirra niðurstaða er að þeir hafi verið ótrúverðugir. Þeir sögðu að velferðarkerfið hefði verið að brotna í höndunum á þeim. Þá hafi skort kjark og getu til þess að taka á málunum svo hægt hefði verið að varðveita kerfið, þannig að það gerði ekki allt fyrir alla, heldur að það væri til staðar til þess að hjálpa þeim, sem þyrftu á velferðarkerfinu að halda. Sú kynslóð, sem nú er við lýði, er sú sem hefur haft það hvað best allra kynslóða á íslandi til þessa. Við erum jafnframt sú kynslóð, sem hefur verið heimtufrekust kynslóða á íslandi, því við viljum gjarnan fá allt fyrir ekki neitt. En okkar heimtufrekja má ekki verða til þess að þeir, sem þurfa á velferðinni að halda, kdmist ekki að. Og velferðar- ríki er ekki ríki sem gerir allt fyrir alla, því að slíkt ríki er ekki til. Kjarni velferðarríkis er sá að enginn þurfi að vera uggandi um sinn hag, hvort sem um er að ræða sjúkt fólk, gam- alt fólk, ungt fólk eða fólk sem orð- ið hefur fyrir áfalli í lífinu. Og það er kjarninn, sem við ætlum að reyna að varðveita. Ef við ekki gerum það, gerist það sama hér á Islandi eins og gerst hefur í Svíþjóð, að velferðarkerfið hrynur undan sínum eigin þunga." — Ér velferðarkerfið að brotna í höndunum á okkur? Já, það er að brotna. Það sést til dæmis best á því að á sama tíma og 100 sjúkrarúm á sjúkrahúsunum í Reykjavík eru að jafnaði lokuð árið um kring, erum við með hinni hend- inni að byggja upp nýtísku hjúkr- unarheimili hér á þessu sama svæði. Samkvæmt nýjustu stöðlum þá kall- ar hvert hjúkrunarrými á 65 fer- metra sem kostar að meðaltali um átta milljónir króna. Með öðrum orð- um það kostar um átta milljónir að byggja yfir hvert hjúkrunarrými. Þetta er náttúrulega ekkert vit.“ Hefndaraðgerðir — Nú hafa fjárframlög til Landa- kotsspítala verið skorin niður um 38%. Ertu í hefndaraðgerðum gagn- vart Landakoti úr því að meirihluti starfsmanna þar og St. Jósefssystur lögðust gegn sameiningu Landa- kotsspítala og Borgarspítala skömmu fyrir áramótin?. „Nei, af hvetju ætti ég að vera í hefndaraðgerðum? Ég hef einfald- lega ekki meiri peningum úr að spila. Þegar upp úr sameiningarviðræðun- um slitnaði, átti ég tveggja kosta völ. Annars vegar að gera tillögur E 'l

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.