Morgunblaðið - 09.02.1992, Síða 22

Morgunblaðið - 09.02.1992, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. FEBRUAR 1992 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1992 g 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Yaxandi atvinnuleysi Vaxandi atvinnuleysi veldur áhyggjum. í Morgunblaðinu í gær var skýrt frá því, að atvinnu- leysi á landinu öllu í janúar hefði sennilega verið yfir 3% af manna- afla á vinnumarkaðnum. Þetta jafngildir því, að nálægt 4.000 einstaklingar hafi verið atvinnu- lausir í upphafi ársins. Líklega er þetta mesta atvinnuleysi, sem hér hefurveriðfráþvííjanúar 1969. Það er ekki hægt að horfa fram hjá þessu vandamáli. Áratugum saman hefur verið lögð rík áherzla á að tryggja hér fulla atvinnu. Nú er margt, sem stuðlar að vax- andi atvinnuleysi. Samdráttur í sjávarútvegi á sinn þátt í því og hætt er við, að harðni á dalnum í þeim efnum eftir því, sem líður á árið. Byggingariðnaðurinn hefur verið í umtalsverðum öldudal í nokkur misseri. Offramboð er á atvinnuhúsnæði og þær íbúða- byggingar, sem standa yfir eru fyrst og fremst í þágu aldraðrá. Stórframkvæmdir, sem stefnt var að á þessu ári verða ekki vegna frestunar álversframkvæmda. Það er því engin sérstök ástæða til að ætla, að blómaskeið sé framundan í byggingariðnaði. Þá fer auðvitað ekki á milli mála, að samdráttur í opinberum útgjöldum hefur áhrif á efnahags- og atvinnulíf með margvíslegum hætti. Kjarni málsins er auðvitað sá, að hér vantar nýjan vaxtarbrodd í atvinnulífið. Menn horfðu til ál- versins í þeim efnum, en það er ekki á dagskrá í bili. Á þingi Landssambands iðnaðarmanna sl. haust komu fram athyglisverðar hugmyndir og ábendingar um uPPbyggingu smáfyrirtækja og meðalstórra fyrirtækja, sem ástæða er til að gefa gaum. Ákveðin endurskipulagning stendur yfir í sjávarútvegi en þarf að ganga hraðar fyrir sig. Starfsorka ríkisstjórnarinnar hefur eins og skiljanlegt er beinzt mjög að því að ná tökum á ríkis- fjármálum. Spurning er hins veg- ar, ekki sízt með tilliti til vaxandi atvinnuleysis, hvort ríkisstjórnin þurfi ekki að einbeita sér að því að örva atvinnulífið til nýrra átaka. Þá er ekki átt við einstakar framkvæmdir eða aðgerðir, heldur almennar aðgerðir, sem geti ýtt undir nýja starfsemi og aukin átök hjá fyrirtækjum í hinum ýmsu greinum atvinnulífsins. Að mörgu leyti er æskilegt, að saman fari samdráttur hjá hinu opinbera, en aukin umsvif í at- vinnulífinu. Samdráttur hjá opin- berum aðilum á að stuðla að því, að fjármagn verði ódýrara en ver- ið hefur, sem væntanlega er lykill að nýju athafnatímabili í atvinnu- lífinu. En opinberir aðilar geta hvatt atvinnulífið til dáða með ýmsum öðrum hætti. Þetta þjóðfélag á afar erfitt með að una því, að mörg þúsund manns séu án atvinnu. Þótt at- vinnuleysi sé margfallt meira í mörgum öðrum löndum er návígið hér svo mikið, að atvinnuleysi er þungbærara hér á íslandi en víða annars staðar, þótt það sé auðvit- að alls staðar mikið böl. Nú er mikil óvissa ríkjandi um gerð nýrra kjarasamninga. Það er meiri ástæða til þess fyrir verkalýðshreyfingu og vinnuveit- endur að taka höndum saman um að knýja á um aðgerðir til þess að örva atvinnulífið en að takast á um launabreytingar, sem enginn grundvöllur er fyrir. Ekki má gleyma því, að at- vinnuleysið kostar þjóðarbúið mikla fjármuni, bæði í töpuðum tekjum vegna þess, að mörg þús- und manns taka ekki þátt í fram- leiðslustarfsemi og líka vegna at- vinnuleysisbóta. Talið er að greiða þurfi 650 milljónir á ári fyrir hvert eitt prósent atvinnulausra. Það þýðir, að 3% atvinnuleysi á heilu ári kostar um 2 milljarða króna. Þetta eru miklir fjármunir, sem mundu nýtast þjóðarbúinu betur, ef hægt væri að veija þeim með öðrum hætti. Nú er tímabært, að verkalýðs- hreyfing og vinnuveitendur og rík- isstjórn hugi að atvinnuástandi og horfum. Tæplega getur verka- lýðshreyfingin haft önnur veiga- meiri markmið um þessar mundir en að tryggja félagsmönnum sín- um fulla atvinnu. 23, > .ÞAÐ ER EKKI alltaf jafn eftirsóknar- vert að alþýðan stjórni foringja sínum einsog hásetar skipstjóran- um, svoað enn sé vitn- að í líkingar Melvilles. Hitt er svo annað mál að þverstæður sem ég hef áður nefnt gætu verið einkunnarorð þeirra sem trúa á lýðræði og fyrirheit þess: Verum raunsæ. Krefjumst þess ómögulega(l) Og kannski voru hug- sjónir kommúnismans einnig útóp- ískar þverstæður af þessu tagi. Á ferð um tímann sér aðalpersónan í skáldsögu H.G. Wells, Tímavélinni, stórar og fallegar borgir sem glitra af glæsihöllum. Kommúnismi, hugs- ar hann með sér, gagntekinn af þessari tímalausu paradís ólýsan- legra fyrirheita. Þannig voru draumar manna á þeim árum þegar Tímavélin var skrifuð fyrir síðustu aldamót. En draumarnir hafa reynzt blekking. Veruleiki kommúnismans er sumar- hallalaus vonbrigði. Það vissu þeir ekki sem gáfu okkur þennan draum; þessa blekkingu. Þeir vissu ekki að hann var draumurinn um Sjáseskjú. HELGI spjall 24, :.HEIÐARLEIKI ORWELLS gekk svo fram af kommúnistum að þeir fóru að brigzla honum öðrum fremur um óheiðarleika einsog oft vill verða í þeim gráa leik, stjórnmál- um. Samt hafði Orwell verið vinstri maður þegar hann fór til Spánar, en gekk af trúnni þegar staðreynd- irnar blöstu við, semsagt, svikari við boðskapinn; trúvillingur. Orwell var agaður maður og gerði ekkisízt miklar kröfur til sjálfs sín. Þar skildi á milli feigs og ófeigs. Hann bilaði sem betur fer í trúnni. Hann þurfti ekki Tékkósióvakíu, Berlín, Ungó og Torg hins himneska friðar til að taka sönsum. Honum nægðu lygarnar. Hann sá í gegnum blekkingavefinn sem spunninn var alltí- kringum hann. Lýsingar Orwells á stríðinu á Spáni minna einna helzt á stríðs- sögu Stephens Crane. Báðir eru höfundarnir þátttakendur í hildarleiknum og lýsa eigin reynslu og upplifun. Frásögnin verður því í senn nálæg og tímalaus; atburðirnir eiga sér stað á þeirri stundu sem lesið er. Það er því í senn fróðlegt og áhrifamikið að kynnast bókum þessara snillinga. Af lestrinum má sjá að margt í verkum helztu skálda, kannski flest, á rætur í reynslu þeirra sjálfra. Þannig stökkva rott- uraar inní 1984, aðalviðbjóður þeirr- ar bókar, beint útúr Homage to Catalonia, en þar lýsir Orwell ógeði sínu á þessum meindýrum í skot- gröfunum. Vígvallaviðbjóðurinn persónugerður í nagdýrunum er honum jafnvel óttalegra umhugsun- arefni en óvinurinn handan víglín- unnar. Og því fáum við svo að kynn- ast með eftirminniiegum hætti í 1984. 25 • VEL MÆTTI SEGJA AÐ listin hafi verið banabiti Hemingwa- ys. Hann lagði nær allt í sölurnar fyrir þessa taumlausu og óbilgjörnu ástríðu sína. Margir rithöfundar hafa verið ofurseldir þessari gyðju. Aðrir hafa selt sig djöflinum og lagt sál sína að veði einsog Faust. Það eru þeir listamenn sem hafa gengið á mála hjá helstefnum. Kallað þær til vitnis um ágæti sitt; þjónað þeim fyrir frægð og hégómlega fullnæg- ingu. 26 •BRECHT VAR ÞEGAR Á allt er litið hollastur kommúnista- flokknum allra þeirra rithöfunda sem flokkurinn átti, segir Paul Johnson um þetta víðfræga og margboðaðá' skurðgóð leiklistarinn- ar. Til að lifa af, sagði Brecht, verð- ur þú að vera eigingjarn(I) Mikilvægasta boðorðið, Vertu góður við sjálfan þig(!) En Brecht hefur ekki verið einn um svona hug- renningar. Listamönnum hættir til hallærislegrar sjálfsdýrkunar af þessu tagi. Og hégómleg verðlaun ýta undir og eru raunar dragbítur á nýsköpun. Menn fá verlaun fyrir eitthvað sem er viðtekið; hefð, tízku. Johnson segir ástæðan til þess Brecht hafi ekki getað skapað per- sónur heldur einungis „týpur“ hafi líklega verið sú, að kenningin var honum meira virði en fólkið. Hún gengur af samvizkunni dauðri. En Brecht var þó meira skáld en John- son vill vera láta; en hann hefur fullt leyfi til að hafa sínar skoðanir á því. Listsmekkur er einn þáttur mannréttinda. 27, • SAMVIZKA ER LIKLEGA fylgifiskur kristninnar; einsog synd- in. I áhrifamikilli ítalskri kvikmynd, Zappa minnir mig, segir að samvizk- an sér kraftaverk guðs. Líklega rhætti það til sanns vegar færa. Þarsem hana vantar hefst siðfræði Dýrabæjar. Ef marka má orðabók Fritzners koma synd og samvizka ekki fyrir í íslendinga sögum. Ka- þólskir höfundar þeirra vissu fullvel að slík orð tók heiðinn maður sér ekki í munn. Og hví þá að að skrifa þau inní andrúm og umhverfi sagn- anna? Samvizkufangi er því óþekkt fyrirbrigði í kristslausu umhverfi. 28, • MARKUS ARELIUS keisari fjallar þó um þessi kristnu hugtök í heimspekigreinum sínum. Hann hafði líka pata af kristindómi sem göfgaði hugmyndaflug hans og hlýlega afstöðu til lífsins. M. (meira næsta sunnudag.) FYRIR SKÖMMU EFNDI Verzlunarráð íslands til fundar, þar sem ungur íslendingur, Andri Arin- bjarnarson, flutti erindi um aðferðir til þess að ná varanlegum árangri í niðurskurði á kostnaði. Andri Arinbjarnarson á að baki verkfræði- nám við Háskóla íslands og framhaldsnám í verkfræði í Tækniháskólanum í Kaup- mannahöfn. Að því loknu starfaði hann bæði í Danmörku og hér á íslandi og lauk síðan MBA-prófí frá Stanford-háskóla í Bandaríkjunum. Hann starfar nú sem ráð- gjafi hjá einu þekktasta ráðgjafarfyrirtæki heims, McKinsey. í ljósi þeirra umræðna, sem hér hafa farið fram síðustu vikur um niðurskurð kostnaðar í heilbrigðiskerfinu hljóta þær upplýsingar, sem fram komu hjá Andra Arinbjarnarsyni að vekja sérstaka athygli og umhugsun. Hann lýsti í samtali við viðskiptablað Morgunblaðsins sjónarmið- um og aðferðum sem McKinsey notar í störfum sínum fyrir stórfyrirtæki víða um heim. í frásögn viðskiptablaðs af samtalinu segir m.a.: „Sú aðferð sem ráðgjafarfyrir- tækið notar er hægt að kalla athafnar framlegðargreiningu (Activity Value Ana- lysis, AVA) og hefur hún verið notuð í mörgum fyrirtækjum um allan heim í 20 ár. „Það sem skiptir mestu máli í AVA- greiningu, eða kostnaðarniðurskurði, er að störf innan fyrirtækisins séu skráð nið- ur, farið sé í saumana á hveiju og einu þeirra og gildi þeirra metið. Það sama gildir um t.d. alla skýrslugerð. Athafnir, sem ekki hafa gildi á að leggja niður, einn- ig er reynt að sameina störf og gera vinnu- ferlið, sem einfaldast. Með þessari aðferð er hægt að koma í veg fyrir margverknað innan fyrirtækja og að hætt sé að fram- kvæma það sem ekki skilar fyrirtækinu framlegð,“ segir Andri Arinbjamarson.“ Eftir að hafa lýst aðferðum McKinseys hefur Andri eftirfarandi að segja um þau sjónarmið, sem ríkjandi eru innan fyrir- tækisins um niðurskurð kostnaðar: „Hefð- bundnar aðferðir til að lækka kostnað eru að menn byija á því að frysta ráðningar, síðan leggja menn til t.d. 10-20% niður- skurð í öllum deildum í fjárhagsáætlun og starfsfólki er fækkað. Yfirleitt leiðir slíkur niðurskurður til þess að gæði minnka, við- skiptavinir fjarlægjast, álag á starfsmenn eykst, beztu starfsmenn yfirgefa fyrirtæk- ið og sparnaður endist ekki. Kostnaður kemur til baka í yfirvinnu og verk eru boðin út. Þegar fyrst er ráðizt á vinnuferl- ið, líkt og AVA-greining gerir, leiðir sú aðferð til að gæði haldist eða aukast, þjón- usta og framlegð batna, vinnuálag helst hóflegt og varanlegur sparnaður næst.“ Síðan segir: „Að sögn Andra næst um 20% spamaður af óbeinum kostnaði í þeim deildum, sem fara undir athafnar fram- legðargreiningu og hefur þetta hlutfall aukizt á síðastliðnum árum. Þá telur hann, að viðskiptavinir McKinseys séu almennt mjög undrandi á því hvaða verk eru unnin í fyrirtækinu en það kemur oft ekki fram fyrr en farið er gaumgæfilega í gegnum hvert starf.“ Loks segir Andri Arinbjarnarson í sam- tali við viðskiptablað Morgunblaðsins: „Kostnaðarniðurskurður er oft gerður í bylgjum. í fyrstu bylgju eru framkvæmdar þær aðgerðir, sem hafa mikil áhrif á stutt- um tíma. Önnur bylgja felur í sér þær aðgerðir, sem geta náð miklum áhrifum en taka lengri tíma og í þriðju bylgjunni er það gert, sem væntanlega mun skila minni árangri í stuttan eða langan tíma. í heild sinni tekur greiningin almennt 3-4 mánuði en hjá minni fyrirtækjum um 2 mánuði. Framkvæmdin sjálf getur tekið allt frá einu ári upp í þijú ár og á því tíma- bili þarf stöðuga stjórnun og eftirlit. Þó að þessi kostnaðarverkefni séu yfirgrips- mikil, taki tíma, krefjist mikillar vinnu og raski vinnubrögðum, skila þau oft miklum árangri. Ekki aðéins sparnaði heldur næst oft fram einfaldara vinnuferli og nýr hugs- REYKJAVIKURBREF Laugardagur 8. febrúar unarháttur. Að spara skiptir máli. Það er ekki auðvelt að skera niður kostn- að í fyrirtæki með AVA-greiningu. Þetta er hörð vinna og oft óvinsæl en mögulega eina leiðin til þess að ná varanlegum spam- aði. Þessar aðferðir við kostnaðarniður- skurð eru ekki ný sannindi. Hins vegar skipta þær mörg fyrirtæki nú meira máli en áður, þar sem margar gamlar leiðir til að ráðast á samkeppnisvandann eru horfn- ar, t.d. það að sækja fé til hins opinbera.“ Niðurskurð- ur hjá hinu opinbera ÞESSI UMMÆLI Andra Arinbjarnar- sonar hljóta að vekja menn til um- hugsunar um þær aðferðir, sem beitt er í ríkiskerfinu til þess að draga úr kostn- aði. Þótt tæpast sé hægt að segja, að al- menn samstaða sé um nauðsyn þess að draga úr útgjöldum hins opinbera er óhætt að fullyrða, að verulegur meirihluti fólks er þeirrar skoðunar. Rökin fyrir nauðsyn þess era svo augljós og hafa verið tíunduð svo oft hér í Morgunblaðinu m.a. í forystu- grein blaðsins sl. föstudag, að óþarfi er að endurtaka þau. Hins vegar hafa ýmsar spurningar vaknað vegna þess hvernig staðið er að þessum niðurskurði. í forystugrein sl. sunnudag lýsti Morg- unblaðið - sem hefur stutt niðurskurðar- áform ríkisstjórnarinnar - áhyggjum yfir því að þannig væri gengið til verks við niðurskurð á kostnaði á sjúkrahúsunum, að það mundi vekja upp almenna andstöðu við niðurskurð í opinbera kerfinu yfirleitt. Enda hafa mótmæli dunið á ríkisstjórninni með vaxandi þunga síðustu daga. Þær upplýsingar sem fram komu hjá Andra Arinbjarnarsyni á fundi Verzlunarráðsins og í samtali við viðskiptablað Morgun- blaðsins vekja svo upp spurningar um það hvort þær aðferðir sem beitt er hér séu líklegar til varanlegs árangurs. í nokkur undanfarin ár hefur spamaður í rekstri sjúkrahúsa verið framkvæmdur þannig, að ákveðnum deildum hefur verið lokað hluta ársins. í umræðum undanfarn- ar vikur og mánuði virðist sú skoðun nokk- uð almenn, að reynslan af þessum sparn- aðaraðgerðum sé slæm og að lítið vit sé í þeim. Sú reynsla virðist vera í samræmi við þau sjónarmið Andra Arinbjarnarson- ar, sem vitnað vár til hér að framan. Það sem kveikt hefur mesta elda í kring- um ríkisstjórnina í þessu sambandi eru vinnubrögðin við Landakotsspítala. Heil- brigðisráðherra hafði unnið að því að ná fram sameiningu Borgarspítala og Landa- kotsspítala. Á síðustu stigum málsins kom í ljós, að gegn mótmælum St. Jósefssystra var ekki hægt að ganga þannig til verks fyrr en að nokkrum árum liðnum sam- kvæmt samningum sem ríkið sjálft hafði gert við þær. Þá tilkynnti heilbrigðisráð- herra, að fjárveitingar til sjúkrahússins yrðu skornar niður um nær 40%! Þegar þessi afstaða lá fyrir varaði Morgunblaðið við slíkum vinnubrögðum í forystugrein hinn 21. desember sl. Tilkynning um slík- an niðurskurð jafngilti lokun spítalans. í kjölfar þessara ákvarðana heilbrigðis- ráðherra hafa viðræður um sameiningu þessara tveggja sjúkrahúsa verið teknar upp á ný enda eiga stjórnendur Landakots tæpast annarra kosta völ. Þeim er stillt upp við vegg með þeim hætti, að menn hafa tæpast orðið vitni að slíkum starfsað- ferðum hjá opinberum aðilum. Vinnu- brögðin ein út af fyrir sig hafa vakið reiði hjá almenningi, sem hefur smitað út frá sér með þeim hætti að andstaðan magnast við niðurskurðaráform ríkisstjórnarinnar, hvort sem er í heilbrigðiskerfinu, í skólum, í tryggingakerfinu eða annars staðar. Hér hefur ekki verið staðið vel að verki. Rökin fyrir nauðsyn niðurskurðar eru augljós. Tæpast leikur nokkur vafi á því, að hægt er að ná fram spamaði í heil- brigðiskerflnu. Efnisleg rök fyrir tekju- tengingu margvíslegra greiðslna í trygg- ingakerfinu eru sterk og engum dettur í hug, að ekki megi margt betur fara í skóla- kerfinu. Ef sómatilfinningu hins almenna Morgunblaðið/Þorkell borgara er hins vegar misboðið með vinnu- brögðum er mikil hætta á ferðum. En jafnframt hefur Andri Arinbjarnar- son gefið tilefni til umhugsunar um það, hvort nægilega skipulega sé unnið að nið- urskurðaráformum ríkisstjórnarinnar al- mennt, þannig að þau skili varanlegum árangri. Að mörgu Ieyti virðist gengið til verks með mjög áþekkum hætti og hann lýsir gamaldags vinnubrögðum, sem reynslan hafi sýnt að skili ekki árangri þegar til lengri tíma er litið. Raunar hefur sú gagnrýni komið fram hjá starfsfólki sjúkrahúsanna, að niðurskurður á einum stað leiði til kostnaðarauka á öðrum stað, sem er í raun og veru lýsing hins unga verkfræðings á afleiðingum flats niður- skurðar. Á undanförnum árum hefur mikill fjöldi ungs fólks aflað sér víðtækrar menntunar og starfsreynslu erlendis, með svipuðum hætti og sá ungi maður sem hér hefur verið vitnað til. Höfum við nýtt menntun, þekkingu og reynslu þessa unga fólks nægilega vel? Við náum engum tökum á ríkisútgjöldum á einu ári, jafnvel ekki einu kjörtímabili. Þetta er margra ára verk- efni. Er ekki kominn tími til að kalla þetta unga fólk til starfa í þágu þjóðarinnar og fela því það viðamikla verkefni að koma einhveiju lagi á rekstur íslenzka þjóðarbús- ins og einstaka þætti þess? Þjóðin hefur lagt fram mikla fjármuni til þess að mennta þetta unga fólk og ekki úr vegi að leita eftir því að ávöxtun þeirrar fjár- festingar skili sér. Stjórnmálamenn eru engir sérfræðingar í niðurskurði. Embættismennirnir sem halda stjórnkerfinu gangandi frá degi til dags ekki heldur. Ef eitthvert vit á að vera í þessum vinnubrögðum þarf að kalla til nýja starfskrafta, sem koma með fersk sjónarmið og önnur vinnubrögð. Fyrirtæki hafa gott af því, eins og reynsla fjöl- margra þeirra sýnir, og íslenzka ríkið hefði líka gagn af því. ÞAÐ GETUR haft alvarlegar pólitískar afleiðing- ar að niðurskurð- aráform ríkisstjórn- arinnar fari út af sporinu. Það fer ekkert á milli niála, að stjórnarandstaðan vinnur nú markvisst að því að skapa hér jarðveg Pólitískar afleiðingar til þess að gera aðsúg að ríkisstjórninni með sama hætti og gert var veturinn 1978. Verkalýðshreyfingin heldur að sér höndum og fer sér hægt í samningagerð af ásettu ráði. Ef fram fer sem horfir verður ríkis- stjómin komin í mjög erfíða stöðu, þegar líður á veturinn. Það skapar óþolandi óvissu fyrir atvinnulífið, ef ekki tekst að ná nýjum kjarasamningum. Atvinnuleysi er of mikið og fyrirtæki leggja ekki út í nýjar fjárfestingar, ef þau vita ekki að hverju þau ganga. Það er hins vegar alveg ljóst, að takist núverandi ríkisstjórn ekki að koma í fram- kvæmd þeirri stefnu, sem hún hefur mark- að, verður þess langt að bíða að önnur tilraun verði gerð. Það sem mestu skiptir í þessu sambandi er ekki líf einnar ríkis- stjórnar heldur framtíðarvelferð þjóðfélags okkar. Nái ríkisstjórnin ekki tökum á verk- efnum sínum má gera ráð fyrir, að fljótt dragi í sundur með okkur og öðrum þjóð- um. Þess vegna er eitt helzta verkefni núver- andi ríkisstjórnar að skapa samstöðu og stuðning í landinu um nauðsyn niðurskurð- ar. Til þess að slík samstaða skapist og slíkur stuðningur verði til þarf fólk að hafa sannfæringu fýrir því, að staðið sé að málum af einhverri sanngirni. Það er lítill vandi að stjórna í uppsveiflu. Það er mikill vandi að stjórna á samdráttartímum. Stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn verða ekki vinsælir af því. Núverandi ríkis- stjórn getur ekki búizt við vinsældum, en hún á að geta haldið þannig á málum, að fólk treysti henni til þeirra verka, sem hún hefur tekið að sér. Þess vegna er ástæða til að staldra við eitt andartak og íhuga hvert stefnir. Með því er alls ekki sagt, að ríkisstjórn- in eigi að beygja af eða hverfa frá settu marki. En það þarf að standa þannig að málum að veki traust. Valkostur MORGUNBLAÐIÐ hefur átt nokkur skoðanaskipti við Ólaf Olafsson, landlækni, um stefnuna í heilbrigðismál- um. Blaðið hefur varpað því fram til um- hug^unar og umræðu, að æskilegt sé að fólk eigi einhvern valkost í heilbrigðisþjón- ustu. Þeir sem vilji fremur verja fjármun- um sínum til að greiða kostnað við læknis- aðgerð á einhveijum ákveðnum, takmörk- uðum sviðum, en eyða þeim í Spánarferð, skuli eiga þess kost. Landlæknir skildi þessi ummæli á þann veg að Morgunblaðið væri að boða frá- hvarf frá núverandi grundvallarstefnu í heilbrigðismálum og að blaðið vildi taka upp einkarekið heilbrigðiskerfi. Það var að sjálfsögðu misskilningur hjá landlækni, eins og bent var á í forystugrein Morgun- blaðsins fyrir skömmu. Þar var nefnt sem dæmi, að eldra fólk, sem hefur þurft á bæklunaraðgerð að halda, t.d. þeirri að kúla væri sett í mjöðm, hafi þurft að bíða misserum saman eftir slíkri aðgerð. Spurt var, hvort óeðlilegt væri, að þetta fólki gæti notað fjármuni sína til þess að greiða fyrir slíka aðgerð eða aðstandendur þess. Af einhveijum ástæðum hefur landlæknir kosið að skilja þessa ábendingu á þann veg, að hann ræðir í grein í blaðinu sl. fimmtudag um kransæðaaðgerðir, sem kosti 700-800 þús- und krónur og segir, að fólk hafi slíka fjár- muni almennt ekki á milli handa. Auðvitað ekki! Hvenær hefur Morgunblaðið rætt um slíkt? Kjarni málsins er þessi: núverandi heil- brigðiskerfi veitir ekki fullnægjandi þjón- ustu. Þessi þjónusta er frábær á sumum sviðum, léleg á öðrum. Hún er áreiðanlega frábær í sambandi við kransæðaaðgerðir en það er léleg þjónusta að láta gamalt fólk bíða mánuðum eða jafnvel misserum saman eftir aðgerðum af því tagi, sem áður voru nefndar. Þess vegna er full ástæða til að kanna, hvort hægt sé að bæta þjónustu heilbrigðiskerfisins á þeim sviðum þar sem hún er léleg með því að fólk eigi kost á því að greiða fyrir þessa þjónustu. Þá léttir um leið á hinu opinbera kerfi og þjónusta þess batnar gagnvart þeim sem kjósa að nýta sér það. Með þessu er ekki gengið gegn siðferðiíegum skyldum heilbrigðisyfirvalda. Þvert á móti eru þær betur uppfylltar en áður. Landiæknir segir í grein sinni hér í blað- inu sl. fimmtudag: „Forgangsröð í heil- brigðisþjónustu er erfítt og vandasamt mál. Égtrúi því ekki, að almenningur kjósi að leysa þetta vandamál með fjárgreiðslum einum saman.“ Hefur landlæknir hugleitt að í hinu margrómaða íslenzka kunningja' þjóðfélagi sé hugsanlegt, að forgangsröðin ráðist af kunningsskap? Hvert er siðferðið í því? „Enjafnframt hefur Andri Arin- bjarnarson gefið tilefni til umhugs- unar um það, hvort nægilega skipulega sé unn- ið að niður- skurðaráformum ríkisstj órnarinn- ar almennt, þann- ig að þau skili varanlegum ár- angri.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.