Morgunblaðið - 09.02.1992, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 09.02.1992, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1992 OKKAR VINSÆLA afsláttur sem beðið hefur verið eftir er byrjuð Blomberg kæliskápar úr útstillingareldhúsí Vaskar, x margar gerðir Blomberg ofnar úr útstillingareldhúsi Blombergofnar úr\ útstillingareldhúsi Ponu uppbvottavélVw^ Tatung kæliskápar Tatung N örbylgjuofnar Blomberg örbylgjuofnar P ;■ Buxnapressur, svartar og hvítar V Baðherbergisviftur Spaðaviftur, brúnar Blomberg bvottavél Römerpottar fyrir eldavélar 10% sérstakur afsláttur af öllum öðrum vörum meðan útsalan stendur vfir 10.-15. febrúar Töfrapottar fyrír örbylgjuofn Tatung sjúnvörp Franskir pottar Staðgreiðsluafsláttur — afborgunarkjör Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTÚN 28, SÍMI 622900 • NÆG BÍLASTÆÐI Umhverfis- ráðherra á fundi Um- hverfisstofn- unar Samein- uðu þjóðanna EIÐUR Guðnason umhverfisráð- herra sat dagana 3.-5. febrúar ráðsfund Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP). Á dagskrá fundarins var m.a. heimsráðstefna Sameinuðu þjóð- anna um umhverfi og þróun sem haldin verður í Rio de Janeiro 1.-12. júní nk. í ávarpi umhverfisráðherra á fundinum kom fram að Island vænt- ir þess að ráðstefnan efli alþjóðlega samvinnu og nýsköpun í þágu um- hverfisverndar og sjálbærrar þróun- ar. Umhverfisráðherra undirstrik- aði sérstaklega nauðsyn þess að alþjóðleg samvinna verði byggð á virðingu fyrir hinum mismunandi sjónarmiðum og hagsmunum ríkja heims á sviði umhverfis- og þróun- armála. í því sambandi kynnti um- hverfisráðherra þau stefnumið sem ísland leggur áherslu á að verði lögð til grundvallar þeim samþykkt- um sem gerðar verða á heimsráð- stefnunni í Rio de Janeiro. Þar á meðal að staðfestur verði réttur ríkja til að ákveða hvaða náttúru- auðlindir þær nýta, svo fremi sem þær tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra, þ.e. nýtingu sem fær staðist til frambúðar. Forræði þjóða yfir eigin náttúruauðlindum og skyn- samleg nýting þeirra væru forsend- ur bæði umhverfisverndar og sjálf- bærrar þróunar. Umhverfisráðherra gerði sér- staklega að umræðuefni hafið, verndun þess gegn mengun og nýt- ingu lifandi auðlinda þess. Hann ítrekaði að verndun þessa mikil- væga fæðuforðabúrs væri sameig- inlegt hagsmunamál heimsbyggð- arinnar. Sjálfbær nýting sjávar- fangs myndi gegna lykilhlutverki við að fæða vaxandi mannfjölda; því ljóst væri að aukinni landbúnað- arframleiðslu væru takmörk sett frá sjónarhóli umhverfisverndar. Höfn: Foreldrar og forráðamenn ung'linga funda __ Höfn. ÁTTATÍU foreldrar og forráð- menn unglinga mættu til fundar um unglingsárin, vímuefna- neyslu og samskipti foreldra og unglinga á Hótel Höfn þriðju- daginn 4. febrúar. Til fundar var boðað af félags- málastjóra og félagsmálanefnd Hafnar og voru gestir fundarins Einar Gylfi Jónsson, forstjóri Ung- lingaheimilis ríkisins, og Arnar Jensson, kennari við Lögreglu- skóla ríkisins. Þeir félagar hafa langa reynslu af samskiptum við unglinga og þekkja vel til svo- nefndra unglingavandamála. Þeir miðluðu fundarmönnum af þekk- ingarbrunni sínum og var góður rómur gerður að málflutningi þeirra. Foreldrar skipuðu sér síðan í hópa og ræddu málin sín á milli og hétu því að koma aftur saman síðar til skrafs og ráðgerðar. Þeir félagar heimsóttu ennfremur skól- ana á Höfn og spjölluðu við ungl- ingana um samskipti við fjölskyld- ur, um vímuefni og aðra vágesti er blasa við þeim sem eru að vaxa úr grasi. Það mun svo koma á daginn hvernig foreldrar, ungling- ar og yfiivöld önnur á Höfn taka í framtíðinni á því er við köllum einu nafni unglingavandamál. - JGG. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.