Morgunblaðið - 09.02.1992, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.02.1992, Qupperneq 29
0KgtutÞfafeU> ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR / ATVIN NUAL/GIYSINGAR Hejlsustofnun NLFÍ, Hveragerði Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði er bæði gömul og ný og breytt stofnun, sem tók form- lega til starfa í núverandi mynd 1. janúar 1992. Heilsustofnunin skiptist í endurhæfingadeild (100 rúm) og heilsuhælisdeild (60 rúm). Báðar deildir taka til meðferðar þá, sem þegar hafa verið sjúkdómsgreindir og þarfn- ast meðferðar. Starfsemin er m.a. fólgin í hefðbundinni end- urhæfingu, heilsurækt og heilsuverndarstarfi í anda náttúrulækningastefnunnar og í sam- ræmi við íslenska heilbrigðislöggjöf og heil- brigðisáætlun. Heilsustofnun NLFÍ auglýsir eftirtaldar stöð- ur lausar til umsóknar: Stöðu yfirlæknis (fullt starf) Umsækjandi þarf að vera sérfræðingur í endur- hæfingu, gigtlækningum, öldrunarlækningum eða almennum lyflækningum. Stöðu sérfræðings (fullt starf) Umsækjandi þarf að vera sérfræðingur í endurhæfingu, öldrunarlækningum, almenn- um lyflækningum eða heimilislækningum. Umsóknarfrestur er til 14. mars 1992. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri HNLFÍ í síma 98-30300. Umsóknir sendist: Stjórn HNLFÍ, Grænumörk 10, ÍS-810 Hveragerði. Stöðu hjúkrunarforstjóra (fullt starf) Umsækjandi skal hafa hjúkrunarleyfi hér á landi og starfsreynslu í hjúkrun. Æskilegt er að hann hafi lokið framhaldsnámi í stjórnun. Umsóknarfrestur er til 1. mars 1992. Upplýsingar gefa framkvæmdastjóri og hjúkrunarforstjóri í síma 98-30300. Umsóknir sendist: Stjórn HNLFÍ, Grænumörk 10, IS-810 Hveragerði. Stöður hjúkrunarfræðinga - tvær stöður Stöðu yfirsjúkraþjálfa í fullt starf og tvær stöður sjúkraþjálfara Stöðu yfiriðjuþjálfa - fullt starf Stöðu næringarráðgjafa - fullt starf Stöðu sálfræðings - hálft starf Stöðu félagsráðgjafa - hálft starf Heilsustofnunin stendur í fögru umhverfi, með ótal möguleikum til útivistar og er í 40 km. fjarlægð frá höfuðborginni. Boðið er upp á heilsufæði. Búseta í Hveragerði eða ná- grenni er æskileg, en ekki skilyrði. Möguleiki er á að aðstoða við að útvega húsnæði á góðum kjörum. Nánari upplýsingar um stöður hjúkrunar- fræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, næring- arráðgjafa, sálfræðings og félagsráðgjafa veita framkvæmdastjóri, yfirlæknir og hjúkr- unarforstjóri í síma 98-30300. Umsóknarfrestur um þessar stöður er til 1. mars 1992 og skulu umsóknir sendast: HeHsustofnun NLFÍ, b.t. Eiríks Ragnarssonar, framkvæmdastjóra, Grænumörk 10, 810 Hveragerði. Garðabær Blaðbera vantar í Hæðarbyggð og Dalsbyggð. Upplýsingar í síma 656146. w Leikskólar Reykjavíkurborgar Ægisborg Yfirfóstra óskast á nýja deild við leikskólann Ægisborg v/Ægissíðu. Deildarfóstru vantar á sama stað. Nánari upplýsingar gefur Elín Mjöll Jónas- dóttir, leikskólastjóri, í síma 14810. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. KÍSILIÐJAN ? REYKJAHLÍÐ VIÐ MÝVATN Framkvæmdastjóri Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Kísiliðjan starfrækir verksmiðju, sem framleiðir síunar- og fylliefni úr kísilgúr, aðallega til út- flutnings. Starfsmannafjöldi er 61. Afkoma félagsins hefur verið góð og eiginfjárstaða er mjög traust. Aðaleigendur Kísiliðjunnar eru Ríkissjóður íslands (51%) og bandaríska fyrir- tækið Celite Corporation (48,56%). Starf framkvæmdastjóra er fjölþætt, en er aðallega fólgið í stefnumörkun, áætlanagerð, ásamt stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri. Framkvæmdastjóri kemur fram fyrir hönd fé- lagsins og gætir hagsmuna þess út á við. Leitað er að hæfum manni, helst með reynslu í fyrirtækjastjórnun, sem tilbúinn er að tak- ast á við krefjandi ábyrgðar- og stjórnunar- starf. Góð kunnátta í ensku er skilyrði. Skriflegum umsóknum um starf fram- kvæmdastjóra ásamt upplýsingum um starfsferil og menntun, skal merkja stjórn félagsins og senda til Kísiliðjunnar hf., 660 Reykjahlíð, fyrir 24. febrúar nk. Umsóknum skal skila á íslensku og í enskri þýðingu. Nánari upplýsingar um starfið veita: Róbert B. Agnarsson, framkvæmdastjóri, vs. 96-44190, hs. 96-44129. Pétur Torfason, stjórnarformaður, vs. 96-22543, hs. 96-22117. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál og þeim svarað. Ifl Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur, þroskaþjálfar og fólk með uppeldis- menntun óskast til starfa á leikskólann Fálkaborg v/Fálkabakka. Upplýsingar gefur viðkomandi leikskólastjóri í síma 78230. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Hjúkrunarfræðingar - hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarforstjóri og hjúkrunarfræðingar óskast sem fyrst, eða eftir nánari samkomu- lagi, til starfa á Sjúkrahúsið á Seyðisfirði. í boði eru góð laun, góður ferðastyrkur, hús- næði á staðnum og barnagæsla, ásamt góð- um og metnaðarfullum starfsanda. Sjúkrahúsið á Seyðisfirði er 26 rúma sjúkra- hús með sex stöðugildi hjúkrunarfræðinga. Sjúkrahúsið er að flytja í nýtt húsnæði um þessar mundir. Öll aðstaða til hjúkrunar og umönnunar er mjög góð í hinu nýja húsnæði. Aðalviðfangsefni eru á sviði öldrunarhjúkr- unar, en einnig er fengist við margskonar „medicinsk" vandamál, bæði bráð og lang- varandi. Ýmis sérstök heilbrigðisvandamál eru einnig tekin til meðferðar á sjúkrahúsinu. Næturvaktir hjúkrunarfræðinga eru í formi bakvakta, heima. Seyðisfjörður Br 1000 manna byggðarlag í fallegum Austfirði með glæsta og fjölbreytta sögu að baki. Aðalatvinnuvegir tengjast fiskvinnslu og út- gerð, ásamt vélsmíði. Verslun og fjölbreytt þjónustufyrirtæki eru á staðnum. Sjúkrahús og heilsugæslustöð eru einnig mikilvægir vinnustaðir. Bílferjan Norröna kemur hér vikulega allt sumarið frá Evrópu og á Egilsstöðum verður kominn millilanda- flugvöllur á þessu ári. Á Seyðisfirði er grunnskóli með framhalds- deild auk tónlistarskóla. Menntaskóli er á Egilsstöðum í 26 km fjarðlægð. Á staðnum er ágæt aðstaða til leikfimi og íþróttaiðkana innanhúss, auk sundlaugar og tilheyrandi. Fjölbreytt íþrótta- og félagsstarf er á staðnum. Á Seyðisfirði er fjölbreytt náttúrufegurð með ýmsum tækifærum til útivistar, s.s. fallegum gönguleiðum, góðri aðstöðu til skíðaiðkana og stutt er í silungsveiði. Hafir þú áhuga á skerpmtilegu en oft krefj- andi starfi með góðum launum, í hinu sér- staka umhverfi lítils útgerðarbæjar, hafðu þá samþand við Þóru (hjúkrunarforstjóra), Lárus (framkvæmdastjóra) eða Atla (lækni) í síma 97-21406 sem gefa nánari upplýsing- ar. Sjúkrahús Seyðisfjarðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.