Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 2
L
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
Þing Norðurlanda-
ráðs í Helsinki:
Samstarf
þjóða á
norðurslóð-
um aukið
Á SÍÐASTA degi Norðurlanda-
ráðsþings í Helsinki í gær var
samþykkt tillaga sem Halldór
Ásgrímsson flutti um stuðning við
samstarf þjóða _ á norðurheim-
skautssvæðinu. í tillögunni sem
miðflokkar á Norðurlöndum
stóðu að var lagt til að haldin
yrði alþjóðleg ráðstefna sem yrði
fyrsta skrefið í átt til aukinnar.
samvinnu þjóða á norðurhjara
veraldar.
Tillagan sem Halldór flutti var í
þremur liðum. í fyrsta lagi var gert
ráð fyrir að Norðurlandaráð legði
sitt af mörkum til samstarfs þjóða
á heimskautssvæðinu. í öðru lagi
að stuðlað yrði að aukinni samvinnu
þjóðanna með alþjóðlegri ráðstefnu.
I þriðja lagi að forsætisnefnd Norð-
urlandaráðs ynni að því að ríkis-
stjómir landa á norðurhjara tækju
upp umfangsmikið samstarf.
I greinargerð með tillögunni var
á það bent að Norðurlöndin hefðu
mikið samstarf við nágrannaríki og
ætti þetta einkum við um Eystra-
saltssvæðið. Mikilvægi samvinnu
þjóða á norðurhjara færi vaxandi og
hlyti það að vera verkefni Norð-
urlanda að notfæra sér möguleikana
á samstarfi í þessum heimshluta.
Þegar væri nokkur samvinna í um-
hverfísmálum og rannsóknum. I
framtíðinni hlytu samgöngu- og
menningarmál að bætast þar við.
Kappkosta yrði að frumbyggjaþjóðir
gætu byggt upp eigið atvinnulíf.
í greinargerðinni kom fram sú
skoðun að auk Norðurlanda ættu
Kanada, Bandaríkin og Rússland að
eiga aðild að samstarfínu á norð-
urhjara.
Akranes:
Féll af þaki
og meiddist
Beltagrafa íhöfnina íEyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Vestmannaeyjum.
Beltagrafa sem var að vinna við undirbúning nýs lægis fyrir Heijólf
í Eyjum, lenti í höfninni á fimmtudag. Erfiðlega gekk að ná gröf-
unni upp, þar sem hún er um 40 tonn á þyngd, en með hjálp stór-
virkra vinnuvéla tókst það seint á fímmtudagskvöld. Grafan stóð
mannlaus á fyllingu við Heijólfslægið er bakki hrundi undan henni
um hádegisbil á fímmtudaginn. Lágsjávað var er óhappið átti sér
stað og stóð hús hennar því uppúr sjónum. Ekki tókst að ná henni
upp áður en flæddi og fór hún því á bólakaf á flóðinu. Seint á
fímmtudagskvöldið náðist grafan síðan upp og í gær var unnið að
viðgerð á henni. Talsverðar skemmdir urðu á henni en í gær var
ekki vitað hversu alvarlegar þær væru. Vélbúnaður virtist í lagi en
rafkerfí var eitthvað skemmt. Eigandi gröfunnar var ótryggður fyr-
ir óhappi af þessu tagi.
Grímur
Tekjur af virðisaukaskatti 1991:
Innheímtan 2,6 milljörðum
minni en áætlað hafði verið
INNHEIMTA virðisaukaskatts varð um 2,6 milljörðum króna minni
á síðasta ári en fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Á fjárlögum var
áætluð innheimta virðisaukaskatts 41,6 miHjarðar kr. og þar af
voru áform um að afla um 800-900 miiy. kr. með hertri inn-
heimtu og eftirliti. Niðurstaðan varð 39 miiyarða kr. innheimta
og hafði hún þá dregist saman um 4% að raungildi frá árinu 1990.
Þetta kemur fram í skýrslu fjármálaráðuneytisins um ríkisfjármál-
in á nýliðnu ári.
Halli á rekstri ríkissjóðs nam
um 12,5 milljörðum á síðasta ári
og voru heildartekjur ríkissjóðs
tæplega 1,8 milljörðum kr. undir
fjárlagaáætlun en útgjöld 6,7 millj.
neytið telur benda til að áhrif af
aukinni veltu hafí vegið upp siaka
í innheimtu framan af ári. „Þegar
draga tók úr eftirspum á síðustu
mánuðum ársins komu áhrif af
lakari innheimtu og versnandi ár-
ferðis í ljós í minni tekjum af virðis-
aukaskatti en áætlað hafði verið,“
segir í skýrslunni.
Einnig er bent á til skýringar
að frádráttarbær virðisaukaskatt-
ur af aðföngum (innskattur) hafi
hækkað meira en endanleg álagn-
ing (útskattur). Af því leiði að
nettóskil hafí aukist minna en al-
menn velta.
Þá er þess einnig getið að bein-
ar endurgreiðslur virðisaukaskatts
hafi verið talsvert meiri en reiknað
MAÐUR slasðist þegar hann datt
ofan af þaki sumarbústaðar í
smíðum inni í trésmiðjunni Akri
á Akranesi í gærdag.
Manninum skrikaði fótur á þak-
inu og féll um það bil 3 metra nið-
ur á steinbgólf. Hann meiddist á
handlegg og höfði og var fluttur á
slysadeild sjúkrahússins á Akkra-
nesi til athugunar. Að sögn lögregl-
unnar á Akranesi reyndust meiðsli
hans ekki eins alvarleg og talið var
í fyrstu.
kr. yfír henni.
í þeirri spá sem var lögð til
grundvallar tekjuáætlun fjárlaga
fyrir árið 1991 var gert ráð fyrir
að neysluútgjöld heimilanna
myndu aukast um 1Vi% á árinu
en verðbólgan yrði um 7%. Endur-
skoðun hefur hins vegar leitt í ljós
að neyslan hafi aukist um 5‘/2% á
árinu. „í ljósi þessarar þróunar
hefðu tekjur af virðisaukaskatti átt
að aukast nokkuð frá ijárlagaáætl-
un að öðru óbreyttu. Raunin varð
hins vegar önnur,“ segir í skýrsl-
unni.
í henni segir einnig að fyrstu
átta mánuði ársins hafí tekjur af
virðisaukaskatti verið í takt við
áætlun fjárlaga sem ijármálaráðu-
var með. Þar er m.a. átt við endur-
greiðslur vegna hráefnakaupa físk-
vinnslu, sem námu 5,7 milljörðum
kr., aðkeyptrar þjónustu sveitarfé-
laga, sem námu rúmlega 600 millj.,
og vinnu við íbúðarhúsnæði, sem
námu 1,4 milljörðum kr. Þær ijár-
hæðir ættu að óbreyttu að skila
sér síðar í formi útskatts, að mati
ijármálaráðuneytisins, en ekki
liggja fyrir upplýsingar um þessi
skil. Samtals voru endurgreiðslur
á virðisaukaskatti á árinu tæplega
8,5 milljarðar kr.
Dagsbrún fundar um stöð-
una í samningamálunum
STJÓRN og trúnaðarráð verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar hef-
ur verið kallað saman til fundar
fyrir hádegi í dag til þess að
fara yfir stöðuna í viðræðum um
nýja kjarasamninga. Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, segir að Dagsbrún
hefði viljað hafa aðrar áherslur
og forgangsröð í viðræðunum en
orðið hefði ofan á hjá forystu
Alþýðusambandsins, en þó sé það
alls ekki þannig að félagið ætli
sér að hlaupa frá félögum sinum
í Verkamannasambandinu.
Guðlaugnr Gíslason,
fv. alþingismaður látínn
GUÐLAUGUR Gíslason, fyrrver-
andi alþingismaður og bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum er lát-
inn, 83 ára að aldri.
Hann fæddist á Stafnesi í Mið-
neshreppi 1. ágúst 1908, sonur
hjónanna Gísla Geirmundssonar
útvegsbónda og Þórunnar Jakobínu
Hafliðadóttur og fluttist með þeim
til Vestmannaeyja 5 ára gamall.
Guðlaugur lauk prófi frá verslun-
arskóla í Kaupmannahöfn 1931.
Hann var kaupmaður í Vestmanna-
eyjum frá 1932-1934 og frá 1948-
1954. Guðlaugur var bæjargjaldkeri
í Eyjum frá 1934-1937, hafnar-
gjaldkeri frá 1937-1938 og kaupfé-
lagsstjóri Neytendafélags Vest-
mannaeyja frá 1938-1942. Hann
var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
frá 1954-1966.
Guðlaugur Gíslason var virkur í
íþróttalífi Vestmannaeyja og starf-
aði meðal annars í stjórn íþróttafé-
lagsins Þórs, þar sem hann var
heiðursfélagi. Þá var hann einn af
stofnendum Golfklúbbs Vest-
mannaeyja og stundaði þá íþrótt
meðan heilsa leyfði.
Guðlaugur var kjörinn til setu á
alþingi sem þingmaður Vestmanna-
eyja árið 1959 og sat síðan á Al-
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem
þingmaður Sunnlendinga til 1978.
Meðal annarra trúnaðarstarfa hans
má nefna setu í stjórn Viðlagasjóðs
frá 1973 og setu í bankaráði Út-
vegsbanka Islands um árabil. Þá
var hann vararæðismaður Svíþjóðar
um áratugaskeið. Þá gegndi hann
ýmsum störfum fyrir samtök Sjálf-
stæðismanna.
Eiginkona Guðlaugs Gíslasonar,
„Ég var einn af þeim sem taldi
að það hefði verið hyggilegra að
snúa sér fyrr að efnisatriðum samn-
inga en byija ekki á því að ein-
skorða sig við tímalengd þeirra. Ég
hefði viljað sjá hvað væri í boði til
skemmri tíma og hvað væri í boði
til lengri tíma,“ sagði Guðmundur
í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að Dagsbrún hefði
ennfremur viijað fá úr því skorið
hvort ekki hefði verið hægt að ná
samstöðu með öðrum launþegasam-
tökum og þeim fyndist einnig hafa
verið gengið framhjá Dagsbrún í
þessum viðræðum. „Dagsbrún hef-
ur verið opin fyrir báðum möguleik-
unum, samningum til langs 0g
skamms tíma. Við vildum ná víð-
tækari samstöðu og okkur finnst
hafí verið gengið framhjá Dags-
brún, en við munum ekki yfirgefa
Verkamannasambandið. Það er
hins vegar kurr í félaginu og við
getum ekki haldið áfram nema kalla
saman stjórn og trúnaðarráð og
fara yfír stöðuna," sagði Guðmund-
ur að lokum.
Tölvuvírusinn eyddi gögn-
um í nokkrum vélum
LJÓST ER að tölvuvírusinn Michelangelo eyðilagði gögn í nokkrum
PC-vélum hér á landi í gær þegar vírusinn varð virkur, að sögn
Friðriks Skúlasonar tölvufræðings. Hann sagði að ástandið hefði
getað orðið verra þar sem margir hefðu náð að „sótthreinsa“ tölv-
ur sínar með vírusleitarforriti hans sem hægt var að fá keypt á
kostnaðarverði fyrir 6. mars.
Guðlaugur Gíslason
Sigurlaug Jónsdóttir, lifír mann
sinn ásamt sex uppkomnum böm-
um þeirra.
Friðrik sagði að undanfama
daga hefðu margir tilkynnt honum
að þeir hefðu fundið umræddan
vírus eða einhvem annan í tölvum
sínum. Meðal annars hefðu allar
tölvur á ákveðinni verkfræðistofu
reynst vera sýktar, en það tókst
að sótthreinsa þær í tíma. „Það var
vitað fyrirfram að þessi vírus væri
á 50-500 vélum, en mér sýnist þó
að fjöldinn hafí verið nær neðri
kantinum. Það er ljóst að vírusinn
hefur komið upp á nokkrum stöðum
og eyðilagt upplýsingar, og þrír
aðilar hafa tilkynnt mér að þeir
hafí misst allt út af vélunum hjá
sér,“ sagði hann.