Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
9
OPIÐ LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA FRÁ
KL. 11:00 TIL 17:00
GRJÓTAPORTIÐ
Bílastceðishúsinu Vesturgötu 7, sími 81 25 81
WKO járnrúm
Ný sending - mikió úrvnl
Teg. 529 - 160 x 200 - Verð kr. 59.755,- stgr. m/svampd.
Teg. 661 - 90 x 200 - Verð kr. 28.300,- stgr. m/svampd.
Visa - Euro ráógreiðslur
OPH> í DAG TIL KL 16
itaaiaBiiiacai
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 54100.
Fast gengi — stöðugt verðlag
Úr vanda sjávarútvegsins verður varla
bætt með skynsamlegu móti nema með
því að leggja togurum og fækka frystihús-
um í rekstri, segir í nýlegri grein í Vís-
bendingu.
Kröfurum
gengislækkun
í síðasta tölublaði Vís-
bondingar, riti Kaup-
þings hf. um efnahags-
mál, er grein þar sem
fjallað er um vandann í
sjávarútvegi. I upphafi
hennar eru riljaðar upp
tölur Þjóðhagsstofnunar
um 4% meðaltalstap á
veiðum og viimslu. Þá
segir í greininni:
„I framhaldi af þeim
upplýsingum sem fram
komu lýá sjávarútvegs-
ráðherra sagði formaður
samtaka útvegsmanna að
annað hvort yrðu laun
að lækka eða lifskjör al-
mennings að versna með
öðrum hætti ef tryggja
ætti viðunandi rekstrar-
stöðu sjávarútvegs. Með
seinni kostinum hefur
formaðurimi sennilega
annað hvort í huga geng-
islækkun eða þær tillög-
ur Vinnuveitendasam-
bandsins að sköttum
verði létt af atvinnulífi
og tekjuskattur almenn-
ings hækkaður í staðinn.
Hann vill færa rekstur
sjávarútvegs í fyrra horf
með því að lækka raun-
gengi krónunnar (fram-
leiðslukostnað á íslandi
miðað við kostnað i öðr-
um löndum). Þannig að
laun eða gengi lækki eða
skattar færist til. En
hvers vegna vcrsnaði
hagur sjávarútvegs?
Ástæðan er alls ekki sú
að kostnaður á íslandi
hafí hækkað meira cn
verð afurða á eriendum
mörkuðum. Verðið hefur
raunar hækkað miklu
meira undanfarin ár en
laun hér á landi. Ástæða
þess að sjávarútvegi
vegnar verr en áður er
að afli er miirni en áður.
Togarar og frystihús eru
þvi verr nýtt. Úr þessu
verður varla bætt með
skynsamlegu móti nema
með því að leggja togur-
um og fækka frystihús-
um í rekstri.
Lengi vel var gengi
krónunnar ákveðið með
það að markmiði að af-
koma sjávarútvegs yrði
sem næst núlli. Fyrirtæki
í sjávarútvegi þurftu
ekki að hafa miklar
áhyggjur af kauphækk-
unum og'Iítil ástæða var
til að safna í sjóði til að
jafna sveiflur, því að af-
koman var nánast tryggð
frá degi til dags. Þetta
öryggi sjávarútvegsfyr-
irtækja þýddi öryggis-
leysi fyrir aðra. Laun-
þegar máttu þola miklar
sveiflur i kaupinætti og
ytri skilyrði annarra at-
vinnugreina voru mjög
sveiflukennd. Fyrir kom
að góðæri í sjávarútvegi
yrði heilum iðngreinum
að aldurtila. Meðaltalsað-
ferðin ýtti líka undir of-
fjárfestingu í sjávarút-
vegi. Ráðist var gegn
halla í greininni með þvi
að lækka gengi eða
styrkja einstök fyrirtæki
í stað þess að Iáta verst
settu fyrirtækin fara á
höfuðið. Minna má á að
matvöruverslanir voru
að meðaltali reknar með
halla eftir að stórmark-
aðir komu til sögunnar.
Stjórnvöld reyndu þó
ekki að bæta afkomuna,
heldur leystist vandinn
af sjálfum sér. Þær búðir
sem ekki gátu boðið nógu
ódýrar vörur lögðu upp
laupana. Verslunum
fækkaði og vöruverð
lækkaði. Gæti hugsast að
rétta verkefnið í sjávar-
útvegi sé ekki að reka
meðaltalið á sléttu?
Kannski er réttara að
spyija: Er svo illa búið
að útvegi hér á landi að
enginn nenni að sækja
fískinn út á sjó? Eða er
gróðavonin kamiski svo
mikil að altt of margir
séu að vasast I þessu? Á
mörgum er það að skilja
að þjóðarhag væri betur
borgið ef togurum og
frystihúsum fækkaði um
20%.
í Austur-Evrópu var
þjónusta lengi vel ekki
talin til þjóðarfram-
leiðslu. Þetta leiddi til
þess að lestakerfí var lát-
ið drabbast niður, en allt
kapp lagt á að efla iðnað.
Þannig getur rangt verð-
mætamat stjórnvalda
brenglað áherslur
þeirra."
Atvinnubætur
„Mikilvægi fiskvinnslu
fyrir atvinnu á lands-
byggðinni sést á atvinnu-
leysistölum fyrir janúar-
mánuð, en þá höfðu mörg
fískvinnslufyrirtæki sagt
upp fólki vegna Iiráefn-
isskorts. Tap á frystingu
og söltun er nú um 8%
af tekjum ef marka má
könnun Þjóðhagsstofn-
unar. Víða virðist rekstur
fremur stundaður til at-
vinnubóta en af gróða-
von. Fólk í sjávarþorpum
gerir þá kröfu til útvegs-
fyrirtækja að þau haldi
atvinnu uppi, enda yrði
byggð víða í hættu ef þau
hættu rekstri. Slæm af-
koma fiskvinnslu hefur
þó komið fram í því að
hún hefur ekki verið
samkeppnisfær í launum.
Störf við að vinna fisk
hafa þvi ekki freistað
nægilega margra heima-
mamia. Fyrirtækin hafa
ráðið erlent starfsfólk,
sem kemur hingað í æv-
intýraleit, til þess að fylla
í skörðin. Fiskvinnslan
hefur einnig átt erfítt
með að bjóða nógu hátt
fiskverð. Skorður eru
settar við siglingum með
aflann til erlendra hafna
og útflutningi á ferskum
fiski og er það meðal
annars gert til þess að
vernda fiskvinnslu í
landi. Kvótaálag vegna
útflutnings á ferskum
þorski og ýsu var hækk-
að úr 15% í 20% í byijun
árs 1991. Þetta á þátt í
þvi að ísfiskútflutningur
minnkaði mikið á þessum
tegundum í fyrra, en
hlutur landfrystingar
jókst. í haust kynnti sjáv-
arútvegsráðherra tíUög-
ur að nýjum reglum um
frystítogara. Þær eiga að
tryggja aðbúnað skip-
veija og vörugæði, en
ekki var dregin dul á það
að þeim væri einnig ætl-
að að sporna við því að
frysting flyttist út á sjó.
Eðlilegt er að fólk óttist
atvinnuleysi, en fara
verður mjög varlega I
aðgerðir til atvúmubóta,
því að þær geta dregið
úr hagkvæmni fram-
leiðslu og spiUt sam-
keppnisstöðu íslenskra
atvinnuvega.“
Ávöxtun á erlendum verðbréfum
33% raunávöxtun í North-America á einu ári.
Opið í Kringlunni í dag á milli kl.10 og 16.
Brynhildur Sverrisdóttir hagfræðingur,
verður í Kringlunni í dag.
Verið velkomin!
(Qf
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
KRINGLUNNI. 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700
HEITI VERÐBRÉFASJÓÐS RAUNÁVÖXTUN M.V. 1ÁR (5.03.91 - 5.03.92) RAUNÁVÖXTUN M.V. SÍÐUSTU 3 MÁN. (5.12.91-5.03.92)
CONTINENTAL EUROPE -1.41% 26.17% . ■
FAREAST 19.50% 50.24%
GLOBAL 6.45% 35.19%
NATURAL RESOURCES 18.58% 59.84%
INTERNATIONAL 8.70% 27.25%
JAPAN -14.04% -32.55%
MEDITERRANEAN -10.34% 18.76%
NORDIC -14.18% . 1.16%
NORTHAMERICA 33.07% 105.90%
UNITED KINGDOM -5.13% 18.38%