Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 10

Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 10
' ‘tóORÓ'lMBLAÐIÐ’ í'AÓÓARbAÓU'á 7.' MARý' lOÖ2 ío Jón Ásgeirsson Sinfóníuhljómsveit íslands var með „gula“ tónleika sl. fimmtudag í Háskólabíói. Á efnisskránni voru verk eftir Gottfried von Einem, Pál P. Pálsson og Felix Mendelssohn. Einleikari var Sigvrður Ingvi Snorrason en stjómandi Páll P. Pálsson. Tónleikarnir hófst á Capriccio op. 2, eftir Gottfried von Einem, en þetta verk var fyrst leikið af Berlín- arfílharmoníunni árið 1943, undir stjórn Leo Borchard og vakti þegar mikla athygli þar í landi. Á þessum árum starfaði hann sem aðstoðar- hljómsveitarstjóri og söngþjálfari (coach), bæði við óperuna í Berlín og í tengslum við tónlistarhátíðimar í Bayreuth. Verk þetta er hefðbund- ið að gerð, tematískt, skýrt í formi og er einkum vel ritað fyrir lúðrana og lék hljómsveitin það ágætlega, undir öruggri stjórn Páls P. Páls- sonar. Annað viðfangsefni tónleikanna var klarinettukonsert, eftir stjóm- andann en einleikshlutverkið var í höndum Sigurðar Ingva Snorrason- ar. Klarinettukonsert þessi er fal- lega unninn og ýmsir hljómsveitar- þættimir sérstaklega, t.d. innkoma hljómsveitarinnar eftir upphafs- kadensu klarinettsins og upphafið á öðram þættinum, sem er sérlega fallegt, svo og niðurlagið, þar sem klarinettið flytur tónhendingar úr Sigurður Ingvi Snorrason Þorlákstíðum en hljómsveitarundir- leikurinn er þar einn liggjandi tónn. Sigurður lék konsertinn mjög vel, með sínum fallega og mjúka tóni. Tónleikunum lauk með „ítölsku“ sinfóníunni eftir Mendelssohn. í fyrsta kaflanum höfðu strengirnir ekki í fullu tré við blásarana hvað varðar styrk og þó að margt væri vel gert hjá hljómsveitinni var flutn- ingur verksins í heild of taktfastur. T.d. í öðram kaflanum, þar sem sellóin og basamir leika gangandi mótrödd við aðalstefíð, var hvergi slakað á, hvorki við hendingaskil eða þar sem tónboginn reis og það- an af síður þar sem slaknaði á spennunni. Þriðji þátturinn (menú- ettinn) var vel leikinn og sömuleiðis var margt vel gert í þeim síðasta, Saltarello-þættinum, sem þrátt fyr- ir feikna mikinn hraða var í heild vel leikinn. Sinfóníu- tónleikar Tónlist Skrifstofuhúsnæði óskast Félagasamtök óska eftir að kaupa skrifstofuhúsnæði í Reykjavík að lágmarksstærð 500 fm. Leitað er að sér húsi en það er þó ekki skilyrði. Nánari upplýsingar í síma 621400. Hafnarfjörður - Öldutún Til sölu 2ja hæða 153 fm 6 herb. raðhús hjá Öldutúns- skóla. 30 fm bílskúr. Svalir á báðum hæðum. Opiðídag Áfni Gunnlaugsson, hrl., frákl. 12-17 Austurgötu 10, sími 50764. 911 Kfl 91 97fl L^RUS VALDIMARSSON framkvæmdastjörí- ', L 1 I 0U"C 10 I U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggilturfasteignasáu‘ Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Rétt við Miklatún 5 herb. neðri hæð 121 fm auk bílskúrs í reisulegu fjórbhúsi. Nýlega endurnýjuð. Allt sér. Ræktuð lóð. Vinsæll staður. Á góðu verði með góðum bílskúr Suðuríbúð 2ja herb. á 2. hæð 59,2 fm nettó syðst við Stelkshóla. Góður upphitaður bílskúr. Laus fjótlega. Nýlega endurbyggð sérhæð við Stigahlið 6 herb. neðri hæð 147 fm. 4 svefnherb. Góður bílskúr 28 fm. Skipti möguleg á góðri 3ja-4ra herb. íb. á 1. eða 2. hæð eða í lyftuhúsi. Á 1. hæð við Eskihlið Rúmgóð 4ra herb. íb. 103,3 fm auk geymslu og sameignar. Gott geymslu- og föndurherb. í kj. Sameign endurbætt. Góð lán áhv. Glæsileg eign á góðu verði Endaraðhús í Breiðholtshverfi 158 fm á hæð. Allt eins og nýtt. Kjall- ari jafn stór er undir húsinu. Sérbyggður bílskúr. Eignaskipti möguleg. Rétt hjá Álftamýrarskóla Suðuríbúð 3ja herb. á 3. hæð. Rúmgóð stofa. Sólsvalir. Ágæt sam- eign. Bílskúrsplata fylgir. Útsýni. Sérbýli 100-120 fm óskast Nýlegt eða endurnýjað húsnæði óskast. Má vera raðhús, parhus eða sérhæð. Góð 3ja-4ra herb. nýleg blokkaríbúð kemur til greina. Skipti möguleg á einbýlishúsi í Vogahverfi með 5 svefnherb. Nánari uppl. trúnaðarmál. • • • Opiðídag kl. 10.00-16.00. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Almenna fasteignasalan sf. var stof nuð 12. júlí 1944. AIMENNA FASTEIGNASAIAH LÁÚGWÉGM8 SÍMAR 21150 - 21370 • • • Dýraríki íslands Myndlist Eiríkur Þorláksson í anddyri Norræna hússins eru stundum settar upp sýningar, sem ekki fer mikið fyrir í fjöimiðlum, en eru þó allrar athygli verðar. Ein slík sýning hefur staðið yfir undanfama daga, en þar sem hún stendur óvenju stutt (til 5. mars), verður henni að líkindum lokið þegar þetta kemur fyrir sjónir les- enda. Er það miður, þar sem hér er um að ræða myndir, sem ættu að ná að heilla allan almenning. Hér eru á ferðinni vatnslita- myndir af íslenskum dýrum eftir listamanninn Brian Pilkington, og munu þetta verða frummyndir að myndskreytingum í bókina Dýr- aríki Íslands, sem kernur út innan skamms á vegum bókaútgáfunnar Iðunnar. Brian Pilkington hefur löngu áunnið sér sess sem einn af þeim listamönnum hér á landi, sem náð hafa hvað bestum árangri við myndskreytingar bóka. Hann hef- ur skreytt fjölda barna- óg ungl- ingabóka, sem hafa unnið sér fastan sess sem lesefni unga fólks- ins, og hefur auk þess unnið sem listamaður á öðrum sviðum. í ávarpsorðum til gesta segir listamaðurinn m.a. að hann hafi sem ungur dregur heillast af fugla- bókum, og alltaf dreymt um að myndskreyta bók um ríki náttúr- unnar. „Nú, mörgum árum síðar, kom loks að því að mér opnuðust möguleikar á að láta þennan gamla draum rætast. Ég greip tækifærið fegins hendi og hef nú í heilt ár notað hveija stund sem gafst til verksins." Þessi draumur og innileikinn sem felst í honum skín út úr verkunum. Hér er ekki um að ræða frjálslega túlkun heldur nákvæma útfærslu viðfangsefnanna, og því er hin geysilega tæknilega geta lista- mannsins með vatnslitina lykillinn að hversu vel tekst til. Á sýning- unni getur einkum að líta myndir af fuglum, og sumar myndanna eru svo lifandi að þær spretta fram úr fletinum. Dýrin eru ýmist máluð á hvítan grunn eða settar í náttúru- legt umhverfi, og í báðum tilvikum komast séreinkenni þeirra vel til skila. Haförninn er jafn tignarlegur og hagamúsin er vel aðlöguð um- hverfi sínu, og- rauðmaginn er vissulega fagur fískur í sjó. Það eru fuglamyndimar sem listamaðurinn leggur mesta vinnu í, og sem gestir skoða best; það verður fengur að því að fá þessi verk öll á einum stað, aðgengileg í bók. Eins og áður segir stóð þessi sýning allt of stutt, (aðeins 12 daga), og væri æskilegra að Nor- ræna húsið gæfí sýningum í and- dyri sama tíma og sýningum í kjall- ara hússins, til að sem flestir fengju notið þeirra. fikiSÍMQDDfí] Umsjónarmaður Gísli Jónsson 631. þáttur Gott er þætti sem þessum að eiga trausta uppihaldsmenn. Mörg góð bréf hef ég fengið frá Jóni Á. Gissurarsyni í Reykjavík, og hér segir hann m.a.: „Hr. Gísli Jónsson, Akureyri. „... þetta sígur upp“ mátti heyra sjónvarpsþul segja á dög- unum. Honum virðist hulin ráð- gáta að sögnin að síga er stefnu- mótandi svo að nánara ákvæðis- orði er ofaukið, enda „upp“ hér ekki einungis ofaukið, heldur beinlínis rangt. Eitthvað sígur niður en ekki upp ... Verið er að lýsa veðurhorfum í sjónvarpi. Þá varð veðurþul að orði: „... kalt loft mun ná yfir- tökum“, þ.e. kalt loft væri í að- sigi. Hér ruglast sá góði maður í ríminu. í átökum fær sá betri vígstöðu sem undirtökum nær. Orð hans eru því í andstöðu þess sem ætlað var. Menn geta skreytt orðræður sínar málsháttum, orðtökum og fleygum setningum en því aðeins að þeir kunni á þeim full skil. Að öðrum kosti getur úr orðið hinn fáránlegasti afkáraskapur. Hér þyrftu útvarps- og sjón- varpsmenn að ganga í fylkingar- brjósti, öðrum til eftirbreytni en ekki til viðvörunar." Umsjónarmaður tekur undir þessi lokaorð bréfritara. Sem betur fer eru slíkir menn til á fyrmefndum stofnunum, en þar er raunalega misjafn sauður í mörgu fé, og fer umsjónarmaður ekki frekari orðum um það að sinni. ★ Hlymrekur handan kvað: Skipti á brúði og byssunni góðu, hann Brynki og augu hans glóðu (ég yrki um það stef) enda eygði hann þá ref „lengst austur í bláfjallamóðu". ★ 1) Steindór Steindórsson frá Hlöðum er ósammála okkur Þór- oddi lækni um tjaldurinn. Stein- dór vill beygja orðið eins og fald- ur. Þá segir hann mér að heima á Hlöðum hafí verið hrútur mjög bjartleitur og nefndur Mjaldur. Beygðu menn það líka eins og faldur. Umsjónarmaður tók reyndar snemma eftir því að skepnuheiti væru stundum beygð öðruvísi en fyrirbærið sem skepnan var skírð eftir. Þannig sögðu menn á Hofi í Svarfaðar- dal „lömbin hennar Nóttar“, þótt þeir á hinn bóginn kynnu glögg skil dags og nætur. Al- þekkt nafn á svörtum ám er Nótt. Þá þótti Steindóri Steindórs- syni sögnin að hundsa (hunsa) mikils til ofnotuð um þessar mundir, t.d. í fréttum eða stjórn- málaumræðu. Honum fannst hún einkum of oft höfð, þar sem önnur sögn eða annað orðasam- band með vægari merkingu ætti betur við, svo sem humma fram af sér, láta sem vind um eyru þjóta, taka ekki tillit til, snið- ganga. 2) Aftur fóru þeir að auglýsa „garnaútsölu“ í sjónvarpinu. Þetta kom upp í fyrra eða hittið- fyrra, og þá var þetta strax leið- rétt. Mér er ekki ljóst hvort enn- þá stendur yfir útsala á „görn- um“, en ég myndi helst leita upplýsinga um slíkt hjá Sláturfé- lagi Suðurlands eða kjötiðnaðar- stöð KEA. 3) Úr gamalli landsprófsúr- lausn í náttúrufræði: „Hrognkelsinn er meindýr af skolpdýraættinni. Hann hefur einn maga, en út úr honum ganga níu botnlangar. Þegar hann verður fyrir árás, spýr hann frá sér dökkleitum vökva, og verður þá óvinurinn svartur í framan.“ ★ Karlheitið Hernit kom upp hér á landi á 19. öld, að því er virðist einhvern tíma frá 1855- 1870. Þetta nafn kemur fyrir sem kappaheiti í Blómstur- vallasögu sem Pálmi Pálsson íslenskukennari taldi vera frá ofanverðri 14. öld. Nafnið fylgdi svo auðvitað, þegar rímur voru ortar út af sögunni. Það gerði Þorsteinn Jónsson á Dverga- steini, og þar stendur til dæmis: Blómsturvallafólkið fann framann snjalla, langvinnan. En maður sem ósnjallur var að muna erfiðan -kveðskap hag- ræddi þessu svo: Blómsturvalla fólkið fann, fór að spjalla langvían. En áfram með Hernit. Mjög svipuð nöfn koma fyrir í Þiðriks sögu af Bern, og eru í þýskum bókum talin standa fyrir Hart- neid, en það þýða þeir „kampe- seifer“. Það er Sigfús á íslensku eða Vigfús. Sama er, Sikkús og Vikkús, sagði kerlingin með framburði sem þekktist fyrir norðan. Það var því mjög í stíl, að í Svarfaðardal var skírður sveinninn Sigfús Hernit 1883. En árið 1910 voru aðeins tveir Hernitar á íslandi, báðir fæddir í Þingeyjarsýslu. Nú sýnist nafn- ið vera útdautt. ★ Prófessor Halldór Halldórsson hringdi tii mín og sagði mér frá því, að tæki til að slökkva ljós á kerti hefði átt sitt fasta heiti á sínu heimili í 20-30 ár: skar- klofi. Hann minnir að í ein- hveiju af ritum Guðbrands Þor- lákssonar Hólabiskups (d. 1627) komi þetta fyrir. Halldóri þykir orðið skarklofi fallegra en eign- arfallssamsetningin skaraklofi *sem Freysteinn Gunnarsson hafði í dansk-íslenskri orðabók sinni sem þýðing á lyseslukker. ★ Eg var inn leiddur, yli húss seiddur, dúk’r á borð breiddur, beini fram reiddur. Kom svo krúsflæði, krása marggæði andrík óðkvæði; - alt lék á þræði. Frábær framreiðsla fyrirtaks greiðsla, kræsinga-neyzla konungleg veizla, svellfeilur hlaði af sauðaspaði í munn sem mjólkaði eins og „marmelade". (Matlhías Jochumsson," 1835-1920, um viðtökur í Þverárdal, Bólstaðar- hlíðarhreppi, A.-Hún.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.