Morgunblaðið - 07.03.1992, Síða 15

Morgunblaðið - 07.03.1992, Síða 15
MpfiGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAJIZ 1992 Kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum: Kennum bömun- um að segja nei eftir Ólöfu Ástu Farestveit Kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum virðist vera að aukast. Ein- stakir atburðir síðustu ára hafa vakið upp hræðslu og óhug meðal foreldra og þorra almennings. En höfum hugfast að við getum í raun verndað barnið okkar. Foreldrar, félagsráðgjafar og kennarar þurfa að taka höndum saman og beijast á móti vaxandi ofbeldi gagnvart börnum. Auka þarf sjálfsþekkingu og sjálfsvirð- ingu þeirra svo þau öðlist nægjan- legan þroska til að koma í veg fyr- ir að þau verði fyrir kynferðislegu ofbeldi. I Bandaríkjunum er nú verið að vinna að mjög áhugaverðu kennslu- verkefni í bamaskólum sem miðar að þvi að koma í veg fyrir að böm verði fyrir þesskonar reynslu. Þetta verkefni hefur hlotið nafnið „Protect Charlie save Program". En á seinni árum hefur gripið um sig mikill ótti meðal margra for- eldra í Bandaríkjunum að börn þeirra geti orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi utan heimilanna og þessi ótti hefur oft verið svo ríkur að foreldrar hafa vart þorað að láta börnin vera ein og eftirlitslaus utan- dyra. Hinsvegar gleymist oftast í um- ræðunni annað og enn stærra vand- amál þessu skylt sem litla eða enga umfjöllun hefur fengið og það er kynferðislegt ofbeldi gagnvart bömum framin af einhveijum innan fjölskyldunnar eða af einhveijum öðrum sem bamið þekkir til. Rann- sóknir sýna fram á að 85% af öllum kynferðisafbrotum gagnvart börn- um eiga sér stað innan fjölskyld- unnar, af nágranna eða öðrum sem barnið þekkir. í Svíþjóð hefur þriðja hvert stúlkubarn að 18 ára aldri einhverntíma á æviskeiði sínu orðið fyrir kynferðislegri áreitni í and- stöðu við vilja sinn. Þá er miðað við kunnugan aðila eða ókunnugan. Við íslendingar höldum gjaman að þetta eigi sér ekki stað í þjóðfé- lagi okkar og því síður í fjölskyldu okkar. En því miður, þannig er þessu bara ekki farið. Kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum er því miður miklu algengara en flest okk- ar gera sér grein fyrir. Rannsóknir í Bandaríkjunum benda til að af hveijum 10 börnum hafi 4 orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi áður en það nær 16 ára aldri. í slíkum til- fellum þar sem barn hefur orðið fyrir slíku ofbeldi og upp hefur komist þá hættir mörgum fullorðn- um til að telja að börnin séu að búa þetta til eða jafnvei ljúga til um slíkan verknað. En nýjar og mjög áreiðanlegar rannsóknir sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum og Svíþjóð um þetta efni hafa sýnt fram á að börn- in ljúga ekki til um slíka atburði. Og við skulum gera okkur fyllilega grein fyrir því að jafnvel í dag er það staðreynd að þrátt fyrir öll þessi kynferðislegu afbrot gagnvart börnum sem uppvís verða þá koma fáir gerendur fyrir rétt og enn færri þeirra hljóta dóm fyrir afbrot sín. Þessi mikla þögn og leynd sem hvílir yfír slíkum afbrotum, gerir það að verkum að foreldrar eru ekki nægjanlega meðvitaðir um nauðsyn þess að fræða böm sín um þessi mál. Þeir óttast jafnvel að vekja Upp óþarfa ótta hjá bömum sínum. Hvaða foreldri vill t.d. gera það að verkum að dóttirin þori ekki að vera utandyra og sjái jafnvel kynferðisgiæpamann í hvéijum karlmanni sem hún mæti utandyra. Sem betur fer er þetta ekki svo. Við megum ekki gleyma því að börnin bera virðingu fyrir því sem fullorðnir segja og taka fullt mark á því ef þeim er leiðbeint um hvern- ig þau eigi að veija sig fyrir ásókn. I Bandaríkjunum hefur t.d. verið hlutverk skólans um langt árabil Ólöf Ásta Farestveit „Börnin veröa aö læra að gera greinarmun á því hvaða atlot eru góð og hvaða atlot geta leitt af sér illt athæfi gagn- vart þeim.“ að styrkja líkamlegt og andlegt heilbrigði nemendanna. Þar er mik- ið lagt upp úr að vinna að fyrir- byggjandi starfí varðandi áfengi og vímuefnanotkun. Má þar minna á kennsluverkefnið Lions Quest sem hefur rutt sér til rúms í barna- og unglingaskólum þarlendis. Þetta kennsluverkefni hefur nú einnig verið tekið í notkun í flestum skól- um hér á landi og er það von mín að það fái þar verðugan sess. Reykjavíkurborg hefur til að mynda samþykkt að það verði kennt í öllum 12 ára bekkjum í vetur og sama er í Garðabæ. Kennsluverkefni „Project Sportkafarafélagið 10 ára SPORTKAFARAFÉLAG íslands verður 10 ára sunnudaginn 8. mars nk. Þau 10 ár sem félagið hefur starfað hefur það staðið vörð um köfunaríþróttina og endurbætt aðstöðu til köfunaræfinga. Sportkaf- arafélag íslands hefur staðið fyrir köfunarnámskeiðum og eru nú starfandi köfunarkennarar í tengslum við félagið. Sportkafarafélagi íslands stend- ur fyrir reglulegum köfunarferðum fyrir félagsmenn sem eru um 80 talsins, bæði konur og karlar. Allan ársins hring eru famar bæði styttri og lengri köfunarferðir um helgar og eru þær vel sóttar af félags- mönnum. í dag er í byggingu fé- lagsheimili í Nauthólsvík og er vel á veg komið en það hefur verið byggt í sjálfboðaliðastarfi félags- manna. I tilefni af’afmælinu verður hald- in árshátíð 14. mars næstkomandi á Hótel íslandi og hefst hún kl. 19.00. Fyrr um daginn kafa félags- menn eftir hráefni í matinn en á boðstólum er sjávarréttahlaðborð sem framreitt er af matreiðslu- mönnum hótelsins. (Úr fréttatilkynningu) Charlie" er byggt á 13 ára reynslu sem hefur fengist af árangri af Lions Quest-verkefninu og öðrum hliðstæðum kennsluverkefnum. Grunnþáttur slíkra verkefna er að kenna bömunum sjálfsþekkingu og hjálpa þeim að byggja upp sjálfsör- yggi. í verkefninu „Project Charlie" er unnið að fyrirbyggjandi verkefn- um. Við skulum gera okkur grein fyrir því að það er ekki nóg að kenna börnunum að forðast hættu- legar aðstæður og ókunnuga. Við verðum líka að kenna þeim að taka eftir og skilja eigin tilfínn- ingar þegar einhver snertir þau. Börnin verða að læra að gera grein- armun á því hvaða atlot em góð og hvaða atlot geta leitt af sér illt athæfí gagnvart þeim. í „Project Charlie“-kennsluverk- efninu læra börnin gegnum leiki, leikrit og mismunandi æfíngar að skilja jákvæðar og neikvæðar til- finningar. Þau læra að draga skil á milli eðlilegra atlota sem gera þeim gott og þess ef einhver snert- ir þau á þann veg sem þeim ekki þykir gott. Þau læra sjálfsöryggi til að þora að segja frá slíkum at- burðum einhveijum sem þau geta treyst. Gmnnboðskapur verkefnis- ins er að fá börnin til að skilja að „minn kroppur sé mín eign og að enginn hafi rétt á að snerta hann nema eins og ég vil sjálfur". Það er mjög mikilvægt að geta sagt nei, þegar einhver sýnir áreitni. Fyrir böm er það oft mjög erfitt að segja nei við slíkar kringumstæð- ur. Börnunum finnst oft að þau hafí hvorki rétt né vald til að segja nei við hinn fullorðna. í kennslu- verkefninu „Projéct Charlie" upp- lifa börnin ýmsar ólíkar og oft hættulegar aðstæður sem gætu orð- ið á vegi þeirra gegnum leikrit og að leiknum loknum verða þau að vinna úr atburðarásinni og svara spurningum. Mjög mikilvægt er að bömunum þyki gaman þegar verið er að vinna í verkefnum sem þessum þar sem fjallað er svo náið um til- finningar og nauðsynlegt er að börnin njóti virðingar og trausts af hendi kennara. Það er nefnilega staðreynd að hægt er að kenna bömunum að komast hjá kynferðis- legu ofbeldi en til þess að svo megi verða verðum við fyrst hinir full- orðnu að opna umræðuna og læra að skilja að kynferðislegt ofbeldi getur líka komið fyrir i okkar fjöl- skyldu, gagnvart barninu okkar og framið af aðila sem við töldum að væri alls trausts verður. Ef við ekki gemm þetta er hætta á að stór kynslóð bama vaxi úr grasi, barna sem ekki var kennt að segja nei við hættulegum atlotum, barna sem síðan verða niðurbrotnir einstakl- ingar ófærir um að láta sér líða vel og skila samfélagi okkar hlutverki sínu. Vegna vemlegrar hættu á að 10—20% bama verði fyrir einhvers- konar kynferðislegu ofbeldi á upp- vaxtarskeiði sínu er nauðsynlegt fyrir okkur að hugleiða það í fullri alvöm hvort ekki sé nauðsynlegt að bæta fræðslu um þessi mál inn í kennslu barna og unglinga en slíkt verkefni ætti vel heima með Lions Quest-kennsluverkefninu. En við þurfum líka að gera okkur grein fyrir því að menn eða konur sem einhvemtíma hafa verið staðin að kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum má alls ekki skipa í stöður sem tengjast starfí með börnum. Það býður bara hættunni heim og stuðlar að freistingum fyrir afbrota- manninn. Kynferðisleg afbrot á bömum em afbrot þess eðlis að þau geta svo auðveldlega lagt líf við- komandi bams í rúst um alla fram- tíð. Fullt eins má gera ráð fyrir að barnið beri þess seint bætur ef af- brotið er slæmt. Áhættuþættirnir í nútíma samfélagi em allt of stórir til þess að við foreldrar megum sofa á verðinum. Höfundur erað Ijúka námi í afbrotafræðum við háskólann í Stokkhólmi með kynferðisleg afbrot gagnvart börnum sem sérgrein. HEF OPNAÐ LÖGMANNSSTOFU að Skúlagötu 30, 4. hæð - Reykjavík. Skrifstofan er opin aila virka daga frá kl. 09:00 - 16:00. • Almenn lögfræðiþjónusta • Ráðgjöf • Málfiutningur • Innheimta LOGMANNSSTOFA OSKARTHORARENSENMl Skúlagata iiO - 101 Reykjavfk - Sími: 1 11 90 - Fax: 62 07 57 Evtu rneð í gegnum á verðmúriri F A Teppalandsútsölunni bjóðast þér góKefni á áður óþekktu veiði. Glæsilegt úrval hvers kyns gólfefna á Teppalandsútsölunni um allt land. •Teppi * Dúkar Hísar Koikur • Parket Sígild stök teppi fra 1.998 kr. • • • Teppaland -landiö þar sem leitin endar. Grensásvegi 13, sími 813577 Opið laugardaga 10-16 VISA RAÐGREIÐSLUR Alltaö 18 mán. Alltaö11 mán.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.