Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
Hafnarfj örður:
Kvenfélagið Hring-
urinn áttatíu ára
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn
minnist nú þess að 80 ár eru
liðin frá stofnun félagsins.
Það voru 18 konur í Hafnar-
firði sem höfðu fyrir 80 árum
þann kjark og þá framsýni að
stofna Hringinn, 7. mars 1912.
Hvatinn að stofnun félagsins var
að berjast gegn berklaveikinni og
styrkja fátæka berklasjúklinga til
hælisvistar með fata- og matarg-
jöfum. Markvisst starf Hringsins
varð m.a. þess valdandi að berkla-
veikin varð fyrr yfirbuguð í Hafn-
arfírði en víðast annars staðar á
landinu.
Aðalhvatamaður félagsins var
frú Helga Gröndal Edilonsson og
var stofnfundur á heimili hennar
og manns hennar, Þórðar Edilons-
sonar læknis. Frú Helga var fyrsti
formaður félagsins en á þessum
80 árum hafa 12 konur gegnt því
embætti.
Það má geta þess að Hringur-
inn hefur jafnhliða líknarstarfinu
látið sig umönnun barna miklu
varða. Sumarið 1932 rak Hringur-
inn t.d. fyrst leikskóla fyrir börn
í Hafnarfirði.
Það gefur augaleið að grunnur
að starfi félagsins hefur ætíð ver-
ið byggður á ýmiskonar Ijáröflun.
Hringskonur hafa í gegnum árin
verið fundvísar á fjáröflunarleiðir
og þar með gert mögulegt að
halda áfram öflugu starfi í anda
þeirra framsýnu kvenna sem
stofnuðu félagið.
Þau eru mörg verkefnin sem
Hringurinn hefur tekið sér á hend-
ur á þessum 80 árum og spannar
starf þriggja kynslóða hér í Hafn-
arfírði. Það eru margir sem hafa
gegnum tíðina hugsað hlýtt til
Frá afhendingu útileiktækja.
Hringsins. Félaginu hafa oft bor-
ist góðar gjafir og minningarsjóð-
ir voru stofnaðir. Hringurinn vill
þakka þeim ijölmörgu sem gegn
um áratugina hafa sýnt starfi fé-
lagsins skilning og velvild, því án
þess væri félagið ekki mikils
megnugt.
Á þessum tímamótum hefur
félagið gefið 100.000 kr. til
Krýsuvíkursamtakanna og nýver-
ið afhent útileiktæki Heimilinu
skammtímavistun barna, Hnotu-
bergi 19 í Hafnarfirði.
í stjórn félagsins eru þessar
konur: Erna S. Mathiesen formað-
ur, Guðrún Pálsdóttir, Guðrún
Osvaldsdóttir, Ragna Gísladóttir
og Jóna Eiríksdóttir.
Hringskonur halda upp á 80
ára afmælið á morgun, sunnudag-
inn 8. mars, kl. 15.00 í Skútunni,
Dalshrauni 15.
Hallgrímskirkja:
Bach-forleikir á föstu
LISTVINAFÉLAG Hallgrímskirkju efnir til Bach-tónleika næstkom-
andi sunnudag 8. mars, fyrsta sunnudag í föstu, kl. 17. Hörður
Áskelsson, organisti Hallgrímskirkju, leikur 14 sálmforleiki úr „Litlu
orgelbókinni" eftir Bach yfir sálmalög sem tilheyra föstunni.
Nokkrir félagar úr Mótettukóm-
um syngja sálmalögin í útsetningu
Bachs við undirleik Marteins H.
Við guðsþjónustuna mun sr. Þór-
hildur Olafs predika og þjóna fyrir
altari ásamt sr. Einari Eyjólfssyni.
Kórar beggja safnaða leiða sönginn
undir stjóm organistanna Helga
FYRIRLESTUR verður haldinn
á vegum Hjálpartækjabanka RKÍ
og Sjálfsbjargar, Hátúni 12, laug-
ardaginn 14. mars kl. 13-17.
Fyrirlesari verður danskur
bamaiðjuþjálfi Jette Bentzen og
mun hún §alla um börn með skyn-
Friðrikssonar. Ragnheiður Haralds-
dóttir leikur á blokkflautu og Inga
Rós Ingólfsdóttir á selló. Hlín Pét-
Bragasonar og Kristjönu Ásgeirs-
dóttur. Að lokinni guðsþjónustu
verður boðið upp á kaffiveitingar í
safnaðarheimili Fríkirkjusafnaðar-
ins.
úrvinnsluvandamál (Sensory Inter-
gration).
Þeir foreldrar eða aðstandendur
fatlaðra barna sem hafa áhuga á
að sækja þennan fyrirlestur tilkynn-
ið þátttöku í Hjálpartækjabankann.
(Fréttatilkynning)
ursdóttir sópran syngur aríu úr
kantötu nr. 152 og tvö söngva úr
Schemelli-söngvasafninu eftir
Bach. „Litla orgelbókin“ er eitt af
höfuðritum orgelbókmenntanna og
hefur að geyma 45 stutta sálmafor-
leiki. Bach ætlaði raunar að hafa
þá miklu fleiri en vannst ekki tími
til. Hann samdi þá sem verkefni
fyrir nemendur sína sem voru að
læra fótspil, en hafði einnig í huga
að þeir gætu nýst í sýnikennslu
fyrir þá sem hugðu á tónsmíðar.
Við samningu þessara sálmafor-
leikja notar Bach því allar möguleg-
ar aðferðir og beitir margvíslegum
tilbrigðum svo að öllu sé haldið til
haga sem hyggja þarf að við tón-
smíðamar.
Á tónleikunum næstkomandi
sunnudag verða meðal annars flutt
nokkur þekktustu verkanna úr
„Litlu orgelbókinni", svo sem „O,
Mensch bewein den Súnden gro6“.
Sálmarnir em sungnir á-þýsku en
í tónleikaskrá em flestir textarnir
prentaðir eins og þeir voru þýddir
í messu- og sálmabókum Guðbrands
Þorlákssonar.
Næsta atriði á dagskrá Listvina-
félags Hallgrímskirkju 1992 verður
dagskrá í tali og tónum um píslar-
gönguna í íslenskum nútímabók-
menntum. Dagskráin nefnist „Blóm
sem skínið, klukkur sem kólflausar
hringið!". Heimir Pálsson
cand.mag. tekur dagskrána saman.
Uwe Eschner flytur „Píslasöguna í
9 myndum" fyrir gítar, ópus 25
eftir Hermann Reuther. Dagskráin
verður flutt sunnudaginn 29. mars
kl. 17.
Hafnarfjörður:
Sameiginleg guðsþjónusta
Fríkirkju og Þjóðkirkju
í FRÍKIRKJUNNI í Hafnarfirði verður á morgun, sunnudaginn 8.
mars, sameiginleg guðsþjónusta Hafnarfjarðarsóknar og Fríkirlyu-
safnaðarins og hefst hún kl. 14.00. Er þetta fjórða árið sem efnt er
til sameiginlegrar guðsþjónustu á vegum þessara safnaða.
Fundur með aðstand-
endum fatlaðra barna
Grindavík:
Samskipti björgnn-
arsveitar við þyrlu-
sveit endurnýjuð
Grindavík.
ÞAð ER ekki á hverjum degi sem fáni Bandaríkjanna blaktir við
hún í Grindavik. Þá sjón mátti hinsvegar sjá sl. laugardag við
bækistöðvar björgunarsveitar Þorbjarnar.
Ástæða þessarar sjónar var
heimsókn flugmanna úr þyrlu-
sveitum varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli. Heimsóknin er til að
endurgjalda heimsókn björgunar-
sveitarmanna til varnarliðsins fyr-
ir skömmu.
Sigmar Eðvarðsson formaður
björgunarsveitarinnar sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að heim-
sókninni lokinni að þarna væri um
gagnkvæma kynningu að ræða
sem væri að frpmkvæði sveitarinn-
ar. „Við erum með þessari heim-
sókn að stuðla að kynningu milli
manna og kynna þeim hvernig við
vinnum og kýnnast hvernig þeir
vinna. Við byijuðum að kynna
starfsemi Slysavarnafélags Is-
lands sem við erum hluti af og
síðan starfsvettvang okkar. Sýnd
voru strönd frá upphafi og hvar
þau urðu. Það liggur mikill undir-
búningur að baki þessari heimsókn
og við höfum hug á að halda þessu
áfram því við finnum að fullur
hugur er hjá þessum mönnum
að vinna með okkur og persónu-
leg samskipti sem er aflað á
þennan hátt skila sér í betri
vinnu á slysstað ef til kemur.
Við erum á þennan hátt alls
ekki að sniðganga Landhelgis-
gæsluna sem samstarfsaðila held-
ur viljum við halda samskiptum
við varnarliðið og jafnvel koma á
æfingum með þeim en við höfum
orðið varir við að fullur samstarfs-
vilji er fyrir hendi,“ sagði Sigmar.
Gestunum var boðið í bílferð
um Hópsnes í torfærutrölli þeirra
sveitarmanna af Man-gerð og
bátsferð. Þeir voru einnig settir í
spor sjómanna sem þurfa að
treysta á líflínu úr landi og
björgunarstól er þeir voru feijaðir
yfir lítinn vog við Oddsbúð. Þetta
þótti þeim ævintýri hið mesta þrátt
fyrir að enginn hefði lagt sig í lífs-
hættu eins og vill verða í alvör-
unni. Að sögn Sigmars voru þeir
vamarliðsmenn mjög ánægðir með
heimsóknina og létu vel af henni
og ekki væri að efa að hún hafi
komið þeim verulega á óvart.
FÓ
Morgunblaðið/Frimann Olafsson
Honum líður áreiðanlega skár þessum þyrluflugmanni í mjúku sæti
þyrlunnar en björgunarstól björgunarsveitarinnar í Grindavík.
Þátttakendur Bach-tónleikanna í Hallgrímskirkju.