Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
19
Unglingar sýna í Breiðholtskirkju
Unglingar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar í Reykjavík ásamt gestaleik-
urum sýna á ný leikritið Jafnvel englamir þorðu ekki þangað sunnu-
daginn 8. mars í Breiðholtskirkju kl. 20.30. Leikritið var frumsýnt
sl. sunnudag að viðstöddum nær 400 áhorfendum. Leikritinu stýrir
Guðrún Ásmundsdóttir sem einnig er höfundur þess. Leikritið er 45
mínútur í sýningu. Inn í leikritið fléttast söngur. Leikendur eru rúm-
lega 20 talsins. Óvíst er hvort fleiri sýningar verða ráðgerðar.
Atvinnumálafundur í Vestmannaeyjum;
2.000 tonna kvóti seldur
frá Eyjum á 3 mánuðum
„Stöðva aukningu frystiskipaflot-
ans, stöðva útflutning á ferskum
fiski einkum þorski og ýsu, full-
vinna þurfi aflann meira hér heima,
banna sölu og leigu veiðiheimilda
og koma upp nýjum atvinnugrein-
um til að byggja hér blómlega
byggð.“ Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
sagði að kvótakerfið hefði einungis
fært fjöregg þjóðarinnar á fárra
manna hendur og að útflutningur
á ferskum físki til vinnslu erlendis
væri ekki réttlátur gagnvart at-
vinnu verkafólks í landi.
Samkvæmt grein Óskars kom
Hilmar Rósmundsson, fulltrúi út-
vegsbænda, inn á það í máli sínu
að bæjarfélög úti á landi keyptu til
sín kvóta til að sporna við atvinnu-
leysi og hreinlega til að halda lífi,
því kvótalaust sjávarpláss væri
dauðadæmt.
Fyrirspurnir voru leyfðar eftir
að framsögumenn höfðu lokið máli
sínu. Trausti Marinósson spurði til
dæmis fulltrúa útvegsbænda hversu
háu hlutfalli heildarafla hafi verið
landað í Eyjum. Hilmar Rósmunds-
son svaraði því til að 46% aflans
væri landað heima og það væri
hærra hlutfall en víða annarsstaðar.
JÓN Pálsson, formaður skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verð-
andi, sagði á atvinnumálafundi Eyverja í Vestmannaeyjum um síð-
ustu helgi að búið sé að selja um 2.000 tonna kvóta úr byggðarlag-
inu frá byrjun desember. Hann taldi sóknarmarkskerfið betra en
kvótakerfið og að núverandi fiskveiðistefna byði upp á brask með
kvótann. Jón sagði einnig að fiskveiðistefnan hefði leitt af sér minni
afla ár frá ári sem aftur hefði leitt af sér atvinnuleysi. Þetta kemur
fram í greinai'gerð sem Óskar Arason gjaldkeri Eyveija, félags
unga sjálfstæðismanna, hefur tekið um fundinn og birtist í sjálfstæð-
isblaðinu Fylki á næstunni.
Átta frummælendur voru á fund-
inum: Arnar Sigurmundsson fulltrúi
atvinnurekenda í fiskiðnaði, Elsa
Valgeirsdóttir og Jón Kjartansson
fulltrúar verkafólks, Jón Bondó
Pálsson fulltrúi sjómanna, Georg
Þór Kristjánsson fulltrúi meirihluta
bæjarstjórnar, Ólafur Lárusson full-
trúi atvinnumálanefndar og Hilmar
Rósmundsson fulltrúi útvegs-
bænda.
Óskar Arason segir í grein sinni
m.a.: „Virtist það brenna á vörum
margra að ráðstöfun afla upp úr
sjó mætti ekki hvíla á höndum fárra
manna eins og er í dag. Fullvinna
beri aflann hér heima og setja höml-
ur á útflutning á fiski, minnsta
kosti á þorsk og ýsu. Margir lýstu
yfir áhyggjum sínum yfir atvinnu-
leysi á næstum mánuðum hér í
Eyjum þegar uppsagnsir frystihús-
anna tækju gildi og töldu að sporna
þyrfti við því hið fyrsta.“
Formaður Verkakvennafélagsins
Snótar, Elsa Valgeirsdóttir, sagði
að ársverkum í fiskiðnaði hefði
fækkað úr 800 í 600 á nokkrum
árum. Þessa þróun þurfi að stöðva.
Morgunblaðið/KGA
Undirbúningsnefnd Islandsvikunnar sýnir hvar Björgvin er á landakortinu. Frá vinstri: Ingibjöre Björns-
dóttir fulltrúi í Norræna húsinu, Knut Odegárd fyrrverandi forstjóri Norræna hússins, Lars-Ake
blom forstjóri Norræna hússins og Sveinn Einarsson dagskrárstjóri.
Eng-
íslensk menningarvika
í Björgvin 19.-24. maí
ÍSLENSK menningarvika verður haldin í tengslum við hina árlegu
listahátíð í Björgvin i Noregi dagana 19.-24 maí. Vigdís Finnbogadótt-
ir forseti Islands mun opna Islandsvikuna í Hákonarhöll i Björgvin
og halda hátíðarræðu við opnun sjálfrar Björgviiyarhátíðarinnar að
viðstöddum Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra.
Hin árlega listahátíð í Björgvin
er stærsta menningarhátíð á Norð-
urlöndum sem haldin er reglulega.
Hefð er fyrir því að Noregskonungur
setji hátíðina og mun Haraldur kon-
ungur nú setja hana í fyrsta skipti.
I tengslum við íslandsvikuna verð-
ur norsk-íslensk guðsþjónusta í dóm-
kirkjunni í Björgvin. Herra Ólafur
Skúlason biskup mun predika en
Hamrahlíðarkórinn syngja íslensk
sálmalög. Hamrahlíðarkórinn mun
auk þess halda sjálfstæða tónleika
á hátíðinni. Þá mun Reykjavíkur-
kvartettinn ásamt Selmu Guð-
mundsdóttuir píanóleikara lialda
tvenna tónleika.
íslensk hönnun er ein þriggja sýn-
inga sem verða í Bryggensafninu
meðan á hátíðinni stendur. íslensk
handrit verða þar einnig til sýnis og
Jónas Kristjánsson prófessor og for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magn-
ússonar heldur fyrirlestur í boði há-
skólans í Björgvin. Verk félags-
manna í íslenskri grafík verða sýnd
en auk þess verða kvikmyndir frá
íslandi sýndar daglega í safninu.
I Stenersenlistasafninu verður
sýning á listaverkum eftir Erró og
verður þar meðal annars að finna
ný verk. Náttúrufræðideild háskól-
ans í Björgvin mun setja upp sýn-
ingu um íslenskt náttúrufar og ís-
land sem ferðamannaland verður
kynnt í stórri verslunarmiðstöð í
borginni.
íslenskar bókmenntir verða með
fulltrúa á hátíðinni og verða þijú
málþing um bókmenntir haldin. Eitt
þeirra fjallar um norrænar rann-
sóknir við háskólana í Björgvin og
Reykjavík en tvö um þýðingar á ís-
lenskum bókmenntum á norsku.
Einnig munu kunn islensk ljóðskáld
verða á norsk-íslensku bókmennta-
kvöldi.
Með íslandsvikunni er stefnt að
auknum samskiptum Háskóla ís-
lands og Björgvinjarháskóla og hef-
ur íslenskum vísindamönnum meðal
annars verið boðið til Björgvinjar til
að halda fyrirlestra. Þá verða gagn-
kvæm nemendaskipti og ritgerðar-
samkeppni meðal skólabarna í
Björgvin skipulögð í samvinnu skóla-
yfii-valda og norrænu félaganna í
Noregi og á íslandi.
Norræna húsið gegnir lykilhlut-
verki við skipulagningu íslandsvik-
unnar en íslenska menntamálaráðu-
neytið, norska menningarmálaráðu-
neytið og margir norrænir sjóðir eru
meðal þeirra aðila sem leggja fram
fé til þessa menningarátaks. Þá mun
Norræna félagið skipuleggja leigu-
flug til Björgvinjar vegna Islandsvik-
Kvikmyndasýning fyrir börn
og unglinga í Norræna húsinu
Kvikmyndasýning fyrir börn
og unglinga verður í fundarsal
Norræna hússins sunnudaginn
8. mars kl. 14.00.
Sýnd verður norska unglinga-
myndin Piraterne. Hún gerist í litl-
um bæ í Norður-Noregi. Þar eru
unglingarnir orðnir þreyttir á því
að ekki sé tekið mark á þeim og
því grípa þeir til þess ráðs aðstofna-
„sjóræningjaútvarp". í fyrstu er
þett.a saklaust grín og gaman en
síðan fara hjólin að snúast og þá
... Þetta er spennumynd ætluð fyrir
börn 12 ára og eldri. Sýning mynd-
arinnar tekur um eina og hálfa klst.
Leikstjóri er Morten Kolstad. Að-
gangur er ókeypis og boðið er upp
á ávaxtasafa í hléi.
SPEMNANDI
Kolaportið er nú um þessa
helgi eins og alltaf stútfullt af
spennandi varningi - úrvalið er ótrúlegt
og verðlagið jafn spennandi.
BOKAMARKAÐURINN
= SÍÐASTA SÖLUHELGI =
10% AUKAAFSLÁTTUR!
FELAG EINSTÆÐRA FORELDRA
með stórkostlegan flóamarkað
á sunnudögum!
OPIÐ: Laugardaga frá kl.10-16 og sunnudaga frá kl. 11-17.
KOLA PORTIO
M^RKa-ÐXfOR‘r
-undir seðlabunkanum!
[