Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 20
í M/
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
Frankfurter All-
gemeine Zeitung:
Ráðið leysir
norræna sam-
vinnu af hólmi
ÞÝSKA dagblaðið Frankfurter
Allgemeine Zeitung segir í frétt
af undirbúningsfundi Eystrasalts-
ráðsins í Kaupmannahöfn að hin
nýja samvinna ríkja við Eystra-
salt muni að miklu leyti leysa
norræna samvinnu af hólmi.
Blaðið birti í fyrradag frétt um
stofnfundinn sem haldinn var í gær.
Þar segir meðal annars: „Þrátt fyrir
yfirlýsingar í aðra veru mun hið
nýja samstarf ríkjanna við Eystra-
salt að miklu leyti leysa norræna
samvinnu af hólmi. Norðurlandaráð
sem nú fundar í Helsinki stendur
hvort sem er frammi fyrir miklum
erfiðleikum við að skilgreina eigið
hlutverk eftir að ljóst varð að reglur
Evrópubandalagsins munu gera flest
samvinnuverkefnin óþörf. Tiiraun-
um baltnesku landanna til að fá inn-
göngu í Norðurlandaráð var hrundið
á síðasta ári — einkum af forseta
Norðurlandaráðs, Anker Jörgensen.
í Helsinki verður nú ljóst að Norður-
landaráð verður í auknum mæli að
samtökum til að samræma
hagsmuni Norðurlanda gagnvart
Evrópubandalaginu."
EYSTRASALTSRAÐSTEFNAN
Reuter.
Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Þýskalands, slær á létta strengi er utanríkisráðherramir
stilltu sér upp fyrir myndavélar í gær. Á myndinni eru einnig utanríkisráðherrar Finnlands, Rúss-
lands, Noregs og Danmerkur.
Undirbúningsfundur að stofnun Eystrasaltsráðsins:
Landfræðilegar ástæður
útiloka aðild Islendinga
- segir Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunbladsins.
FUNDI utanríkisráðherra ríkjanna við Eystrasalt lauk í Kaupmanna-
höfn í gær, en hann var liður í undirbúningi að stofnun Eystrasalts-
ráðs. Utanríkisráðherra Noregs sat fundinn á þeirri forsendu að
Norðmenn tengdust svæðinu.
Frumkvæðið að fundinum áttu
Hans-Dietrich Genscher, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, og Uffe Elle-
mann-Jensen utanríkisráðherra
Danmerkur, en hugmyndin vaknaði
á £undi þeirra tveggja í Rostock í
október síðastliðnum. Auk Þýska-
lands, Danmerkur og Noregs voru
Reutor.
Bænastund á Musterishæð
Föstumánuður múhameðstrúarmanna, Ramadan, hófst í gær. Á mynd-
inni má sjá múslímskar konur biðja á Musterishæð í Jerúsalem en þar
komu um 35 þúsund múhameðstrúarmenn saman til bænar í gær.
á fundinum fulltrúar Lettlands, Lit-
háens og Eistlands, Póllands, Sam-
veldis sjálfstæðra ríkja, Finnlands
og Svíðþjóðar. Sett hefur verið á
stofn nefnd embættismanna til að
ræða frekar tilhögun ráðsins. Næsti
fundur utanríkisráðherranna verður
í Helsinki að ári. Á blaðamanna-
fundi í lok ráðstefnunnar spurði
fréttaritari Morgunblaðsins Hans-
Dietrich Genscher að því hvort
Eystrasaltsráðið væri nokkurs kon-
ar útvíkkun á Norðurlandaráði, þar
sem ísland, eitt Norðurlandanna,
fengi ekki að vera með. Genscher
vildi auðsjáanlega ekki ræða aðild
íslands, heldur sagði að þar sem
Þýskaland væri ekki í Norðurlanda-
ráði, vildi hann ekki tjá sig um
þetta atriði.
Uffe Ellemann-Jensen sagði að
vandamálið væri landfræðilegt, þar
sem ísland lægi ekki að Eystra-
salti, en Noregur ætti hins vegar
hafsvæði sem lægi að Eystrasalti.
Eins og önnur lönd og aðilar, sem
gætu átt hagsmuna að gæta í ráð-
inu, myndi Islendingum standa til
boða að eiga áheymarfulltrúa í ráð-
inu. Hann vildi þó ekki útfæra nán-
ar hver staða áheymarfulltrúanna
yrði eða hvemig starf þeirra innan
ráðsins gæti orðið.
Þegar fréttaritari spurði Uffe
Ellemann-Jensen eftir fundinn
Kork‘0*Plast
Sænsk gæöavara
KOBK-gólfflísar
með vinýl-plast-áferð
Kork-o-Plast:
í 10 gerðum
Veggkork
í 8 geröum.
Ávaltt til
á lager
Mrm korttvöaitogundir á lagor
Uodirlagskork í þrwmur þykktum
Korkvéiapakkningar i tvaimur þykktum
Gutubaðstof ukork
Veggtófki-korkpiótur í þremur þykktum
Kork-parkett venjuiegt, i tvaimur þykktum
Ðnkaumboð á Wandl:
Þ. ÞORGRÍMSSON & C0
Ármúla 29 ■ Reykjavík • Simi 38640
&
Linares:
Kasparov nær forystu
Linares. Reuter.
GARRÍ Kasparov, heimsmeistari í skák, sem teflir fyrir Rússland,
vann Bretann Nigel Short í áttundu umferð skákmótsins í Linares
á Spáni á fimmtudagskvöld og náði þar með forystu í mótinu.
í öðru sæti er Alexander
Beljavskíj og í þriðja til fjórða
þeir Anataloj Karpov og Jan Tim-
man.
Kasparov teflir í dag við Úkra-
ínumanninn Beljavskíj, sem er sá
eini fyrir utan heimsmeistarann
sem hefur ekki enn tapað skák í
mótinu. Rússinn Karpov, fyrrver-
andi heimsmeistari, tapaði fyrir
hollenska stórmeistaranum Timm-
an.
hvemig stæði á mismunandi viðtök-
um hans og Pouls Schliiters
forsætisráðherra á norræna for-
sætisráðherrafundinum, sagði hann
að Schluter hefði ekki gert sér grein
fyrir hvemig málið væri í pottinn
búið. Það væri ekki spuming um
að verið væri að útiloka ísland,
heldur að önnur ríki eins_ og til
dæmis Tékkóslóvakía og Úkraína
vildu einnig vera með, en í þessu
tilviki væru mörkin landfræðileg.
Ef einhver á íslandi vildi leggja
afstöðu hans út á annan hátt, staf-
aði sá skilningur af gremju yfir
öðmm málum.
Komið hefur fram að fundarboð-
endur teldu að ekki væri unnt að
bjóða einu ríki utan Eystrasalts-
svæðisins aðild án þess að allar flóð-
gáttir opnuðust um leið. Slík útvíkk-
un þýddi að upphaflegar hugmynd-
ir um markmið ráðsins og takmörk
stæðust ekki.
Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Noregs, lét í ljósi þá skoð-
un í fyrradag á fundi með frétta-
mönnum að honum þætti miður að
íslendingar gætu ekki verið þátt-
takendur, en sagðist skilja að landa-
fræðin réði úrslitum og Norðmenn
hefðu rétt sloppið inn.
Hugmyndin að baki ráðinu er
að þar verði rædd sameiginleg
hagsmunamál Eystrasaltsríkjanna.
Þar em umhverfismálin ofarlega á
blaði og einnig aðstoð við Eistlandj
Lettland, Litháen og Pólland. I
máli Andrej V. Kozyrevs, utanríkis-
ráðherra Rússlands, kom fram að
á fundinum hefði verið rædd aðstoð
við að flytja burt rússneska herliðið
í Eystrasaltsríkjunum. Slík aðstoð
gæti bæði flýtt fyrir og auðveldað
brottflutninginn, sem ylli ýmsum
félagslegum vandamálum fyrir her-
mennina.
Þeir sem fylgst hafa með aðdrag-
andanum að fundinum hér í Kaup-
mannahöfn, em ekki á eitt sáttir
um hvert gagn geti orðið að ráðinu,
hvort hér verði aðeins um að ræða
umræðuvettvang eða hvort fram-
kvæmdir fylgi. Það virðist þó ekki
ólíklegt að umhverfismálin verði
verulegur þáttur í starfi ráðsins og
einnig aðstoð við fyrrum Austur-
Evrópuríki.
Fulltrúadeild-
in samþykk-
ír ny fjarlog
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings samþykkti í gær fjárlög
þar sem gert er ráð fyrir að
dregið verði úr útgjöldum til
vamarmála um 15 milljarða
dala. Fjárlögin voru samþykkt
með 224 atkvæðum, aðallega
demókrata sem eru í meirihluta
í deildinni, gegn 191. Gert er
ráð fyrir að fjárlagahallinn verði
324-331 milljarður dala en áætl-
að er að hann verði um 399
milljarðar í ár. George Bush
Bandaríkjaforseti vill helmingi
minni niðurskurð á útgjöldum
til varnarmála, eða um 7,4 millj-
arða dala, og draga minna úr
fjárlagahallanum, eða í 351,9
milljarða dala.
Rauði herinn
frá Lettlandi
BROTTFLUTNINGUR hers
Sovétríkjanna fyrrverandi frá
Lettlandi hefst í þessum mán-
uði. Það var Sergej Zotov, yfir-
maður rússneskrar sendinefnd-
ar, sem undanfarið hefur rætt
þetta mál við Letta, sem greindi
frá þessari niðurstöðu fyrstu
fundanna um þetta efni. í Lett-
landi eru nú 45.000 hermenn
Sovétríkjanna fyrrverandi. Ekki
hefur verið ákveðið hve langan
tíma brottflutningurinn mun
taka.
Dehaene
reynir stjórn-
armyndun
JEAN-Luc Dehaene, 51 árs leið-
togi flæmskumælandi Kristi-
legra demókrata, varð í gær við
beiðni Baldvins Belgíukonungs
um að reyna stjórnarmyndun og
binda þar með enda á pólitíska
kreppu sem verið hefur í Belgíu
frá því í kosningunum í nóvem-
ber. Sömu flokkar og skipuðu
fráfarandi stjórn munu væntan-
lega eiga aðild að ríkisstjóm
Dehaene.
Uppgangnr
skoskra þjóð-
ernissinna
FLOKKUR þjóðernissinna í
Skotlandi nýtur fylgis 30% kjós-
enda samkvæmt skoðanakönn-
un dagblaðsins Aberdeen press
and Journal og sjónvarpsstöðv-
arinnar Grampian. I kosningun-
um árið 1987 fékk flokkurinn
um 15% fylgi. Verkamanna-
flokkurinn hefur tapað fylgi
samkvæmt könnuninni og fengi
39% ef kosið yrði nú. Ihalds-
flokkurinn nýtur fylgis 18%
kjósenda og tiefur ekki fengið
verri útreið í skoðanakönnun í
Skotlandi. Þjóðemissinnar segj-
ast keppa að því að fá meirihlut-
ann af 72 sætum Skota á breska
þinginu og takist það verði þeg-
ar í stað lýst yfir sjálfstæði.
Jarðskjálfti
í Iran
SEX fórust og flmmtíu siösuðust
í jarðskjálfta sem reið yfir tvær
borgir og fjallaþorp í suðvestur-
hluta Irans á miðvikudag.
Skjálftinn mældist 4,9 á Richter.
Ekki er enn að fullu vitað hvert
tjón af völdum skjálftans varð
vegna þess hve sum þorpin á
skjálftasvæðinu eru afskekkt.
BILASYNINGIDAG KL. 10 -14
Komiö og skoöið 1992 árgeröirnar af MAZDA
. SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVlK S.61 95 50