Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 25

Morgunblaðið - 07.03.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992 25 Morgunblaðið/Björn Blöndal Það var mikil spenna meðal krakkanna sem voru mættir til að renna sér í nýju vatnsrennibrautinni sem var tekin í notkun í Sundmiðstöðinni í Keflavík á sunnudaginn. Keflavík: Ný vatnsrennibraut í Sundmiðstöðinni Keflavík. NÝ vatnsrennibraut var tekin í notkun í Sundmiðstöðinni í Keflavík á sunnudaginn og mættu nokkur hundruð unglingar til að renna sér í rennibrautinni sem er 35 metra löng. Renni- brautin sem kostaði 7 milljónir króna er frá sænska fyrirtækinu HYDRO-SPORT og er hún gjöf frá Vatnsveitu Suðurnesja sem einnig greiddi tveggja milljóna króna kostnað við gerð lending- arlaugar við enda rennibrautarinnar. Þá var einnig opnaður eimgufubaðsklefi sem er nýjung hér. opið öllum og þyrfti ekki að greiða sérstaklega fyrir það. Þá mun á næstunni verða lok- ið við frágang á yfirbyggðu sól- skýli þar sem einnig verður heit- ur pottur. Ilafsteinn sagði að aðrar framkvæmdir, svo sem gerð 12,5i25 m innilaugar í kjall- ara og búningsklefa fyrir íþrótta- vellina, yrðu að bíða um sinn, en þegar þeim lyki yrði Sundhöllinni væntanlega lokað. -BB Sveinn Guðmundsson, for- stöðumaður sagði í samtali við Morgunblaðið að um þessar mundir væru tvö ár liðin frá því að Sundmiðstöðin opnaði og hefðu um 200 þúsund gestir komið á þessum tíma. Hafsteinn sagði að nýja eimgufubaðið virk- aði þannig að tekið væri um 80 gráða heitt vatn sem síðan væri leitt í gegnum 10 stúta sem gæfu frá sér um 50 gráða heita gufu sem fyllti klefann. Haf- steinn sagði að gufubaðið væri FÍM-salurinn: Dröfn með grafík- sýningu DRÖFN Friðfinnsdóttir mynd- listarkona frá Akureyri opnar grafíksýningu í FÍM salnum, Garðastræti 6, Reykjavík, laug- ardaginn 7. mars. Á sýningunni eru tuttugu og eitt verk unnin í tréristu. Stærð myndanna er frá 25x35 sm til 100x150 sm og er hver mynd í tíu eintökum. Dröfn hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og einnig haldið einkasýningar í Dynheimum, Akureyri, 1987, Lathi Hammen- gallerí, Finnlandi, 1988, og Gamla Lundi, Akureyri, 1989 og 1991. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14-18 til sunnudagsins 22. mars. Ver&um með ArtnaSlex Á góðu verði pípueinangrun í hólkum, plötum og límrúllum frá Þ.MRGRfMSSON &C0 Ármúla 29 - Múlatorgi - Simi 38640 Dröfn Friðfinnsdóttir með eitt verka sinna. Fræðslufund- ur um börn alkóhólista TIL þess að ræða um börn alkó- hólista m.a. líkur á að alkóhól- ismi erfist, aðstæður barna alkó- hólista og hjálparúrræði boðar Víntulaus æska til fræðslufundar að Borgartúni 6 í Reykjavík, þriðjudaginn 10. mars nk. kl. 17-19. í fréttatilkynningu um fundinn segir meðal annars: „Fjöldi barna og unglinga elst upp við þær að- stæður að annað foreldra þeirra eða báðir eru alkóhólistar. Uppeldi í fjöl- skyldunni þar sem drykkjuvanda- mál eru til staðar lætur ekkert barn ósnortið. Mörg börn skaðast varan- lega vegna þessara aðstæðna og veldur það þeimmiklum erfiðleikum síðar á ævinni. Fyrir utan ýmis félagsleg og sál- ræn vandamál sem börn sem alast upp við alkóhólisma föreldra sinna verða fyrir, eru þau talin mun lík- legri en önnur börn til þess að verða alkóhólistar sjálf eða velja sér lífs- förunaut sem á við áfengisvanda- mál að stríða. Með aukinni áfengisneyslu, eins og átt hefur sér stað síðustu ár, eykst þessi hætta til muna. Þrýst- ingur á alla, böm alkóhólista, til áfengisneyslu vex. Ýmsir áhættu- hópar verða því berskjaldaðri en áður. Við því verður að bregðast.“ -----»44------ Fundur um kvennabanka Laugardagskaffi kvennalistans verður að venju haldið á Lauga- vegi 17, annarri hæð, kl. 10.30. Að þessu sinni mun' Þórunn Bjamadóttir, áhugakona um kvenna- banka á Islandi, kynna þær hug- myndir sem búa að baki stofnun kvennabanka og hvemig slíkur banki kemur konum í atvinnulífinu til góða. Laugardagskaffi er orðið fastur liður í helgardagskrá margra kvenna, enda er leitast við að vera með er- indLsem snerta líf og störf kvenna á einhvern hátt. -....♦ '4. ♦ Bingó til styrkt- ar Takmarkinu STYRKTARFÉLAG Takmarksins efnir til bingós sunnudaginn 8. mars kl. 14.00 á veitingastaðnum Furstanum, Skipholti 37. Kynnir verður Hermann Gunnarsson en veglegir vinningar eru I boði, m.a. utanlandsferð með Sólarflugi, gisting fyrir tvo á Hótel Örk og flugferð innanlands fyrir tvo. All- ur ágóði af bingóinu rennur til starfsemi Takmarksins. Líknarfélagið rekur nú áfangahús, Takmarkið á Barónsstíg. Um er að ræða heimili fyrir alkóhólista sem eru að koma úr meðferð en markmið- ið er að veita þeim stuðning og leið- sögn við að takast á við líf sitt. TIL SÖLU Mjög vel með farið, nýlegt, enskt sumarhús með öllu. Stofa, 2 svefnherb., wc með sturtu. Staðsett í Borgarfirði. Upplýsingar í simum 92-11900 og 92-12423. BAÐINNRÉTTINGAR 15% afsláttur af baðinnréttingum með halógenljós- um til mánaðamóta. Einnig sérsmíði á innréttingum eftir teikningum. Góð greiðslukjör. Opiðídagfrá kl. 10-17ogámorgunfrá kl. 14-16. Máva innréttingar, Kænuvogi 42, sími 688727, 104 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.