Morgunblaðið - 07.03.1992, Síða 30
30^ MORGUNBLAÐIÐ LAUGAKDAGUR 7, ,MARZ 1992
JWtóáur
r
a
morgun
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur
Sigurbjörnsson. Miðvikudag:
Föstumessa kl. 20.30.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Arna, Gunnar og Pálmi.
Guðsþjónusta kl. 14. Bobby Arr-
ington syngur í messunni. Org-
anisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu á
sama tíma í umsjón Báru Elías-
dóttur. Föstumessa kl. 17 við
Gregorslag. Altarisganga. Sr.
Jakob Á. Hjálmarsson. Miðviku-
dag: kl. 12.10. Hádegisbænir í
kirkjunni. Léttur málsverður á
kirkjuloftinu á eftir og kl. 13.30-
16.30 er samvera aldraðra í
safnaðarheimilinu. Tekið í spil.
Kaffiborð, söngur, spjall og
helgistund.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Ólafur Jó-
hannsson. Miðvikudag: Föstu-
guðsþjónusta kl. 18.30. Óskar
Ingason guðfræðinemi.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11.6 ára börn og eldri
og foreldrar þeirra uppi. Yngri
börnin niðri. Messa kl. 14.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnar.
Þriðjudag: Kyrrðarstund kl.
12.00. Orgelleikur í 10 mínútur.
Fyrirbænir, altarisganga og létt-
ur hádegisverður. Kl. 14.00 bibl-
íulestur og kirkjukaffi. Sr. Hall-
dór S. Gröndal.
H ALLGRÍ MSKIRKJ A: Barna-
samkoma og messa kl. 11. Alt-
arisganga. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Kl. 17. Bachtónleikar Lista-
vinfélags Hallgrímskirkju. Hörð-
ur Áskelsson leikur sálmafor-
leiki. Hlíf Pétursdóttir syngur
einsöng. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja sálma-
lög. Mánudag: Kvöldbænir með
lestri Passíusálma kl. 18.00.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um og kvöldbænir með lestri
Passíusálma kl. 18.00. Miðviku-
dag: Föstumessa kl. 20. Kross-
inn og þjáningar mannanna. Sr.
Bragi Skúlason sjúkrahúsprest-
ur prédikar.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgun-
messa kl. 10. Sr. Arngrímur
Jónsson. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Kirkjubíllinn fer frá Suður-
hlíðum um Hlíðarnar fyrir barna-
guðsþjónustuna. Messa kl. 14.
Sr. Tómas' Sveinsson. Mánu-
dag: Biblíulestur kl. 21. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa í
kapellunni kl. 13. Organisti Birg-
ir Ás Guðmundsson. Sr. Kjartan
Örn Sigurbjörnsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Óskastund
barnanna kl. 11. Söngur, sögur,
fræðsla. Umsjón sr. Flóki Krist-
insson. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Langholtskirkju (hópur I) syngur
stólvers. Organisti Jón Stefáns-
son. Prestur sr. Flóki Kristins-
son. Kaffi að guðsþjónustu lok-
inni. Aðalsafnaðarfundur eftir
messu. Aftansöngur virka daga
kl. 18 í umsjá sr. Flóka Kristins-
sonar.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Drengjakór Lauganeskirkju
syngur, stjórnandi Ronald V.
Turner. Sr. Jón D. Hróbjartsson.
Barnastarf á sama tíma í umsjá
Þórarins Björnssonar. Heitt á
könnunni eftir guðsþjónustuna.
Kl. 17. Tónleikar Drengjakórs
Laugarneskirkju.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Guðmundur Óskar Ólafs-
son. Guðsþjónusta kl. 11. At-
hugið breyttan tíma. Munið
kirkjubílinn. Sr. Frank M. Hall-
Guðspjall dagsins:
Matt. 4:
Freisting
Jesú.
dórsson. Miðvikudag: Föstu-
guðsþjónusta kl. 20. Sr. Frank
M. Halldórssson.
SELTJARNARNESKIRJA:
Messa kl. 11. Kór Klébergsskóla
kemur í heimsókn. Organisti
Þóra Guðmundsdóttir. Prestur
sr. Solveig Lára Guðmundsdótt-
ir. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Eirnýjar, Báru og Erlu.
Fundur með foreldrum ferming-
arbarna eftir messu. Miðviku-
dag: Kyrrðarstund kl. 12. Söng-
ur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisverður í safnaðar-
heimilinu og samkoma ki. 20.30
á vegum Seltjarnarneskirkju og
sönghópsins „Án skilyrða" undir
stjórn Þorvaldar Halldórssonar.
Söngur, prédikun, fyrirbænir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organleikari Sigrún
Steingrímsdóttir. Molakaffi eftir
messu. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma í safnaðarheimili
kirkjunnar í umsjón sr. Þórs
Haukssonar. Kirkjubíllinn fer um
Ártúnsholt og Efri Selás. Fyrir-
bænaguðsþjónusta miðvikudag
kl. 16.30. Föstuguðsþjónusta
fimmtudag kl. 20. Sr. Guðmundr
Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Bænaguðsþjónusta
þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organísti
Guðný M. Magnúsdóttir. Barna-
starf á sama tíma. Fyrirbænir í
Fella- og Hólakirkju mánudag
kl. 18. Prestarnir.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 í Fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn. Val-
gerður Katrín og Hans Þormar
aðstoða. Skólabíllinn fer frá
Hamrahverfi kl. 10.30 og fer
venjulega skólaleið. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Sigurbjörg
Helgadóttir. Vigfús Þór Árna-
son.
HJALLAPRESTAKALL: Messu-
salur Hjallasóknar í Digranes-
skóla. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Húsið opnað kl. 10.30. Org-
anisti Oddný Þorsteinsdóttir.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barn-
astarf í safnaðarheimilinu Borg-
um sunnudag kl. 11. Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 14.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Guðsþjónusta í Seljahlíð laugar-
dag 7. mars kl. 11. Sóknarprest-
ur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: í dag
laugardag kl. 13 fer fram vígsla
safnaðarheimilis á Laufásvegi
13. Safnaðarprestur annast
vígsluna, ræðurflytja Guðmund-
ur Gunnarsson, formaður bygg-
ingarnefndar, og Einar Kristinn
Jónsson, formaður safnaðarins.
Einsöng syngja Kristín Ragn-
heiður Sigurðardóttir, Drífa Ein-
arsdóttir, Hanna Björk Guðjóns-
dóttir, Guðrún Ingimarsdóttir og
Erla Gígja Garðarsdóttir. Undir-
leik annast Pavel Smid. Kvenfé-
lag Fríkirkjunnar annast veiting-
ar. Sunnudag kl. 11. Barnaguðs-
þjónusta. Gestgjafi í söguhorn-
inu Hermann Gunnarsson, út-
varpsmaður. kl. 14. Guðsþjón-
usta. Einsöngur: Erla Þórólfs-
dóttir. Opið hús i safnaðarheim-
ilinu kl. 12-18. Þriðjudag kl.
20.30. Föstuguðsþjónusta. Mið-
vikudag kl. 7.30. Morgunandakt,
orgelleikari Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KRISTKIRKJA Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Messa kl. 14. Ensk
messa kl. 20. Laugardaga er
messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messa
kl. 18.
MARÍUKIRKJA Breiðholti:
Messa kl. 11. Laugardag messa
kl. 14, fimmtudaga kl. 19.30 og
aðra rúmhelga daga kl. 18.30.
KFUM/KFUK: Kristniboðssam-
koma í kristniboðssalnum, Háa-
leitisbraut 58, kl. 20.30. Ræðu-
maður Ragnar Gunnarsson.
Sunnudagaskóli þar á sama
stað kl. 11. Nk. mánudag kl.
17.30 bænastund á Holtavegi.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma kl. 17. Ræðumaður Friðrik
Schram. Organisti Eiríkur Skála.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagsskóli kl. 14. Hjálpræðis-
samkoma.
VEGURINN kristið samfélag,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi: Fjöl-
skyldusamvera kl. 11 og almenn
samkoma kl. 16.30 og aftur kl.
20.30.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Barnastarf í safnaðarheimilinu
ki. 11. Sr. Jón Þorsteinsson.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14, með þátttöku
nemenda úr Alftanesskóla og
Tónlistarskólanum. Sr. Bragi
Friðriksson.
GARÐASÓKN: Biblíulestur i
dag, laugardag kl. 13 í Kirkju-
hvoli. Sunnudagaskóli þarkl. 13.
Guðsþjónusta í Garðakirkju kl.
14. Sr. Bjarni Þór Bjarnason
prédikar. Fundur í æskulýðsfél.
nk. þriðjudagskvöld og verður
húsið opnað kl. 19. Sr. Bragi
Friðriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á
Hrafnistu kl. 13. Messa í Víði-
staðakirkju kl. 14. Kór Viðistaða-
sóknar syngur. Organisti Úlrik
Ólason. Sr. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga
daga messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl.
8.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sjá
Fríkirkjuna. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN Hafnarf.: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. ÞórhildurÓlafs prédik-
ar. Kórar Fríkirkjunnar og Hafn-
arfjarðarkirkju leiða söng. Kaffi-
veitingar í safnaðarheimilinu eft-
ir guðsþjónustuna. Sr. Einar
Eyjólfsson.
KALFATJARNARSÓKN: Kirkju-
skólinn í dag kl. 11. Sóknar-
prestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Ester
ólafsdóttir. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannson. HVALSNESKIRKJA:
Messa kl. 14. Altarisganga ,
börn borin til skírnar. Organisti
Ester Ólafsdóttir. Sr. Hjörtur
Magni Jóhannsson.
KAÞÓLSKA kapellan Keflavík:
Messa kl. 16.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas
Guðmundsson.
KAPELLAN NLFÍ-hælinu:
Messa kl. 14. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa
kl. 14. Kaffi eftir messu.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14,
altarisganga. Aðalsafnaðar-
fundur á eftir í safnaðarheimil-
inu. Nk. þriðjudag kl. 20.30 er
biblíulestur. Fimmtudagskvöld
kl. 18.15 er tónlistarstund á
föstu. Organisti Jón Ól. Sigurðs-
son. Sr. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta í Borgarneskirkju
kl. 11. Helgistund nk. þriðjudag
kl. 18.30. Sóknarprestur.
Einar Bjömsson,
Móbergi - Minning
Fæddur 31. júlí 1908
Dáinn 24. febrúar 1992
Það er oft sagt um okkur mann-
eskjumar, að við gerum okkur ekki
nægilega grein fýrir hvað við meg-
um vera guði þakklátar fyrir margt
sem okkur hendir í lífinu. Eitt af
því sem ég má vera Guði þakklát
fyrir er að gefa mér Einar Bjöms-
son fyrir tengdafoður. Alla tíð síðan
ég kom á heimili þeirra Helgu sem
feimin unnusta sonar þeirra fyrir
um 30 árum hafa þau hjónin reynst
mér vel. Nú þegar Einar er farinn
frá okkur koma minningarnar upp
í hugann ein af annarri, þessar
minningar sem er svo gott að eiga
og ylja sér við.
Einar var mikill bóndi og hafði
unun af skepnunum sínum, þar
mættumst við á miðri leið. Það var
svo innilega gaman að fara með
Einari í húsin og láta hann sýna
sér kindumar. og sérstaklega alla
verðlaunahrútana sem hann var svo
hreykinn af. Seinna þegar bömin
okkar komu til sögunnar var hann
óþreytandi að taka þau með sér til
að skoða lömbin og kálfana, það
var alveg sérstakt hvað hann var
natinn og þolinmóður við þau og
ekki var hann nafni hans hár í loft-
inu þegar þeir röltu saman út á
Hól til að líta til með ánum um
sauðburðinn. Alltaf mátti Einar
vera að því að bíða eftir stuttstígum
snáða sem þó oft var að teíja afa
sinn í amstri dagsins.
Og ekki var heyskapurinn minna
ævintýri fyrir bömin, alltaf var
gert ráð fyrir þeim ef þau voru í
heimsókn. Þau fengu að sitja á
vegninum, velta sér í heyinu í hlöð-
unni og svo það allra besta sem
nafni hans fékk að gera, að sitja í
sætinu á traktomum þegar afi var
að rifja eða taka saman.
Öll eignuðust bömin svo kind hjá
ömmu o g afa í sveitinni og afí sýndi
þeim lömbin þeirra á vorin og jafn-
vel þó hún Móra missti svo lambið
sitt þá kom alltaf lamb undan Móm
af ijalli á haustin, afi sá um það.
Einar var mikill grínisti og gerði
góðlátlegt grín að sjálfum sér og
öðrum en aldrei held ég að hann
hafi sært aðra manneskju.
Hann bar mikla umhyggju fyrir
náttúrunni og um það ber trjágarð-
urinn þeirra Helgu vitni. Það var
gaman að ganga með Einari út í
garðinn og hlusta á hann segja frá
hveiju tré og fylgjast með hvemig
hann mældi vöxt þeirra og þroska,
hann hafði hlúð að flestum þeirra
síðan þau voru bara lítil fræ.
Síðustu árin var Einar heilsu-
veill, en alltaf bar hann sömu um-
hyggjuna fyrir bömunum. Ég man
eftir því eitt sinn þegar hann þurfti
að fara daglega í þjálfun á sjúkra-
húsið og gisti hjá okkur, að einn
daginn heyrði hann litla manneskju
vera að suða um að fá þríhjól.
Skömmu seinna fór Einar í göngu-
túr „til að æfa sig“ sagði hann, en
þegar hann kom til baka var hann
með gjöf til litlu dóttur minnar, hið
þráða þríhjól. Svona var Einar,
hann hafði ekki hátt um gerðir sín-
ar en alltaf skein umhyggjan fyrir
okkur öllum út úr öllu sem hann
gerði.
Sumarið 1988 áttum við saman
ánægjulegan dag sem mér þykir
mjög vænt um að hafa fengið að
upplifa. Þá komu Einar og Helga í
heimsókn til okkar Ara í sælureitinn
okkar á Eyvindarstaðaheiðinni,
veðrið lék við alla þennan dag og
ánægja Einars var ósvikin, að vera
aftur kominn á þær slóðir þar sem
hann hafði farið í göngur sem ung-
ur maður. Hann sagði okkur marg-
ar skemmtilegar sögur frá þeim
tíma sem nú er að hverfa í gleymsku
á tækniöld, þeim tíma þegar
gangnamaður átti allt sitt undir
góðum hesti og þekkingu sjálfs sín
á umhverfinu og aðstæðum í nátt-
úrunni. í þeim fræðum held ég að
Einar hljóti að hafa verið mikill
kunnáttumaður með ást sína á jörð-
inni að leiðarljósi.
Elsku Helga mín, Guð gefi þér
styrk í sorg þinni, þú ert rík kona
að eiga minningar um svo góðan
mann.
Þegar ég nú kveð Einar með
þakklæti fyrir samfylgdina þá er
ég viss um að einhvem tíma mun
hann aftur taka mér opnum örmum
eins og fyrr með sitt góða kímni-
bros á vör og sýna mér garðinn
sinn. Guð blessi Einar Björnsson.
Halla.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.