Morgunblaðið - 07.03.1992, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
UM HELGINA
Handknattleikur Laugardagur Landsleikur karla "Selfoss: ísland - Portúgal kl. 17
1. deild kvenna: Garðabær: Stjaman - Valur ...kl. 15.00
Höllin: Ármann - KR kl. 15
Kaplakriki: FH - Víkingur kl. 16
2. deild karla:
Höllin: KR-ÞórAk ...kl. 16.30
Sunnudagur Landsleikur karla Höllin: Island - Portúgal kl. 20
1. deild kvenna: Keflavík: ÍBK-Fram kl. 20
Strandgata: Haukar-ÍBV ...kl. 16.30
2. deild karla: Strandgata: ÍH - Þór Ak kl. 14
Körfuknattieikur Laugardagur Japísdeildin: Strandgata: Haukar-ÍBK kl. 14
1. deild karla: Hagaskóli: Víkveiji - Höttur kl. 14
Sunnudagur Japisdeildin: Seltjarnames: KR-UMFN kl. 20
Sauðárkrókur: UMFT - Snæfell... kl. 20
Hlíðarendi: Valur-UMFG kl. 20
1. deild karla: Sandgerði: Reynir-ÍA kl. 17
Mánudagur 1. deiid karla: Kennaraskóli: IS-KFR kl. 20
Badminton
Meistaramót Reykjavíkur í badminton fer
fram í TBR-húsunum um helgina. Þetta er
alþjóðlegt mót þar sem m.a. níu erlendir
keppendur taka þátt. Mótið gefur stig á
styrkleikalistann fyrir Ólympíuleikana !
Barcelona og hefst í dag kl. 13. Undanúr-
slit heflast síðan í öllum greinum kl. 16 á
morgun nema einliðaleik. Þau verða á morg-
un kl. 10 og strax á eftir hefjast úrslitaleik-
irnir.
Frjálsíþróttir
Meistaramót Islands 15-18 ára í fijálsíþrótt-
um fer fram um helgina. Keppendur verða
130 frá 21 félagi. Mótið hefst kl. 10 i Bald-
urshaga í dag. Mótinu verður síðan fram-
haldið kl. 10 á morgun og þá í Langholts-
skóla, en eftir hádegi verður keppt í Bald-
urshaga. Fijáisíþróttadeild Ármanns sér um
framkvæmd mótsins.
Knattspyrna
Höttur frá Egilsstöðum og Magni frá Greni-
vík mætast í aukaleik um sæti í 3. deild á
komandi keppnistímabili, á Sandgrasvellin-
um í Kópavogi í dag kl. 14.00.
Blak
Laugardagur
1. dcild karla:
KA-húsið: KA - Þróttur R........kl. 14
Hveragerði: Umf. Skeið - Þróttur N....kl. 17
1. deild kvenna:
Digranes: UBK-ÞrótturN........kl. 13.30
Sunnudagur
1. deild kvenna:
Digranes: HK-Völsungur..........kl. 14
Golf
Púttmót verður í Golfheimi, John Letters-
mótið, á morgun, sunnudag, og er frjáis
mæting frá kl. 08 til 20.
Keila
Laugardagsmót KFR hefst kl. 20 í kvöld í
Keiluhöllinni. Tunglskinsmót hefur svo kl.
24 í Keilusalnum Óskjuhlíð. Á morgun hefst
mót á vegum KR og KFR í Öskjuhlíðinni
V1-12-
Skíði
Bikarmót SKÍ í alpagreinum fullorðinna
verður í Bláfjöllum um helgina. Keppt verð-
ur í svigi og hefst keppni báða dagana kl. 10.
Íshokkí
SR og Björnin leika í Bauerdeildinni í ís-
hokkí á skautasvellinu í Laugardal ! kvöld
kl. 20.
Pílukast
Mót verður haldið í dag, laugardag, í 501
að Nýbýlavegi 28 í Kópavogi. Húsið verður
opnað kl. 11.00 og dregið í riðla kl. 12.00.
Þátttökugjald er 1.000 kr.
BLAK
Sigrún slasaðist
Sigrún Ásta Sverrisdóttir,
uppspilari Víkings og
landsliðsins, verður ekki meira
með í vetur. Hún höfuðkúpu-
brotnaði er hún lenti í bílslysi á
mánudag, en er á batavegi.
Meiðsli hennar veikja mjög
vonir Víkinga um að endur-
heimta Islandsmeistaratitillinn
en úrslitakeppnin hefst nú um
miðjan mars. Þá er landsliðið
að fara utan til Gíbraltar á
Smáþjóðaleika og er fjarvera
Sigrúnar Ástu einnig skarð fyrir
skildi í þeim herbúðum.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Ross tekinn við stjóm-
inni hjá Huddersfield
IAN Ross, fyrrum þjálfari Vals
og KR, var í gær ráðinn fram-
kvæmdastjóri 3. deildarliðs
Huddersfield í Englandi. Hann
tekur við af Eoin Hand, sem
hætti í gærmorgun.
Huddersfield er í sjötta sæti 3.
deildar og hefur enn mögu-
leika á að komast upp í 2. deild.
Frá Bob
Hennessy
í Englandi
Hand, sem áður
þjálfaði landslið ír-
lands, og stjórn fé-
lagsins komust að
samkomulagi á
fimmtudag að hann léti af störfum
en engin sérstök var gefin fyrir því.
Hand tilkynnti leikmönnum sín-
um í gærmorgun að hann væri á
förum og Ian Ross tæki við, en
Ross hefur verið aðstoðarmaður
hans. Tók einmitt við því starfi síð-
astliðinn vetur, eftir að hafa samið
við KR um áframhaldandi þjálfun
— en hætti við að koma til Islands
þegar honum bauðst starfið hjá
Huddersfield.
Ross er áttundi framkvæmda-
stjóri Huddersfield á 15 árum. Fé-
lagið, sem var annari í deild til
fjölda ára, hefur verið í þriðju deild
síðustu átta ár.
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN
William Besse, til vinstri, glaður í bragði eftir fyrsta sigur sinn á heimsbikarmóti í gær. Landi hans Daniel Mahrer er
til hægri.
Fyrsti sigur Besse
í heimsbikamum
Sigur Paul Accola í heimsbikarkeppninni í höfn
WILLIAM Besse frá Sviss sigr-
aði í fyrsta skipti á heimsþikar-
keppni, er hann varð hlutskarp-
astur á móti í Panoram í Bresku
Kólumbíu ígær. Hannfórfyrst-
ur niður brautina og enginn
náði að bæta tíma hans. Paul
Accola, einnig frá Sviss, varð
í 23. sæti í gær, fékk átta stig
fyrir það og þar af leiðandi
öruggur með sigur í saman-
lagðri stigakeppni heimsbikar-
keppninnar. Hefur 1.478 stig.
Alberto Tomba frá Ítalíu, sem
keppir ekki í bruni, er annar
með 1.162 stig og getur ekki
náð Accola þegar sex mótum
er ólokið.
Sigur Besses hékk á bláþræði —
tími hans var aðeins einum
hundraðasta úr sekúndu betri en
Ólympíumeistarans frá því í Frakk-
landi á dögunum, Gunther Mader
frá Austurríki og Daniels Mahrers,
landa Besse, en þer urðu jafnir í
öðru til þriðja sæti.
Besse var ekki valinn í Ólympíu-
Knattspyrna
Aukaleikur um 3. deildar sæti
HÖTTUR EGILSSTÖÐUM - MAGNI GRENIVÍK
í dag kl. 14.00 á sandgrasvellinum í Kópavogi.
lið Svisslendinga fyrir leikana í Al-
bertville á dögunum, og vildi auðvit-
að sýna að hann hefði átt heima þar.
Keppnin í gær fór fram í góðu
veðri, skýjað var en sólin skein þó
annað slagið og frost var örlítið.
Hún fór fram í stað keppni sem
vera átti í Morioka í Japan í síð-
ustu, en því var frestáð vegna veð-
urs.
Franz Heinzer hefur enn forystu
í keppninni um heimsbikarinn fyrir
brun. Hann varð áttundi í gær.
Hann hefur möguleika á að tryggja
• sér heimsbikarinn í þessari grein í
dag, en þá verður önnur brun-
keppni á sama stað.
Karlarnir keppa síðan í risasvigi
á morgun í Kanada.
„Þetta er skrýtið, ég er ekki viss
um ég hafi gert mér grein fyrir
árangrinum hér,“ sagði Besse, sem
verður 24 ára í næstu viku. „Ég
vissi ég gæti staðið mig vel en var
ekki viss um að það yrði svona stór-
kostlegt. Ég er hissa, að þetta færi
svona vel miðað við öll mistökin sem
ég gerði í brautinni. Ég held hinir
hafa allir verið í vandræðum líka —
þess vegna fór þetta svona vel hjá
URSLIT
Skíði
Panorama, Bresku Kojumbíu í Kanada:
Brunkeppni í heimsbikarnum í gær:
1. William Besse (Sviss)...........2:5.33
2. -3. Giinther Mader (Austurríki).2:05.34
2.-3. Daniel Mahrer (Sviss)........2:05.34
4. A.J. Kitt (Bandaríkj.)..........2:05.52
5. Christophe Fivel (Frakklandi)..2:05.61
6. Patrick Ortlieb (Austurríki)....2:05.62
7. Leonhard Stock (Austurríki).....2:05.75
8. Franz Heinzer (Sviss)...........2:05.80
9. Lasse Amesen (Noregi)...........2:06.05
10. Luc Alphand (Frakklandi)......2:06.11
11. Jan Einar Thorsen (Noregi).....2:06.20
12. Denis Rey (Frakklandi)........2:06.35
13. Niklas Henning_(Sviþjóð).......2:06.36
14. Pietro Vitalini (ítaliu)......2:06.41
15. Berni Huber(Þýskalandi)...:....2:06.42
16. Xavier Gigandet (Sviss)........2:06.46
17. Felix Belczyk (Kanada).........2:06.47
18. Adrien Duvillarad (Frakkl.) ...2:06.67
19. Marc Girardelli (Luxemb.)......2:06.69
20. Roman Torn (Kanada)............2:06.71
Risasvig í Oddskarði
Cyrsta risasvigmótið á íslandi verður haldið á skíðasvæðinu í Odd-
■ skarði helgina 12. - 13. mars. Skíðaráð Þróttar á Neskaupstað
stendur fyrir mótinu. Fyrirhugað að mótið verði árlegur viðburður ef
vel tekst til. Keppt verður í karla og kvennaflokki.
Einn stjórnarmanna félgsins,
Graham Lesley, sagði í gær að
Hand hefði unnið mjg gott starf
og fyrir það bæri að þakka. En
eftir að ákveðið var að hann hætti
hefði strax verið ákveðið að Ian
Ross fengi starfið, og stjómar hann
liðinu í fyrsta skipti í dag er Hudd-
ersfield fær Shrewsbury í heim-
sókn.
fa&m
FOLK
■ MERVINDAY, markvörðurinn
gamalkunni, hefur verið lánaður til
Luton frá Leeds. Hann er 36 ára.
■ STEVE Sutton, sem verið hef-
ur í láni hjá Luton
frá Nottingham
Forest síðustu þijá
mánuði, hefur nú
hins vegar verið
seldurtil Derby fyrir 300.000 pund.
■ SUTTON, sem var í láni hjá
Derby um tíma 1985 og lék þá 15
leiki með liðinu, tekur stöðu Peters
Shilton, sem farinn er til Plymouth
sem leikmaður og stjóri.
Frá Bob
Hennessy
í Englandi
■ STEVE Redmond, varnarmað-
urinn sterki hjá Manchester City,
hefur verið settur á sölulista að eig-
in ósk. Hann er 24 ára og á að
baki yfir 300 leiki með City. Hann
er verðlagður á eina milljón punda.
■ KEVIN Keegnn, fram-
kvæmdastjóri 2. deildarliðs New-
castle, hefur áhuga á að kaupa
bakvörðinn Barry Venison frá Liv-
erpool. Hann er 27 ára.
■ KENNY Dnlglish, stjóri
Blackburn, sem er á toppnum í
2. deild, keypti enn einn leikmann-
inn í gær — framheijann Roy
Wegerle, 28 ára — frá QPR á 1,2
milljónir punda.
■ WEGERLE fer beint í liðið í
dag, í stað Mikes Newell, sem
Dalglish keypti frá Everton í vet-
ur, en hann fótbrotnaði á dögunum.
■ BRIAN Talbot, fyrrum leik-
maður Ipswich og Arsenal, gerði
sér lítið fyrir og keypti eitt stykki
knattspyrnulið í vikunni ásamt fé-
laga sínum. Það er Kettering
Town, sem leikur utandeilda. Þeir
borguðu 100.000 pund fyrir félagið
— 10,5 milljónir ÍSK. Þjálfari liðsins
er Peter Morris, fyrrum leikmaður
hjá Ipswich.
■ LIVERPOOL fær Aston Villa
í heimsókn á morgun í átta liða
úrslitum ensku bikarkeppninnar.
Graeme Souness, stjóri Liver-
pool, ýjaði að því í gær að liðsupp-
stilling hans gæti komið á óvart.
Jafnvel er talið að John Barnes
komi óvænt í liðið að nýju og einn-
ig Michael Thomas. Þeir hafa ver-
ið meiddir og talið var að Barnes
yrði ekki meira með í vetur.
M ÞRIR leikmanna Tottenham
eru meiddir og verða ekki með gegn
Leeds í sjónvarpsleik RUV í dag.
Það eru fyrirliðinn Gary Mabbutt,
framheijinn Gary Lineker og Ma-
rokkóbúinn Nayim. Blökkumaður-
inn Andy Gray, sem er í láni frá
Crystal Palace, verður með liðinu
í fyrsta skipti í dag.
■ EKKI var ljóst í gær hvort
Guðni Bergsson leikur í dag. Hann
ætti hins vegar að verða í liðinu í
síðari Evrópuleiknum gegn Fey-
enoord eftir tæpan hálfan mánuð
því báðir bakverðirnir, Pat van den
Hauwe og Terry Fenwick fengu
gult spjald í Hollandi og verða í
banni.