Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 2

Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992 EFNI Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSI; Tel enn að aðild að EB sé óhugsandi Festi trollið í þijátíu ára gömlu skipsflaki Grundarfirði. EINAR Oddur Kristjánsson, for- maður Vinnuveitendasambands Islands, segir að Þórarinn V. Þórarinsson hafi í ræðu sinni á ráðstefnu um Evrópubandalagið sl. föstudag verið að lýsa eigin Kjarasamningar: Búist við fundi í dag SAMNINGANEFND ríkisins ósk- aði eftir því við samninganefndir BSRB og kennarasamtakanna á hádegi í gær að samningafundur yrði haldinn kl. 16 í gær, þar sem nefndin hugðist svara þeim álita- efnum sem hún hefur verið með til skoðunar, m.a. álitaefnum um biðlaun ríkisstarfsmanna. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins var í gær búist við því að svör samninganefndar ríkisins yrðu á þann veg að aðilar gætu sest að samningaborðinu með öðrum aðilum vinnumarkaðarins. Samninganefnd ríkisins mun þó ekki hafa viljað úti- loka frekari umræður um útfærslu biðlauna og fleiri atriði. Búist var við því í gær að ef niðurstaða fundar- ins síðdegis í gær yrði jákvæð yrði boðað til sameiginlegs samninga- fundar aðila vinnumarkaðarins hjá ríkissáttasemjara í dag. skoðunum, en ekki stefnu VSÍ, þegar hann lýsti því yfir að Is- land ætti strax á þessu ári að sækja um aðild að Evrópubanda- laginu. Hann segir að menn hljóti að nálgast sína samningsaðila undir réttu flaggi, og því sé umsókn um aðild óhugsandi. „Hann er með þessu að sjálf- sögðu að lýsa eigin skoðunurn, sem honum er auðvitað fijálst. VSI hef- ur ekki tekið afstöðu til þessa máls og ég á ekki von á að það verði gert,“ sagði Einar Oddur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það eru ákveðin hreystimerki hjá Þórarni Viðari að lýsa þessu yfír, en per- sónulega er ég allt annarrar skoð- unar en hann. Við höfum verið þeirrar skoðunar að aðild væri óhugsandi- og ég er enn þeirrar sþoðunar." Einar Oddur sagði að íslendingar ættu gríðarlegra hagsmuna að gæta að ná sem bestum samningum við Evrópubandalagið. „Og það get- ur vel verið rétt hjá Þórarni Viðari að við fáum best og helst úr því skorið hverra kosta sé völ með umsókn. En ég held að menn hljóti að nálgast sína samningsaðila und- ir réttu flaggi. Við höfum ekki ætl- að að gerast beinir meðlimir í Evr- ópubandalaginu og þú sækir ekki um aðild að því sem þú ætlar ekki að ganga í,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveit- endasambands íslands. KAFARAR frá Landhelgisgæsl- unni luku við að losa troll úr skrúfu togarans Runólfs SH 135 sl. föstudag. Verkið tók rúmlega tvo daga fyrir þrjá kafara. Trollið hafði fest í skipsflaki af Bergi VE 44 sem sökk í KoIIuál út af Snæfellsnesi 6. desember 1962. Tróllið festist í skrúfu togarans þegar verið var að reyna að losa það frá flakinu. Ýmiss konar brak kom upp með trollinu, m.a. hlutar af veiðarfærum sem ekki hafa ver- ið notaðir hér á landi í a.m.k. tvo áratugi og ennfremur spýtnabrak, en Bergur var tréskip. Mikið verk var að losa trollið úr skrúfunni og tók það þijá kafara rúmlega tvo daga. - Hallgrimur Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon Kafararnir sem losuðu trollið, f.v.: Benedikt Svavarsson, Rúnar Friðgeirsson og Gunnar Halldórsson. Launþegasamtök auglýsa til stuðn- ings Samvinnuferðum-Landsýn Hreinn barnaskapur og örvænting keppinautar, segir framkvæmdaslj óri Úrvals-Útsýnar FERÐANEFNDIR BSRB, KÍ, BHMR og FFSÍ hafa í sameiningu birt útvarpsauglýsingar á undanförnum döguin þar sem félagsmenn sam- takanna eru hvattir til að skipta við ferðaskrifstofuna Samvinnuferð- ir/Landsýn. Ferðanefnd ASI hafnaði þátttöku í þessari auglýsinga- herferð og ákvað að birta eigin auglýsingar, í öðrum dúr, og hefj- ast birtingar þeirra í dag, að sögn Þráins Hallgrímssonar sem starf- ar með ferðanefnd ASÍ. „Þetta er einvörðungu ákvörðun ferðanefnd- ar BSRB en hitt er annað mál að ferðanefndin starfar að sjálfsögðu á ábyrgð samtakanna,“ segir Ogmundur Jónasson, formaður BSRB. Hörður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, seg- ir þessar auglýsingar vera hreinan barnaskap og lýsa örvæntingu keppinautar. Segist hann hafa haft samband við formann BSRB og forseta ASÍ á föstudag af þessu tilefni og spurt þá hvort það væri yfírlýst stefna samtakanna að velja ákveðna aðila sem beina ætti við- skiptum til og segist hafa fengið staðfest að samtökin sjálf stæðu ekki að þessum áskorunum heldur eingöngu ferðanefndir þeirra. Ekki náðist til Asmundar Stefánssonar vegna þessa máls f gær. ■ I auglýsingunum sem þegar hafa verið birtar eru félagsmenn samtak- anna hvattir til að „standa vörð um ódýru ferðimar“ og að „efla eig- in ferðaskrifstofu - Samvinnu- ferðir-Landsýn". Að sögn Þráins er ferðanefnd ASÍ eingöngu að benda á ákveðn- ar ferðir sem ferðaskrifstofan hefur í boði fyrir félagsmenn ASÍ í sínum auglýsingum. Um væri að ræða 300 sæti til Kaupmanna- hafnar á lága verðinu til viðbótar þeim sumarorlofsferðum sem stéttarfélögin sömdu um við ferðaskrifstofuna í desember og í auglýsingunni er jafnframt minnt á afgreiðsluna hjá Sam- vinnuferðum-Landsýn. Hallgrímur Hallgrímsson, sem sæti á í ferðanefnd BSRB, sagði að oft hefði verið rætt um það Tímiiin 75 ára 75 ÁR ERU á þriðjudag, 17. mars, síðan dagblaðið Tíminn hóf göngu sína. Tímamótanna var minnst í sérstöku afmælisblaði Tímans sem kom út í gær, laugardag. í afmælisblaðinu minntist Stein- grímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, á sögu blaðs- ins og ræddi um framtíð þess. Hann sagði að Tíminn stæði á tímamótum á 75 ára afmælinu. Framsóknar- flokkurinn hefði hætt útgáfu blaðsins frá síðustu áramótum og kæmi blað- ið nú út á vegum hlutafélags: „Út- gáfa Tímans nú er úrslitatilraun. Ef sýnt verður að Tímann má með markvissu og samstilltu átaki efla á ný, mun öllum fijálslyndum, umbót- asinnuðum mönnum boðin þátttaka í útgáfu b'.aðsins. Þeir tveir mánuðir sem liðnir eru af þessu ári lofa góðu. Með hagsýni, mikilli og góðri vinnu starfsfólks og góðri móttöku félags- hyggjumanna hefur útgáfan verið stórlega bætt fjárhagslega en stærra átak þarf þó ef tilraunin á að tak- ast. Það munu næstu mánuðir leiða í Ijós. Jákvæð útkoma síðustu tvo mánuði tryggir hins vegar að Tíminn mun koma út áfram á meðan annað er ekki ákveðið." að undanförnu að birta auglýs- ingar af þessu tagi. „Við töldum okkur hafa fengið bestu samningana og viljum að fólk kaupi þær ferðir sem við höfum samið um,“ sagði hann. Hörður Gunnarsson ságðist telja að þessar áskoranir laun- þegasamtakanna komi í beinu framhaldi af auglýsingastríði ferðaskrifstofanna að undan- förnu en stóru launþegasamtökin eru eignaraðilar að Samvinnu- ferðum-Landsýn. „Af okkar hendi er þetta búið og við munum einbeita okkur að því að vinna faglega að auglýs- ingurn," sagði Hörður. „Mér finnst peningum illa sóað ef þarf að nota þessi samtök til að kynna ákveðna ferðaskrifstofu. Ég veit að VR mun ekki taka þessari áskorun enda væri það óeðlilegt þar sem allar ferðaskrifstofur í landinu greiða félagsgjöld til VR. Mér finnst þessar auglýsingar vera hreinn barnaskapur og ör- vænting keppninautar," sagði Hörður. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra: Sértelqur af skoð- unargjöldum renni til umferðarfræðslu ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra hyggst kanna möguleika á því að Umferðarráð fái sértekjur af skoðunargjöldum bifreiða til að standa undir fræðslu- og upplýsingastarfi þegar að endur- skoðun á verðlagningu Bifreiðaskoðunar kemur. Hann segir að gjaldskrá Bifreiðaskoðunar verði tekin til endurskoðunar þegar uppbyggingu á skoðunarstöðvum ljúki og þess sé ekki langt að bíða. „Alþingi tók á sínum tíma ákvörðun um að Bifreiðaskoðun skyldi Ijúka uppbyggingu á skoð- unarstöðvum á fímm árum og hefur gjaldskráin verið við það miðuð að tekjurnar gætu staðið að stórum hluta til undir þessari uppbyggingu. Þegar henni lýkur mun á ný skapast svigrúm til að endurskoða gjaldskrána. Það er ekki alveg ljóst hvenær það verður en það fer að líða að því,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgblaðið. „Ég tel hins vegar mjög eðlilegt að tekjur af umferðinni standi undir átökum í umferðaröryggis- málum og hef því hugsað mér að kanna möguleika á því að Umferð- arráð fái sértekjur af skoðunar- gjöldum bifreiða til að standa und- ir því mikilvæga fræðslu- og upp- lýsingastarfi sem þar fer fram og nauðsynlegt er að efla því að slys- in verða fyrst og fremst vegna mistaka ökumanna. Þegar að end- urskoðuninni kemur er það því í mínum huga að skapa þar svigrúm til tekjuöflunar til umferðarfræðsl- umála,“ sagði Þorsteinn. Ljós í myrkrinu ? ► Erlendum skipum verður leyft að landa hér á landi ef frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi nær fram að ganga. Ekki eru þó allir sáttir við meðferð málsins./ 10 Bandamenn koma ►Lakota Sioux indíánar kynna foma menningu forfeðra sinna á íslandi. /14 Saga bak við bros ►Jóhanna Kristjónsdóttir blaða- maður skrifar um ferðir sínar í Austurlöndum fjær./16 Fögnuður, en kvíði undir niðri, hjá foreldr- unum ►Þríburarnir, fyrstu börn ársins í Reykjavík, á heimleið./ 18 íþróttir á sunnudegi ►B-keppnin í Austurríki í brenni- depli./34 Bheimili/ FASTEIGNIR ► 1-32 Varast ber falskt ör- yggi í byggingum ► Rætt við Hannes Guðmundsson, framkvæmdastjóra Securitas hf. /16 Tæp eru tímans vöðin ►í lífi Guðrúnar Laxdal hafa skipst á skin og skúrir, rétt eins og hjá okkur hinum. En það er mál manna að hún hafi staðið af sér hretviðri lífsins með þeirri reisn sem samboðin er gáfaðri og ve- lættaðri konu./ 1 Ég er fjallsins vætt- ur... en hvað vilt þú ►Af ferð tveggja íslenskra fjalla- manna á Mont Blanc. /6 Steyptir í vax ►Saga íslenska vaxmyndasafns- ins./ 10 Það liggur í eyrum úti ►Af ferð íslendinga á MIDEM- kaupstefnuna í Cannes./12 Af spjöldum glæpa- sögunnar ►Persónulegt hatur réð valinu þegar Charlotte Corday myrti bylt- ingarforingjann Marrat. /20 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Dagbók 8 Hugvckja 9 Leiðari 20 Helgispjall 20 Reykjavíkurbréf 20 Útvarp/sjónvarp 36 Gárur 39 Mannlífsstr. 8c Kvikrayndir 18c Dægurtónlist 19c Fólk 1 fróttum 22c Myndasögur 24c Brids 24c Stjömuspá 24c Skák 24c Bíó/dans 25c Bréf til blaðsins 28c Velvakandi 28c Samsafnið 30c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4 < ( I I I 1 í « * I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.