Morgunblaðið - 15.03.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
15
Guðrún Bergmann, annar framkvæmdaaðila sýningarinnar, ásamt
Robert Grey Eagle, varaforseta Oglala Lakota-College, fyrir framan
eina af byggingum skólans.
Dance á Snæfellsáss-hátíðinni
undir Jökli, undir leiðsögn Davids
Carsons. Við Wounded Knee höfðu
indíánarnir einmitt verið að dansa
Ghost Dance, þegar yfir 300
óvopnaðir menn, konur og börn
voru strádrepin af hermönnum
Bandaríkjastjórnar.
Þeim indíánum sem eftir voru
var safnað saman á litlum
verndarsvæðum án allra réttinda
eða möguleika til sjálfsbjargar.
Þessi svæði, sem oft voru hrjóstr-
ug og óbyggileg, var indíánunum
bannað að yfírgefa. Þeir voru einn-
ig án allra þegnréttinda fram til
ársins 1924. Oglala Lakota ætt-
bálkurinn býr í suðvesturhorni
Suður-Dakóta og nær verndar-
^væðið m.a. inn á landsvæði sem
kallað er „Badlands" (Vonda land)
og er eins og nafnið bendir til lítt
fýsilegt til búsetu. Eins og áður
sagði er mikið atvinnuleysi á
verndarsvæðunum í dag auk
ýmissa félagslegra vandamála.
T.d. er áfengissýki mjög algeng.
Dansinn mikilvægastur
Þrátt fyrir erfíðar ytri aðstæður
er fullur vilji meðal Lakota Sioux-
indíánanna á verndarsvæðunum
að bijótast út úr eymdinni og
kynna menningu sína, sem þeir
hafa lengi þurft að stunda á laun.
Þeim var bæði bannað að dansa
ákveðna dansa og að stunda trú
sína og gilti það bann til ársins
1978. Þegar banninu var aflétt
hófst mikil vakning meðal allra
indíánaþjóða Norður-Ameríku um
að endurvekja dansana sem eru
hluti af menningu sem ekki má
glatast. Dansinn er mikilvægasti
hluti menningar Lakota Sioux-
indíánanna. Þeir hafa í gegnum
aldirnar tjáð alla mikilvæga at-
burði í lífi sínu með dansi og dans-
inn var og er ennþá hluti af hinu
daglega og trúarlega lífi þeirra.
Dansinn hefur verið notaður til
að tjá tilfinningar, gleðjast, und-
irbúa veiði- og hernaðarferðir, til
að flytja þakkir til veiðidýranna
sem veidd eru og til að lýsa sigrum
og ósigrum í herferðum, svo eitt-
hvað sé nefnt. Sýningarhópurinn
sem hingað kemur mun sýna
margar gerðir dansa. Að sögn
Guðrúnar Bergmann eru þessir
dansar ekkert tilbúið sýningar-
atriði sem sett er upp fyrir ferð-
ina. „Þessir dansar eru í hæsta
máta lifandi og eru dansaðir hve-
nær sem tækifæri gefst, en það er
í nánast í hvert skipti sem Lakot-
arnir koma saman til að halda upp
á eitthvað. Dansarnir eru ákveðið
tjáningarform sem tengist lífs-
máta þeirra. Allt er tjáð í dansi;
blæbrigðin falla undir mismunandi
útfærslu á dansinum.
Guðrún Bergmann segir að yfir-
leitt séu danshópar á öllum
verndarsvæðunum. Það séu bæði
skipulagðir hópar sem ferðast um
með sýningar á POW-WOWum
eða einstaklingar sem mæta og
sýna á slíkum danshátíðum. Guð-
rún segir að eitt vandamál sem
komi upp við skipulagningu ferða
til annarra landa sé, að indíánarn-
ir hafí mjög slæma reynslu af
hvíta manninum og treysti honum
illa. Þeir séu mjög tortryggnir í
garð hvítra og það taki langan
tíma að vinna traust þeirra. Þessi
tortryggni sé erfiðasti þátturinn í
samskiptum við þá.
Falleg sýning
— En hvað fá íslendingar út
úr því að sjá sýningar Lakota-
danshópsins? „Við fáum fyrst og
fremst að sjá mjög fallega sýn-
ingu,“ segir Guðrún Bergmann.
„Við fáum að sjá yfirbragð menn-
ingar Lakota Sioux-indíánanna í
gegnum dansinn, menningar sem
er gjörólík okkar menningu. Við
fáum innsýn í hve dansinn er þeim
mikilvægur, svo og samspil dans-
ins og búninganna sem eru mjög
vandaðir. Þeir eru allir handunnir
af dönsurunum sjálfum eða fjöl-
skyldum þeirra.“ Guðrún segir að
Robert Grey Eagle, varaforseti
Oglala Lakota- College, hafi talað
um hve stoltir þeir væru yfír því
að heimsækja ísland, þar sem ís-
land sé land sem eigi sér langa
sögu. Sagan með mörgum sam-
eiginlegum undirtónum, sé grund-
völlurinn að samstöðu milli þess-
ara, annars gjörólíku menning-
arsvæða.
Guðrún segir að þau hafi lagt
sig fram um að gera heimsóknina
til íslands sem virðulegasta og
hafí leitað eftir stuðningi fjölda
aðila, til þess að svo mætti verða.
Hvarvetna hafi þeim verið tekið
með miklum hlýhug og áhuga.
Stuðningurinn er bæði í formi
ræðuhalda fyrir sýningar, svo á
annan hátt. Til dæmis talar aðals-
endifulltrúi bandaríska sendiráðs-
ins fyrir sýninguna í Borgarleik-
húsinu og borgarstjóri eða fulltrúi
hans fyrir sýninguna í Þjóðleikhús-
inu. Vigdís Finnbogadóttir forseti
tekur einnig á móti hópnum.
Sem fyrr segir verður frumsýn-
ing hópsins í Borgarleikhúsinu 22.
mars kl. 15.00. Sama dag kl. 21.00
verður síðan sýning í Þjóðleikhús-
inu.
I
Kork*o*Plast
Sænsk gæðavara
KORK-gólffllsar
með vinyl-plast-áferð
Kork*o*Plast:
í 10 gerðum
Veggkork
í 8 gerðum.
Ávallt til
á lager
-T
Aðrar korkvörutogundir á lager:
Undirlagskork í þremur þykktum
Korkvólapakkningar i tveimur þykktum
Gufubaðstofukork
Veggtöflu-korkplötur i þremur þykktum
Kork-parkett venjuiegt, i tveimur þykktum
Einkaumboð á íslandi:
Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 38640
Skanhár
Klapparberg 25, 111 Reykjavik
Við veiturn þér:
★ Þitt eigið eðlilega hár sem vex það
sem þú átt eftir ólifað.
★ Ókeypis ráðgjöf hjá okkur eðá
heima hjá þér.
★ Framkvœmt af fœrustu lœkmim
hjá einni elstu og virtustu
einkastofnun í Evrópu.
Hringið á kröldin eða um helgar,
SÍMI 91-678030 eða skrifið til:
TÓNLEIKAR
til styrktar Finni Eydal verða í kvöld í
Súlnasal Hótels Sögu, kl. 21.00 stundvís-
lega. Húsið opnað kl. 20.00. Aðgöngumið-
ar kr. 1.000,- verða seldir við innganginn.
Eftirtaldir aðilar koma fram til styrktar
Finni Eydal:
Kvartett Árna Scheving
Gammar
Hljómsveit Óla Gauks
Tríó Kristjóns Magnússonar
Tríó Carls Möller
Sviflusextettinn
Hljómsveit Finns Eydal
Ellý Vilhjólms
Andrea Gylfa
Anna Mjöll
Helena Eyjólfsdóttir
Ómar Ragnarsson,
„blues-flautori“
Kynnar kvöldsins: Vernharður Linnet
og Hermann Gunnarsson
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna
Jazzvakning
V_________________________________/
STÍFT NÁMSKEIÐ FYRIR KARLMENN
SEM VILJA KOMAST í TQPPFQRM
✓ Fitumæling og vigtun
SIMI 68 98 68
✓ Ftáðgjöf
✓ Fyrirlestrar um rétt mataræði
✓ Hreyfing.stöðvaþjálfun og tækjaþjálfun
✓ Viðurkenningarskjöl ílok námskeiðs
með skráðum árangri
s.
Eina varanlega leiðin
að lækkaðri
líkamsþyngd
er aukin hreyf-
ing og rétt
mataræði.
Við hjálþum þér
að brenna fitu
og kennum þér
hvernig á að halda
henni burtu fyrir
fullt og allt.
LÁTIÐ SKRÁ YKKUR
TAKMARKAÐUR FJÖLDI