Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 29
iUM&\€W9Utb«ÍðlWA
CHCE&Iðl^
se©j SHAM .*J #y»AaíJJffi«íJ
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
29
Leikskólastjóri
Hér með er auglýst eftir leikskólastjóra fyrir
leikskólann Sólvelli í Grundarfirði.
Grundarfjörður er ört vaxandi byggðarlag á
norðanverðu Snæfellsnesi með 846 íbúa. Und-
anfarin ár hafa Grundfirðingar verið frjósamir
með afbrigðum og því hafa árlega verið marg-
ar barnsfæðingar. Nú er verið að Ijúka við
stækkun leikskólans og er þar nú rými fyrir
80 börn, miðað við hálfs dags vistun.
Hér er um að ræða krefjandi starf, þar sem
m.a. er verið að vinna að breytingum á
rekstrarfyrirkomulagi leikskólans í Ijósi stór-
bættrar aðstöðu.
Nánari upplýsingar veita Magnús sveitar-
stjóri, í síma 93-86630 og Birna
í síma 93-86864.
Umsóknarfrestur er til 20. mars 1992 og er
þess óskað að umsóknir verði sendar á skrif-
stofu Eyrarsveitar, Grundargötu 30,
350 Grundarfirði.
Sveitarstjórinn í Grundarfirði.
ISAL
Vélvirkja- og bifvéla-
virkjanám hjá ÍSAL
íslenska álfélagið hf. hefur í hyggju að ráða
tvo til þrjá nema í vélvirkjun og tvo nema í
bifvélavirkjun á næstunni.
Stúlkur koma jafnt til greina og piltar.
Þeir, sem eiga eldri umsóknir um slíkt iðnnám
hjá ÍSAL, eru beðnir að hafa samband við
ráðningarstjóra í síma 607000 og endurnýja
umsóknir sínar. Öðrum er bent á að nálgast
umsóknareyðublöð í bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavík, eða
Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins
25. mars 1992.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri í
síma 607000.
íslenska álfélagið hf.
Laus störf
Óskum að ráða eftirfarandi starfsmenn nú
þegar:
1. Bókara hjá framleiðslufyrirtæki í Kópa-
vogi. 50% starf f.h. Viðkomandi mun alf-
arið sjá um bókhald fyrirtækisins, ásamt
toll- og verðútreikningum. Aðeins koma
til greina umsækjendur, sem geta fullunn-
ið bókhald í hendur endurskoðanda.
2. Ritara hjá umfangsmiklu innflutningsfyrir-
tæki. Um er að ræða ritvinnslu (WP),
launaútreikninga í tölvu ásamt öðrum
skrifstofustörfum. Skilyrði er reynsla af
ofangreindu ásamt kunnátta í ensku og
einu Norðurlandamáli. Umsækjendur
yngri en 30 ára koma ekki til greina.
3. Bankagjaldkera hjá innlánsstofnun á höf-
uðborgarsvæðinu. Skilyrði er að umsækj-
endur hafi reynslu af gjaldkerastörfum í
banka. Reyklaus vinnustaður.
4. Sölumann hjá traustu fyrirtæki, sem flyt-
ur m.a. inn bifreiðavarahluti. Um er að
ræða sölu í varahlutaverslun og úti í bæ.
Leitað er að starfsmanni með söluhæfi-
leika, sem hefur þekkingu og áhuga á
bílum og á auðvelt með að starfa sjálf-
stætt.
Umsóknarfrestur vegna ofangreindra starfa
er til og með 18. mars.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustig la - 101 Reykjavik - Sími 621355
Gigtarfélag íslands
óskar aða ráða starfsmann í hálft starf eftir
hádegi.
Þarf að hefja störf eigi síðar en 1. júní.
Umsækjendur þurfa að vera vanir tölvu-
vinnslu og bókhaldi og hafa vald á ensku og
Norðurlandamálum.
Elginhandar umsóknir sendist Gigtarfélagi
íslands, Ármúla 5, fyrir 21. mars.
Gigtarfélag íslands.
Framleiðslustjóri
Óskum að ráða framleiðslustjóra í vinnslu-
stöð (frystihús) okkar í Borgarnesi nú þegar.
Starfið felst m.a. í umsjón með vinnslu og
pökkun á kjötvörum, skipulagningu á fram-
leiðslu og arðsemisgreiningu.
Við leitum að áhugasömum og drífandi starfs-
manni sem getur unnið sjálfstætt og er tilbú-
inn að takast á við krefjandi starf. Nauðsyn-
legt er að umsækjendur um starfið hafi mennt-
un á matvæla- og/eða rekstrarsviði.
Skriflegar umsóknir um starfið er tilgreini
menntun og starfsreynslu sendist Kaupfélagi
Borgfirðinga, afurðasvið, 310 Borgarnes, fyr-
ir 25. mars nk.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir for-
stöðumaður í síma 93-71200.
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
isa Á AKUREYRI
Staða hjúkrunarforstjóra við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar.
Ráðið verður í stöðuna í 9-12 mánuði frá og
með 15. júlí 1992 eða eftir samkomulagi.
Áskilið er stjórnunarnám og fagleg þekking
og reynsla í hjúkrun. Um er að ræða starf,
sem krefst sjálfstæðra vinnubragða og
samvinnu.
Á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri eru
skráð 170 legurúm. Starfsmenn sjúkrahúss-
ins eru um 500 en nálægt 200 starfsmenn
eru innan starfsmannahalds hjúkrunar.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri,
Ólína Torfadóttir, í síma 96-22100.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1992.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist til framkvæmdastjóra
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri,
pósthólf 380, 602 Akureyri.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Við leitum að
samstarfsaðila á
sviði sölutækni
til að markaðssetja og selja á alvarlegan og
fagmannlegan hátt röratengingar (tankfittings),
heildarlausnir og kerfi byggð á tölvutækni til
að auka sjálfvirkni í íslenska olíuiðnaðinum.
Hefðbundnar vörur - Verktakaþjónusta -
Verkfræðþjónusta
Tæknileg þjónusta og aðstoð er veitt í fullum
mæli af skrifstofu okkar í Fredrikssund og þjálf-
un og annað þess háttar mun eiga sér stað í
samvinnu við hinar einstöku deildir okkar.
Staðbundnir samstarfsaðilar munu að miklu
leyti taka þátt í þeim tæknilegu lausnum sem
við bjóðum olíufélögunum og er því góð þekk-
ing á íslensku atvinnulífi kostur.
Sendið skriflega umsókn til:
ENGINEERING A/$
Færgeparken 21, Box 198,
3600 Fredrikssund, Danmörk.
Sölumaður
- tæknimaður
PÓLS-rafeindavörur hf., ísafirði, óska að
ráða sölumann/tæknimann til starfa hjá fyrir-
tækinu á ísafirði. Við leitum að tæknimanni
með víðtæka reynslu á sviði markaðs- og
sölumála. Viðkomandi þarf a.m.k. að hafa
gott vald á ensku og einu Norðurlandamáli.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk.
Skriflegar umsóknir sendist til:
PÓLS-rafeindavörur hf.,
pósthólf424,
400 ísafjörður.
fea
FJÖRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREYRI
Staða leikskólastjóra við barnaheimilið Stekk
er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða eftir
samkomulagi.
Staða fóstru við barnaheimilið Stekk
er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða eftir
samkomulagi.
Barnaheimilið Stekkur er leikskóli fyrir börn á
aldrinum 2ja-6 ára og er rekinn af Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri. Leikskólinn er ætlað-
ur fyrir börn starfsmanna sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar um ofnagreindar stöður
veita Guðrún Ásta Guðjónsdóttir, leikskóla-
stjóri og Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri,
í síma 96-22100 (símatími mánudaga-föstu-
daga kl. 15.00-16.00).
Umsóknir, með upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins, Inga Björnssyni, fyrir 17. mars 1992.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu F.S.A.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Laus störf
★ Ritarastarf (086). Ritvinnsla (mackin-
tosh), almenn skrifstofustörf. Vinnutími
samkomulag.
★ Ritarastarf (094). Starf sem tengist
starfsmannahaldi, almennum skrifstofu-
störfum o.fl. Æskilegt að viðkomandi sé
ekki yngri en 35 ára. Framtíðarstarf.
★ Ritarastarf (096). Starf við hlið fram-
kvæmdastjóra hjá þekktu og áberandi
þjónustufyrirtæki. Áhersla er lögð á góða
íslenskukunnáttu, sjálfstæða og skapandi
hugsun. Aldur ekki yngri en 25 ára.
★ Hálfsdagsstarf á endurskoðunarskrif-
stofu í Hafnarfirði. Vinnutími frá 13-17.
Lögð er áhersla á kunnáttu í Word Perfect
5.0 og hæfni í innslætti.
★ Skrifstofustarf (061) hjá útflutningsfyrir-
tæki. Ritvinnsla og vinna við útflutnings-
skjöl. Vinnutími eftir hádegi.'
★ Skrifstofustarf í Hafnarfirði (093). Bók-
hald, gjaldkerastarf og almenn skrifstofu-
störf.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., Skeifunni
19, á eyðublöðum sem liggja frammi á skrif-
stofu okkar merktar númeri viðkomandi
starfs.
Hagva ngurM
| Skeifunni 19 Reykjavík [ Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir