Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
31
AUGL YSINGAR
Hjúkrunarforstjóri
Staða hjúkrunarforstjóra við sjúkrahúsið Sól-
vang í Hafnarfirði er laus til umsóknar.
Ráðið verður í stöðuna til 1 árs.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk.
Staðan veitist frá 1. maí nk.
Upplýsingar veitir forstjóri í. síma 50281.
Forstjóri.
O
H'
ORN OG ORLYGUR
Orðabókagerð
Starfsfólk óskast við gerð fransk-íslenskrar
orðabókar.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólapróf í
frönsku og gott vald á íslensku. Reynsla í
orðabókagerð og/eða þýðingum er æskileg.
Umsóknir sendist orðabókadeild Arnar og
Örlygs, Vesturgötu 40, fyrir 30. mars nk.
Sjúkrahúsið
íHúsavík
Hjúkrunarfræðingar
óskast til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 96-41333.
Trésmíði
Sumarbústaðir, viðhald, nýsmíði. Önnumst
alla almenna trésmíðavinnu. Gerum föst
verðtilboð þér að kostnaðarlausu.
Ábyrgjumst góð og vönduð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 679049 eða 74601.
Tréhýsi sf.
Aðalfundur
Verslunarmannafélags Hafnafjarðar
verður haldinn í húsnæði félagsins, Lækjar-
götu 34D, þriðjudaginn 17. mars. kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Húsverndarsjóður
Reykjavíkur
í lok apríl verður úthlutað lánum úr Húsvernd-
arsjóði Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er að
veita lán til viðgerða og endurgerðar á hús-
næði í Reykjavík, sem sérstakt varðveislu-
gildi hefur af sögulegum eða byggingasögu-
legum ástæðum.
Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja
verklýsingar á fyrirhuguðum framkvæmdum,
kostnaðaráætlun, teikningar og umsögn
Árbæjarsafns.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl 1992 og skal
umsóknum, stíluðum á Umhverfismálaráð
Reykjavíkur, komið á skrifstofu garðyrkju-
stjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Norrænir
starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finn-
lands og Noregs veita á námsárinu 1992-93
nokkra styrki handa íslendingum til náms við
fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirn-
ir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir
iðnskólapróf eða hliðstæða menntun til und-
irbúnings kennslu í iðnskólum eða fram-
haldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss
konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að
afla á íslandi.
Fjárhæð styrks í Danmörku er 17.000 d.kr.,
í Finnlandi 27.000 mörk og í Noregi 22.800
n.kr. miðað við styrk til heils skólaárs.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðu-
neytinu, Sölvólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
15. apríl nk. og fylgi staðfest afrit prófskír-
teina, ásamt meðmælum. Sérstök eyðublöð
fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
12. mars 1992.
Tilkynning til gjaldenda
skipulagsgjalds í
Reykjavík
Gjaldendum vangoldins skipulagsgjalds er
bent á að skipulagsgjaldskröfum fylgir lög-
veðréttur í viðkomandi fasteign, sbr. 1. mgr.
35. gr. laga nr. 19/1964.
Verði vangoldin skipulagsgjöld álögð 1991 eigi
greidd fyrir 1. maí nk., mun, skv. 1. gr. laga
nr. 49/1951, fyrirvaralaust verða krafist nauð-
ungaruppboðs á fasteignum þeim, er lögveðs-
rétturinn nær yfir, til lúkningar vangoldnum
kröfum auk dráttarvaxta og kostnaðar.
Tollstjórinn í Reykjavík.
Styrkir til
listiðnaðarnáms
„Haystack styrkirnir11
Menningarsjóður Pamelu Sanders Brement
og Íslenzk-ameríska félagið auglýsa til um-
sóknartvo námsstyrki við Haystack listaskól-
ann í Maine-fylki til 2ja og 3ja vikna nám-
skeiða á tímabilinu 7. júní til 30 ágúst 1992.
Námskeiðin eru framar öðru ætluð starfandi
listiðnaðarfólki í eftirtöldum greinum: Járn-
smíði og mótun, leirlist, vefjarlist, papírsmót-
un, bókagerð („artists books"), trévinnu,
körfugerð, málmvinnu- og steypu, gler-
blæstri- og steypu, bútasaumi, grafík og
grafískri hönnun.
I námsstyrknum felast fargjöld, kennslugjöld
og húsnæði.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma
91-672087.
Umsóknir berist íslenzk-ameríska félaginu b/t,
Funafold 13, 112 Reykjavík, fyrir 7. apríl nk.
Íslenzk-ameríska félagið.
Frá Skólaskrifstofum
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga, sem
þurfa að flytjast milli skóla fyrir næsta vetur,
fer fram í Skólaskrifstofu Reykjavíkur, Tjarn-
argötu 12, sími 28544, þriðjudaginn 17. og
miðvikudaginn 18. mars 1992, kl. 10-15
báða dagana.
Þetta gildir um þá nemendur, sem flytjast
til Reykjavíkur eða úr borginni, koma úr
einkaskólum eða þurfa að skipta um skóla
vegna breytinga á búsetu innan borgarinnar.
Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegar
skipulagningar og undirbúningsvinnu að
öll börn og unglingar, sem svo er ástatt
um, verði skráð á ofangreindum tíma.
Þá nemendahópa, sem flytjast í heild milli
skóla að loknum 7. bekk, þarf ekki að innrita.
Nordplan
Norræn stofnun í skipulagsfræðum.
Árið 1992
Námskeið f rannsóknum: Aðgerðakenning-
ar hugvísinda
31. ágúst-11. september, 19.-30. október
og 25.-29. janúar 1993 í Stokkhólmi
(Skeppsholmen).
Kennarar: Gunnar Olsson, prófessor og José
L. Ramirez, doktorsefni.
Umsóknarfrestur 1. júní 1992.
Námskeið í rannsóknum: Lffsskilyrði og
skynsemi við skipulagningu.
Kennarar: Kerstin Bohm, prófessor og Elisa-
beth Lilja, fil. dr. Hringið í þær til að fá frek-
ari vitneskju!
Árið 1993
Framhaldsnámið (árlangt). Efni: Umhverfi
og þróun á norrænum svæðum
11.-12. janúar, 1.-26. mars, 24. maí-
18. júní og 1.-26. nóvember í Helsingfors,
Kaupmannahöfn, Ósló og Stokkhólmi
(Skeppsholmen). Vettvangsathuganir á Eyr-
arsundssvæðinu og í Berlín og Dassau (Bau-
haus).
Kennarar: Lars Emmelin, rektor og Sigrun
Kaul, prófessor.
Umsóknarfrestur 1. maf 1992.
Efniskrá, frekari vitneskja og umsóknar-
eyðublöð hjá Maritu Strömqvist og Evu Moe.
Póstfang Box 1658 Stockholm, S-111 86,
Svíþjóð. Talsími 90 46-8-614 40 00.
Bréfsími 9046-8-611 51 05.
Aðsetur: Skeppsholmen, Holmamiralens
torg._________________________________
Enskunám í Englandi
Lærið ensku í Eastbourne, á hinni fallegu
suðurströnd Englands.
Sumarnámskeið og almenn námskeið.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Kristinsdótt-
ur, fulltrúi ISAS á íslandi, í síma 671651 fyr-
ir hádegi virka daga.
Frá grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd
eru á árinu 1986) fer fram í skólum borgarinn-
ar, þriðjudaginn 17. og miðvikudaginn 18.
mars 1992, kl. 15-17 báða dagana.
Það er mjög áríðandi að foreldar láti innrita
börnin á þessum tíma vegna nauðsynlegar
skipulagningar og undirbúningsvinnu ískólum.
Garðabær eða nágrenni
Óskum eftir rúmgóðri 4ra herbergja íbúð á
leigu fyrir starfsmann okkar, frá 1. aprfl 1992,
í a.m.k. eitt ár. Reglusöm og reyklaus fjöl-
skylda.
Tilboð sendist til HP á íslandi, Höfðabakka 9,
112 Reykjavík, eða á fax nr. 673031.
|K