Morgunblaðið - 15.03.1992, Page 20
20 C______________________MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
AF SPJÖLDUM GLÆPA5ÖGUNNAR
PERSÓNULEGT HATUR RÉÐ VALINU
JEAN-PAUL Marat leit á sjálf-
an sig sem afburða vísinda-
mann á borð við Isaac Newton.
Samtímamenn hans úr hópi
fræðimanna voru honum ekki
sammála, og bækur hans um
vísindi og heimsspeki hlutu lítið
lof gagnrýnenda. En franska
byltingin skipaði Marat í flokk
píslarvotta.
Eftir að hafa lokið læknanámi
í Evrópu settist Marat að í
London á áttunda tug átj-
ándu aldar og opnaði þar eigin
læknastofu. Hann var bam upp-
lýsingarstefnunnar og undir mikl-
um áhrifum frjálslyndishugsjóna
Voltaire, Rousseaus og Motesqui-
eus, sem upptendruðu 1789-kyn-
slóðina. Árið 1771 kom út eftir
Marat „Ritgerð um mannssálina"
(Essay on the Human Soul), og
tveimur árum síðar „Heimspeki-
leg ritgerð um manninn", (A Phi-
losophieal Essay on Man). Mikil-
vægasta verk hans, sem hann
átti síðar eftir að bera fram fyrir
franskan almenning sem ná-
kvæma forskrift að byltingu, kom
út 1774 og bar heitið „Hlekkir
ánauðar“ (The Chains of Sla-
very). Þar setur þessi ungi eld-
hugi fram hugmynd sína um
launráð aðalsins eða hirðarinnar.
Hann sneri heim til Frakklands
árið 1777 þar sem hann var skip-
aður heimilislæknir varðmanna
d’Artois greifa (sem síðar varð
Kari X), og hann stundaði auka-
lega ábatasöm læknisstörf. Meðal
sjúklinga hans voru ýmsir félagar
klerkastéttarinnar, sem hann út-
hrópaði síðar sem óvini byltingar-
innar.
Árið 1780 birti Marat ritgerð
sína, „Uppdráttur að glæpsam-
legri lagasetningu", sem álitin var
byltingarhvetjandi og var því
bönnuð samkvæmt fyrirmælum
frá konungi. Þremur árum síðar
sagði hann af sér læknisembætti
o g sneri sér að skrifum og vísinda-
rannsóknum. Þegar honum tókst
ekki að fá starfsbræður sína til
að útnefna sig félaga hinnar virtu
Vísindaakademíu landsins tóku
einangrunarkennd og vonbrigði
að hijá hann. Það var um þetta
leyti, að sögn sagnfræðingsins
Louis Gottschalks, að píslarvott-
arkenndir tóku
að þróast hjá
Marat. Þegar
áhlaupið var
gert á Bastilluna
14. júií 1789,
sem táknaði
upphaf bylting-
arinnar afdrif-
aríku í Frakk-
landi, var Marat
í fyrstu talsmað-
ur gamla kerfis-
ins (ancien rég-
ime), gegn því
að konungur
sýndi vilja til að
koma á nauð-
synlegum um-
bótum.
Með útgáfu
fyrsta eintaks-
ins af L’Ami du
Peuple (Vinur
alþýðunnar) í
september 1789
hvatti Marat til
þjóðfélagsbylt-
ingar á breiðari
grunni óg
harðra aðgerða
gegn aðlinum.
Róttæk við-
horf Marats
gengu of langt
að dómi Girond-
Charlotte Corday
hafði vitneskju um
aé maðurinn sem
hún hataði lá stöð-
ugt s baðkeri á
heimili sínu við
Cordelieres-stræti
og þangað hélt
hún með rýting
innan klæða.
ína, hægfara vinstrimanna sem
réðu gangi byltingarinnar í upp-
hafi. Hann var hrakinn í tíma-
bundna útlegð í Englandi árið
1790 vegna ítrekaðra ásakana um
hálfvelgju hjá Jacques Necker,
sem var fjármálastjóri Lúðvíks
konungs XVI árin 1771-81 og
1788-90.
Útlegðin" varð ekki löng, því
þremur mánuðum síðar var hann
kvaddur heim á ný til að koma á
fót málgagni fyrir Montagnard-
hópinn, sem hann fylgdi að mál-
um. í þessu málgagni sínu lýsti
Marat vanþóknun á de Lafayette
markgreifa, Jean-Sylvain Bailly
borgarstjóra Parísar og de
Mirabeau greifa, sem hann sagði
gagnbyltingarsinna. Hann varaði
„borgara“ Frakklands við ráða-
bruggi konungssinna úti um
landsbyggðina og þeirri ógn sem
steðjaði að Frakklandi frá kon-
ungsríkjum Evrópu. Sem fulltrúi
á Þjóðþinginu barðist hann fyrir
stighækkandi tekjuskatti, starfs-
þjálfun verkamanna og styttingu
þjónustutíma manna á herskyldu-
'aldri.
En Marat var ekki laus undan
gagnrýni Girondína, sem höfðu
enn veruleg áhrif á þingi. I apríl
1793 var hann færður fyrir bylt-
ingardómstól sakaður um póli-
tíska glæpi. Hann var sýknaður
24. apríl, og var það tákn um
áhrif „Fjallsins“ (hóps þingmanna
Charlotte Corday
í nánum tengslum við Jakobína-
klúbbinn róttæka í París, en nafn-
ið er dregið af upphækkuðum
bekkjum sem þeir sátu á í þing-
inu) umfram hófsamari þing-
menn. Brátt hófst tími „Ógnar-
stjórnarinnar" þegar nefnd um
almannaöryggi sendi hvem Gir-
ondínann á fætur öðrum til aftöku
undir fallöxinni. Marat og aftöku-
sveitir hans urðu að vinsælum
hetjum borgarastéttar Parísar, en
sama var ekki að segja um full-
trúa aðalsins í dreifbýlinu. Til
dæmis fannst Charlotte Corday
Marat hafa svikið anda og hug-
sjónir lýðræðislegs stjórnarfars.
Marie-Anne Charlotte Corday
D’Armans var aðalborin og fædd-
ist í St. Saturin des Liguertes í
Normandy árið 1768 en hlaut
menntun sína í Klaustri heilagrar
þrenningar. Hún lærði að Iesa Ijóð
þriggja ára, og þegar hún náði
fullorðinsaldri var Corday vel lesin
í verkum Plutarchs og Voltaires.
Fjölskylda hennar fylgdi Gir-
ondínum að málum, og þegar þeir
biðu lægri hlut í blóðugum hreins-
unum 31. maí 1793 var Corday
ákveðin í að hefna harma þeirra.
Hún yfirgaf heimili sitt í Caen og
sagði föður sínum að hún ætlaði
að leita hælis í Englandi, en hélt
hins vegar til Parísar. Hún hafði
ekki ákveðið hvert fórnarlamb
hennar yrði, en í herbergi sínu í
Hotel de la Providence við Vieux
Jean-Paul Marat
Augustins stræti komu þekkt nöfn
upp í huga hennar, Georges-
Jacques Danton, Robespierre og
Jean-Paul Marat, sem öll voru
orðin tákn nýs afbrigðis níðings-
skapar á landsbyggðinni. Það sem
réð vali hennar á Marat á endan-
um var persónulegt hatur sem hún
hafði borið til hans frá því hann
fyrirskipaði dauða unnusta henn-
ar, ungs majórs. í hernum, Bélz-
unce að nafni, árið 1789.
Snemma morguns 13. júlí 1793
keypti Corday sér rýting með 15
sm löngu blaði í hnífabúð hjá
Palais Egalitó. Corday hafði vitn-
eskju um að maðurinn sem hún
hataði lá stöðugt í baðkeri á heim-
ili sínu á Cordelieres stræti 20.
Marat' þjáðist af lamandi húðsjúk-
dómi sem aðeins var unnt að milda
í fróandi heitu vatni blönduðu
ediki. Þegar hann lá í baðkerinu
samdi Marat ritstjómargreinar
fyrir blað sitt og tók á móti sam-
starfsmönnum eftir þörfum. Um
níuleytið einn morguninn birtist
Corday heima hjá Marat, en Cat-
herine Evrard, systir ástkonu
Marats, neitaði að hleypa henni
inn. Hún sagði Corday að ritstjór-
inn væri of veikur til að taka á
móti gestum. Þegar hún kom heim
í hótelherbergi sitt skrifaði Charl-
otte stutt bréf sem hún sendi heim
til Marats.
„Ég var að koma frá Caen. Ást
yðar á ættjörðinni fær mig til að
álíta að þér munið hlusta með
ánægju á leynda atburði í þeim
hluta lýðveldisins. Ég mun mæta
heima hjá yður: Verið svo góður
að gefa fyrirmæli um að mér verði
hleypt inn og veitið mér stutt
einkaviðtal. Ég mun benda á leið
fyrir yður til að veita Frakklandi
mikilvæga aðstoð.
Charlotte Corday, Hotel de la
Providence.“
Svar Marats barst nokkrum
tímum síðar. Corday gat fengið
viðtal sama kvöld. Hún hélt á ný
til heimilis Marats klukkan sjö um
kvöldið, en var enn vísað frá, í
þetta sinn af Simmone Evrard.
Hún brást ókvæða við, og þegar
Marat heyrði mótmælin boðaði
hann þessa ungu konu til her-
bergja sinna. Ef hún hafði komið
alla þessa leið til að segja honum
merkar fréttir, sagði Marat, þá
bæri vissulega að veita henni
áheyrn. Charlotte kom að fjand-
manni sínum þar sem hann lá í
kopar-baðkeri sínu við skriftir.
Hún kynnti sig sem vin alþýðunn-
ar og þuldi upp fjölda nafna á
ímynduðum „svikurum" frá Caen.
„Ég sendi þá alla undir fallöxina
innan fárra daga!“ sagði Marat
ánægður.
Charlotte dró fram rýtinginn
sem hún hafði innan klæða og rak
hann í brjóst Marats. Hálfkæft
hróp hans á hjálp heyrðist niður,
en þegar Simone kom æðandi inn
í herbergið var Marat að dauða
kominn. Einum þjónanna, Laurent
Bas, tókst að yfirbuga Corday,
og var henni haldið þar til sveit
byltingarvarða kom á vettvang.
Hún játaði glæp sinni fyrir Je-
an-Baptiste Drouet, sem var
fyrstur á staðinn. Charlotte var
færð í Prison de Pabbaye fangels-
ið og henni haldið þar næstu þrjá
daga þar til mál hennar var tekið
fyrir hjá Alþýðudómstólnum. Hún
svaraði ásökunum með því að
segja: „Það er aðeins í París sem
fólk lætur þennan mann dáleiða
sig. Úti á landi hefur hann alltaf
verið álitinn níðingnr. Mér var
ljóst að harui var að misbjóða
Frakklandi. Ég drap einn mann
til að bjarga lífum hundruða þús-
unda. Ég var lýðveldissinni löngu
fyrir byltinguna, og mig hefur
aldrei skort þrek.“ Antoine-
Quentin Fourqui-
er-Tinville
dæmdi Charlotte
Corday til dauða,
og hún var flutt
í handvagni til
Byltingartorgs-
ins, Place de la
Révolution, 15.
júlí 1893.
Böðullinn
Sanson varð við
beiðni Charlotte
um að fá að
skoða þetta verk-
færi dauðans,
fallöxina. „Ég
hef aldrei séð
slíka fyrr,“
sagðihún.„Við
þessar aðstæður
er ég dálítið for-
vitin.“ Sumir
hylltu Charlotte
sem hetju, en
leiðtogar Ognar-
innar úthúðuðu
henni og héldu
áfram að styrkja
stöðu Montagn-
ard-hópsins með
því að slátra af
handahófi þús-
undum ímynd-
aðra fjand-
manna.
Byltingarmenn krefjast hefndar eftir að hafa komið að Corday hjá Iíki Marats I baði.