Morgunblaðið - 01.05.1992, Síða 16
r
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
~7
BARATTUDAGUR VERKALYÐSINS
Akureyri
Misskipting'
að aukast í
þjóðfélaginu
INGI Pétursson hefur starfað á
bensínstöð Esso við Veganesi á
Akureyri síðustu 5-6 ár, en þar
er hann vaktstjóri. Áður ók hann
flutningabíl á milli Akureyrar og
Reykjavíkur og segist hann hafa
iækkað mikið í launum við að
skipta um starf. Aksturinn sé
hins vegar krefjandi og menn
megi ekki vera of lengi í slíku
starfi.
„Á síðustu árum
höfum við dregist
aftur úr um 10% í
launum og menn
eru allt annað en
ánægðir með það,“
sagði Ingi, en
hann og félagar
hans á bensínstöð-
inni eru í Félagi
verslunar- og
skrifstofufólks á
Akureyri.
Það er oft mikill erill á bensín-
stöðinni og þar eru unnar 12 tíma
vaktir í einu og alltaf önnur hvor
helgi. „Það er stundum svo mikið
að gera héma að við komumst ekki
í mat, við erum að gleypa í okkur
á hlaupum.“
Ingi sagðist ekki hafa kynnt sér
nákvæmlega hvað fælist í miðlun-
artillögu ríkissáttasemjara, en hún
yrði kynnt á fundi í félaginu. „Ég
held að fólk sé almennt sammála
um að þetta em litlar launahækkan-
ir, þessi 500 króna hækkun á orlofs-
uppbótinni em auðvitað engin
hækkun. Við höfum verið að reikna
út héma að þessi samningur þýði
um 5 krónu hækkun á tímann fyrir
okkur, það em öll ósköpin," sagði
Ingi.
„Ég held þó að fólki þyki þetta
betra en að fara í verkfall, það er
engin glóra í því. Það er heldur
ekki óeðlilegt að fólk sér hrætt við
að fara í verkföll eins og ástandið
er, það hefur engin efni á því,“
sagði Ingi.
Pétursson
Hann taldi að misskipting væri
að aukast í þjóðfélaginu, það gæti
hann merkt á bensínstöðinni. „Sum-
ir koma og kaupa bensín fyrir allt
niður í 100 krónur og stundum seg-
ist fólk vera að kaupa bensín fyrir
síðustu aurana sína. En auðvitað
má segja að bílaeign okkar íslend-
inga sé allt of mikil og við gemm
miklar kröfur. Almennt höfum við
það gott og þurfum ekki að kvarta,"
sagði Ingi.
Akureyri
Flestir
hefðu þegið
að fá meira
„Mér finnst liggja í loftinu, að
það hefði ekki fengist meira í
gegpi í þessum samningaviðræð-
um og það hefðu sjálfsagt flestir
þegið að fá meira,“ sagði Stefán
Hermannsson, jámiðnaðarmað-
ur, en hann starfar hjá Krossa-
nesverksmiðjunni. Þar hefur
hann unnið síðustu 6 ár, en áður
vann hann hjá Norðurverki um
margra ára skeið.
. Stefán starfar
við viðhald á vél-
um og fleira hjá
verksmiðjunni og
þar hefur verið (|s
unnið í 10 tíma á
dag. Frá og með
þessum mánaða-
mótum verður
hætt að vinna yfir-
vinnu hjá verk- Stefán Her-
smiðjunni Og sagði mannsson.
Stefán að það væri nýlunda. Reikn-
að er með að einungis verði unnin
dagvinna hjá verksmiðjunni í sum-
ar, eða fram að næstu loðnuvertíð.
„Ég man ekki eftir að þetta hafi
gerst þau ár sem ég hef unnið hér,“
sagði Stefán, sem sagðist merkja
mikinn samdrátt í störfum jámiðn-
aðarmanna í bænum.
Um samningaviðræðurnar sagði
hann að sér sýndist sem ekki hefði
fengist meira í gegn og þetta væri
þó skárra en verkföll. „Fólk er ekki
tilbúið í verkföll, það kærir sig ekki
um harðar aðgerðir eftir því sem
ég hef heyrt, enda hefur fólk engan
vegin efni á því. Fólk er fegið að
halda vinnunni á meðan atvinnu-
ástandið er ekki merkilegra en það
er nú.“
Það góða við miðlunártillögu rík-
issáttasemjara sagði Stefán að
sennilega kæmi hún best út fyrir
þá lægst launuðu, það hefði oft
staðið til að semja um eitthvað fýr-
ir þá hópa, en svo virtist sem nú
hefði það loks tekist.
ísafjörður
Akveðinn
húmor í
þessu
ÞAÐ var létt yfir mönnum á ísa-
fjarðarhöfn og mikið um að vera.
Norskur togari var að landa
rækjufarmi og úr Reykjarfossi
var verið að hífa í land nýja belt-
isgröfu. Eyjólfur Jónsson gröfu-
sljóri úr Reylqavík beið átekta á
höfninni, en hann var á leið með
gröfuna til Bolungarvíkur þar
sem miklar hafnarbætur eru fyr-
irhugaðar.
„Mér finnst að
þeir hefðu átt að
semja um mínus
1,7%. Það hefði
verið svona meira
gaman að því,
vegna þess að
kauphækkunin
hefur ekkert að
segja,“ sagði Ey-
jólfur. „Það er
verst hvernig
þetta fór með þjóðarsáttina. Menn
voru til í hana af því að þeir héldu
að það yrði farið að vinna eithhvað
í kerfmu sjálfu, en mér virðist að
hann Sighvatur heilbrigðisráðherra
sé sá eini sem þorir eitthvað að
taka á málunum. Þó ég vilji taka
það fram að ég er ekki Álþýðu-
flokksmaður, þá finnst mér að hann
sé að gera rétta hluti. Mér finnst
að því komið að menn fari að vinna
eitthvað fyrir þjóðina, en ekki
standa í þessu helvíti bara fyrir sig
og sína.“
Aðspurður um störf forsvars-
manna launþega sagði Eyjólfur að
sér fyndist einhvern veginn að þeir
væru búnir að semja um þetta allt
fyrirfram. „Svo kemur Jakinn og
blæs eitthvað, en þetta er sko bara
sýndarmennska; þeir eru bara leik-
arar og ekkert annað."
Eyjólfur
Jónsson
Kröfugöngnr og hátíðar-
höld verkalýðsfélaganna
HÁTÍÐARHÖLD verða víða um land í dag af tilefni af alþjóðleg-
um baráttudegi verkafólks. Líkt og undanfarin ár mun Fulltrúar-
áð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja og Iðnnemasamband íslands standa saman að hátíðarhöld-
um í Reykjavík í tilefni dagsins. Verða hátíðarhöldin með hefð-
bundnu sniði og verður safnast saman við Hlemm kl. 13.30 og
leggur ganga síðan af stað niður Laugaveginn að Lækjartorgi
kl. 14 þar sem fundur verður haldinn.
Ræðumenn dagsins í Reykjavík
verða Guðmundur Þ. Jónsson for-
maður Iðju, Ragnhildur Guð-
mundsdóttir formaður Félags ís-
Ienskra símamanna og Klara
Geirsdóttir varaformaður Iðn-
nemasambands íslands, en fund-
arstjóri verður Ragna Bergmann
formaður Verkakvennafélagsins
Framsóknar. Milli ræðuhalda
verða flutt skemmtiatriði. Berg-
þór Pálsson óperusöngvari mun
flytja einsöng og Blái hatturinn
kemur fram í lok fundarins.
Hátíðarhöld í Hafnarfirði í til-
efni dagsins verða með hefð-
bundnu sniði og stendur Fulltrú-
aráð verkalýðsfélaganna að þeim.
Safnast verður saman á planinu
neðan Hafnarborgar kl. 13.30. og
hefst kröfuganga þaðan kl. 14.
Gengið verður vestur Fjarðar-
göru, austur Hverfisgötu og vest-
ur Strandgötu að planinu framan
við ráðhúsið þar sem útifundur
verður haldinn. Fundarstjóri verð-
ur Grétar Þorleifsson formaður
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í
Hafnarfirði og flytur hann jafn-
framt 1. maí ávarpið. Aðalræðu
dagsins flytur Svanhildur Kaaber
formaður Kennarsambands ís-
lands og ávörp flytja Sigurður T.
Sigurðsson formaður Verka-
mannafélagsins Hlífar og Árni
Guðmundsson formaður Stars-
mannafélags Hafnarfjarðar. Á
fundinum munu Aðalsteinn Ás-
berg og Anna Pálína flytja nokkur
lög, og Lúðrasveit Hafnarfjarðar
mun leika í göngunni og á útifund-
inum. Að fundinum loknum bjóða
verkalýðsfélögin upp á kaffiveit-
ingar í Álfafelli og Vitanum og
koma 8 fóstbræður í bæði húsin
og syngja.
Hátíðarhöldin í Borgarnesi
hefjast á Hótel Borgarnesi kl.
13.30 þar sem fram fer fjölbreytt
dagskrá. Lúðrasveit Borgarness
leikur undir stjórn Bjöms Leifs-
sonar, og síðan setur Sigrún D.
Elíasdóttir formaður 1. maí nefnd-
ar samkomuna. Því næst syngur
Barnakór Borgarness undir stjórn
Birnu Þorsteinsdóttur og að því
loknu flytur Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Verkamann-
afélagsins Dagsbrúnar ræðu. Síð-
an skemmtir Ómar Ragnarsson,
Karlakór Bólstaðahlíðarhrepps
syngur, Sveitarmenn syngja og
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir frá
Þingnesi rabbar við samkomu-
gesti. Að því loknu flytja ávörp
fulltrúa verkalýðsfélaganna þær
Sigríður H. Skúladóttir frá Verka-
lýðsfélagi Borgarness og Arndís
F. Kristinsdóttir frá Verslunar-
mannafélagi Borgarness.
„Það er ekkert fyrir okkur að
gera nema að viðurkenna að við
höfum lifað um efni fram. Við höf-
um verið blekktir með tölum í fyrri
samningum án þess að fá nokkuð
út úr því. Nú er bara að sjá hvort
1,7% færi okkur eitthvað meira.
En það er kannski aðalmálið að
hafa húmorinn í lagi og reyna að
lifa saman í þessu landi,“ sagði
Eyjólfur og var þar með rokinn, því
beltagrafan var komin í land og
tilbúin í slaginn við vestfirska blá-
grýtið.
Úlfar
Isafjörður
Annaðen
launahækk-
anir mikil-
vægt
HJÁ niðursuðuverksmiðjunni á
Isafirði voru menn að sjóða niður
kanadíska rækju, sem kom með
Hofsjökli í vetur. Helgi Helgason
framleiðslusljóri við niðursuðu
rækju hjá verksmiðjunni. Hann
segir að þarna sé gott að vinna,
en óvíst sé með framhaldið, en
verksmiðjan er nú leigð aðilum
í Reykjavík meðan greiðslustöðv-
un stendur hjá Niðursuðuverk-
smiðjunni hf.
Helgi segir að
1,7% launahækk-
un sé lítil kjarabót,
en meta megi
ýmsa aðra þætti
samninganna svo
sem lækkun
vaxta, lægri
kostnað við lækn-
ishjálp barna og
fleira. Þá segir
hann að það sé
Helgi
Ilelgason
yfir höfuð betra fyrir alla aðila að
vita hvaða efnahagsstærðir menn
eru með í höndunum.
„Það er að vísu ljóst, að það lifir
enginn á 80 þúsundum á mánuði
en það er sú upphæð sem láglauna-
bæturnar eru miðaðar við ef hann
þarf að sjá fyrir heimili. Það hlýtur
að vera eitthvað skakkt í mynd-
inni, ef fólk fær borguð laun sem
nægja ekki fyrir framfærslu á sama
tíma og við Islendingar teljum okk-
ur tiltölulega ríka þjóð. Spurningin
er hvort ekki sé hægt að ná inn
meiri peningum í ríkissjóð með
hertu skattaeftirliti, eins og gerist
hjá öðrum þjóðum. Við lifum núna
um efni fram og erum því bara að
skrifa reikning á framtíðina. En
þegar litið er til nágrannalandanna
eins og til dæmis Hollands og
Þýskalands, þá finnst mér að mat-
vöruverð sé þar mikið lægra en hér
og jafnvel betri vara. Er þetta ekki
eitthvað sem þarf að laga?“
Aðspurður um störf verkalýðs-
foringjanna sagði Helgi að sér virt-
ist að þeir ynnu yfirleitt ágætlega
í erfiðri stöðu, nú þegar þjóðartekj-
ur dragast saman. „Það sem hefur
kannski helst breyst, er að mér
finnst þeir ekki vera neinir áróðurs-
meistarar lengur og ég er ekki viss
um nema að það sé til bóta. Ég
held að það bafi verið okkur til
hagsbóta hve vel fulltrúar launþega
og atvinnurekenda náðu saman í
samningavinnunni, því líklegast er
það sem mestu skiptir í þessum
samningum það sem náðist frá rík-
inu, eða að ríkið hætti við að taka
af. Við vitum það að margar atvinn-
ugreinar standa ekki allt of vel og
ekkert þangað að sækja,“ sagði
Helgi Helgason verkstjóri og horfði
á eftir rækjunni ofan í niðursuðu-
dósirnar sem fara eiga á sælkera-
markað í Frakklandi.
- Úlfar.
Einar Valur að ljúka við aðra
íbúðarblokkina. Sveinn Ingi Guð-
björnsson húsasmiður var að
setja í hurðir þegar Morgunblað-
ið bar að. Sveinn Ingi hefur starf-
að þjá fyrirtækinu í 11 ár og
segir að þó nokkrar breytingar
hafi orðið á vinnutíma síðustu
árin.
„Við vorum
vanir að vinna
mikla yfirvinnu,
sem kom sér vel
fyrir unga menn,
sem voru að stofna
heimili," segir
Sveinn Ingi, „en
nú er þetta orðið
breytt, laugardag-
arnir sem alltaf
voru unnir áður
Sveinn Ingi
Guðbjörnsson
ísafjörður
Lítið um
aukavinnu
UNDIR Seljalandsmúlanum er
byggingarfyrirtækið Eiríkur og
eru nú alveg dottnir út og það heyr-
ir til undantekninga ef um ein-
hveija aukavinnu er að ræða. En
maður lærir bara að draga saman
með tekjuminnkuninni."
En hvað um launasamningana?
Sveini Inga finnst ekki um mikið
samið. Honum þykir að í stað taxta-
hækkana hefði mátt færa skattleys-
ismörkin ofar og nefnir 80 þúsund
króna mánaðarlaun. Þá vildi hann
að settur yrði hátekjuskattur á þá
sem úr mestu hafa að moða. Hann
telur verkalýðsforystuna hafa stað-
ið sig sæmilega miðað við aðstæður
og segist búast við að með samflot-
inu hafi kjör hinna lægst launuðu
verið best tryggð. En það sem hann
hefur nú mestar áhyggjurnar af er
atvinnuþróunin. Hann telur að næg
verkefni liggi fyrir í sumar, en ótt-
ast strax að strax næsta vetur geti
orðið lítið um atvinnu, en atvinnu-
leysi er honum algjörlega óþekkt
fyrirbæri og hugsunin um það veld-
ur ugg.
En nú þarf að lifa við gjör-
breytta atvinnuhætti frá því sem
þessi annars ungi húsasmiður átti
að venjast fyrir um það bil áratug.
- Úlfar.
Keflavík
Erfiðast að
geta ekki
verið hjá
börnunum
„ERFIÐAST er að geta ekki ver-
ið heima hjá börnunum. Ég hef
nokkrum sinnum gert tilraun til
að vera heima, en það hefur ein-
faldlega ekki gengið upp og ég
hef orðið að fara út til að vinna
aftur,“ sagði Anna Björg Gunn-
arsdóttir verkakona í Keflavík.
Anna Björg hefur unnið við fisk-
verkun meira og minna síðastlið-
in 14 ár, allt frá því að hún var
16 ára.
„Kaupið er ekki
hátt og þetta sátt-
atilboð gefur ekki
mikið í aðra hönd-
ina, en ég held að
það sé betra en
ekkert og ég tala
nú ekki um verk-
föll, á því höfum
við engin efni eins
og staðan er í dag. Anna Björg
Anna Bjorg er gift Gunnarsdóttir
og er með tvö lítil börn. Eiginmaður
hennar vinnur einnig úti og hún
sagði að þrátt fyrir það að þau
ynnu bæði væri oft erfitt að ná
endum saman.
Anna Björg sagði að ekki væri
bjart framundan í atvinnumálum
hjá fiskverkakonum í Keflavík og
lítið atvinnuöryggi. Nú væri útlit
fyrir að hún missti vinnuna á næstu
dögum og ekki væri í mörg hús að
venda hjá sér í atvinnuleit. „Ég hef
ekki mikla möguleika á að fá vinnu
í öðrum greinum og því er bara að
vona að úr rætist sem fyrst þannig
að við höldum vinnunni," sagði
Anna Björg ennfremur.
BB