Morgunblaðið - 01.05.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1992
maðurinn var sektaður fyrir að sýna
ekki nægilega varkárni þegar hann
hélt um hendi fangans, sem veitti
mikla mótspyrnu, í fullkomlega lög-
legu lögreglutaki. Atvikum varð-
andi aðalákæruliðinn, þ.e. tilurð lík-
amsmeiðsla fangans, er þannig lýst
í dómsniðurstöðum:
„Þrátt fyrir að „lögreglutak“
þetta sé kennt öllum verðandi lög-
reglumönnum, verður að leggja
þeim þá skyldu á herðar að beita
því með þeim hætti að menn slasist
ekki alvarlega. Verður að telja, eins
og á stóð, að ákærði (lögreglumað-
urinn) hafi ekki sýnt nægilega var-
kárni, er hann hélt um handlegg
fangans umrætt sinn, þótt í ljós sé
leitt að fanginn hafi veitt mikla
mótspyrnu, er reynt var að færa
hann úr yfirhöfn, svo sem skylda
er.“
Þessi lögreglumaður hefur aldrei
fengið uppreisn æru vegna þeirrar
ærumeiðingar sem hann fékk í fjöl-
miðlum með t.d. nafnbirtingu og
röngum og ógnvekjandi lýsingum á
atburðarásinni. í fréttum af þessu
máli var m.a. fjallað um ofbeldi lög-
reglumanna á íslandi undir mynd-
birtingum af vopnuðum erlendum
hermönnum sem voru að misþyrma
fólki. Glæpur, sem ekki var til í
þeirri mynd sem honum var lýst,
var sviðsettur í skjóli þess að verið
væri að segja fréttir og með mynd-
rænum hætti komið þeim skilaboð-
um til áhorfandans að lögreglan á
íslandi stundaði það að misþyrma
fólki. Það hlýtur að verða að gera
þá kröfu a.m.k. til þeirra íjölmiðla,
sem gefa sig út fyrir að vera kross-
farar gegn hvers konar spillingu
og mistökum í þjóðfélaginu, að þeir
geri ekki minni kröfur til eigin
verka.
Niðurstaða dómsins fékk hins
vegar nánast enga fjölmiðlaumfjöll-
un þó að hún væri í algjörri and-
stöðu við þann fréttaflutning sém
á undan var genginn. Mál sem
meðhöndlað hafði verið í fjölmiðlum
um langa hríð af meiri þunga og
meira vægi en morðmál vakti ekki
lengur áhuga fréttamanna. Alvar-
legur áburður á lögreglumenn þótti
frétt í þessu tilviki, en sannleikurinn
hins vegar ekki.
Miklar kröur eru gerðar til lög-
reglumanna um að þeir misnoti
ekki vald sit og að þeir starfi í
hvívetna samkvæmt þeim lögum og
reglum sem um störf þeirra eru
sett. Það verður líka að gera þá
kröfu til þjóðfélagsins að lögreglu-
menn megi vera nokkuð vissir um
það, að ef þeir starfa í hvívetna
samkvæmt öllum lögum og reglum,
eigi þeim að farnast vel í starfi og
þurfí ekki að eiga von á aðför að
mannorði sínu vegna starfsins.
Verði lögreglumönnum á mistök þá
eiga þeir rétt á málefnalegri og
heiðarlegri umfjöllun og í eðlilegu
hlutfalli við eðli málsins. Annað
getur skapað óöryggi og óvissu
meðal lögreglumanna um starfslega
stöðu þeirra. Með tímanum getur
það leitt til þess að lögreglumenn
fari að sýna minna frumkvæði og
haldi óeðlilega að sér höndum og
hugsa fyrst og fremst um að lenda
ekki í neinu sem hægt er að klaga
þá fyrir, eða sem hægt er að nota
gegn þeim í fjölmiðlum. Slíkt bitnar
ekki síður á þeim sem á lögregluna
þurfa að treysta þ.e. þegnum þessa
þjóðfélags. Þá má velta þeirri
spurningu fyrir sér hvort lögreglu-
starfið sé ekki farið að fjarlægast
þau markmið sem því eru mörkuð
í Iögum.
Yfirlit yfir kvartanir og
klögumál árið 1991
90-
80-
70
60-
50
40-
30
20
10
0
Mikið traust fólks á lögreglu.
(Byggt á skoðunarkönnun FHí)
1990
84%
82%
ÍSLAND
NORÐURLÖND
(Ueöaltal)
S-V EVRÓPA
(Meðaltal)
Kvartanir vegna framkomu lög-
reglumanns voru samtals 6. Helstu
ástæður:
Orðahnippingar verða þegar öku-
maður þrætir fyrir brot, vill ekki
koma inn í lögreglubifreið eða fólki
fínnst framkoma lögreglumanns
hafa verið dónaleg, ögrandi eða
særandi.
í tveimur tilvikum kvörtuðu aðil-
ar sem lögreglan hafði haft af-
skipti af ölvuðum undan framkomu
lögreglumanns.
Kvartanir eða klögumál tengd
handtöku voru samtals 7. Helstu
ástæður:
í þremur tilvikum taldi fólk ekki
nægt tilefni til handtökunnar, eða
var ósátt við hana, eða framkvæmd
hennar.
í þremur tilvikum voru aðilar hand-
teknir vegna gruns um refsiverða
háttsemi, en í ljós kom eftir á að
aðilar voru saklausir. Röð tilviljana
og hröð atburðarás ráð því að grun-
ur féll á viðkomandi. Enn fremur
komu fram kvartanir um hvernig
staðið var að handtökunum þ.e.a.s.
að ekki hafí verið nægileg nær-
gætni sýnd.
Einn aðili lagði fram kröfu um
bætur venga meiðsla sem hann
varð fyrir vegna handtöku, en ekk-
ert benti til þess að ónauðsynlegu
harðræði hafi verið beitt af hálfu
lögreglunnar.
Nokkur tilvik komu upp sem
ekki er getið hér að framan þar sem
fólk hringdi eða kom til yfirstjórnar
þegar farið var að rukka það vegna
vangreiddra sekta eða dómsátta og
vildi fá niðurfellingu og á móti
myndi það sleppa því að kæra lög-
regluna fyrir harðræði eða dóna-
skap. Lögreglu var hótað fjölmiðl-
um í tveimur tilvikum, ef mál yrði
ekki fellt niður. í öðru tilvikinu var
um að ræða ölvunarakstursmál.
Þegar fólki var sagt að slíkum boð-
um væri ekki tekið og ef lögreglu-
menn hefðu staðið rangt að störfum
sínum þá þyrfti að rannsaka það
en slíkum málum væri ekki „sópað
undir teppið" eða leyst með því að
fella niður réttmæt viðurlög hjá
fólki, þá heyrðist ekki frá þessum
aðilum meir.
Það vekur athygli að á undan-
förnum árum — þrátt fyrir mjög
neikvæða umfjöllun um störf lög-
reglumanna vegna tiltekinna kæru-
mála — þá sýna kannanir Félagsvís-
indastofnunar Háskóla Íslands, að
lögreglan hér á landi nýtur vaxandi
trausts og raunar meira trausts en
nokkur önnur einstök stofnun á
landinu.
Áhugavert er að bera saman
kannanir Félagsvísindastofnunar
annars vegar frá árinum 1984 og
hins vegar frá árinu 1990, um það
hvernig spurningunni um traust
fólks á lögreglunni er svarað og þá
í samanburði við sams konar kann-
anir á hinum Norðurlöndunum og
S-V Evrópu. í þeim könnunum kem-
ur í ljós að lögreglan á íslandi hef-
ur á þessum sex árum fengið aukið
traust langt umfram þessi lönd.
Einng vekur athygli að 3% ísleninga
báru alls ekkert traust til lögregl-
unnar árið 1984, en aðeins 1% árið
1990. Sambærilegar tölur varðandi
hin löndin árið 1990 eru: Danmörk
(0%) Finnland (3%) Noregur (2%)
Svíþjóð (3%) og S-V Evrópa (7%).
í könnunni 1984 kom í ljós. að 75%
íslendinga báru mikið traust til lög-
reglunnar, en í könnunni 1990 var
hlutfallið komið upp í 84%&.
Forvitnilegt er að meta niður-
stöðurnar, varðandi hlutfall þeirra
sem mikið traust bera til lögregl-
unnar í meðaltalstölum miðað við
öll Norðurlöndin sameiginlega og
hins vegar lönd S-V Evrópu á árinu
1990. ~
Þijú lönd, Danmörk (90%), Nor-
egur (88%) og ísland (84%), koma
lang best út úr könnuninni árið
1990. Þegar skoðað er hlutfall
þeirra sem alls ekkert traust bera
til lögreglunnar, kemur bara Dan-
mörk betur út en ísland, af löndum
Norðurlandanna og landa S-V Evr-
ópu.
Þó grein þessi sé til að upplýsa
fólk o.þ.m.t. fjölmiðlafólk um þenn-
an þátt í starfi lögreglunnar, að því
leyti sem hann snýr að klögumálum
á lögreglumenn, var ekki hjá því
komist að gagnrýna þátt fjölmiðla
í umQöllun slíkra mála. Segja má
að kannski sé ósanngjarnt að leggja
alla ljölmiðla að jöfnu, enda er
fréttaflutningur þeirra misjafn og
sumir miðlar standa öðrum framar
í hlutleysi og fagmennsku. Tilgang-
ur greinar þessarar er hins vegar
ekki að hnýta í einstaka fjölmiðil,
heidur til að vekja fréttamenn og
aðra til umhugsunar um þessi má'l
og koma sjónarmið lögreglunnar á
framfæri, sem svo oft hafa orðið
undir í umræðunni.
Höfundur er yfirlögregluþjónn.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, sími
671800
OPIfl IDAG KL. 2 - 6.
MMC Pajero turbo diesel ’88, steingrár,
mikið af aukahl., ek. 82 þ. Topp eintak.
V. 1.080 þús. stgr. Sk. á ód.
Renault 21 Nevada GTX 4x4 station '90,
Ijósblár, 5 g., ek. 72 þús., rafm. i öllu, o.fl.
V. 1.290 þús. Sk. á ód.
Chrysler New Yorker ’85, hvítur, sjálfsk.,
ek. 76 þ., rafm. í öllu, leðurkl. V. 850 þús.
Sk. á ód.
Daihatsu Rocky 4x4 ’85, 2000, vökva-
stýri, rauður, ek. 86 þ. Gott eintak. V. 590
þús. stgr.
VW Polo nFancy“ ’90, ek. 18 þ. Litað gler
o.fl. V. 590 þ.
Toyota Corolla Llftback ’88, rauður, ek. 46
þ., samlitir stuðarar o.fl. V. 680 þ. stgr.
OPIÐSUNNUÐ. KL14-16. I
Toyota Hilux Douple Cap m/húsi '91, dies-
el, 5 g., ek. 23 þ. Talsvert breyttur. V. 1.670
þús. stgr. (skipti).
Daihatsu Charade Sedan SG '90, 5 g., ek.
18 þ. V. 750 þ. Sk. á ód.
Suzuki Fox 410 '88, 5 g.. ek. 53 þ. Gott
eintak. V. 740 þ. Sk. á ód.
Citroén CX 7 manna station '85, 5 g., ek.
114 þ. V. 450 þ.
Willys CJ-7 Wrangler '88, 5 g., ek. 50 þ.
mílur., 6 cyl. (4.2), álfeigur, o.fl. V. 1.350
þús. (skipti).
Vantar nýlega bila á staðinn.
»indola Vént-Axia:
LOFTRÆSIVfFTUR
CLUCGAVIFTUR - VECCVIFTUR
BORÐVIFTUR - LOFTVIFTUR
Ensk og hollensk gæðavara.
Veitum tæknilega ráðgjöf við
val á loftræsiviftum.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 814670
fSelsi
Sumarhús
Allt efni í sólpalla
og skjólgirðingar.
Mjög hagstætt verð.
OPIÐ í DAG OG Á MORGUN
KL. 13-17
Þetta sérlega fallega 50 m2
sumarhús er til sýnis og sölu.
Húsiö er fullgert
Höfum sumarhúsabækling yfir
30 gerðir af sumarhúsum.
Gerum tilboð í allt efni í þessi
hús, svo og í aðrar teikningar.
Höfum sérhannað: Pílera, rendar
súlur og útsagaðar vindskeiðar
Lóðir:
Hef nokkrar eignarlóðir til
sölu 75 km frá Reykjavík.
Stærð 5.150-7.670 m2.
Hægt er að fá lóðina með
undirstöðum, rotþró, vegi og
vatni lagt að húsi.
Hagstætt verð, útborgun
frá kr. 150 þús.
Smiðsbúð,
Smiðsbúð 8, Garðabæ,
sími 91-656300, fax 91-656306.