Morgunblaðið - 01.05.1992, Side 41

Morgunblaðið - 01.05.1992, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. MAI 1992 Avarp í tilefni alþjóðlega dansdagsins Dansarar úr Listdansskóla Þjóðleikhússins. eftir Nönnu Ólafsdóttur í tilefni alþjóðlega dansdagsins 2. mal fögnum við þeim tímamót- um sem íslenskur listdans stendur á. Eftir 19 ára starf íslenska dans- fiokksins og 40 ára starfsemi List- dansskóla Þjóðleikhússins er regl- ugerð um starfsemi þessara stofn- ana orðin að veruleika. Með þess- ari reglugerð er lýst yfir sjálf- stæði Listdansskólans og íslenska dansflokksins. í 40 ár starfaði Listdansskóli Þjóðleikhússins, án þess að hafa fastráðið starfsfólk fyrir utan skólastjóra, og sennilega eina menningarstofnun landsins, sem lifað hefur á sjálfsaflafé. Nýja reglugerðin er bylting í starfsemi skólans, þar sem nú er hægt að fastráða starfsfólk og leggja grunn að markvissu starfi hans í framtíðinni. Með þessari reglugerð gera stjórnvöld sér vonandi grein fyrir ábyrgð sinni í málefnum listdans- ins og að orsakir þeirrar óánægju og umbrota sem verið hafa eru fyrst og fremst aðstöðuleysi. Á þessum tímamótum er við hæfí að líta til upphafsins. Árið 1921 fór Ásta Norðmann, þá ung stúlka, til náms í listdansi í Þýska- landi. Full af. eldmóði kom hún aftur heim og kenndi öðrum það sem hún hafði lært. Kynslóð ném- enda hennar fóru utan að dæmi hennar og öfluðu sér þekkingar meðal annars í Danmörku, Banda- ríkjunum og víðar. Árið 1947 stofnuðu fimm konur Félag ís- lenskra listdansara, þær Ásta Norðmann, Rigmor Hanson, Ellý Þorláksson, Sigríður Ármann og Sif Þórz, til að vinna í sameiningu að framgangi listdansins á Is- landi. Þeim tókst ári síðar að koma félaginu inn í Bandalag íslenskra listamanna, sem var ótvíræð við- urkenning á danslistinni sem slíkri. Félag íslenskra listdansara starfrækti listdansskóla og stóð fyrir listdanssýningu í Austurbæj- arbíói árið 1949, þar sem Les Sylphides var sýnt í fýrsta skipti hér á landi. Þessir frumkvöðlar unnu ötul- lega að framgangi listdansins á öllum sviðum. Fyrsti íslenski bal- lettinn var frumsýndur árið 1950, en það var Eldurinn eftir Sigríði Ármann við tónlist Jórunnar Við- ar. Árið 1952 var Listdansskóli Þjóðleikhússins stofnaður og var fenginn hingað danskur ballett- meistari, Erik Bidsted, ásamt Lisu Kjæregaard konu hans, til að sjá um skólann. Starf Bidsteds verður seint fullþakkað, en því miður rofnuðu tengslin við frumkvöðl- ana, þannig að sú reynsla og þekking, sem þeir bjuggu yfír fékk ekki að þróast áfram og þar misstum við af fyrsta möguleikan- um á að þróa íslenska danssköp- un. Og þegar hjónin fara héðan af landi mörgum árum síðar, stendur hér eftir efnilegur hópur nemenda eins og höfuðlaus her. Eftir þetta koma og fara erlendir ballettmeistarar en kjölfestuna vantaði. Árið 1968, á hátíð Bandalags íslenskra listamanna, verður aftur • til íslenskt ballettverk, en það eru Frostrósir eftir Ingibjörgu Björns- dóttur við tónlist Magnúsar Blön- dals Jóhannssonar. Upp úr þessu glæðist íslensk danssköpun, enda konurnar í Félagi íslenskra list- dansara farnar að ráða gangi mála. Árið 1973 var svo loksins íslenski dansflokkurinn stofnaður og þar kom til ötul barátta Félags íslenskra listdansara, stuðningur Bandalags íslenskra listamanna og einlægur velvilji Sveins Einars- sonar Þjóðleikhússtjóra. Enskur ballettmeistari, Alan Carter, var ráðinn til að veita þessum unga flokKi forystu. Efld- ist og dafnaði flokkurinn í þau tvö ár sem hann starfaði hér, en eng- in íslensk listdanssköpun'átti sér stað og eftir að hann fór var hér enn einu sinni forystulaus hópur dansara. Erlendir ballettmeistarar komu og fóru næstu ár á eftir. íslensk- an listdans vantaði enn kjölfest- una. 1980 tók íslensk forysta við flokknum og listdanssköpun skaut rótum enn á ný. Verk eftir Ingi- björgu Björnsdóttur, Nönnu 01- afsdóttur og Hlíf Svavarsdóttur litu dagsins Ijós. En þrátt fyrir glæsilega sigra íslenska dansflokksins, sýninga- ferðir til Norðurlanda og boð á virtar listahátíðir erlendis, var dansflokkurinn samt aðþrengdur. Það skjól sem veggir Þjóðleik- hússins veittu dansflokknum og var honum lífsnauðsynlegt upp- vaxtarárin, heftu þróun hans og starfsemi smátt og smátt. List- dansinn þarf meira en eina til tvær uppfærslur á ári til þess að ala upp áhorfendur, auka skilning á Iistgreininni og koma listamönn- um sínum til þroska. Listdansinn þarf þá kjölfestu, sem felst í því að íslenskir listamenn skapi og stjórni þeirri þróun sem framund- an er, til þess að hér verði öflug- ur listdans sprottinn úr rótum ís- lenskrar menningar. Höfundur er formaður Félags íslenskra listdansara. 41 Veigar Margeirsson Tónlistarskólinn ^ í Keflavík: Burtfarar- prófstónleik- ar á sunnudag SUNNUDAGINN 3. maí heldur Veigar Margeirsson, trompet- nemandi í Tónlistarskólanum í Keflavík, einleikstónleika í Ytri- Njar ð víkurkirkj u. í fyrri hluta efnisskrárinnar leik- ur Guðmundur Magnússon með honum á píanó en í þeim síðari koma til liðs við Veigar nokkrir hljóðfæraleikarar úr kennaraliði skólans og leika með honum í léttri jasssveiflu. Veigar lék einleik með Sinfóníu- hljómsveit íslands föstudaginn 24. apríl sl. í Keflavík og eru þessir tónleikar síðari hluti burtfararprófs hans frá skólanum. Kennari Veig- ars er Ásgeir Steingrímsson, tromp- etleikari. Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 og eru öllum opnir og aðgangur ókeyp- is. Gagnaeyðing flyt- ur í nýtt húsnæði GAGNAEYÐING HF. fluttist 11. apríl sl. í nýtt húsnæði við Skútu- vog 13. Opnunin var haldin hátíðleg og ræsti háttvirtur umhverfisráð- herra Eiður Guðnason hinn nýja og umhverfisvæna vélabúnað fyrir- tækisins. Gagnaeyðing sérhæfir sig í öruggri eyðingu hvers kyns gagna og trúnaðarskjala. Öryggiskerfi hússins uppfyllir ströngustu öryggiskröfur og er beintengt lögreglu. Fyrirtækið Gagnaeyðing er hið eina sinnar tegundar á Norðurlönd- um og skapar því íslendingum ör- litla sérstöðu í þeimvmálum sem nú er hvað mikilvægust en það eru umhverfismálin. Um 80% af þeim pappír sem kemur til eyðingar hjá Gagnaeyðingu fer erlendis til end- urvinnslu. Endursköpun verðmæta er mjög mikilvægur þáttur í nútíma- þjóðfélagi og er Gagnaeyðing stolt af hlutverki sínu í þeim efnum. (Fréttatilkynning) //// // // / P E R L A N FJÖLSKYLDUHÁTIÐ “ í hádeginu á sunnudag býður Perlan ódýran fjölskyldumatseðil / á snúningshæðinni frá kl 12 - 15. Eftir matinn geta gestir fylgst með Perluvinum fjölskyldunnar en það er útvarpsþáttur sem Bylgjan sendir út beint frá Vetrargarði Pcrlunnar. Vert er að f minna fólk á að panta borð í tíma. j Perlan á Öskjuhlíð, sími 620200 /// 7i n II 7 / u U U LL— Sumarhúsgögnin komin X Verö á stólum frá kr. 1.200,- Sænsk furuhúsgögn. Verð frá kr. 28.000,- settið. Ódýrir plaststólar frá kr. 900,- Opíb Eaugardag frá kl. 10-16 og sunnudag frá kl. 12-16 SEGLAGERÐIN ÆGIR EY|ASLÓÐ 7 • SÍMI 62 I 7 80

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.