Morgunblaðið - 01.05.1992, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. MAI 1992
/
/
-T
_ -V
íslensk sveitarfélög
— hverjir einkavæða?
eftir GrétarÞór
Eyþórsson
Einkavæðing er nokkuð sem
verið hefur framarlega í umræðu
undanfarið, bæði í ræðu og riti.
Ráðherrar hafa látið á sér skilja
að vænta megi einkavæðingar á
starfsemi ríkisins í meiri mæli en
áður hefur þekkst, bæði í formi
sölu ríkisfyrirtækja og að boðnir
verði út vissir þættir opinberrar
þjónustu. Þá munu margir hafa
tekið eftir því í fjölmiðlum að for-
sætisráðherra notaði tækifærið
þegar hann var í London og kynnti
sér reynslu Breta af einkavæðingu.
Því má gera ráð fyrir að einkavæð-
ingarskeið fari nú í hönd.
Þetta undirstrikast kannske enn
fremur af því að undanfarið hafa
einkavæðingaráform verið ofar-
lega í huga forráðamanna stærsta
sveitarfélags landsins, Reykjavík-
ur.
Þessi aukna áhersla á einkavæð-
ingu í opinberum rekstri í þjóðfé-
laginu er að hluta tilefni þessarar
greinar, sem ætlað er að gefa upp-
lýsingar um rannsókn sem greinar-
höfundur hefur unnið að undanfar-
in misseri. Rannsóknin sem var til
prófs við háskólann í Gautaborg
fólst í að kortleggja til hvaða að-
gerða í fjármálum sveitarfélög á
Islandi hafí gripið á kjörtímabilinu
1986-1990 og hygðust grípa til í
nánustu framtíð. Rúmlega 20 síðna
spurningalisti var sendur 57 þétt-
býlissveitarfélögum af stærðinni
400 íbúar eða fleiri. Alls svöruðu
44 sveitarfélög listanum, eða tæp-
lega 80 prósent, sem þykir gott á
íslenskan mælikvarða.
Eitt af því sem spurt var um
var hvort við komandi sveitarfélag
hefði einkavætt eitthvað af starf-
seminni og einnig hvort það hygð-
ist gera það. Þá var og spurt hvort
einhver verkefna sveitarfélagsins
hefðu verið boðin út og hvort til
stæði að gera það.
Hverjir einkavæða og hveijir
ekki er því sú spurning sem tekin
er til umíjöllunar hér. Gerður verð-
ur greinarmunur á tveim formum
einkavæðingar; annars vegar
„hrein“ einkavæðing þar sem opin-
ber rekstur er settur í hendur
einkaaðila og hins vegar þar sem
einstök verkefni sveitarfélaga eru
boðin út til einkaaðila.
Einkavæðing
Þau eru ekki mörg sveitarfélög-
in sem hafa notað þetta stjórntæki
á árunum 1986-1990. Af 42 sem
svöruðu þessari spumingu kváðust
aðeins 10, eða 24 prósent, hafa
einkavætt einhvern hluta starfsemi
sinnar.
Hvert skyldi svo mynstrið vera
í því hveijir hafa gripið til þessarar
aðgerðar og hveijir ekki? Það er
þekkt að þetta er eitt af því sem
stjómmálamenn á hægri vængnum
hafa talað fyrir í mun meiri mæli
en þeir sem eru á vinstri vængn-
um. Því mætti ætla að þetta kæmi
fram í því að sveitarfélög með
hægri meirihluta hafi staðið og
muni standa fyrir þessu í ríkari
mæli en sveitarfélög með aðrar
tegundir meirihluta.
Tafla 1 sýnir svo ekki verður
um villst að hægrimenn hafa kom-
ið þessu stefnumáli sínu í fram-
kvæmd í ríkari mæli en aðrir og
þannig leitast við að draga úr
umsvifum opinberrar þjónustu og
reksturs á vegum sveitarfélag-
anna. Þannig hefur um helmingur
„hægrisveitarfélaga" einkavætt
meðan einungis eitt, eða tíundi
hluti „vinstrisveitarfélaga" hefur
gripið til þessarar aðgerðar. Þá
hafa þau sveitarfélög sem hvorki
geta flokkast undir hægri né
vinstri einkavætt í merkjanlega
minni mæli en hægrisveitarfélögin.
Þó svo að að baki hverri prósent-
utölu standi ekki mörg sveitar-
félög, verður að hafa í huga að
byggt er á svörum frá obba þétt-
býlissveitarfélaga í landinu og töl-
urnar því nálægt því að vera raun-
tölur.
í sömu spumingu var einnig
spurt hvort áformað væri að einka-
væða einhvern hluta starfseminn-
ar. Þar kemur í ljós sama tilhneig-
ing og þegar spurt var hvort einka-
væðing hafi átt sér stað, nema
hvað hún sýnir enn skarpari línur
milli hægri og vinstri. Ef bornir
eru saman heildarfjöldi þeirra sem
einkavæddu og þeirra sem ætla
að einkavæða, eru þeir sem hafa
slík áform uppi nokkru fleiri, eða
36 prósent á móti 24 prósentum
áður. Sjá töflu 2.
Þau sveitarfélög sem létu uppi
áform sín í könnuninni eru nokkru
færri en þau sem svöruðu því hvað
gert hafi verið, eða 36 á móti 42.
Þann mun á marktækni gagnanna
verður að hafa í huga.
Eins og áður sagði styrkist hér
nokkuð sú tilhneiging sem uppi var
í töflu 1. Ekkert svokallaðra vinstr-
isveitarfélaga hyggur á einkavæð-
ingu, á meðan hartnær % hlutar
þeirra sem teljast til hægri hyggja
á slíkt.
Munur á hægri og vinstri verður
því að teljast vel merkjanlegur í
þessu tilliti.
Útboð
Tilraunir til lækkunar kostnaðar
við opinbera þjónustu með því að
leita tilboða hjá einkaaðilum er
annað form einkavæðingar. í slík-
um tilvikum afsalar hinn opinberi
aðili sér þó ekki því að hafa yfir
viðkomandi verkefni að segja,
hann aðeins leitar leiða til lækkun-
ar kostnaðarins.
í Ijósi þessa er ekki fráleitt að
ætla að vinstrimenn séu tilbúnari
til slíks en að færa verkefnið alfar-
ið úr höndum hins opinbera aðila.
Svo reynist líka vera, þegar útboð
eru greind eftir tegundum meiri-
hlutanna. Miklum mun fleiri sveit-
arfélög hafa boðið út verkefni, en
þau sem hafa einkavætt; alls höfðu
33, eða 79 prósent, þeirra boðið
út verkefni. Þetta sést í töflu 3.
Um leið og fleiri sveitarfélög
hafa gripið til útboða en hreinnar
einkavæðingar hverfur sá munur
sem fannst á meirihlutategundun-
um. Hvorki meira né minna en öll
vinstrisveitarfélögin hafa beitt út-
boðum og hartnær öll hægrisveit-
arfélögin, þótt hlutfallslega nokkru
færri af „miðjusveitarfélögunum“
hafi notað þessa aðgerð. Ljóst er
því að þetta stjómtæki er mun
almennara og sama virðist vera
hvar í flokki menn standa þegar
skoðað er hvort beitt hefur verið
útboðum eða ekki.
Hvað varðar það sem sveitarfé-
lögin áforma að gera verður hins
vegar vart breytinga á þessu
mynstri um leið og enn fleiri en
áður hyggjast beita útboðum, eða
86 prósent. Hér skerpast línur
milli vinstri og hægri um leið og
helsti munurinn verður á milli
hægri- og miðjumeirihluta annars
vegar og vinstri meirihluta hins
vegar, eins og sjá má á töflu 4.
Séu bornar saman gerðir og
ætlanir þessara tegunda meirihluta
ber hæst hlutfallslega fækkun
vinstrimeirihluta og fjölgun miðju-
meirihluta sem ætla að beita út-
boðum. Ekki er gott að gera sér
grein fyrir ástæðum þessa, en línur
í áherslunum eru að skerpast, ef
marka má þessi gögn.
Stærð sveitarfélaganna
Við lestur þess sem á undan
hefur farið kunna að vakna ein-
hveijar spumingar. Þeir sem
þekkja til málefna sveitarfélag-
anna kunna að spyija sem svo að
munur á áherslunum kunni að
stafa af mismunandi stærð þeirra.
Vera kunni að stór sveitarfélög
beiti aðgerðum af þessu tagi í
stærri stíl, ekki síst hreinni einka-
væðingu, m.a. vegna einhveiju
stærri og fjölbreyttari rekstrar en
hjá þeim fámennari. Auk þessa séu
mörg stærri sveitarfélaganna, sér-
staklega á höfuðborgarsvæðinu,
með hægrimeirihluta (Seltjamar-
nes, Mosfellsbær, Garðabær og
Reykjavík svo einhver dæmi séu
tekin).
Það er því ekki úr vegi að skoða
hvað greining eftir stærð leiðir í
ljós. (Sjá töflu 5.)
Minnstu þéttbýlissveitarfélögin
skera sig nokkuð úr með það að
hafa einkavætt í hlutfallslega
minni mæli en þau stærri. Merkj-
Grétar Þór Eyþórsson
„Þessi hluti athugunar
minnar á fjármálaað-
gerðum sveitarfélaga
hefur því leitt í ljós að
einkavæðingar er frem-
ur að vænta frá hægri
og hún hefur frekar
komið þaðan“.
Tafla 1. Sveitarfélög sem einkavæddu einhverja starfsemi 1986-
1990, greind eftir tegundum meirihluta.
Vinstri Miðja Hægri Alls
Einkavæddu 1(9%) 3(17%) 6(46%) 10(24%)
Einkavæddu ekki 10(91%) 15(83%) 7(54%) 32(76%)
AÍÍs 11(26%) 18(43%) 13 (31%) 42 (100%)
Athugasemd: Vinstrimeirihluti er meirihluti sem hefur Alþýðubandalag innanborðs
eitt sér eða í samvinnu með öðrum en Sjálfstæðisflokki. Hægrimeirihluti er meiri-
hluti með Sjálfstæðisflokk innanborðs, einan sér eða í samvinnu með öðrum en
Alþýðubandalagi. Miðja er aðrar tegundir meirihluta eða þar sem enginn sérstakur
meirihluti hefur verið myndaður.
Tafla 2. Sveitarfélög sem ætla að einkavæða einhveija starfsemi,
greind eftir tegundum meirihluta.
Vinstri Miðja Hægri Alls
Ætla að einkavæða 0 (0%) 5 (29%) 8 (62%) 13 (36%)
Ætla ekki að einkavæða 6 (100%) 12 (71%) 5 (38%) 23 (64%)
Alls
6(17%) 17(47%) 13(36%) 36(100%)
Tafla 3. Sveitarfélög sem buðu út einhver verkefni 1986-1990, greind
eftir tegundum meirihluta.
Vinstri Miðja Hægri Alls
Buðu út 11(100%) 10(56%) 12(92%) 33(79%)
Buðu ekki út Ö (0%) 8 (44%) 1 (8%) 9 (21%)
Alls
11(26%) 18(43%) 13(31%) 42(100%)
Tafla 4. Sveitarfélög sem ætla að bjóða út einhver verkefni greind
eftir tegund meirihluta.
Vinstri Miðja Hægri Alls
Ætla að bjóða út 3(50%) 15(94%) 14(93%) 32(86%)
Ætla ekki að bjóða út 3 (50%) 1 (6%) 1 (7%) 5 (14%)
Alls
6(16%) 16(43%) 15(41%) 37(100%)
Tafla 5. Sveitarfélög sem einkavæddu 1986-1990, greind eftir íbúa-
fjölda. íbúafjöldi ■ Einkavæddu Einkavæddu ekki Alls
400-1.000 2(11%) 16 (89%) 18(43%)
1.001-2.000 4 (33%) 8 (67%) 12 (29%)
2.001-5.000 2 (29%) 5 (71%) 7 (17%)
Stærri en 5.000 2 (40%) 3 (60%) 5 (12%)
Alls 10 (24%) 32 (76%) 42 (100%)
Tafla 6. Sveitarfélög sem buðu út verkefni 1986-1990, greind eftir
íbúafjölda. íbúatjöldi Buðu út Buðu ekki út Alls
400-1.000 11 (61%) 7 (39%) 18 (43%)
1.001-2.000 11 (92%) 1 (8%) 12 (29%)
2.001-5.000 6 (86%) 1 (14%) 7 (17%)
Stærri en 5.000 5(100%) 0 (0%) 0 (0%)
AIls 33 (79%) 9(21%) 42(100%)
Brids
Umsjón Arnór Ragnarsson
Vetrar-Mitchell
Bridssambandsins
Fjörutíu pör spiluðu sl. föstudag.
Helst tíðinda er rosaskor sem fékkst
í N-S riðlinum. María Ásmundsdóttir
og Steindór Ingimundarson fengu 597
stig en meðalskor var 420.
Hæsta skor í N/S:
Maria Ásmundsd. - Steindór Ingimundars. 597
ÞorleifurÞórarinsson - Þórarinn Ámason 510
Magnús Sverrisson - Guðlaugur Sveinsson 492
JónBjömsson-BjörnÞorláksson 488
RagnarBjömsson-BjömAmarson 460
Hæsta skor í A/V:
Elín Jónsdóttir—Lilja Guðnadóttir 508
Jörundur Þórðarson - Hjálmar S. Pálsson 466
Jóhannes Ágústsson - Friðrik Friðriksson 461
Kristín Mapúsdóttir - Símon Símonarson 458
Ragnheiður Tómasdóttir—Dúa Ólafsdóttir 454
Ekki verður spilað, í kvöld vegna
undankeppni íslandsmótsins í tví-
menningi sem nú stendur yfír.
Bridsdeild Barðstrendinga
Síðastliðið mánudagskvöld lauk
barómetertvímenningi deildarinnar.
34 pör tóku þátt í keppninni. Röð
efstu para varð eftirfarandi:
ÞórarinnÁmason-GísliVígiundsson 283
Ámi Eyvindsson - Kristján Jóhannesson 265
Friðjón Margeirsson - Ingimundur Guðm. 210
Björn Ámason—Eggert Einarsson 170
Halldór Már Sverrisson - Jón Ingþórsson 148
Leifur Kr. Jóhannesson - Haralduri Sverrisson 148
Kristinn Óskarsson - Einar Bjamason 131
Mánudaginn 4. maí verður eins
kvölds vortvímenningur. Það verður
síðasta spilakvöld vetrarins. Spila-
mennska byijar kl. 19.30 og eru
spilarar minntir á að mæta ekki
síðar en 19.25 þar sem skráð verð-
ur á staðnum.
anlegan innbyrðis mun er þó varla
að sjá á sveitarfélögum með yfir
100 íbúa. Einkavæðing hefur því
verið í meiri mæli í sveitarfélögum
með fleiri en 1.000 íbúa borið sam-
an við þau minni, þ.e. hvað stærð
varðar skera meðalstór og stærri
þéttbýlissveitarfélög sig úr frá hin-
um minni.
Áðan var spurt hvort verið gæti
að einkavæðing væri meiri í sveit-
arfélögunum með hægrimeirihluta,
vegna þess að mörg þeirra væru
meðal hinna stærri. Greiningin á
því sýndi að skýringin á að hægri-
meirihlutar einkavæða frekar en
aðrir meirihlutar er ekki eingöngu
sú að hlutfallslega fleiri af stærri
sveitarfélögunum eru hægri sveit-
arfélög. í tveimur lægstu stærðar-
flokkunum (400 - 1000 og 1001 -
2000 ) hafa hægrimeirihlutar
hærra hlutfall þeirra sem einka-
væddu en hinir og sömuleiðis í
flokki stærstu sveitarfélaganna (
stærri en 5000 ). Hér er því ekki
um að ræða að hlutfallslega fleiri
hægrisveitarfélög hafi einkavætt
vegna þess að hægrimeirihluta sé
fremur að finna í stærri sveitarfé-
lögum.
Svipuð tilhneiging hvað varðar
stærðina eina finnst ef sveitarfélög
sem hafa beitt útboðum eru greind
eftir íbúafjölda. ( Sjá töflu 6.) Enn
á ný kemur fram að sveitarfélögin
sem tilheyra þeim flokki sem fæsta
hefur íbúana, skera sig úr frá hin-
um. Þau smærri hafa beitt útboð-
unum í minni mæli.
Þetta kann að eiga sér sömu
skýringu og einkavæðingin, þ.e.
að í smærri sveitarfélögum sé
umfang rekstrar minna og því
hugsanlega um fleiri kosti að velja
fyrir þau stærri.
Engu að síður stendur eftir að
hægrimeirihlutar í íslenskum þétt-
býlissveitarfélögum hafa og hyggj-
ast einkavæða fremur en öðruvísi
samsettir meirihlutar og þá skiptir
litlu hvort um stærri eða minni
sveitarfélög er að ræða.
Sama er hins vegar ekki uppi á
teningnum þegar skoðað er hveijir
hafa beitt útboðum. Það stjómtæki
virðist líka orðið mjög almennt
meðal sveitarfélaganna.
Þessi hluti athugunar minnar á
fjármálaaðgerðum sveitarfélaga
hefur þvi leitt í ljós að einkavæð-
ingar er fremur að vænta frá hægri
og hún hefur frekar komið þaðan.
Það hefur stundum verið sagt að
hægri og vinstri séu úrelt hugtök
í stjórnmálum og að þetta væri
sami grauturinn í sömu. skálinni,
ekki síst þegar litið væri til sveitar-
stjómarstigsins. Fyrri rannsóknir
greinarhöfundar hafa raunar leitt
í ljós að munur á hægri og vinstri
var lítill þegar skoðuð voru útgjöld
sveitarfélaganna til nokkurra mál-
aflokka frá árinu 1985. Þessi at-
hugun leiðir á hinn bóginn í Ijós
að líklegt er að kjósendur í sveitar-
stjórnakosningum fái a.m.k. eitt-
hvað fyrir atkvæði sitt ef þeir velja
milli hægri og vinstri við kjörborð-
ið.
Höfundur er að Ijúkn
Phil.lic.-prófi í stjórnmálafræði og
stjómsýslu sveitarfélaga frá
Gautaborgarháskóla.
Bridsfélag Suðurnesja
Nú fer að líða að lokum vetrarvert-
íðar hjá félaginu. Nk. mánudag hefst
tveggja eða þriggja kvölda vortví-
menningur. Spilað er í Hótel Kristínu
og eru spilarar beðnir að mæta tíman-
lega (á undan formanninum). Spila-
mennskan hefst kl. 19.30.
Bridsfélag Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar
Þriðjudaginn 28. apríl hófst tveggja
kvölda barometer hjá félaginu. Staða
efstu para eftir fýrri umferð er eftir-
farandi:
Ásgeir Metúsalemsson - Friðjón Vigfússon 46
MagnúsBjarnason-KristmannJónsson 28
Jón Ingi Ingvarsson - Búi Birgisson 26
HaukurBjömsson-ÞorbergurHauksson 11
Aðalsteinn Jónsson—Gfsli Stefánsson 10
Sigurður Freysson — ísak ólafsson 10