Morgunblaðið - 01.05.1992, Qupperneq 49
MORííUNBLAÐIÐ-FÓSTUÐAGUR 1- MAÍ--1-992-
49
það til að hringja suður til að gefa
okkur hlutdeild í fallegu ljóði. Á
síðustu misserum tók hann á ný til
við að lesa ljóð Davíðs Stefánssonar
og fann sér til gleði ýmsar perlur.
Hann hreifst mjög af eftirfarandi
ljóði Davíðs og lét eina vísu þess
fylgja Þormóði fósturbróður sínum
yfir móðuna miklu. Um leið og við
vottum ástvinum Björns Jónssonar
samúð okkar og virðingu látum við
ljóð þetta fylgja með.
Við sjáum, að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé.tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo bijóstið þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt
og svanur á bláan voginn.
Indriði Gíslason
Kristín Halla Jónsdóttir
Dóra S. Bjarnason.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá fjölskyldunni á Ytra-Hóli.
í ágúst 1989 féll að velli hinn ungi
Jg glæsilegi sonur hjónanna þar,
Ásgeir S. Björnsson, cand.mag.
Ásgeir var, eins og ég hefi áður
sagt á öðrum stað, einhver mesti
íslendingur sem ég hefi kynnst. í
nóvember samá ár kvaddi svo móð-
ir Ásgeirs þetta tilverustig og nú
er horfínn yfir móðuna mikiu faðir
Ásgeirs, Björn Jónsson, bóndi á
Ytra-Hóli. Kynni mín af fjölskyld-
unni á Ytra-Hóli eru ekki löng. Þau
hófust er Ásgeir heitinn réðst til
mín sem útgáfustjóri fyrir nokkrum
árum.
Þótt vík hafi verið á milli vina,
þar sem Björn bjó norður á Skaga-
strönd en ég á Seltjarnarnesi, þá
efldist með okkur og heimilum okk-
ar vinátta sem mér og fjölskyldu
minni er mikils virði. Því meir sem
ég kynntist Birni, því ljósara varð
mér það mikilvæga veganesti sem
Ásgeir hafði hlotið í föðurgarði.
Björn var sjóðfróður og víðlesinn
og alls staðar heima, enda naut
hann margs konar trúnaðar sinna
samferðamanna, sat m.a. lengi í
sýslunefnd, svo eitthvað sé nefnt.
Þrátt fyrir þau miklu áföll sem
Björn og fjölskylda hans hafa orðið
fyrir síðustu árin, og þau miklu
veikindi sem hann átti sjálfur við
að stríða, þá æðraðist hann aldrei
og alla tíð var stutt í spaug og létt-
an hlátur. í bréfi sem hann ritar
mér í janúar sl. segir m.a.: „Blaða-
og bókalestur og krossgátur eru
aðalatvinna mín, það styttir tímann
meðan beðið er eftir uppgjörinu að
síðustu. Ég komst norður á Skaga
í sumar þar sem ég er fæddur og
var til 7 ára aldurs. Eg var að kveðja
æskustöðvarnar.“
Björn var að búa sig til hinnar
hinstu ferðar. Hann gerði það af
sínu einstæða æðruleysi. Hann átti
því láni að fagna að njóta ástríkrar
umönnunar barna sinna, Bjargar,
Björns og Sigrúnar. Hann bar vel-
ferð þeirra og barnabarnanna fyrir
brjósti. Blessun til handa þeim sem
eftir lifa var honum efst í huga.
í dag kveðjum við hjónin vin sem
okkur er mikils virði að'hafa kynnst.
Fjölskylda Bjöms kveður góðan föð-
ur og afa, þar er skarð fyrá skildi.
Við biðjum þeim styrks og blessun-
ar.
Orlygur Hálfdanarson.
Kork‘0‘Plast
Sænsk gæðavara
KORK-gólfflisar
með vinyl-plast-áferð g
KorlooPlast:
í 10 geröum
Veggkork
í 8 gerðum.
Ávallt til
á lager
Aðrar korkvörutogundlr á lager:
Undlrlagskork I þremur þykktum
Korkvólapakkningar i tvoimur þykktum
Gufubaðstofukork
Veggtöflu-korkplötur i þremur þykktum
Kork-parkett venjulegt, I tveimur þykktum
&
Elnkaumboö á íslandi:
Þ. Þ0RGRÍMS80N & CO
Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 38640
Tónleikar í Víðistaða-
kirkju á sunnudag
KÓR VÍÐISTAÐAKIRKJU og
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
halda tónleika í Víðistaðakirkju
nk. sunnudag 3. maí kl. 17.00.
Stjórnendur eru Ulrik Ólason,
Ingvar Jónasson og Kjartan
Óskarsson.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
Erla Gígja Garðarsdóttir sópran,
Kolbrún á Heygum Magnúsdóttir
alt, Hinrik Ólafsson tenór og Krist-
ján Elís Jónasson bassi.
Á efnisskrá eru Missa Brevis í
B Kv 275 eftir Mozart, Lundún-
asinfónía nr. 104 eftir Hayden og
Sinfónía eftir Donisetti.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
er að mestu skipuð tónlistarfólki
sem ekki stundar hljóðfæraleik að
aðalstarfi. Þetta er annað starfsár
hljómsveitarinnar en í fyrsta skipti
sem hún kemur fram opinberlega.
Aðalstjórnandi hljómsveitarinnar
er Ingvar Jónasson.
Kór Víðistaðasóknar var
stofnaður árið 1977 og hefur hald-
ið fjölda tónleika hérlendis og er-
lendis auk hefðbundins söngs í
kirkjunni. í kórnum syngja einung-
is áhugamenn um tónlist. Stjórn-
andi kórsins er Úlrik Ólason. Tón-
leikar þessir verða aðeins í þetta
eina skipti. (Fréttatilkynning)
1. mai
Dagsbrúnarmenn fjölmennið í kröfugönguna og
ó útifundinn á Lækjartorgi. Lagt veróur af stað
kl. 14.00 frá Hlemmtorgi. Kaffiveitingar að lokn-
um útifundi á Lindargötu 9, 4. hæð.
Sljórn Dagsbrúnar.
Sýning
á merki landbúnaðarins
í Perlunni um helgina
Um helgina verður haldin sýning í Perlunni á um 140 tillögum
sem bárust í nýafstaðna samkeppni um merki íslensks
landbúnaðar. Á sýningunni gefst kostur á að sjá handbragð
fjölmargra listamanna sem hafa lagt sig fram um að draga
fram séreinkenni íslensks landbúnaðar og landbúnaðarafurða á
táknrænan hátt.
Sýningin verður opin sem hér segir:
Föstudag 1. maí frá kl. 18:00 - 22:00
Laugardag 2. maí frá kl. 10:00 - 22:00
Sunnudag 3. maí frá kl. 10:00 - 22:00
Aðgangur er ókeypis
MARKAÐSNEFND LANDBÚNAÐ ARIN S