Morgunblaðið - 24.06.1992, Page 1
48 SÍÐUR B
140. tbl. 80. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mikið mannfall í
átökum í Moldovu
Tiraspol. Reuter.
BARIST var um borgina Bendery í Moldovu í gær og vopnahléið,
sem um samdist í fyrrakvöld, stóð ekki nema í fimm klukkustundir.
Leiðtogar aðskilnaðarmanna, minnihluta Rússa og Ukraínumanna,
segja, að 1.000 manns hafi fallið í átökum þeirra við moldovska
herinn í fyrrinótt. Sendinefnd frá Sameinuðu þjóðunum fer til
Moldovu í vikulokin til að kanna ástandið þar.
Borgin Bendery, eina vígi Slav-
anna vestan Dnéstr-fljóts, féll í
hendur stjórnarhernum í Moldovu
um helgina en slavnesku aðskilnað-
arsinnarnir náðu henni síðan aftur.
Yfir borginni liggur fnykurinn af
rotnandi líkum og reyna íbúarnir
að grafa þau þar sem þau liggja.
Engar áreiðanlegar tölur eru um
mannfallið en fréttamaður Reuters
í Tiraspol austan Dnéstr-fljóts seg-
ist hafa talið 300 lík í líkhúsi borg-
arinnar. í gær var ráðist á bílalest
með óbreytta borgara þegar hún
ætlaði yfir brú á Dnéstr til Tiraspol
og urðu fímm bílar fullir af fólki
fyrir sprengjum. Talsmaður rússn-
eska varnarmálaráðuneytisins
sagði í gær, að tvær moldovskar
MiG-flugvélar hefðu varpað
sprengjum á Dnéstr-brúna en ,þó
án þess að valda miklum skemmd-
um.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði um síðustu helgi, að Rússum
í öðrum samveldisríkjum yrði komið
til hjálpar ef á þá yrði ráðist og
Svartur sjór
af sandsíli
Þingkosningarnar í ísrael:
Fyrstu kosningaspár bentu til
sigurs Verkamannaflokksins
Úrslitin geta haft mikil áhrif á viðræðurnar um frið í Miðausturlöndum
Moldovar saka raunar 14. rússn-
eska herinn um að betjast með
aðskilnaðarsinnum. Leoníd Kravt-
sjúk, forseti Úkraínu, hefur lagt
til, að Dnéstrhérað fái sjálfstjóm
innan Moldovu og rétt til að segja
sig úr lögum við landið sameinist
það Rúmeníu.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveð-
ið að senda nefnd manna til
Moldovu til að kynna sér ástandið
í landinu og í öryggisráðinu er einn-
ig rætt um að senda friðargæslulið
til Nagorno-Karabak í Azerbajdz-
han. Er hér um að ræða fyrstu
óbeinu afskipti samtakanna af deil-
um innan Sovétríkjanna fyrrver-
andi.
Reuter
Öldungur úr hópi heittrúarmanna er hér að greiða atkvæði í einu kjördæma Jerúsalemborgar en stjórn-
málaflokkum þeirra var spáð töluverðu fylgistapi. Stóru flokkarnir, Likud-flokkurinn og Verkamanna-
flokkurinn, verða þó að tryggja sér stuðning eins eða fleiri þeirra við næstu stjórnarmyndun.
Jerúsalem. Reuter, Daily Telegraph.
FYRSTU spár bentu til, að Verkamannaflokkurinn í ísrael hefði unnið
mikinn sigur í þingkosningunum, sem fram fóru í gær. Voru þær byggð-
ar á könnunum, sem gerðar voru meðal fólks, sem kom út af kjörstöð-
um víða um landið, og samkvæmt þeim fengi hann 47 þingmenn af 120
á ísraelska þinginu og hann og aðrir vinstriflokkar samtals 64. Likud-
flokki Yitzhaks Shamirs forsætisráðherra var hins vegar ekki spáð
nema 33 þingsætum og gangi það eftir er um að ræða mesta afhroð
flokksins síðan í kosningunum 1969 þegar hann fékk 26 menn kjörna.
Verði úrslitin þessu lík geta þau haft mikil áhrif á gang viðræðnanna
um frið í Miðausturlöndum.
Kaupmannahöfn. Frá fréttaritara Morg-
unblaðsins, N.J. Bruun.
MIKLAR sandsílisgöngur eru nú
í Norðursjó og meiri en verið hafa
um árabil. Það hefur því heldur
betur hlaupið á snærið hjá nóta-
skipunum en víða er töluvert lönd-
unarstopp í höfnum.
Skipin eru um sólarhring að fá
fullfermi, um 600 tonn, en vegna
þess, að bræðslurnar í landi hafa
hvergi nærri undan geta jafnvel liðið
nokkrir dagar á milli túra. Á fyrstu
fímm mánuðum þessa árs hefur ver-
ið landað í bræðslu rúmlega 700.000
tonnum en 500.000 á sama tíma í
fyrra.
Ekki var búist við fyrstu tölum
úr talningunni fyrr en einhvern tíma
í nótt er leið en kosningaspáin, sem
ísraelska sjónvarpið stóð að, kom
flatt upp á flesta. í skoðanakönnun-
um að undanförnu hefur verið lítill
munur á fylgi stóru flokkanna
tveggja. Spánni var að sjálfsögðu
tekið með miklum fögnuði í aðal-
stöðvum Verkamannáflokksins en að
sama skapi hljóðnaði yfír stuðnings-
mönnum Likud-flokksins. Shamir
forsætisráðherra kvaðst ætla að bíða
með yfírlýsingar þar til úrslitin lægju
fyrir en Haim Ramon, kosningastjóri
Verkamannaflokksins, sagði, að
landsmenn eygðu nú von um annað
og betra samfélag. í síðustu kosning-
um fékk Likud-flokkurinn 40 þing-
sæti en Verkamannaflokkurinn 39.
Samkvæmt spánni fær Meretz,
kosningabandalag ýmissa vinstri-
flokka, 13 þingsæti og flokkar ísra-
elskra araba fjögur en Yitzhak Rab-
in, leiðtogi Verkamannaflokksins,
hefur lýst yfir, að hann muni ekki
mynda stjórn með stuðningi ara-
banna. Miðað við þessa útkomu verð-
ur hann því að tryggja sér stuðning
einhvers annars smáflokks til að
geta myndað stjórn. Trúarlegu smá-
flokkunum, sem stutt hafa stjórn
Shamirs, var spáð 14 þingsætum,
fjórum færri en áður.
Rabin sagði fyrir kosningar, að
fengi hann umboð til, ætlaði hann
að stöðva nýbyggingar gyðinga á
hernumdu svæðunum en Bandaríkja-
stjórn hefur marglýst yfir, að þær
séu helsti þröskuldur í vegi friðar
með ísraelum og arabaríkjunum.
Shamir vill hins vegar halda þeim
áfram og sú afstaða hans olli því,
að Bandaríkjastjóm neitaði að
ábyrgjast fyrir ísraelsstjórn 10 millj-
arða dollara lán, sem átti að auð-
velda landsmönnum að taka á móti
hundruðum þúsunda innflytjenda frá
Sovétríkjunum fyrrverandi.
Ýmsir forystumenn Palestínu-
manna fögnuðu í gær líklegum sigri
Verkamannaflokksins. „Ég tel, að
sigri Verkamannaflokkurinn og Mer-
etz muni betur ganga í friðarviðræð-
unum,“ sagði Elias Freij, borgar-
stjóri í Betlehem á Vesturbakkanum,
og Ephraim Sneh, áhrifamikill þing-
maður Verkamannaflokksins, spáði
því, að bráðabirgðasamkomulag við
Palestínumenn tækist innan níu
mánaða kæmist flokkurinn til valda.
Reuter
Vætusamur júní á Spáni
Miklar rigningar hafa verið á Norðaustur-Spáni síðustu daga og raunar
er þessi júnímánuður sá kaldasti og votviðrasamasti í landinu um 30 ára
skeið. Hafa bifreiðar færst á kaf í vatnselgnum á götum borganna, eink-
um í Baskalandi og Katalóníu, og um síðustu helgi urðu flóðskaðar í
Valencia og fátt um manninn á hreggblásnum baðströndunum á Mall-
orca. Myndin er af uppáklæddum manni miðað við aðstæður í miðborg
San Sebastian í Baskalandi.
Múslímar í Sarajevo:
Serbar sakaðir um
útrýmingarherferð
Sarigevo. The Daily Telegraph.
UM HUNDRAÐ konur og börn hafa sloppið frá einangruðu úthverfi
í Sarajevo, Dobrinja, og segja að hersveitir Serba séu að reyna að
útrýma öllum múslímum þar. Flóttakonurnar saka Serbana um
skipulagðar aftökur á múslimskum karlmönnum eldri en átján ára
og segja að lík liggi eins og hráviði á götum hverfisins. Hersveitirn-
ar stökkvi múslímskum konum og börnum á flótta úr hverfinu í
því skyni að skapa „hreina, serbneska byggð“.
Konurnar segja að Serbamir
hafi skilið þær og börnin eftir á
óbyggðu svæði við borgina um
miðja nótt og skipað þeim að flýja.
Þær komust við illan leik til mið-
borgar Sarajevo á meðan Serbar
létu sprengjum rigna yfir borgina.
„Þeir ýttu pabba upp að vegg,
sögðu „sjáðu þetta“ og skutu
hann,“ sagði sautján ára unglingur
grátandi við fréttaritara The Daily
Telegraph. „Svo sagði amma
„drepið mig líka“ og hún skreið í
átt til pabba — og þeir skutu hana.“
Þessar hrollvekjandi frásagnir
virðast staðfesta ótta ýmissa Vest-
urlandabúa um að þegar Serbar
tala um frið og vopnahlé séu þeir
í reynd að reyna vinna tíma til að
geta skapað „hreina, serbneska
byggð“ í úthverfum Sarajevo.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna líkja aðgerðum þeirra við út-
rýmingarherferð þýskra nasista
gegn gyðingum.
Sjá „Baker vill frekari yefsiað-
gerðir ...“ á bls. 19.