Morgunblaðið - 24.06.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992
Prófanir hafa sýnt fram
á gagnsemi hvarfakúta
- segir Signrbjörg Gísladóttir hjá Hollustuvernd
SIGURBJÖRG Gísladóttir efnafræðingur hjá Hollustuvernd ríkisins
vísar á bug fullyrðingum sem Einar Valur Ingimundarsson efnaverk-
fræðingur hefur sett fram um litla gagnsemi svonefndra hvarfakúta
hér á landi. Sigurbjörg segir að prófanir hafi sýnt fram á hið gagn-
stæða. Um næstu mánaðamót tekur gildi reglugerð þar sem kveðið
er á um að allar bifreiðar sem fluttar eru til landsins skulu búnar
hvarfakútum. Eiður Guðnason umhverfisráðherra segir að Islending-
ar geti ekki haft aðrar reglur en aðrar þjóðir varðandi mengunar-
varnarmál.
í grein í fréttabréfínu Vísbend-
ingu kemst Tryggvi Þór Herberts-
son iðnrekstrarfræðingur að þeirri
niðurstöðu að kostnaður við
hvarfakúta miðað við að fluttir séu
inn 15 þúsund nýir bílar á ári sé
um 15 milljarðar kr. í greininni,
sem nefnist „Nýtt fiskeldisævin-
týri?“, er jafnframt vísað til um-
mæla Einars Vals Ingimundssonar
sem hefur haldið því fram að
hvarfakútar geri lítið sem ekkert
gagn hér á . landi, m.a. vegna
loftlagsins sem hér ríkir.
Sigurbjörg Gísladóttir efna-
fræðingur hjá Hollustuvemd ríkis-
ins vísaði fullyrðingum Einars
Vals um litla gagnsemi hvarfakút-
anna á bug. Hún benti á að þau
rök að kútamir virkuðu ekki hér
á landi vegna veðurfarsins ættu
ekki við. Hérlendis væri hlýrra á
Erfitt að selja nýjar íbúðir
- segirMagnús
Leópoldsson
fasteignasali
SEX íbúðir í fjölbýlishúsi við
Þverholt í Reykjavík voru aug-
lýstar á útsölu hjá Fasteign-
amiðstöðinni um helgina. Boðin
er allt að milljón króna lækkun
á verði íbúðanna. Að sögn
Magnúsar Leópoldssonar fast-
eignasala hefur gengið erfið-
lega að selja íbúðir í nýbygging-
um að undanförnu.
„Þetta hefur vakið talsverða
eftirtekt og hafa margir beðið um
leyfi til að skoða íbúðimar," sagði
Magnús. „Þama er raunveruleg
lækkun í boði og ég er að vona
að allar íbúðimar seljist í vik-
unni.“ Veittur er afsláttur allt að
milljón og er þá miðað við stærri
íbúðir sem áttu að kosta 10,5 millj-
ónir tilbúnar undir tréverk en eru
nú boðnar á 9,5 milljónir.
„Það hefur verið erfitt að selja
í nýbyggingum hvar sem þær era
í borginni," sagði Magnús. „Verðið
hefur væntanlega verið í efri kant-
inum miðað við eftirspum. Við
eram ekki síst að vekja athygli á
þessum íbúðum vegna þess að þær
era nýjar og tilbúnar til afhending-
ar. Það er búið að auglýsa þær
töluvert og menn vilja að þær selj-
ist strax og þess vegna er þessi
leið farin.“
_____________________________xs_
vetrum en víðast í Evrópu og
Bandaríkjunum. „Ég get verið
sammála því að fyrir okkar um-
hverfi þá skiptir þetta fyrst og
fremst máli á Reykjavíkursvæðinu
þar sem umferðin er þéttust, en
sáralitlu máli fyrir hina dreifðu
landsbyggð. En okkar framlag til
bætts umhverfis skiptir einnig
máli á alþjóðavettvangi,“ sagði
Sigurbjörg.
Hún sagði að gerðar hefðu ver-
ið prófanir á hvarfakútum þar sem
tekið væri mið af margvíslegu
akstursmynstri og ýmsum um-
hverfisþáttum og þær leitt í ljós
að mengun frá bílnum væri minni
en kröfur eru gerðar til um. Auk
þess á kúturinn að endast yfirleitt
í um 80 þúsund km akstur.
„Þegar þetta er orðin viðtekin
krafa er óvíst hvort bílar með
hvarfakút verði dýrari en hvarfak-
útlausir," sagði Sigurbjörg enn-
fremur.
„Þetta era samskonar reglur og
hafa verið teknar upp í Evrópu
og Bandaríkjunum og það er mik-
ill misskilningur ef menn halda
að við getum verið með öðravísi
bíla eða slakari reglur varðandi
mengunarvamir en aðrar þjóðir,“
sagði Eiður Guðnason umhverfís-
ráðherra. „Það er að koma að því
núna að allir bílar verði framleidd-
ir með þessum búnaði, bæði í Evr-
ópu og Bandaríkjunum og ég velti
því upp, sem er auðvitað óhugs-
andi, hvort íslendingar ættu að
láta sérframleiða bíla fyrir sig sem
menga meira? Við höfum einfald-
lega enga stöðu til annars,“ sagði
umhverfisráðherra.
Gunnar snýr aftur, æskuteikning eftir Siguijón Óiafsson.
Sýning á æsku-
verkum Sigur-
jóns Ólafsson-
ar framlengd
SÝNING á æskuverkum Sigur-
jóns Ólafssonar í safni hans á
Laugamesi hefur verið fram-
lengd til 30. júlí. Sýningin, sem
hefur verið mjög vel sótt, er
framlag safnsins til Listahátíð-
ar í Reykjavík.
í sumar er safnið opið um helg-
ar frá kl. 14 til kl. 18 og á kvöld-
in kl. 20-22 alla virka daga nema
föstudaga.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/O.Kr.O.
Jón Gunnar Borgþórsson kemur glaðbeittur til húss fyrsta veiði-
daginn í Soginu með fyrsta lax sumarsins úr fljótinu, 7 punda fisk.
Ekkert lát á góðum fréttum
Mjög mikið vatn hefur hamlað
nokkuð veiðiskap í Langá á
Mýrum, en þar eru þó komnir
um 20 laxar á land. Að sögn
Sveins Aðalsteinssonar leigusala
hefur sést talsvert af fiski, en
dæmi eru að menn átti sig ekki
fyrr en of seint að fiskur er á
óvenjulegum slóðum í svo miklu
vatnsmagni. Vatnsmiðlunarstífl-
unni i Langavatni hefur enn
ekki verið lokað og stillt af og
því hefur hálendisvatnið mnnið
óhindrað. Talsvert hefur þó
sjatnað að undanförnu og veiði
glæðst um leið.
Líflegar opnanir
Stangaveiðifélagið Straumur
hefur á leigu veiðina í Reykjadalsá
í Borgarfirði og í Hvítá í Ámes-
sýslu fyrir landi Langholts. Að sögn
Dags Garðarssonar sem er í for-
svari fyrir félagið opnuðu bæði
svæðin um helgina og fór veiði vel
af stað. f Langholtinu veiddust fjór-
ir laxar fyrsta daginn, þar af tveir
14 punda og var þó svo mikið vatn
í ánni að veiðimenn komust ekki á
besta veiðistaðinn, Spegilinn, en
þangað þarf að vaða dijúgan spotta
úr landi og út á klettahólma. „Þar
var hann að stökkva allan tímann
og það var því blóðugt að komast
ekki þangað út,“ sagði.Dagur.
„Við erum einnig sáttir við opn-
unina í Reykjadalsá, þar fengum
við tvo laxa, 7 og 12 punda og
sáum fleiri. Þetta er síðsumarsá,
en samt sáum við fyrstu laxana í
ánni fyrir nær hálfum mánuði, 7
stykki í Klettsfljóti. Annan fiskinn
fengum við í Klettsfljóti, en hinn í
Klofinu.
Bændur í Bíldsfelli við Sogið hafa sýnt það framtak að bæta
úr aðbúnaði veiðimanna á svæðinu með því að reisa þetta mynd-
arlega veiðihús sem á myndinni sést. Það hefur verið tekið í
notkun, en gamla húsið, sem var orðið úr sér gengið, sést t.v.
Væsir nú ekki um veiðimenn í landi Bildsfells og hermt er að
Asgarðsbændur hafi slíkt hið sama á prjónunum, enda er húsið
þar einnig orðið iélegt.
FYRIRLESTU R
ÚR VIÐJUM FORTÍÐAR
GURUDEV
(YOGI AMRIT DESAI)
í Borgarleikhúsinu 25. júní kl. 20-22
Miöasala í Borgarleikhúsinu 23.- 25. júnífrá kl. 17-20.
Abgangseyrir kr. 700,-.
Sýning Krist-
jáns framlengd
SÝNING Kristjáns Daviðssonar í
Nýhöfn verður framlengd til 1.
júlí. Sýningin er framlag Nýhafn-
ar til Listahátíðar og hefur verið
mjög fjölsótt. •
í tilefni sýningarinnar og 75 ára
afmælis Kristjáns nú í sumar kom
út bók um hann sem er til sölu,
árituð í Nýhöfn. Bókin er skrifuð
af Aðalsteini Ingólfssyni listfræð-
ingi og gefin út af Máli og menn-
ingu og Nýhöfn.
Opið er daglega frá kl. 12-18
og frá kl. 14-18 um helgar. Lokað
á mánudögum.
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!