Morgunblaðið - 24.06.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992
19
ANC slítur
viðræðum
við hvíta
AFRÍSKA þjóðarráðið (ANC)
tilkynnti í gær að það hefði
hætt viðræðum við minnihluta-
stjórn hvítra um lýðræði í
Suður-Afríku og-birti lista yfir
kröfur, sem það sagði stjórn
F.W. de Klerks verða að ganga
að til að viðræður gætu hafist
að nýju. Slit viðræðnanna koma
í kjölfar fjöldamorða í bænum
Boipatong sunnan Jóhannesar-
borgar fyrir viku síðan, en þá
voru 39 manns, þar á meðal
konur og börn, myrtir.
Slóvakar vilja
fullveldi í júlí
VLADIMIR Meciar, leiðtogi
HZDS, stærsta flokks Slóvakíu,
sagði í gær að Slóvakar myndu
lýsa yfir fullveldi í næsta mán-
uði, en það muni þó ekki jafn-
gilda sjálfstæðisyfirlýsingu.
Slóvakía fengi síðan eigin
stjórnarskrá í ágúst. Meciar sór
Tékkóslóvakíu hollustueið við
setningu Þjóðarráðs Slóvaka,
sem er þing lýðveldisins.
Gotti í lífstíð-
arfangelsi
Mafíuforinginn John Gotti
var dæmdur í lífstíðarfangelsi
í gær fyrir morð á forvera sín-
um í forystu bandarísku mafí-
unnar. Frank Locascio, sem
gekk næstur Gotti að völdum
í Gambino-mafíufjölskyldunni,
var sömuleiðis dæmdur í lífstíð-
arfangelsi.
Andóf bænda
mistekst
FRANSKIR bændur settu í gær
upp vegatálma í kringum París
til að mótmæla fýrirhuguðum
breytingum á landbúnaðar-
stefnu Evrópubandalagsins. Til
minniháttar stympinga kom við
lögreglu sem reyndi að koma í
veg fyrir hindranir á umferð.
Síðdegis í gær aflýstu bændur
mótmælunum eftir að ljóst var
að ekki myndi takast að stöðva
umferð.
Nýtt lyf gegn
alnæmi
BANDARÍSK yfirvöld gáfu í
gær leyfí til notkunar lyfsins
DDC, sem framleitt er af Hoff-
mann-La Roche fyrirtækinu, til
notkunar gegn alnæmi. Verður
heimilt að nota það samtímis
lyfinu AZT en notkun þess var
leyfð fyrir fimm árum. í fyrra-
haust var notkun annars lyfs,
DDl, einnig leyfð við meðhöndl-
un alnæmissjúklinga en DDC
er lang ódýrast þessara þriggja
'yfja.
Fangar pynt-
aðir í Grikk-
landi
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International héldu því
fram í gær að fangar sættu
pyntingum í grískum fangels-
um. Frá árinu 1986 hefðu sam-
tökin fengið til umfjöllunar
mörg mál um meinta illa með-
ferð grískra fanga. Árið 1991
hefðu samtökin fengið rúmlega
40 mál af þessu tagi til umfjöll-
unar. Hefðu fangamir verið
beittir barsmíðum, jafnvel þar
sem kylfur hefðu verið notaðar,
og pyntaðir með rafstraumi.
Tveir menn hefðu látist af völd-
um pyntinganna.
Frakkland:
Þingið breytir
stjórnarskránni
Versölum. Reuter.
BÁÐAR deildir franska þingsins samþykktu á sameigin-
legum fundi í gær þær breytingar á stjórnarskránni sem
nauðsynlegar eru til að Maastricht-samkomulagið geti
tekið gildi í Frakklandi. Stjórnarskrárbreytingin, sem
þurfti þijá fimmtu atkvæða, náði auðveldlega fram að
ganga. Var hún samþykkt með 592 atkvæðum gegn 73.
Flestir þingmenn flokks
nýgaullista, RPR, gengu af
fundi áður en atkvæðagreiðsl-
an hófst á þeirri forsendu að
niðurstaða þjóðaratkvæða-
greiðslunnar í Danmörku
hefði þegar gert Maastricht-
samkomulagið ómerkt á
grundvelli Rómarsáttmálans.
Endanleg örlög Maastricht
í Frakklandi ráðast í þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem haldin
vérður síðar á árinu. Fram til
þessa hefur verið rætt um að
hún fari fram í september en
að lokinni atkvæðagreiðslunni
í gær sagði Michel Vauzelle
dómsmálaráðherra að hugs-
anlega yrði þjóðaratkvæða-
greiðslunni flýtt fram í júlí.
Ákvörðun um tímasetninguna
verður líklega tekin á ríkis-
stjórnarfundi í dag.
Jeltsín gant-
ast við sól-
dýrkanda
BORÍS Jeltsín Rúss-
landsforseti brá á leik
þegar hann gerði hlé á
fundi sínum og Úkraínu-
forseta í sólbaðsbænum
Dagomys í gær og kast-
aði fáklæddri blómarós
út í Svartahafið. Jeltsín
og Leoníd Kravtsjúk
Úkraínuforseti gengu
frá samkomulagi sem
gert var í maí um skipt-
ingu Svartahafsflotans
og ræddu ástandið í
Moldovu, þar sem
hundruð manna hafa
látið lífið á síðustu dög-
um í átökum á milli
stjórnarhermanna og
rússneskra og úkraín-
skra aðskilnaðarsinna,
sem tala rússnesku og
úkraínsku.
Ross Perot gagnrýndur fyrir
rannsókn á fortíð forsetans
Washington. The Daily Telegraph.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hefur brugðist illa við þeim tíðind-
um að Ross Perot, hugsanlegur mótframjóðandi hans í forsetakosn-
ingunum 3. nóvember nk., hafi látið kanna fortíð forsetans og sona
hans. Blaðið Washington Post skýrði frá þvi á sunnudag. Talsmenn
beggja bandarísku flokkanna hafa brugðist ókvæða við og kosninga-
sljóri Bush segir Perot með geðslag galdranorna.
„Það er ekki mjög amerískt,"
sagði Bush við blaðamenn er hann
var spurður um viðbrögð við frétt-
inni. Var gremjutónn í rödd forset-
ans og virtist hann í erfíðleikum
með að hemja skap sitt.
„Mér geðjast ekki að þessu. Lát-
um það vera þó menn grafist fyrir
um störf forseta eða varaforseta
Bandaríkjanna en ég kann ekki að
meta það ef fréttirnar eru réttar
um að snuðrað sé um börnin mín,
fjölskylduna," sagði Bush.
Að sögn Washington Post leigði
Perot menn til þess að rannsaka
starfshætti Bush meðan hann var
varaforseti Ronalds Reagans.
Hermt er að Bush hafi farið mjög
í taugarnar á auðkýfingnum frá
Texas. Mánuðum saman þjörkuðu
þeir um áætlun sem Perot hélt fram
að gæti leitt til þess að upplýsingar
fengjust um bandaríska hermenn,
sem hurfu í Víetnamstríðinu.
í fréttinni segir ennfremur að
árið 1986 hafi Perot varað Bush
vinsamlega við meintri ólöglegri
starfsemi sona hans. Blaðið segir
að Bush hafí sent Perot stutt hand-
skrifað svar þar sem hann hefði
varið synina og sagt þá ráðvanda
og ekki viðriðna neitt ólöglegt.
Talsmenn beggja bandarísku
flokkanna hafa brugðist harkalega
við frétt Washington Post og Dan
Quayle varaforseti vandaði Perot
ekki kveðjurnar. Hann sagði að
Perot yrði stórhættulegur forseti.
Hann væri haldinn þeirri áráttu að
láta rannsaka fólk og myndi aldeil-
is fá útrás ef hann kæmist í þá
■ TRIPOLI - Þing Líbýu sam-
þykkti í gær ályktun þar sem sagði
að það hefði ekki á móti því að
„sanngjörn réttarhöld" færu fram
á vegum Arababandalagsins eða
Sameinuðu þjóðanna yfir tveimur
Líbýumönnum, sem eru grunaðir
um að hafa grandað bandarískri
farþegaþotu yfir skoska bænum
Lockerbie 1988. Þingið virtist ekki
útiloka að mennirnir yrðu framseld-
ir til Vesturlanda. Hart var deilt
um málið er það var tekið fyrir á
þinginu á mánudag. Nokkrir þing-
menn voru algjörlega andvígir því
að mennimir yrðu framseldir. Aðrir
léðu máls á því, að því tilskildu að
„hlutlaus“ dómstóll fjallaði um mál
mannanna og að tryggt yrði að
réttlætis yrði gætt í réttarhöldun-
um.
aðstöðu að geta sagt skattstjórn-
inni, alríkislögreglunni (FBI) og
leyniþjónustunni (CIA) fyrir verk-
um.
Þá sakaði Marlin Fitzwater, tals-
maður forsetaembættisins, Perot
um tiíraunir til að klekkja á Sam
Donaldson, fréttamanni AJ5C-sjón-
varpsstöðvarinnar, þar sem honum
mislíkaði fréttaþáttur stöðvarinnar
um bandaríska stríðsfanga og her-
menn sem saknað væri í Víetnam.
Fréttin var um útistöður sem Perot
var sagður eiga í við þjóðaröryggis-
ráðið um skipan og forystu sendi-
nefndar sem senda átti til Hanoi í
Víetnam til þess að afla upplýsinga
um týnda hermenn. „Hann hringdi
í mig úr flugvél sinni og sagðist
sjálfur myndu ná sér niðri á Sam
Donaldson ef ég sæi ekki til þess
að hann drægi fréttina til baka,“
sagði Fitzwater er hann var spurð-
ur hvort þeim Perot hefði lent sam-
an á þeim tíma sem meint rannsókn
hans á starfsháttum Bush átti sér
stað. Donaldson sagði Reuters-
fréttastofunni að Perot hefði aldrei
haft í hótunum við sig.
Þríréttaður kvöldverður
frá 2.250 kr.
umarmatseðil
frá sunnudegi til fimmtudags
á kvöldin í allt sumar.
nettir
Rækju- og silungamosaík með súrsætri sósu.
Rjómasúpa með sveppum og blómkáli.
Sjávarfang á fersku salati.
Qp/ðalréttir
Glóðarsteikt Gljáð nautalund Steikt önd með
grísafiðrildi Dijon engifer-rauðvínssósu
2.250 2.750 2.950
eftirréttir
Súkkulaðitruffle-terta með romm-rúsínu-ís
Krapís í tveimur litum
Einnig bjóðum við gestum að velja af hinum frábæra
sjávarrétta- og sérréttamatseðli.
REIAIS&
CHATEAUX.
Hafðu það fyrsta flokks.
Það gerum við.
SE
4i
'1
m
Borðapantanir
í síma 25700.