Morgunblaðið - 24.06.1992, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JUNI 1992
Norskir landsliðsmenn í heimsókn
Hópur norskra landsliðsmanna í skíðagöngu kom beint frá Noregi með
flugvél Flugfélags Norðurlands skömmu eftir hádegi í gær, en hingað
kemur hópurinn í boði Trausta Sveinssonar á Bjarnargili í Fljótum. Þar
hyggst Trausti byggja upp skíðasvæði og munu landsliðsmennirnir kanna
aðstæður þar auk þess að kynna sér hvað Norðlendingar hafa upp á að
bjóða varðandi skíðaíþróttina. í hópnum er m.a. Vegard Ulvang, ólympíu-
meistari í skíðagöngu, en hann gaf ungum og áhugasömum akureyrskum
skíðagöngumönnum eiginhandaráritun við komuna í gær.
Nýr veitingastaður opn-
aður í Mývatnssveit
Grasið
nánast í
frysti
„ÞAÐ er lán í óláni að hafa þenn-
an kulda með bleytunni, á meðan
má segja að grasið sé nánast eins
og í frysti og fóðurgildi þess
minnkar ekki,“ sagði Ólafur G.
Vagnsson ráðunautur hjá Bún-
aðarsambandi Eyjafjarðar.
Hann sagði að heyskapur bænda
í Eyjafirði hefði gengið upp og of-
an, einstaka menn væru vel á veg
komnir, einkum þeir sem byggju á
svæðinu framan Akureyrar, en
bændur í Svarfaðardal, Árskóg-
strönd og Höfðahverfi væru margir
hveijir ekki byrjaðir að slá.
Fljótlega eftir að heyskapur hófst
fór að rigna, þá lentu margir bænd-
ur í því að hey fauk í miklu hvass-
viðri í síðustu viku og nú búa menn
við kuldakast sem veldur því að lít-
ið er hægt að sinna slætti.
Ólafur sagði að misjafnt veður
setti ætíð strik í reikninginn, en
menn væru við því búnir og vissu-
lega væri betra að slíkt kuldakast
sem nú er ríkjandi kæmi í upphafi
heyskapar þar sem tún væru víða
ekki búnin að ná fullri sprettu. Mun
verra hefði verið að fá þetta veður
yfir sig síðar, eftir viku eða hálfan
^ Morgunblaðið/Rúnar Þór
VARUÐ!
Við Drottningarbraut hefur nú verið komið fyrir skiltum þar sem öku-
menn eru hvattir til að gæta varúðar við aksturinn, enda sá tími er
fuglar, einkum endur, ferðast mikið yfir götuna og niður að sjó með
unga sína. En það komast ekki allir heilir yfir götuna, eins og sá má
á myndinni hefur þessi gæs mátt bíða lægri hlut fyrir einhveijum
ökumanninum.
Björk, Mývatnssveit.
NYR veitingastaður var opnaður
í Mývatnssveit síðastliðinn
sunnudag. Nefnist hann Hverinn
og er staðsettur sunnan við
verslunarhús Kaupfélags Þing-
eyinga í Reykjahlíð.
Eigendur eru Áslaugur Hallsson
og Ellert Finnbogason sem báðir
eru starfsemnn í Kröflu og eigin-
konur þeirra, ennfremur Helgi
Gunnarsson verslunarstjóri,
Reykjavík og kona hans.
Hér er um að ræða tvö eininga-
hús sem flutt voru frá Akureyri,
og hús sem reist var á staðnum.
Yfirsmiður var Stefán Óskarsson.
Allur frágangur virðist vera vand-
aður og snyrtilega frá öllu gengið.
Gert er ráð fyrir að veitingahúsið
Hverinn verði opinn frá því snemma
að morgni til kl. 23 að kvöldi. Sæti
verða fyrir um 50 manns. Þarna
verður boðið upp á kaffi og heima-
bakaðar kökur auk ýmissa annarra
veitinga. Óhætt er að segja að með
opnun þessa veitingastaðar aukist
að mun þjónusta við ferðafólk í
Mývatnssveit.
Kristján
Erlendum ferðamönnum leist ekki á júníveðrið:
Þarf að moka snjó af tjöldum?
GESTUM á tjaldstæðinu á Akureyri hefur eflaust ekki litist á blik-
una í gærdag, en snjókoma var í bænum seinnipart dagsins. Um
50 gestir voru á tjaldstæðinu í gærmorgun, en flestir sem í annað
hús áttu að venda yfirgáfu svæðið og héldu annað.
Sigríður Guðmundsdóttir tjald-
vörður sagði að nokkrir erlendu
gestanna hefðu reynt að líta björt-
Sumartónleikar haldnir í
sjö kirkjum á Norðurlandi
SUMARTÓNLEIKAR verða
sjötta sumarið í röð haldnir í
kirkjum á Norðurlandi. Fram til
þessa hafa tónleikarnir verið
haldnir í þremur kirkjum, en í
sumar verða þeir haldnir í sjö
kirkjum víðsvegar um Norður-
land.
Tónleikarnir hafa verið í Akur-
eyrarkirkju, Reykjahlíðarkirkju í
Mývatnssveit og Húsvíkurkirkju, en
verða nú einnig í Dalvíkurkirkju,
Hóladómkirkju í Hjaltadal, Lundar-
brekku í Bárðardal og Raufarhafn-
arkirkju.
Tónleikamir í Akureyrarkirkju
verða haldnir á sunnudögum kl. 17
og verða hinir fyrstu 5. júlí næst-
komandi, en alls verða fimm tón-
leikar haldnir þar. Á laugardögum
verður leikið í Reykjahlíðarkirkju
. og þar verða einnig haldnir fimm
tónleikar, en þrennir tónleikar verða
í Húsavíkurkirkju á föstudags-
kvöldum og þá verða tónleikar í
Dalvíkurkirkju á fímmtudögum, en
þar verða tvennir tónleikar í sumar.
Tvennir tónleikar verða einnig í
Hóladómkirkju í Hjaltadal auk þess
sem haldnir verða tönleikar í Lund-
arbrekku í Bárðardal og Raufar-
hafnarkirkju, einn á hvorum stað.
Alls verða haldnir átján tónleikar í
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þau Margrét Bóasdóttir og Björn Steinar Sólbergsson áttu hugmynd-
ina að sumartónleikum í kirkjum á Norðurlandi, en með þeim á
myndinni er Hrefna Harðardóttir, framkvæmdastjóri tónleikanna.
þessum sjö kirkjum í sumar.
Á sumartónleikum kom fram
Tónlistarhópur Akureyrarkirkju,
Capella Media, hópar sem kalla sig,
þijú selló óg orgel, tveir sópranar
og orgel og trompet og orgel.
Það voru þau Margrét Bóasdótt-
ir, söngkona á Grenjaðarstað og
Bjöm Steinar Sólbergsson organisti
Akureyrarkirkju sem hrundu Sum-
artónleikunum af stað árið 1987
um augum á snjókomu sumarsins
og kváðu gott að kynnast landinu
eins og það væri.
Sigríður sagði að útlendingar
sem hér væru á ferð á hjóli eða
gangandi og gistu í tjöldum sínum
væru smeykir við að ferðaáætlun
þeirra raskaðist í kjölfar þessa
kuldakasts, þeir væru ragir við að
fara af stað t.d. yfir fjallvegi vegna
veðursins og hefðu menn látið í
ljós ótta við að verða innlyksa í
bænum.
í fyrrinótt voru um 50 gestir á
tjaldstæðinu, en flestir sem annað
gátu farið héldu á brott síðdegis
er snjókorn fóru að falla úr lofti.
Sigríður sagði að nokkrir gestanna
ætluðu að dvelja áfram á tjald-
svæðinu þrátt fyrir kulda og
bleytu. „Ætli þeir verði ekki að
moka snjó af tjöldunum sínum í
fyrramálið," sagði Sigríður.
Sala á þrotabúi POB:
Viðræðurvið
nýja aðila hafnar
Nokkrir sýna bókaforlaginu áhuga
LANDSBANKI íslands hefur fengið tilboð frá nýjum aðilum í
rekstur þrotabús Prentverks Odds Björnssonar, en viðræður hafa
staðið yfir að undanförnu. Fulltrúar bankans og Dagsprents um
kaup á rekstrinum áttu viðræður um kaup á rekstrinum en náðu
ekki saman.
og hefur mikill fjöldi tónlistarfólks
af ólíku þjóðerni komið fram á tón-
leikunum. „Sú göfuga hugsjón að
gera sem flestum kleift að njóta
vandaðrar tónlistar er forsenda og
undirstaða sumartónleikanna. Án
hennar geta þeir ekki lifað og hefðu
reyndar aldrei orðið að veruleika,“
segir í inngangsorðum Kristjáns
Vals Ingólfssonar þar sem tónleik-
arnir eru kynntir.
Eiríkur Jóhannsson sem annast
rekstur þrotabúsins fyrir hönd
Landsbankans sagði að viðræður
væru hafnar við nýja aðila um
kaup á rekstri þrotabúsins og
væru þær komnar á það stig að
bankinn hefði fengið formlegt til-
boð sem nú væri verið að skoða.
Eiríkur vildi ekki segja við hveija
verið væri að ræða nú, en sam-
kvæmt heimildum blaðsins er um
að ræða hluta starfsmanna þrota-
búsins.
„Það er of snemmt að segja
hvað kemur út úr þessum viðræð-
um, en ég á von á að þetta fari
að skýrast eftir næstu helgi,“
sagði Eiríkur.
Ákveðið hefur verið að selja
Bókaforlag Odds Björnssonar, sem
rekið var innan POB utan við ann-
an rekstur og eru að sögn Eiríks
þrír til fjórir aðilar áhugasamir
um kaup á bókaforlaginu. Hann
sagði að sala bókaforlagsins hefði
setið á hakanum undnafarið, en
menn myndu snúa sér að því máli
fljótlega.