Morgunblaðið - 24.06.1992, Síða 26

Morgunblaðið - 24.06.1992, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992 Hilmar B. Þórar- insson - Minning Fæddur 8. desember 1929 Dáinn 14. júní 1992 Ég vil með fáum orðum minnast vinar míns, Hilmars Bernódusar Þórarinssonar. Ég kynntist honum haustið 1946 í Ytri-Njarðvík, en þangað höfðum við komið um sumarið, 16 áragaml- ir, til að hefja iðnnám, hann í raf- virkjun og ég í skipasmíði. Hann kom frá Vestmannaeyjum en ég frá Grindavík. Við settumst í Iðnskól- ann í Keflavík um haustið og urðum sessunautar, en það varð upphafið að okkar löngu vináttu og þau sjö ár sem ég bjó í Njarðvík má segja að við höfum eytt saman nær öllum okkar frístundum. Við urðum her- bergisfélagar, fyrst á Stað, en síðan leigði ég hjá fósturforeldrum hans í Dal. Á fyrstu árunum eftir stríðið var Njarðvík sannkallaður ævintýrabær fyrir unglinga á okkar reki vegna nábýlisins við Keflavíkurflugvöll, sem reyndar var nær allur í Njarð- víkurlandi. Braggahverfín náðu al- veg niður að þorpinu og út um alla mela og móa suður undir Hafnir. Árið 1946 voru hermennimir að flytja til síns heima og í staðinn komu óeinkennisklæddir verka- menn í braggana. Marga forvitnis- ferðina fórum við á þessar slóðir, örkuðum um hráolíublauta stígana, skreytta gulmáluðu grjóti og skoð- uðum framandlegt umhverfið, borð- uðum roastbeef á Hotel de Gink og kynntumst íslendingum sem vildu verða amerískir á einu sumri. Um vorið 1947 stofnuðum við, ásamt vini okkar Steinari Júlíus- syni, skátafélagið Áfram. Einnig vorum við virkir í Ungmennafélagi Njarðvíkur og reyndar kvenfélaginu líka, því við lékum í leikritum á vegum þessara félaga ár eftir ár, sem sýnd voru í Samkomuhúsi Njarðvíkur, betur þekkt sem Kross- inn, danshús íslenskra danshúsa á árunum eftir stríð. Þar dönsuðum við við mæður stúlknanna sem við vorum skotnir í og eftir þá dans- þjálfun við dætumar sjálfar. Bebbi átti frænku í Reykjavík, sem var ljósmyndari hjá Lofti. Hún tók mynd af okkur saman og vand- aði til hennar sem mest hún mátti (engin sjö mínútna mynd það). Þá mynd færði ég móður minni í Grindavík um það leyti sem raf- magn var lagt í hús foreldra minna. Hún stillti myndinni upp á eldhús- Fædd 24. júní 1904 Dáin 8. febrúar 1992 í dag hefði Ella frænka orðið áttatíu og átta ára. Elín Kristín, eins og hún hét fullu nafni, fæddist í Reykjavík á þessum töfrum slungna degi, Jónsmessunni, árið 1904. Foreldrar hennar voru þau Sigríður Thomsen húsfreyja of Kristján Hansson trésmíðameistari. Ella ólst upp á heimili foreldra sinna á Frakkastíg 7 ásamt bræðr- um sínum, Pétri og Haraldi. í minn- ingu hennar var bemskan björt og sambandið milli systkinanna þriggja alla tíð ákaflega náið, bæði heima í föðurhúsum og vestur á Sólvöllum þar sem foreldrar og böm settust síðar að í nábýli hvert við annað. Síðasta aldarfjórðunginn héldu þau Pétur heimili saman, þar til heilsa hennar gaf sig. Endaði hún ævidaga sína á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund þar sem hún naut góðrar aðhlynningar. Ella gekk í Miðbæjarbamaskól- ann og nam síðar við húsmæðra- deild Kvennaskólans í Reykjavík. Að námi loknu vann hún við hatta- borðið milli nýfenginnar eldavélar- innar og hraðsuðuketilsins. Þarna var vettvangur móður minnar og fmmmynd Monu Lisu hefði ekki fengið veglegri stað. Þama var myndin enn þegar móðir mín dó 40 ámm síðar og einnig þegar fað- ir minn flutti úr húsinu 1990. Seg- ir það nokkuð um hvert mat for- eldra minna var á vináttu okkar. Margs er að minnast frá þessum ámm. Við sóttum landsmót skáta á Þingvöllum 1948 og fengum þá frumlega hugmynd að mótshliði, sem vakti mikla athygli. Hliðið var akkeri sem vísaði leggnum niður en armarnir mynduðu boga yfír höfði þess sem um gekk og ýtti stokknum á undan sér í hring. Hlið- ið var svo traust smíði að áratugn- um síðar stóð það fyrir dyrum hins fræga Kross, sem nú var orðið skátaheimili að mér var sagt. Bebbi var driffjöðrin í öllum okk- ar athöfnum, útilegum, uppfærslum og skemmtunum. Við áttum líka síðar marga skemmtilega ferðina út um borg og bý á bíldruslu af elstu gerð, sem félagar okkar áttu, að ógleymdum ferðum á heimaslóð- ir hans á Þjóðhátíðina í Eyjum. Ekki get ég lokið þessari upprifj- un minninga án þess að minnast á kvöldin og helgarnar heima hjá Fjólu og Oddbergi, þar sem eldurinn brann heitur og rauður á kalda- stríðsárunum. Síðasta árið mitt í Njarðvík Var Bebbi farinn að búa með sinni góðu og fallegu konu, Valgerði Valdi- marsdóttur, Völlu, sem varð vinur minn frá fyrsta degi. Ég hefi í þessum minningabrot- um ekki minnst á lífshlaup Bebba að æskuárunum loknum, en hann var maður athafnanna þá sem fyrr. Aðrir sem betur til þekkja munu ef til vill minnast þess. Persónuleiki hans var þannig að hann var vel til forystu fallinn, hann var skarp- greindur, metnaðarfullur, örlátur og hlýr. Með árunum fækkaði samveru- stundum okkar, enda nokkuð langt milli Reykjavíkur og Njarðvíkur fyrir hina almennu bílaeign. Fyrir nokkrum árum fluttu Bebbi og Valla í Garðabæinn, þar var gott að koma með Hönnu og ræða við þessi greindu hjón. Kannski hefur hugljómunin frá æskudögunum dofnað, en finnst manni ekki að sjórinn hafi blikað saum hjá Margréti Levý, þar til hún hinn 31. júlí 1926 giftist Ágústi J. Johnson, bankaféhirði í Landsbank- anum, en hann fæddist 9. ágúst 1879. Reisti Ágúst þeim heimili á Sólvallagötu 16 þar sem þau bjuggu saman þangað til hann lést, 14. nóvember 1959. Ella var seinni kona hans. Heimili þeirra Johnsons, eins og hann var einlægt kallaður í okkar íjölskyldu, var gestkvæmt mjög, enda hjónin einkar samhent í gest- risni sinni og sérhver aðkomumaður þeim aufúsugestur. Geyma skyld- menni beggja góðar minningar um glaðar stundir í ævintýralegu (eins og ég skynjaði það) húsinu þeirra við Sólvallagötu. Hélst samband á milli Ellu og fjölskyldu Johr.sons einstaklega traust og hlýtt ævi hennar á enda. Þegar við sátum og röbbuðum saman á efri árum Ellu barst talið gjaman að liðinni tíð. Var henni einkar lagið að klæða minningar sínar í líflega búning, enda hafði hún ágætlega glöggt auga fyrir skoplegu hliðinni á tilverunni. Reykjavíkurmyndirnar sem brugðið var upp í þessum minningabrotum skærar á æskuárunum? Ef svo er mun ég kalla þær og aðrar minning- ar fram úr hugskotinu þegar ég vegna fjarlægðar erlendis get ekki verið við útför vinar míns. Völlu og börnunum, ásamt aldr- aðri móður hans, sendum við Hanna hugheilar samúðarkveðjur. Bjarni Bergsson. Hilmar Þórarinsson framkvæmd- astjóri, Brekkubyggð 30 í Garðabæ, er látinn. Jafnaðarmenn í Alþýðu- flokksfélagi Garðabæjar og Bessa- staðahrepps sakna þar góðs félaga. Þegar við sem skipum okkur í raðir Alþýðuflokksins í þessum sveitarfélögum heyrðum, að Hilmar væri fluttur í Garðabæ biðum við þess með óþreyju, að hann gengi í félag okkar, en flest vissum við um frábær störf hans fyrir Alþýðu- flokkinn í bæjarmálum Njarðvík- inga, en þar var hann m.a. forseti bæjarstjómar um árabil. Ekki leið á löngu, þar til ósk okkar rættist. Þeir sem störfuðu með Hilmari að undirbúningi bæjar- stjórnarkosninganna í Garðabæ 1986, en þar var hann kosninga- stjóri, komu fljótt auga á það, að þar fór enginn meðalmaður, enda urðu úrslit kosninganna glæsilegur sigur A-Iistans. Hilmar lá ekki á liði sínu eins og herforingi. Eftir þetta stjórnaði hann kosningabar- áttu flokksins í bænum. Jafnaðarmenn í Garðabæ munu sakna Hilmars Þórarinssonar, ekki aðeins sem frábærs stjómanda, heldur, og ekki síður, sem góðs fé- laga, er lagði frekar áherslu á það jákvæða en neikvæða. Það var gott að umgangast Hilmar jafnt i leik sem starfi. Við kveðjum hann með söknuði. Gæfumaður er genginn langt um aldur fram. Við þökkum gott en alltof stutt samstarf og vináttu. Við vottum eiginkonu, bömum og öðr- um ættingjum innilega samúð. Blessuð sé minning Hilmars Þórar- inssonar. Félagar í Alþýðuflokksfélagi Garðabæjar og Bessastaða- hrepps. í dag kl. 14 fer fram frá Njarð- víkurkirkju útför vinar míns og fé- laga Hilmars B. Þórarinssonar, sem lést á gjörgæsludeild Borgarspítal- ans 14. júní. Fyrir 8 ámm fékk Hilmar krans- æðastíflu og var mjög veikur á tímabili, hann gekkst ekki undir aðgerð þess vegna, og má segja að hann hafí verið búinn að ná þokka- legum bata af þeim sökum, en nú fyrir stuttu fór hann að fínna til höfuðverkjar og sjóntruflunar. Við sneiðmyndatöku fýrir hálfum mán- voru í senn heillandi og framandleg- ar, eins og til dæmis í frásögn af eftirminnilegri þeysireið neðan úr miðbæ suður Suðurgötu upp Kirkju- garðsstíg vestur Sólvallagötu sem endaði með svo snöggum stans þeg- ar komið var í áfangastað að reið- konan flaug fram af klámum og hafnaði í götunni framan við hús númer sextán. Hestamennskan var snar þáttur í lífi Ellu á yngri árum, hélt Kristján afi ævinlega hesta á Frakkastígnum eins og þau Johnson síðar á Sólvallagötunni. Stendur uði kom í ljós að hann var með ill- kynja æxli við heilann, tvær aðgerð- ir voru framkvæmdar strax á hon- um, en ekkert dugði til, eins og áður segir lést hann 14. júní sl. Hilmar B. Þórarinsson var fædd- ur að Stakkagerði í Vestmannaeyj- um 8. desember 1929. Foreldrar hans vom Þórarinn Bernódusson vélstjóri og kona hans Guðrún Rafnsdóttir. Þau slitu samvistum, og ólst Hilmar upp eftir það hjá fósturforeldrum sínum þeim Árna Þórarinssyni og konu hans Guð- björgu Þórðardóttur í Vestmanna- eyjum. Hilmar fluttist með þeim til Njarðvíkur árið 1946. Hann reynd- ist þeim eins og hann væri þeirra eigin sonur. Hann hóf nám í raf- virkjun, fyrst hjá Júlíusi Stein- grímssyni og síðar hjá Guðbirni Guðmundssyni í Geisla í Keflavík. Eftir að hann lauk námi 1951 starf- aði hann hjá Geisla til ársins 1957, að hann gerðist verkstjóri hjá Raf- magnsverktökum Keflavíkur á Keflavíkurflugvelli en starfí fram- kvæmdastjóra þess fyrirtækis gegndi Hilmar frá árinu 1961 til dauðadags. Hann átti sæti í ýmsum nefndum og félögum, var m.a. framkvæmdastjóri Gluggaverk- smiðjunnar Ramma um tíma þegar hún var í eigu Rafmagnsverktaka. Hilmar var hreppsnefndarmaður og bæjarstjórnarmaður fyrir Al- þýðuflokkinn í Njarðvík frá árinu 1966 til ársins 1982, formaður raf- veitunefndar í Njarðvík í 20 ár, einnig starfaði hann mikið fyrir stéttarfélag sitt og skátahreyfing- una svo eitthvað sé nefnt. Þann 26. desember 1954 kvænt- ist Hilmar eftirlifandi konu sinni Valgerði Guðrúnu Valdimarsdóttur frá Hellnum á Snæfellsnesi. Þau áttu 4 böm, Árna Þór, fæddan 2. hesthúsið þar ennþá í baklóðinni, menjar um horfna tíð. Margar ljúfar og fjörlegar minn- ingar átti hún frá því að hún var unglingur í sveit á Hróðnýjarstöð- um í Dalasýslu hjá föðursystur sinni, Ingiríði, og Einari Þorkelssyni manni hennar. Varð þetta henni einkar minnisstætt tímabil, enda börnin mörg og dynjandi líf á bæn- um. Minningar átti hún líka hlýjar frá samskiptum við skyldfólk John- sons og fjölskyldur þeirra í Mar- teinstungu og á Barkarstöðum sem oftlega bar á góma. Á uppvaxtarárunum fannst mér ég vera mikil forréttindavera — á næsta horni við bernskuheimilið voru amma, afi og Pétur frændi, Ella í næstu götu, og allt bar þetta fólk okkur systkinin á höndum sér. Það var ævinlega hressandi og gaman að koma til Ellu, stutt í glens og upplífgandi hlátur, dekrið taum- laust. Við áttum skemmtilegar stundir saman. Minningu áttum við sameiginlega sem tengdi okkur sterkum böndum, minninguna um ógleymanlega ferð, mína fyrstu til fjarlægra landa, sem ég fór strák- lingur með þeim Pétri frænda árið 1956. Og nú þegar húsið á Sólvalla- götunni, þar sem hver krókur og kimi andar draumkenndri fortíð, hefur orðið að heimili okkar hjóna er minningin um elskulega frænku sínálæg, órofa samofín þessum bú- stað sem var henni svo kær. Hebbi. júní 1954, hann starfar sem félags- málafulltrúi á Keflavíkurflugvelli, hann er kvæntur Ingunni Sigur- geirsdóttur. Kristín, fædd 7. júlí 1955, viðskiptafræðingur, hún er fjármálastjóri hjá Garðabæ, sam- býlismaður hennar er Einar Hjalta- son. Hildur, fædd 19. september 1958, hún er kennari og búsett í Bandaríkjunum, hennar maður er Todd Schroeckenthaler og Hjördís, fædd 17. janúar 1963, hárgreiðslu- meistari í Njarðvík, hennar maður er Valur Ketilsson. Hilmar og Valgerður hófu sinn búskap að Klapparstíg 9 í Njarðvík hjá fósturforeldrum Hilmars. Voru þar í nokkur ár en byggðu sér svo hús að Klapparstíg 5 og bjuggu þar til ársins 1982 en þá byggðu þau sér hús að Brekkubyggð 30 í Garðabæ. Leiðir okkar Hilmars lágu fyrst saman árið 1951 þegar við tókum saman sveinspróf í Reykjavík. Síðar urðu nánari kynni og vinátta okkar á milli þegar ég réðst sem rafveitu- stjóri til Njarðvíkur árið 1965 þar sem hann var formaður rafveitu- nefndar, einnig sat ég í stjórn Raf- magnsverktaka í 18 ár þar sem Hilmar stjórnaði því fyrirtæki af mikilli reisn og útsjónarsemi. Hilmar átti marga kunningja, en fáa vini, hann var fúsastur allra til að rétta þeim sem minna máttu sín hjálparhönd en eitt þoldi hann ekki, það voru óheillindi og þegar honum fannst vinir sínir bregðast sér. Hilmar var frekar dulur og oft mjög alvörugefinn en ekki þurfti mikið til að kalla bros fram sem var honum raunverulega tamt. Þegar ég sest niður til að rita nokkur minningarorð um þennan góða vin minn, koma fram í hugann ógleymanlegar samverustundir okkar, í veiðitúrum, ferðalögum innanlands og erlendis. Við hjónin fórum með þeim Valgerði og Hilm- ari til Spánar síðastliðið haust, vor- um með þeim í sumarhúsum, sem okkar fyrirtæki á þar, í mjög góðu yfírlæti. Við Hilmar vorum ný bún- ir að kaupa okkur flugmiða aftur til Spánar þegar kallið kom. Val- gerður og Hilmar voru búin að festa kaup á húsi á Spáni, þar sem þau ætluðu að eyða sínum efri árum, en enginn ræður sínum næturstað. Hilmar var alla tíð mikill Vest- mannaeyingur, hann kunni að segja frá ýmsu sem þar gerðist á hans uppvaxtarárum, enda naut hann sín þegar við félagar hans fórum með konum okkar til Eyja fyrir nokkrum árum í helgarferð. Það var ekki í anda Hilmars B. Þórarinssonar að vera að tíunda það sem hann hafði látið gott af sér leiða, eða hæla honum um of, hann bar ekki tilfínningar sínar á torg, en svo margar samverustundir átti ég með honum einum að ég vissi hver hugur hans var. Þó svo að Hilmar hafí á stundum verið htjúfur á yfirborðinu var hjartalagið hreint og ósvikult. Það sem var honum kærast var konan, heimilið og börn- in. Um leið og ég kveð þennan kæra vin minn þakka ég allar liðnu sam- verustundirnar. Valla mín, við hjónin sendum þér og öllum börnum ykkar og nánum vandamönnum hugheilar samúðar- kveðjur, Guð gefi ykkur styrk og blessun um ókominn ár. Jóhann Líndal Jóhannsson. Hilmar Þórarinsson var kominn að ánni og kallaði. Nú hefur hann fengið flutning yfir, Okkur samferðamönnum s hans og vinum fannst þetta ótímabært en eigi má sköpum renna. Þegar ég nú kveð Hilmar verður mér hugsað til okkar fyrstu kynna. Við komum til Ytri-Njarðvíkur um svipað leyti og vinátta okkar fer að nálgast hálfrar aldar afmælið. Það var gott hlutskipti að eiga Hilmar fyrir vin. Hann var myndar- legur maður og fríður sýnum. Hann var greindur ojg glaðsinna. Hann hafði alla kosti til þess að vera aðlaðandi. Hilmar var uppalinn í Vest- mannaeyjum og það fylgdi honum hressilegt Eyjaviðmót. Það var á þessum árum sem hann kenndi mér dágóða vísu á þessa leið: Elín Kristjánsdóttir Johnson - Minning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.