Morgunblaðið - 24.06.1992, Side 35

Morgunblaðið - 24.06.1992, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992 35 SPENNU/GAMANMYNDIN: TOFRALÆKNIRINN STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI! FRAMMISTAÐA CONNERYS GLEYMIST SEINT EÐA ALDREI. STÓRKOSTLEG OG HRÍFANDI! „TÖFRALÆKNIRINN" ER FERSK OG HRÍFANDI SAGA UM ALVÖRU FÓLK OG RAUNVERULEGA BARÁTTU. HÚN ER ALGJÖRT UNDUR. ÞAÐ EINA SEM HÆGT ER AÐ SEGJA UM CONNERY ER ÞAÐ AÐ HANN ER EINFALDLEGA BESTI LEIKARI OKKAR TÍMA. IUI Hinson - Thc Washinpon Pml „TÖFRALÆKNIRINN" ER LÍFLEG OG LITRÍK UMGJÖRÐ UTAN UM STÓRKOSTLEGAN LEIK CONNERYS. Aðalhlutverk: Sean Connery og Lorraine Bracco. Leikstjóri: John McTierman finnur lyf krabbameini en formúlunni. m ■■ VIGHOFÐI ★ ★ ★ l/i MBL. ★ ★«- DV Þessi magnaða spennu- mynd með Robert De Niro og Nick Nolte á stóru tjaldi í Dolby Stereo. Sýnd íB-sal kl.4.50, 6.55, 9 og11.10. Bönnuð innan 16 ára. MITT EIGIÐIDAHO ★ ★ ★ ★ L.A. TIMES ★ ★ * * Pressan ★ ★ ★ Mbl. Sýnd í C-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. LEIKFERÐ ÞJÓÐLEIKHÚSSINS UM NORÐUR- OG AUSTURLAND A JELENA eftir Ljudmilu Razumovskaju NESKAUPSTAÐUR, EGILSBÚÐ: í kvöld kl. 21.00. Miðapantanir í Hótel Egilsbúð, sími 71321. HÚSAVÍK, SAMKOMUHÚSIÐ: Fimmtudaginn 25. júní kl. 21. Föstudaginn 26. júní kl. 21. Miðapantanir í Samkomuhúsinu, sími 41129. ÓLAFSFJÖRÐUR, SAMKOMUHÚSIÐ: Laugardaginn 27. júnf kl. 21.00. Miðapantanir í Félagsheimilinu daglega frá kl. 17-19 í síma 62188. V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! REGNBOGINN SÍMI: 19000 Þjóðvegur 72 í hringferð um landið Nær 30 þúsund gest- ir um borð í Herjólf Nær 30 þúsund gestir komu um borð í Herjólf í heimsókn skipsins á hringsiglingunni um landið, en skipið er nú að hefja daglegar reglubundnar ferðir milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Aðsókn- in var mun meiri að skoða skipið en reiknað hafði verið með og var hvarvetna gerður góður rómur að heimsókn skipsins, enda venjulegra að landsmenn þurfi að ferðast til þjóðveganna en að þeir sæki landsmenn heim eins og Herjólfur gerði. Nokkrir tugir farþega fóru hringinn með Herjólfi, flestir gamalgrónir Eyjamenn og í samtali við Morgunblaðið sagði einn þeirra, Hannes Tómasson, að hringferðin hefði verið ævintýri líkust og það væri eins og í lygasögu hvað skipið færi vel í sjó. Lengst af hringferðarinnar var besta veður en á endasprettinum lenti skipið í vitlausu veðri, 12 vindstigum og miklum sjó. Þá var siglt rólega en að öðru leyti gekk ferðin mjög vel. í Þorlákshöfn, Reykjavík, Akra- nesi og á Akureyri var stanslaus straumur af fólki um borð og skip- ið nánast þétt skipað gestum á meðan staldrað var við og á ísafirði, Sauðárkróki og Eskifirði var einnig mikil aðsókn, en ekki örtröð. Við litum um borð í Heijólf þar sem skipið lá við Torfunesbryggju í hjarta Akureyrar á 17. júní og Akureyringar virtust kunna vel að meta boðið um borð miðað við þær þúsundir sem heimsóttu skipið og einhver hafði á orði að alvöru ís- lenskt farþegaskip hefði ekki lagst að bryggju á Akureyri síðan Gull- foss kom þar síðast. Tvö bílaumboð sýndu bíla í hringferðinni á bílaþilfari Heijólfs, Hekla og Jöfur, Emmess ís kynnti nýjustu tegundir af ís, Rydens- kaffi var kynnt fyrir landsmönnum og Páll Helgason ferðamálafröm- uður í Vestmannaeyjum kynnti bátsferðir í Eyjum með PH Viking, Ferðaþjónustu Vestmannaeyja, Hótel Bræðraborg og veitingastað- inn Við félagamir, en Páll var sem kunnugt er kosinn ferðamálafröm- uður landsins í fyrra vegna upp- byggingar hans í ferðamálum í Vestmannaeyjum. Þá var Atvinnu- málanefnd Vestmannaeyja með í hringferðinni þar sem formaður nefndarinnar Ólafur Lárusson bæj- arfulltrúi kynnti Vestmannaeyjar sem þjónustubæ sjávarútvegsins á öllum sviðum allan sólarhringinn allt árið auk þess að hann kynnti Ferðamálasamtök Vestmannaeyja. Sigmar Georgsson framkvæmda- Stanslaus straumur fólks var um Herjólf í hjarta Akureyrar. Ljósmyndir: Árni Johnsen. stjóri íþróttafélagsins Þórs kynnti Þjóðhátíð Vestmannaeyja sem haldin verður um Verslunarmanna- Nokkrir úr hópi gamalgrónu Eyjamannanna sem fóru í hringferð- ina með Herjólfi. Ólafur Lárusson formaður Atvinnumálanefndar Vestmannaeyja kynnti Vestmannaeyjar sem þjónustumiðstöð sjávarútvegsins allan sólarhringpnn árið um kring. helgina mjög fjölbreytt að vanda, en upplýsingablöð um Þjóðhátíðina og gömul Þjóðhátíðarblöð runnu út eins og heitar lummur. Þá var einnig sérstök kynning á söfnunum í Vestmannaeyjum, Byggðasafninu og Náttúrugripasafninu. Emmess ís hafði reiknað með að gefa landsmönnum 250 kg af ís í smakk, en það fór í tonnið. Ryd- ens-kaffi veitti meira kaffi í hring- ferð Heijólfs en allt kaffi sem hef- ur verið veitt í stórmörkuðum í Reykjavík sl. 2 ár. Þannig var þetta á flestum póstum í hringferðinni, það var mikið um að vera þegar Þjóðvegur 72 fór í hringferð um landið, Þjóðvegur 72, en 40 mílurn- ar frá bryggju í bryggju milli Vest- mannaeyja og Þorlákshafnar gera 72 kílómetra. Grein og myndir: Árni Johnsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.