Morgunblaðið - 24.06.1992, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992
TENNIS / WIMBLEDONMOTIÐ
Reuter
Mlchael Chang gat ekki leynt von-
brigðum sínum í gær.
URSLIT
Tennis
Wimbledonmótið
Keppni hófst í fyrradag og stendur yfir í
tvær vikur.
Helstu úrslit mánudag:
Númer fyrir framan nöfn keppenda tákna
sæti á styrkleikalista mótsins.
Einliðaleikur karla, fyrsta umferð:
15- Alexander Volkov (SSR) vann Emilio
Sanchez (Spáni) 6-3 6-2 4-6 6-2
13- Brad Gilbert (Bandar.) vann Jean-
Philippe Fleurian (Frakkl.) 6-2 6-3 6-2
8- Goran Ivanisevic (Króatíu) vann Lars
Koslowski (Þýskal.) 6-2 6-2 6-3
3- Michael Stich (Þýskal.) vann Stefano
Pescosolido (ftalíu) 6-3 6-3 6-2
2-Stefan Edberg (Svíþjóð) vann Steve Bry-
an (Bandar.) 6-1 6-3 6-0
1-Jim Courier (Bandar.) vann Markus Zo-
ecke (Þýskal.) 6-2 6-2 6-3
Nicklas Kulti (Svíþjóð) vann German Lopez
(Spáni) 6-0 6-0 6-1
Patrick McEnroe (Bándar.) vann Francisco
Montana (Bandar.) 6-4 6-1 6-1
5- Pete Sampras (Bandar.) vann Andrei
Cherkasov (SSR) 6-1 6-3 6-3
10-Ivan Lendl (Tékkósl.) vann Patrik Ku-
hnen (Þýskal.) 6-1 7-6 (8-6) 7-6 (7-5)
6- Petr Korda (Tékkósl.) vann Christian
Beigstrom (Svíþjóð) 7-5 7-6 (7-4) 6-4
Luis Herrera (Mexico) vann Jimmy Connors
(Bandar.) 6-2 1-6 7-5 6-3
14- Wayne Ferreira (S-Afr.) vann John Fitz-
gerald (Ástral.) 6-2 6-2 6-7 (2-7) 7-5
4- Boris Becker (Þýskal.) vann Omar Camp-
orese (Ítalíu) 7-5 6-3 7-5
Einliðaleikur kvenna, fyrsta umferð:
10- Anke Huber (Þýskal.) vann Linda Ferr-
ando (ftalfu) 6-4 6-4
12- Katerina Maleeva (Búlgaríu) vann Co-
lette Hall (Bretl.) 6-2 6-2
5- Arantxa Sanchez Vicario (Spáni) vann
Leila Meski (Georgíu) 6-3 7-6 (7-3)
14- Nathalie Tauziat (Frakkl.) vann Brendu
Schultz (Hollandi) 6-4 6-0
1- Monica Seles (Júgósl.) vann Jenny Byrne
(Ástral.) 6-2 6-2
Helstu úrslit þriðjudag:
Einliðaleikur karla, fyrsta umferð:
John McEnroe (Bandar.) vann Luiz Matt-
ar (Brasiiiu) 5-7 6-1 6-3 6-3
11- Richard Krajicek (Hollandi) vann John-
Laffnie De Jager (S-Afr.) 7-5 6-1 6-2
Henri Leconte (Frakkl.) vann Roberto Azar
(Argentínu) 6-3 6-0 6-3
Jeremy Bates (Bretl.) vann 7- Michael
Chang (Bandar.) 6-4 6-3 6-3
16- David Wheaton (Bandar.) vann Franc-
isco Clavet (Spáni) 6-3 6-3 6-3
9- Guy Forget (Frakki.) vann Alexander
Mronz (Þýskal.) 6-3 3-6 7-5 7-6 (7-5)
Pat Cash (Ástral.) vann Jacco Eltingh
(Holl.) 6-4 6-4 7-6 (7-3)
Einliðaleikur kv., fyrsta umferð:
8-Conchita Martinez (Spáni) vann Mary Lou
Daniels (Bandar.) 6-1 6-0
13- Zina Garrison (Bandar.) vann Federica
Bonsignori (ftalíu) 6-0 6-1
7- Mary Joe Femandez (Bandar.) vann
Sarah Bentley (Bretl.) 6-1 6-0
2- Steffi Graf (Þýskal.) vann Noelle van
Lottum (Frakkl.) 6-1 6-0
6- Jennifer Capriati (Bandar.) vann Chanda
Rubin (Bandar.) 6-0 7-5
15- Kimiko Date (Japan) vann Caroline
Kuhlman (Bandar.) 7-6 (7-2) 6-2
11-Jana Novotna (Tékkósl.) vann Dom-
inique Monami (Belgíu) 6-1 6-2
3- Gabrielmaa Sabatini (Argentínu) vann
Christelle Fauche (Sviss) 6-1 6-1
4- Martina Navratilova (Bandar.) vann
Magdalena Maleeva (Búlgaríu) 6-2 6-2
Natalia Zvereva (SSR) vann Nathalie
Herreman (Frakkl.) 6-3 6-2
NAMSKEIÐ
Litli íþróttaskólinn
að Laugarvatni
Litli íþróttaskólinn að Laugarvatni verður
starfræktur í sumar. Tvö námskeið eru eft-
ir, en þau eru fyrir krakka á aldrinum 9-14
ára. Fyrra námskeiðið er 4.-10. júlí og það
síðara 11.-17 júlf. Upplýsingar í síma
98-61151.
Chang tapadi fyrir
Bretanum Bates
WIMBLEDON mótið ítennis,
hið 106. í röðinni, hófst í Lond-
on á mánudaginn. Helst bar til
tíðinda í gær að Bandaríkja-
maðurinn Michael Changtap-
aði fyrir Bretanum Jeremy Bat-
es, sem er númer 113 á heims-
listanum. Chang er af móts-
höldurum talinn sjöundi sterk-
asti tennisleikarinn í karlaflokki
á mótinu, og því komu úrslitin
í leiknum á móti Bates talsvert
á óvart.
Bates sigraði Chang með þremur
hrinum gegn engri, 6-4 6-3
6-3. Þrátt fyrir að Bates sé efstur
á lista breska tennissambandsins,
er hann einungis númer 113 á
heimslistanum. Hann hefur aldrei
náð lengra en í þriðju umferð í ein-
liðaleik á Wimbledon, en sigraði í
tvenndarleik á mótinu árið 1987.
Chang situr aftur á móti í sjöunda
sæti heimslistans. Hann hefur ekki
náð sér á strik á stórmótum síðan
hann sigraði á Opna franska meist-
aramótinu fyrir þremur árum, þá
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaöið/Árni Sæberg
1.400 mörk í 330 leikjum
Þýski handknattleiksmaðurinn Frank Wahl náði þeim áfanga á Selfossi um
helgina, þegar hann lék 330. landsleik sinn, að gera 1.400. landsliðsmark sitt.
Fyrir það var hann sérstaklega heiðraður og afhenti Bjami Ólafsson, fulltrúi
Jötuns, honum verðlaunin, en á mílli þeirra er Christine Braun, starfsmaður
þúska sendiráðsins.
einungis 17 ára gamall.
Aðrir kappar eins og Stefan Ed-
berg, Boris Becker, Jim Courier og
Michael Stich, sigruðu sína and-
stæðinga í fyrstu umferð nokkuð
auðveldlega. í kvennaflokki hafa
efstu konurnar farið nokkuð auð-
veldlega í gegnum fyrstu umferð-
ina.
í annarri umferð mætast m.a.
John McEnroe og Pat Cash frá
Ástralíu. Cash er númer 191 á
styrkleikalistanum, en hann sigraði
í keppninni 1987.
FIMLEIKAR
Fleiri mót
ÆT
Arsþing Fimleikasambands íslands
fór fram á dögunum. Þær breyt-
ingar voru gerðar á lögum FSÍ að
næsta þing verður haldið eftir tvö ár.
Einnig voru gerðar breytingar á móta-
skrá FSÍ og bætt við fimm nýjum
mótum. Öll stjóm FSÍ var einróma
endurkjörin til næstu tveggja ára;
einnig allar starfsnefndir. Stjóm FSI
skipa: Margrét Bjamadóttir, formað-
ur, Guðmundur Haraldsson, varafor-
maður, Elsa Jónsdóttir, gjaldkeri,
Heimir J. Gunnarsson, Bima Bjöms-
dóttir, Erla Lúðvíksdóttir og Gyða
Kristmannsdóttir.
Rekstur sambandsins gekk vel á
liðnu starfsári. Heildarveltan var tæp-
ar 17 milljónir króna en skuldastaða
um 3,9 milljónir. Nettó skuld 1,1 millj-
ón. Rekstrarhagnaður ársins var um
350 þúsund.
Reiknað er með að á næsta ári
komi hingað til lands um 800 manns
á mót, ráðstefnur og námskeið á veg-
um FSÍ og Norræna fimleikasam-
bandsins.
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
faóm
FOLK
■ WIMBLEDONMÓTIÐ í tennis
er einn af stærstu íþróttaviðburðum
í Bretlandi ár hvert. Fyrst var sjón-
varpað frá mótinu árið 1937 og
fylgdust íbúar 2.000
heimila í Bretlandi
með útsendingum.
Að þessu sinni er
áætlað að 350 millj-
ónir í 85 löndum fylgist með keppn-
inni í sjónvarpi.
■ VERÐLA UNAFÉÐ hefur
hækkað um 10% frá síðasta ári og
er um hálfur milljarður ÍSK. Sigur-
vegarinn í karlaflokki fær um 27
milljónir ÍSK og sá, sem hafnar í
öðru sæti fær um 13,5 milljónir.
Sigurvegari í einliðaleik kvenna fær
liðlega 24 milljónir en stúlkan í
öðru sæti helmingi minna.
■ AÐAL VÖLL URINN tekur
13.000 áhorfendur í sæti.
H ALDREI hefur rignt meira á
Wimbledonmótinu í tennis en árið
1958, en 1975 kom ekki dropi úr
lofti og hefur það ekki gerst síðan.
Sólríkast var árið 1970, en heitast
árið 1976.
■ KEPPNIN stendur yfir í hálfan
mánuð og verða liðlega 32.000 bolt-
ar notaðir við æfingar og keppni.
Keppendur fá nýja bolta eftir hverja
níu leiki.
■ MARTINA Navratilova, sem
er 35 ára, segir að hún hafi sjaldan
komið eins vel undirbúin til leiks
og hafi sett sér eitt takmark: Að
sanna að margir hefðu rangt fyrir
sér. Hún hefur níu sinnum sigrað
á Wimbledon og blæs á þá, sem
segja að hún eigi ekki lengur mögu-
leika á sigri.
■ JOHN McEnroe, sem er 33
ára, tekur í sama streng, en á öðr-
um nótum. „í mér er lítill púki, sem
segir að ég geti enn sigrað, en
sennilega er það háð því að nokkrir
fótbrotni og aðrir verði fyrir eld-
ingu.“
SKOTFIMI
Lygin ríður ekki við einteyming
eftir Carl J.
Eiríksson
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi bréf frá Carli J. Eiríks-
syni:
Vegna blaðaskrifa undanfarið
um hugsanlega þátttöku íslands
á ÓL í skotfimi tel ég rétt að
skýra lesendum nánar frá aðdrag-
anda þessa máls:
Vorið 1988 reyndi þáverandi
stjóm Skotfélags Reykjavíkur
undir formennsku Árna Þórs
Helgasonar að senda mig á ÓL í
Seoul í riffílskotfimi. Þá kannaði
hún möguleikana hjá Skotsam-
bandi íslands og hjá Ólympíu-
nefnd íslands sem tók málið til
athugunar. Þá sendi Þorsteinn
Ásgeirsson, formaður Skotsam-
bands íslands, fyrirspum til al-
þjóðasambandsins um það hvort
hægt væri að setja met innan-
húss. Svarið var á þá leið að ekki
væri hægt að setja heimsmet í
viðkomandi grein á innanhúss-
braut. Þorsteinn sendi svarið til
Ólympíunefndar íslands og síðan
ógilti hann allan besta riffílárang-
ur er ég hafði náð og var yfír
alþjóðalágmarkinu og sem ég
hafði náð á einu löglegu riffíl-
brautinni hérlendis, Baldurshaga.
Ég var ekki sendur til Seoul.
Metaskrá fjarlægð, týnd en
er þo til
Þorsteinn fjarlægði eða lét fjar-
lægja íslandsmetaskrá Skotsam-
bands ' íslands úr opinberri
skýrslumöppu Skotþings 1987, en
mappan er í vörslu ÍSÍ. íslands-
met mín, sem þar voru rétt skráð,
eru nú ekki viðurkennd lengur
þótt ijett hafí verið á íslandsmót-
um sambandsins. Hvergi stendur
þó í alþjóðareglum að mót í þess-
ari grein skuli fara fram utanhúss.
Hvað yrði sagt ef Sundsam-
band íslands tæki upp á því að
ógilda allan þann góða árangur
sem náðst hefur í innilaugum?
Nokkur íslandsmet mín sett á
opnum erlendum mótum, jafnvel
á Norðurlandamóti, fást heldur
ekki viðurkennd. Flokkaárangur
minn samkvæmt reglum Skot-
sambands íslands fæst ekki viður-
kenndur. Fjöldi ósanninda mér til
hnekkis sem Skotsambandið hef-
ur borið í fjölmiðla hefur aldrei
verið leiðréttur. Fjölmörg ósann-
indi og hludrægar athugasemdir
mér til hnekkis sem Skotsam-
bandið hefur sett í ársskýrslur
sínar til ÍSÍ og aðrar ritaðar heim-
ildir hafa aldrei verið leiðréttar.
Lygin ríður ekki við einteyming.
Tillaga formanns STÍ um
nærri heimsmet sem lágmark
tilÓL!
Ólympíunefnd íslands er í raun
tvær nefndir, sú stóra og sú
minni. I þeirri stóru eiga sæti for-
menn allra sérsambanda innan
ISI, þar með Þorsteinn Ásgeirs-
son. Snemma árs 1991 eða fyrr
gaf Þorsteinn upp töluna 596 stig
sem lágmark til þátttöku á ÓL í
Barcelona. Sú tala var fjarstæða
og var nánast trygging þess að
ég ætti enga möguleika til að
komast á ÖL í Barcelona. Það
vissi Þorsteinn. Lágmarkið varð
að nást á tímabilinu apríl-júlí á
Ólympíuári til að vera gilt. Á síð-
asta heimsmeistaramóti í Enskri
keppni voru 73 þátttakendur. All-
ir nema 4 þeirra fengu þar minna
en 596 stig í 60 skotum.
Viðmiðunarnefnd Ólympíu-
nefndar, sem í fyrstu lagði
trúnað á orð Þorsteins og gaf
út töluna 596, komst hins vegar
að hinu sanna um ósannindi
Þorsteins sl. haust og lækkaði
töluna í 593 stig. Ég náði síðan
594 stigum á opnu erlendu
móti 6. júní sl. Alþjóðalágmark-
ið er hinsvegar aðeins 590 stig.
Með bréfi 11. október 1991
bauð alþjóðasambandið Skotsam-
bandi íslands að sækja um sæti
fyrir íslenskan skotmann á ÓL i
Barcelona. Umsóknarfrestur rann
út 25. nóvember 1991. Þessu boði
var ekki sinnt þótt það hefði að-
eins kostað Skotsamband íslands
að skrifa eitt bréf. Slík umsókn
hefði þó ekki sakað þótt svo hefði
farið að enginn hefði náð lág-
marki.
Blekkingar formanns STÍ
Þorsteinn segir í Mbl. 17. þ.m.
að margvíslegur árangur minn
1991 hafí ekki gefíð tilefni til að
sækja um sæti fyrir ísland. Þetta
veit hann að er rangt, því ég náði
570 stigum í 58 skotum 1989,
586 stigum bæði 1989 og 1991
og 588 stigum 1990 á heimsbikar-
mótum við slæmar veðuraðstæð-
ur, og 596 stigum á íslandsmeist-
aramóti Skotsambandsins í nóv.
1990. Þetta allt kemur fram í
skýrslum til Þorsteins. í þessari
grein er algengt að árangur bestu
manna sé til skiptis 5 til 10 stigum
hærri eða lægri og mörg heims-
bikarmót átti eftir að halda vorið
1992. Árangur fer auk þess mjög
eftir veðri.
Nú í vor sendi UMFA fyrir-
spurn til Ólympíunefndar íslands
um hugsanlegan ferðastyrk fyrir
mig til að fara á 2 heimsbikarmót
auk nokkurra móta í Danmörku
sem talin voru upp. Svar nefndar-
innar var á þá leið að umsóknin
yrði að berast gegngum Skotsam-
band Íslands, því það væri hin
formlega rétta leið. UMFA sendi
þá beiðni til Skotsambandsins um
að senda umsókn um ferðastyrk
til Ólympíunefndar. Skotsam-
bandið synjaði því, þótt það hefði
aðeins kostaði að skrifa eitt bréf.
Yfirlýsing formannsins
Þessi framkoma Þorsteins verð-
ur skiljanleg þegar höfð er í huga
yfirlýsing sem hann gaf 3. októ-
ber 1991. Hún var á þá leið að
hann ætlaði ekki að hætta í skot-
sambandinu fyrr en ég væri dauð-
ur og að ég fengi aldrei ferða-
styrk á meðan hann væri þar.
Kenýa og Simbabve
Til að uppfylla lágmarksskilyrði
Ólympíunefndar íslands um 593
stig á tímabilinu apríl-júlí 1992
fór ég í keppnisferð til Danmerkur
og náði 594 stigum sem áður seg-
ir, en alþjóðlega lágmarkið er
aðeins 590 stig. Ég vissi að bæði
Kenýa og Simbabve höfðu fengið
undanþágu og höfðu sent skyttur
til Seoul á OL 1988 í skotfími
þótt þessi lönd hefðu engan mann
sem náð hafði alþjóðlegu lág-
markinu fyrir þá leika. Líklegt
væri að ísland gæti einnig feng-
ið slíka undanþágu eftir að lág-
mark Ólympíunefndar íslands
náðist innan réttra tímamarka,
og er það von mín að það takist.
Höfundur er skotmaður.