Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 Með Verslunar- ráðið á heilanum eftir Vilhjálm Egilsson Stjómarmaður í Félagi ísl. stór- kaupmanna ritaði grein í Morgun- blaðið 1. júlí sl. og lýsti þar mik- illi vandlætingu á aðgerðum Verslunarráðsins gegn sölu toll- skýrslueyðublaða og einnig komu fram miklar áhyggjur af andlegri velferð undirritaðs. Grein þessi bar því miður með sér að Verslunarráð- ið, störf þess, stjórnarmenn og starfsfólk eru enn helsta viðfangs- efni stjórnar Félags ísl. stórkaup- manna. Velunnarar beggja félaganna, Verslunarráðs og Félags ísl. stór- kaupmanna, bundu miklar vonir við að stjórn FÍS fengi ráðrúm til að vinna að framfaramálum versl- unarinnar eftir að hafa losnað frá sameiginlegum skrifstofurekstri með Verslunarráðinu. Þessir vel- unnarar vildu að bæði félögin gætu unnið að framgangi hags- munamála sinna félagsaðila í friði ön því miður virðist stjórn FÍS enn líta á Verslunarráðið sem þann aðila sem helst þarf að heija á. Verslunarráðið hefur hins vegar haldið sínu striki og unnið að fram- förum í íslensku viðskiptalífi með enn meiri krafti en fyrr. Verslunar- ráðið vill ekkert skipta sér af störf- um stjómar FIS og vonar að félag- ið megi eflast og dafna. Raunverulegar lausnir á raunverulegum vandamálum Skattar, ríkisútgjöld og sam- skipti atvinnulífsins við ríkisvaldið hafa löngum verið eitt helsta við- fangsefni samtaka í atvinnulífinu. Verslunarráðið hefur lagt áherslu á að starfsumhverfið í víðasta skilningi sem ríkisvaldið býr at- vinnulífinu sé samkeppnistæki þjóðarinnar. Því þarf að haga sköttum, ríkisútgjöldum, löggjöf og starfsháttum stjórnsýsluaðila með þeim hætti að atvinnulífið fái tækifæri til þess að vaxa og dafna. Verslunarráðið hefur lagt áherslu á ábyrgan málflutning og fagleg vinnubrögð og reynt að efla skiln- ing hjá stjórnvöldum um að þau verði að vinna með atvinnulífinu til þess að þjóðin í heild nái árangri. Ónnur samtök í atvinnulífínu hafa viljað vinna á öðrum nótum og fyrrnefnd grein stjórnarmanns í Félagi ísl. stórkaupmanna endur- speglar þau viðhorf. Þar hefur gilt að vera á móti öllum sköttum og ennfremur öllum aðgerðum til sparnaðar hjá ríkinu. Að sjálfsögðu er hallinn á ríkissjóði líka gagn- rýndur og óhófleg ásókn ríkisins í lánsfé. Málflutningurinn er eins og hjá kórnum þar sem hver söngmað- ur um sig syngur sinn eina hreina tón en samhljóminn vantar. Kannski er kórinn að syngja mörg lög samtímis. Það hlustar enginn á slíkan kór og það tekur enginn mark á samtökum atvinnulífsins og þau skila engum árangri nema að þau séu tilbúin til þess að leita raunverulegra lausna á raunveru- legum vandamálum. Þjónustugjöld eiga ekki að vera skattheimta Um allan heim hefur verið sú þróun að opinberir aðilar hafa auk- ið innheimtu hvers kyns þjónustu- gjalda í starfsemi sinni. Þetta er gert til þess að auka kostnaðarvit- und notenda og vinna gegn ofnotk- un á þjónustu og sóun verðmæta. Þessi viðleitni hefur verið hér á landi um nokkurra ára skeið. Vilji menn sporna gegn þessari þróun verður að benda á hvað eigi að gera í staðinn, hækka hvaða skatta, skera hvaða útgjöld niður eða slá hvaða lán. Verslunarráðið og flest önnur samtök í atvinnulíf- inu bæði hérlendis sem erlendis hafa stutt þessa þróun hér á landi sem annars staðar og talið eðlilegt að ganga eins langt og nokkur sanngirni er í að tengja saman greiðslur og notkun á þjónustu. Gjaldtaka fyrir tollskýrslueyðu- blöð er ekki baráttumál Verslunar- ráðsins en í sjálfu sér er hægt að skilja að engum er í hag að á hvetju ári séu prentuð mun fleiri eyðublöð en notuð eru eins og tíðkaðist meðan þau voru afhent ókeypis. Vilhjálmur Egilsson „Verslunarráðið vonar að stjórnarmenn í FÍS fari nú að hugsa um framfaramál verslun- arinnar í stað þess að vera með Verslunar- ráðið á heilanum með sama hætti og einkennt hefur störf þeirra að undanförnu.“ Slíkt þykir hvergi góður rekstur. Fjármálaráðuneytið fór hins vegar þá leið að gera tollskýrslueyðublöð að skattstofni sem var afleit að- gerð og stenst ekki. Þess vegna lét Verslunarráð prenta eigin toll- skýrslueyðublöð og íjármálaráðu- neytið hefur gefið í skyn að þau muni verða tekin gild eftir næstu áramót. Verslunarráðið fékk al- mennan stuðning hjá innflytjend- um við aðgerðir sínar í málinu og aðeins virðist vera óánægja með þær hjá stjóm FÍS þar sem allir hinir hreinu tónar eru sungnir án þess að nokkur maður hlusti. Verslunarráðið vinnur að framfaramálum verslunarinnar Verslunarráðið er líka á fleygi- ferð í öðrum framfaramálum inn- flytjenda. Má þar sérstaklega nefna sameiginlega vinnu með tol- lyfirvöldum og öðrum aðilum sem miðar að því að lækka kostnað við milliríkjaviðskipti með því að taka upp pappírslaus viðskipti með bein- um tölvusamskiptum. Nú nýlega hóf t.d. stór innflytjandi tölvuskil á tollskýrslum sem á eftir að spara honum mikinn kostnað. Þeir sem stunda innflutning eða útflutning á íslandi munu í framtíðinni þurfa að taka upp pappírslaus viðskipti til þess að verða samkeppnisfærir. Hér hefur Verslunarráðið sérstak- lega látið til sín taka og nauðsyn- legt er að fyrirtæki úr hinum ólíku atvinnugreinum vinni vel saman til þess að árangur náist. Á þessu sviði dugar ekki fyrir eina atvinnu- grein að neita að vinna með öðrum. Verslunarráðið vonar að stjórn- armenn í FÍS fari nú að hugsa um framfaramál verslunarinnar í stað þess að vera með Verslunarráðið á heilanum með sama hætti og einkennt hefur störf þeirra að undanförnu. Höfundur er hagfræðingur, framkvæmdastjóri Verslunarráðs og alþingismaður. NORRÆNT GIGTARAR 1992: Sjögrenssjúkdómur eftirJúIíus Valsson Sjögrenssjúkdómur er kenndur við sænska augnlækninn Henrik Sjögren sem fæddist árið 1899. Hann tók eftir því að margir sjúkl- ingar með iktsýki (langvinna liða- gigt) og skylda sjúkdóma þjáðust af augn- og munnþurrki. Sjögrens- sjúkdómur er ekki sjúkdómur í venjulegum skilningi heldur svo- kallað „heilkenni" (syndrom), þ.e. samsafn sjúklegra einkenna sem geta átt sér fleiri en eina orsök. Hér er um að ræða einn af hinum svokölluðu sjálfsofnæmissjúkdóm- um. Sjúklegar breytingar koma fram í kirtlum líkamans en geta einnig komið fram í öðrum líffær- um, t.d. í lungum og nýrum. Sjúk- dómurinn getur lagst á hvaða útk- irtil líkamans sem er og kemur annað hvort fram einn og sér eða í tengslum við annan gigtarsjúk- dóm svo sem iktsýki eða rauða úlfa. Þetta er einn af algengustu gigtarsjúkdómunum en eflaust er hann vangreindur. Um 90% sjúkl- inganna eru konur og kemur sjúk- dómurinn oftast fyrir hjá fólki um og yfír fímmtugt en þekkist einnig í yngri aldurshópum. Einkenni Algengasta einkennið er augn- þurrkur. Sjúklingurinn lýsir hon- um oftast sem sviða, ertingu, ljós- fælni, augnþreytu og óþægindum af reyk og ryki. Langvinnur augn- þurrkur getur leitt til skemmda á hornhimnu augans. Einkennin stafa af minnkaðri framleiðslu á táravökva f' tárakirtlunum. Hið sama gildir um munnvatnskirtl- ana. Minnkuð framleiðsla munn- vatns leiðir. til munnþurrks, sviða í munni, sáramyndunar, kynginga- rörðugleika og tannskemmda. Einnig truflast bragðskyn og sjúklingamir kvarta oft yfir óþæg- indum við að borða kryddaðan mat og vondu bragði og þeir sem eru með gervitennur kvarta um að þær séu lausar í munninum. Onnur einkenni sem fylgt geta sjúkdómnum eru stækkun á munnvatns- og tárakirtlum, þurrkur í nefi, erfiðleikar við að tyggja og kyngja, magabólgur, meltingartruflanir og niðurgang- ur. Konur kvarta oft um þurrk í leggöngum sem veldur þeim óþægindum við samfarir. Endur- teknar sveppasýkingar í leg- göngum eru einnig algengar. Sjaldgæfari einkenni eru vanstarf- semi skjaldkirtils og ófijósemi karla. Orsakir þessarra einkenna má rekja til minnkaðrar fram- leiðslu í munnvatns- og tárakirtl- um, slímmyndandi kirtlum í vél- inda, maga og víðar og kirtlum sem framleiða meltingarenzým o.fl. Þurr húð veldur oft húðkláða, sprungum í húð, roða, útbrotum Júlíus Valsson „Helstu einkenni Sjö- grenssjúkdóms eru augn- og munnþurrkur, stækkun á tára- og munnvatnskirtlum, þreyta, lið- og vöðva- verkir, þurr hósti, dofi í höndum og fótum, húðútbrot og hiti. Kon- ur kvarta oft um þurrk í leggöngum sem veld- ur þeim óþægindum við, samfarir.“ og ertingu. Sjúkdómnum fylgja oft einkenni sem ekki eru beint vegna minnk- aðrar framleiðslu í kirtlum, eins og t.d. þreyta, aukin svefnþörf, liðverkir og liðbólgur, vöðvaverkir, þurr hósti, dofatilfinning í höndum og fótum og blóðrásartruflanir. Trufluð nýma- og lifrarstarfsemi getur og fylgt sjúkdómnum. Greining Sjögrenssjúkdóm er hægt að greina með viðtali og læknisskoð- un þar sem sjúklingurinn lýsir dæmigerðum einkennum. Mikil- vægt er að útiloka aðra gigtarsjúk- dóma og aðrar orsakir fyrir augn- og munnþurrk, t.d. aukaverkanir lyija. Hægt er að mæla tára- og munnvatnsrennsli og oft eru tekin vefjasýni úr munnvatnskirtlum til að leita að dæmigerðum vefja- breytingum. Hægt er að greina skemmdir á hornhimnu augans með sérstöku litarefni (Rose- Bengal). Meðferð Þar sem orsakir sjúkdómsins eru ekki þekktar fyrirfinnst ennþá engin sértæk meðferð. Meðferðin felst í því að minnka og halda ein- kennum sjúkdómsins í ske§um og bæta líðan sjúklingsins. Gigtar- læknirinn hefur í flestum tilfellum náið samstarf við augnlækni, háls-, nef- og eyrnalækni og tann- lækni varðandi meðferðina. Lyfíð bromhexin getur aukið tára- og munnvatnsframleiðsluna og það hefur einnig bætandi áhrif á þá sem þjást af langvinnum þurrum hósta. Mörgum sjúklingum er nauðsyn á að nota reglulega augn- dropa, munnskolvatn og gervi- munnvatn. Fylgjast þarf reglulega með tönnum sjúklingsins og oft þarf að beita lyfjum gegn sveppa- sýkingum. Halda þarf húðinni mjúkri með mýkjandi kremum og rakakremum. Ef um er að ræða mikil óþægindi frá liðamótum þarf oft að nota bólgueyðandi lyf. Sjald- an þarf að beita kröftugri lyfja- meðferð, t.d. með barksterum. Lokaorð Sjögrenssjúkdómur veldur oft langvinnum einkennum, miklum þjáningum og vanlíðan. Langvar- andi þreyta, augn- og munnþurrk- ur ásamt verkjum í vöðvum og liðamótum skerða oft starfsgetu sjúklingsins mikið. Með réttri greiningu og meðferð er þó tölu- vert hægt að lina þjáningar þeirra sem þjást af þessum sjúkdómi og flestir geta þrátt fyrir allt lifað tiltölulega eðlilegu lífí. Höfundur er sérfræðingur í gigtsjúkdómum ogstarfarhjá Tryggingastofnun ríkisins og á Grensásdeild Borgarspítala. Æ Laugardaginn 04.07.1992 Flokkur: F fP* 111 Vínningsupphæð: Fjöldi: Nr. 123208 Kr. 432.480,- 1 ' Nr. 2471 Kr. 43.248,- 2 'f Nr. 07 i Nr. 23 Nr. 28 Nr. 44 , > Kr. 521,- 415 í Lukkupotti núna eru 1.288.940 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.