Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 42

Morgunblaðið - 07.07.1992, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JULI 1992 16 500 ÞRIÐJUDAGS- TILBOÐ MIÐAVERÐ KR. 350 Á KRÓK, STRÁKANA í HVERFINU OG ÓÐ TIL HAFSINS. ÓÐURTIL HAFSINS Sýnd kl. 7.05 og 9.15. Bönnuð i. 14ára. BIJGSY STÓRMYND BARRYS LEVINSON WARREN REATTY, ANNETTE BENING, HARVEY KEITEL OG BEN KINGSLEY. IYNDIN, SEM VAR TILNEFND TIL 10 ÓSKARSVERÐLAUNA. ★ ★ *DV. ★ ★★★AI. MBL. ★ ★ ★BÍÓLÍNAN Sýnd kl. 5, 9 og 11.30. Bönnuð börnum i. 16 ára. STRÁKARNIR Í HVERFINU Sýnd kl. 11.35. Bönnuði. 16ára. Sýnd kl. 2.30, og 4.45. Miðav.kr. 350 kl. 2.30. BÖRN NÁTTÚRUNNAR Sýnd kl. 7.30 í A-sal. 12. sýnmán. Sprengidúettinn og fylgihnötturinn fyndni; Glover, Pesci og Gibson í Tveir á toppnum 3. Endingargóður efniviður Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Tveir á toppnum 3 („Le- athal Weapon 3“). Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri: Richard Donner. Fram- leiðendur: Donner og Jo- el Silver. Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glo- ver, Rene Russo, Joe Pesci. Endurvinnslan hf. í Hollywood, þar sem súper- framleiðandinn Joel Silver er forstjóri, hefur framleitt endingargott efni úr sög- unni um þá lögreglumenn Mel Gibson og Danny Glo- ver. Enginn virðist geta fengið nóg af þeim. Þriðja myndin þeirra hefur rokið upp metsölulistann vestra og víst er að hún á örugg- lega eftir að njóta vinsælda hér heima. Tveir á toppnum 3 með alla sína áherslu á hasarinn er skotheld framleiðsla til að skapa vinsældir og draga fólk í bíó í sumarfrí- inu og skiptir þá engu máli þótt fólk sé að sjá næstum sömu myndina í þriðja skiptið. Kenningin er sú að fólk vilji ganga að myndinni sinni vísri þeg- ar það eyðir pening í bíó. A því lifa framhaldsmynd- ir. Og hér gengur fólk að sínum mönnum vísum. Að- ur var lögð einhver lág- marksáhersla á persónu- sköpun (persóna Gibsons var haldin sjálfsmorðstil- hneigingu) en nú er eins og framleiðendurnir telji að þess þurfi ekki lengur. Við höfum svosem komið heim til þessara karla áð- ur. Gibson leikur Martin Riggs eins og Sóða-Harry á hormónalyfjum, aðeins hasarinn sjálfur jafnast á við æsinginn í honum, hann hreppir stelpuna og hleyp- ur uppi bíla bófanna eins og fyrr. Hann er alveg hættur að vera þessi bitri einfari sem hann var áður þegar honum var alveg sama hvort hann lifði eða dó. Nú er stanslaust fjör. Félagi hans, Murtaugh, sem Glover leikur, segir okkur enn einu sinni að hann sé orðinn of gamall fyrir þennan hasar allan og heldur uppi merki skyn- semi og varfærni í dúettn- um enda á hann aðeins sex dögum ólokið í vinnunni, en fær eins og áður við lít- ið ráðið. í þetta sinn eiga félag- arnir í baráttu við vopna- sala og samviskulausan morðingja þeirra, sem leik- inn er ágætlega af breska leikaranum Stuart Wilson (skrýtið hvernig Bretar verða alltaf verstu illmenn- in í þessum nýju hasar- myndum). Það er fyrrum lögreglumaður sem beygt hefur inná veginn breiða og stundar nú afar vafa- söm viðskipti. En sú saga er í sjálfu sér aðeins notuð til að hengja á hana hasaratriði eins og skraut á gervijóla- tré. Einu sinni höfðu löggu- myndirnar einhver mark- mið umfram það að filma skemmtilega bílaeltinga- leiki. Mér dettur Franska sambandið með Gene Hackman í hug. TÁT3 er einn hraðsoðinn hasar út í gegn á gersamlega alvöru- lausum, gamansömum og léttum nótum sumars- mellsins, full af teikni- myndaofbeldi, bílaeltingar- leikjum, skotbardögum, sprengingum og eldsvoðum undir hröðum frásagnar- hætti og áhrifaríkri leik- stjórn Richard Donners. í nokkurs konar inngangi að myndinni er stórgott atriði þar sem þeir félagarnir leggja margra hæða skrif- stofubyggingu við jörðu (Joel Silver fékk að eyði- leggja bygginguna sem til- búin var til niðurrifs) og það gefur strax tóninn um alvöruleysið sem fylgir. Við erum í sumarlandinu þar sem hasarblöðin verða að lifandi myndum. í TÁT3 fá Gibson og Glover leikkonuna Rene Russo til liðs við sig en hún fer með hlutverk karate- meistara úr Siðanefnd lög- reglunnar, sem vekur sér- staka aðdáun Gibsons þar sem hún fer eins og muln- ingsvél í gegnum þrjótana. Og Joe Pesci endurtekur á frábærlega skoplegan hátt rulluna sem hann hafði í mynd númer tvö þegar hann var óþolandi fylgi- hnöttur dúettsins. TÁT3 gerir ekkert nýtt fyrir seríuna en nær þeim ein'a tilgangi sínum að halda stuðinu uppi í tvo tíma. Hún hefur réttu stjömurnar og mörg góð áhættuatriði enda lista- menn í faginu sem standa að baki, húmor og hraða og hasar og svo er hægt að senda hana aftur í End- urvinnsluna hf. STÆRSTA BIOIÐ ÞAR SEM ALLIR SALIR ERU FYRSTA i_] flokks ____________HÁSKOLABÍO SÍMI22140 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ MIÐAVERÐ KR. 300,- Á ALLAR MYNDIR NEMA VERÖLD WAYNES. GRÍNMYND SUMARSINS VERÖLDWAYNES FYNDNASTA MYNDIN I BANDA- RÍKJUNUM MYNDIN SLÓ í GEGN í BRETLANDI FYRIR SKÖMMU ★ ★ ★ ★TVÍMÆLA- LAUST GAMAN- MYND SUMARSINS SAMFELLDUR BRANDARI FRÁ UPPHAFI TIL ENDA. STÓRGRÍNMYND SEM Á ENGASÉR LÍKA. Sýndkl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.10. Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá keppninni á rallýkrossbrautinni við Krýsuvíkurveg á sunnudag. Hörð keppni í rallýkrossinu Rallýkrosskeppni var haldin á keppnisbrautinni við Krýsuvíkurveg á sunnudag. 68 keppendur mættu til leiks, þeirra á meðal tveir gestaöku- menn, þingmennirnir Ingi Björn Albertsson og Árni Johnsen, sem náðu 3. og 4. sæti í teppakrossflokkn- um. Hörð keppni var í rallý- krossflokknum, þar sem eina konan í keppninni náði að sigra karlana. I krónukeppn- inni var einnig barist af hörku og ultu nokkrir bílar, en Sigurður Sigurðsson sigr- aði. Úrslit urðu sem hér segir: Krónukross: 1. Sigurður Sigurðsson, Toyota. 3:42. 2. Högni Gunnarsson, Dats- un. 3:50. 3. Hallðór Bárðarson. Capri. 3:56. Rallýkross: 1. Kristín Birna Garðars- dóttir. Porsche. 3:44. 2. Ármann Guðmundsson. Escort. 3:45. 3. Páll H. Halldórsson. BMW. 3:49. Teppakross: 1. Einar Gíslason. Firebird. 3:38. 2. Amar Hrafnsson. Nova. 3:50. 3. Ingi Björn Albertsson. Cadillac. 4:01. 4. Árni Johnsen. Fairmont. 4:06. Opinn flokkur: 1. Guðni Guðnason. Buggy. 5:53. 2. Valur Vífilsson. Doddi. 6:46. 3. Valur Arnarson. Lada. 7:00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.