Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JUU 1992 43 —WKZ’tTTm'wr*-- FRUMSÝNIR ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR SÝNINGAR NÆSTUM OLETT Eldfjörug gamanmynd um vandræði hjóna sem langar að eignast barn. Aðalhlutverk: Tanya Roberts (A view to a Kill), Jeff Conaway (Petes Dragon), Dom deLuise. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. - Bönnuð innan 14 ára. TOFRALÆKNIRINN Stórbrotin mynd um mann, sem finpur lyf við krabba meini. Stórkostlegur leikur Sean Connery gerir þessa mynd ógleymanlega. Sýnd kl. 5,7,9og11. VÍGHÖFÐI Stórmynd með Robert De Niro og Nick Nolte. ★ **'/. MBL. **★* DV Sýnd kl. 5 og 9. MITT EIGIÐIDAHO Frábær verðlaunamynd með úrvalsleikurum. *** Mbl. Sýnd kl. 7.05 og11. Bönnuð innan 16 ára. / (Sumir sjá hana tvisvar). Miðasalan opnuð kl. 4.30 Miðaverð kr. 500. Sýnd kl. 5,9 og 11.30. Stranglega bönnuð innan 16ára. HOMOFABER 31. sýningavika. Ekki láta þessa einstöku mynd framhjá þérfara. Sýnd kl. 5,7,9 og 11 **** SV MBL. **** PRESSAN * * * BÍÓLÍNAN Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuðinnan14. FREEJACK Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuðinnan16. LETTLYNDAROSA Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. RECNBOGINN SÍMI: 19000 Morgunblaðið/Arnór. íslensku Norðurlandameistararnir við komuna til Keflavíkur á laugardag. Frá vinstri eru Karl Sigurhjartarson, Sævar Þorbjörnsson, Sverrir Armannsson, Matthías Þorvaldsson með dóttur sína Hrafnhildi Ýr, og Björn Eysteinsson. Norðurlandatitillinn gat ekki komið á betri tíma - segir Helgi Jóhannsson forseti Bridssambands íslands __________Brids____________ GuðmundurSv. Hermannsson ÍSLENSKU Norðurlandameist- urunum var vel fagnað þegar þeir komu til íslands á laugar- dag. Á þriðja tug bridsáhuga- manna safnaðist saman í Leifs- stöð og fulltrúar Bridgssam- bands íslands afhentu öllum íslensku þátttakendunum á Norðurlandamótinu blómvendi. „Þessi Norðurlandatitill gat ekki komið á betri tíma. Hann sannaði að heimsmeistaratitill ís- lendinga í fyrra var engin tilviljun heldur er bridsíþróttin á mjög háu stigi á íslandi um þessar mundir og breiddin nánast ótrúleg," ságði Helgi Jóhannsson forseti Brids- sambands íslands. Hann sagðist hafa hafa rætt við Jose Damiani forseta Bridssambands Evrópu um helgina sem hefði sagt að með þessum sigri hefði ísland tryggt sér sess meðal sterkustu brids- þjóða Evrópu. Þetta er annar Norðurlanda- meistaratitillinn sem Karl Sigur- hjartarson og Sævar Þorbjörnsson vinna en þeir voru í sigurliðinu í Reykjavík 1988 og hafa margoft spilað í landsliðum íslands í brids. Þetta var hins vegar fyrsta skipti sem Matthías Þorvaldsson spilaði í opnu bridslandsliði en Sverrir Ármannsson hefur einu sinni spil- að áður í landsliði, á Norðurlanda- móti fyrir 12 árum. Björn Ey- steinsson fyrirliði liðsins var einn- ig fyrirliði heimsmeistaraliðsins í Yokohama í fyrra. Allir íslensku spilararnir í opna flokknum spiluðu af krafti og það kom aldrei fyrir að bæði pörin ættu slæman hálfleik í einu. Matt- hías Þorvaldsson og Sverrir Ár- mannsson fóru heldur hægar af stað en Karl Sigurhjartarson og Sævar Þorbjörnsson en í seinni hluta mótsins komust þeir Sverrir og Matthías í mikið stuð. Þá spil- aði Björn Eysteinsson fyrirliði einn hálfleik við Matthías gegn Finnum og það varð til þess að Matthías varð efstur í útreikningi þegar árangur allra spilaranna í mótinu var borinn saman í lokin. Þetta spil úr leik íslendinga og Finna sýnir vel hve íslensku spil- ararnir voru í góðu formi. Norður ♦ D93 ♦ ÁG94 ♦ G872 *G6 Vestur Austur ♦ Á82 ♦ G1074 ♦ K83 ♦ 1062 ♦ 1096 ♦ D4 ♦ K872 ♦ D1054 Suður ♦ K65 9 D75 ♦ ÁK53 *Á93 Við bæði borð spilaði suður 3 grönd og við annað borðið spilaði Sævar út hjarta frá kóngnum svo sagnhafi átti ekki í vandræðum með að fá 10 slagi. Við hitt borð- ið þurfti Sverrir að glíma við lau- fatvistinn sem útspil. Hann stakk upp gosa í borði og drap drottn- ingu austurs með ás; þar sem útspilið sýndi 4-lit virtist ekki vera þörf á að gefa laufið tvisvar. Sverrir spilaði næst hjarta- drottningu, vestur lagði kónginn á og blindur átti slaginn á ás. Þá spilaði Sverrir tígulsjöunni á kónginn og tók svo tígulás og henti áttunni í borði. Drottningin kom frá austri og þá gat Sverrir spilað tígli á gosa og tígultvistin- um heim á þristinn. Austur lienti tveimur laufum í tíglana og vestur einum spaða. Og nú hafði tígulíferðin ráðið úr- slitum í spilinu því Sverrir var staddur heima og gat spilað spaða á drottninguna í borði og síðan litlum spaða frá báðum höndum. Vestur varð að drepa á ás og Sverrir átti 9 slagi. Kvennaliðinu gekk ekki sem best á Norðurlandamótinu þrátt fyrir að þær sýndu á köflum ágætis tilþrif. Þannig fengu Esther Jak- obsdóttir og Hjördís Eyþórsdóttir báðar viðurkenningu frá móts- blaðinu fyrir góða spilamennsku, Esther fyrir að vinna 3 grönd skemmtilega og Hjördís fyrir þessa vörn gegn Svíum: Norður ♦ KD3 V G94 ♦ D6 ♦ Á8632 Vestur 4G104 9K7 ♦ 109742 ♦ G94 Suður ♦ Á92 ¥Á65 ♦ G853 ♦ D107 Norður opnaði á 1 laufi, Hjör- dís sagði 1 hjarta í austur og suður endaði síðan í 3 gröndum. Ljósbrá Baldursdóttir spilaði út hjartakóng sem sagnhafí drap á ás og spilaði litlu laufi. Ljósbrá fylgdi með níunni og sýndi með því þtjú lauf, og þegar sagnhafi stakk upp ás var Hjördís tilbúin með kónginn undir. Ljósbrá fékk því skömmu síðar á laufagosann og gat spilað hjarta í gegnum blindan og spilið fór þrjá niður. Hefði Hjördís ekki hent laufa- kóngnum undir ásinn gat sagn- hafi unnið spilið. Inni á laufkóng hefði Hjördís ekki mátt spila lvjarta, því þá ætti sagnhafi 9 slagi. Og þá hefði sagnhafi haft tíma til að brjóta sér tígulslag til viðbótar. Austur ♦ 8765 ♦ D10832 ♦ ÁK ♦ K5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.