Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPIIIIIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 29 Flug Stöðugt aukin þjónusta hjá Cathay Pacific Á HINNI 12 tíma löngu flugleið milli Hong Kong og London hef- ur Cathay Pacific-flugfélagið tekið upp nýja og mikið endurbætta þjónustu fyrir farþega á fyrsta farrými. Þjónustan hefst þegar á flug- vellinum þegar farþegar koma til skráningar. Sérstakar flugfreyjur, svonefndar First Ambassador- flugfreyjur, taka á móti sérhverj- um farþega og sjá um farangur hans og alla skráningu, vlsa hon- um til setustofu og veita alla um- beðna þjónustu. Um borð hefur þjónustan einnig tekið stakkaskiptum. Boðið er upp á að velja mat af 20 síðna mat- seðli og ennfremur er glæsilegur vínseðill. Að auki ræður farþeginn því hvenær hann fær matinn fram- reiddan og getur það verið hvenær sem er á fluginu. Auk aðalmatseð- ils er einnig boðið upp á smárétta- seðil, þannig að þjónustan minnir orðið á fyrsta flokks veitingahús. Öllum farþegum er einnig boðið upp á afþreyingu af eigin vali. í hveiju sæti hefur verið komið fyr- ir litlu sjónvarpstæki og heyrnar- tólum og getur hver farþegi valið á milli fjölda kvikmynda. Sætið sjálft er þannig úr garði gert að unnt er að rétta að fullu úr því og í raun breyta því þannig í rúm sem stillanlegt er á marga vegu, án þess að trufla aðra far- þega. Á mörgúm öðrum sviðum þjónustu hefur Cathay einnig gengið lengra en áður þekkist. Þróun og markaðssetning þess- arar nýju þjónustu hefur tekið flugfélagið 18 mánuði og kostað óhemjufé. Engu að síður telja for- svarsmenn félagsins að þeim pen- ingum sé vel varið enda sé þjónust- an í raun eina sviðið sem flugfélög geti raunverulega keppt á sín á milli. Fyrirtæki Digital endurskipu- //vatnabátar EVmRUDE E- utanborðsmótorar ÁRMÚLA 11 - BÍMI BB1BOO leggur í Evrópu DIGITAL Equipment, þriðja stærsta upplýsingatæknifyrirtæki heimsins á eftir IBM og Fujitsu, er um þessar mundir að endur- skipuleggja alla starfsemi sína í Evrópu með það að markmiði að bæta minnkandi sölu og versnandi afkomu. Breytingarnar, sem eiga að taka gildi 1. júlí, felast einkum í því að mynda eitt fyrirtæki í Evrópu í stað þess að hafa mörg sjálfstæð útibú. í stað þess að hverju útibúi eða svæði sé stjórnað sjálfstætt verður nýja fyrirtækinu skipt í deildir eftir iðnaðargreinum og þeim stjórnað að mestu sjálfstætt. Innan hverrar deildar, en þær eru til dæmis fjármálaþjónustudeild, framleiðsludeild og fjarskipta- deild, verður unnt að skipa aftur í hópa sem einbeita munu sér að einstökum fyrirtækjum eða sér- stökum verkefnum. Endurskipulagningin fækkar stjórnunarþrepum um eitt þannig að þau verða þijú alls. Enn sem fyrr verður yfirstjóm í hveiju landi fyrir sig en hlutverk hennar verður fyrst og fremst að sinna þjónustu við viðskiptavini og iðnaðardeild- irnar. Digital er heimsins stærsti framleiðandi smátölvukerfa fyrir viðskipta- og tæknigeirann, en sala þeira hefur dregist verulega saman á síðustu misserum þar sem í mörgum tilfellum er unnt að bjóða upp á sömu þjónustu með nettengingu smátölva fyrir mun lægra verð. Á síðustu misserum hefur félagið því verið rekið með tapi og síðastliðin tvö ár hefur starfsfólki verið fækkað verulega. Evrópa er mikilvægasti markaður Digital en yfir 50% tekna er aflað innan Evrópumark- aðarins. Fyrirtækinu gengur betur á Evrópumarkaði en í Bandaríkj- unum og er endurskipulagning einnig fyrirhuguð í Bandaríkjun- um. VÁKORTAIISTI Dags. 7.7.1992. NR. 90 5414 8300 3052 9100 5414 8300 0362 1116 5414 8300 2890 3101 5414 8300 2717 4118 5414 8300 2772 8103 5414 8301 0407 4207 5421 72** 5422 4129 7979 7650 5412 8309 0321 7355 5221 0010 9115 1423 Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. KREDITKORT HF. Ármúla28, ^ 108 Reykjavík, sími 685499 y Nýtt skipulag: Ingólfstom - Grófartiig - Sýning - Tillögur úr hugmyndasamkeppni um skipulag Ingólfstorgs og Grófartorgstil sýnis alla daga vikunnarfrá kl. 9-20 í Geysishúsi, Aðalstræti 2. Dómnefnd. Sama kaup- og sölugengi Ekkert innlausnargjald er á hlutdeildarskírteinum í sjóðum Fjárfestingarfélagsins Skandia. Kaup- og sölugengi er reiknað út daglega. Mismunur á kaup- og sölugengi getur yerið breytilegur. í tilefni af kaupum Skandia á Verðbréfamarkaði Fjárfestingar- félagsins hf., verður enginn munur á kaup- og sölugengi í júlímánuði á Kjarabréfum, Markbréfum og Tekjubréfum. Þess vegna er hagstætt að kaupa nú. Bréf sem eru keypt á kaupgengi eru ekki innleysanleg í 3 mánuði frá kaupdegi. s Avöxiun fyrir sl. 1 6 niánuði /. júlí er: < Kjarabréf 7,5% Markbréf 8,2% Tekjubréf 8,2% I Skyndibréf 6,0% 1 Skandia Til hagsbóta fyrir ísiendinga FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF. Hafnarstræti 7, sími (91) 619700, Kringlunni 8 - 12, sími (91)689700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.