Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 37
mannvænlegra barna. Af sama kraftinum og eljusem- inni sem einkenndi allt hennar líf og starf tókst hún á við sjúkdóminn erfiða. Hún gafst ekki upp, hún skyldi beijast. En hinir sterkustu verða stundum einnig að lúta í lægra haldi. Það veður tómlegra jiegar hópur- inn okkar frá ’68 kemur saman næst. Stórt skarð hefur myndast. Það verður ekki hlegið jafnhátt og mikið og áður. Erlu verður sárt saknað. Kæri Ármann, börn og litla ömmustelpan. Guð gefi ykkur styrk til að takast á við sorgina. Missir ykkar er mikill. En dýrmætar minn- ingar um góða eiginkonu, móður og ömmu lifa áfram og enginn fær minningarnar frá okkur teknar. Foreldrum Erlu sendum við einn- ig innilegar samúðarkveðjur. Við þökkum elsku Erlu samver- una. Hún gaf okkur mikið, og við erum ríkar af minningum um ánægjulegar stundir, góða skóla- systur og vinkonu. Kveðja frá skólasystrum. Ég vil með örfáum orðum fá að minnast Erlu G. Gestsdóttur og þakka fyrir að hafa fengið að kynn- ast henni bæði í leik og í starfi. Við kynntumst fyrir tæpum tuttugu árum þegar eiginmenn okkar störf- uðu saman í félagsskap í Hafnar- firði. Saman tókum við Erla að okkur eitt og annað fyrir þennan félags- skap eins og það að semja leik- þætti og gamanvísur sem við flutt- um tvær saman eða með fleirum. Var Erla þá jafnan einn aðalhug- myndasmiðurinn enda alltaf stutt í grínið hjá henni. Hún átti svo auð- velt með að sjá spaugilegu hliðarn- ar á öllum málum og kitla hlátur- taugarnar. Síðar áttum við eftir að starfa saman á leikskólum Hafnarfjarðar. Starfi sínu sinnti Erla af mikilli alúð og sem fyrr þá auðveldaði kímnigáfa hennar öll samskipti. Þannig gaf kæra Erla okkur sam- ferðamönnum gleði og ánægju sem við búum að alla ævi og er okkur svo ómetanleg. Fyrir hönd fjölskyldu minnar sendi ég þér, Ármann, börnum, tengdadóttur og dótturdóttur sem og öðrum aðstandendum, innileg- ustu samúðarkveðjur og bið algóð- an Guð að styrkja ykkur og styðja í sorginni. Oddfríður Steinþórsdóttir. Fleirí greinm- um Eríu Gests- dóttur bíða birtingar og munu birtast næstu daga Opið alla daga frá kl. 9-22. BLOM SEGJAALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. OpiÖ alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 37 + Hjartkær eiginmaður minn, faðir og afi, BALDVIN HARALDSSON múrari, Heiðarási 24, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum 4. júlí. Steina Guðrún Guðmundsdóttir, Tónpas Aldar Baldvinsson og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, BJÖRN MAGNÚSSON, Ásbraut 21, Kópavogi, andaðist á Grensásdeild Borgarspítal- ans laugardaginn 4. júlí. Jarðsett verður föstudaginn 10. júlí kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Matthildur Valdimarsdóttir, Valdimar Björnsson, Pétur Björnsson. Maðurinn minn og faðir okkar, SIGURÐUR HELGI SIGURLAUGSSON, lést sunnudaginn 5. júií í St. Jósefsspít- ala, Hafnarfirði. Útförin ferfram frá Bústaðakirkju mánu- daginn 13. júlí kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Karlotta Óskarsdóttir, Guðfinna Sigurðardóttir, Gunnlaugur Sigurðarson, Bergþóra Sigurðardóttir, Jóhann Haukur Sigurðarson, Herborg Sigriður Sigurðardóttir, Sigurður Jónas Sigurðarson. + STEFÁN ÞÓRÐARSON frá Fossi íVopnafirði, andaðist 4. júlí sl. Athöfninferfram í Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 11. júlíkl. 11. Jarðsett verður í Hofskirkjugarði. Aðstandendur. + JÓN GUÐMUNDSSON á Sölvabakka, andaðist 3. júlí sl. Jarðarförin fer fram frá Höskuldsstaðakirkju laugardaginn 11. júlí nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélag fslands. ✓ Aöstandendur. + Ástkær móðir okkar, INGIGERÐUR EINARSDÓTTIR, Langholtsvegi 206, andaðist sunnudaginn 5. júlí á hjartadeild Landspítalans. Börnin. + Ástkær dóttir okkar, systir og barna- barn, SVAVA SÓLBJÖRT ÁGÚSTSDÓTTIR, Háaleiti 15, Keflavík, sem lést í Svfþjóð þann 30. júní, verður jarðsungin frá Keflavikurkirkju fimmtu- daginn 9. júlí kl. 14.00. Inga Þóra Arnbjörnsdóttir, Ágúst Þór Skarphéðinsson, Eggert Þór, Jóna Sólbjört, Ágúst Þór, Jóna Ólafsdóttir og Arnbjörn Ólafsson. . + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS EINARSSONAR kennara, Skógum, Austur-Eyjafjallahreppi. Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Einar Jónsson, LaufeyWaage, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, Jóhann Friðrik Klausen, Unnur Ása Jónsdóttir, Kristín Rós Jónsdóttir, Óskar Baldursson og barnabörn. Jón Steindórsson, Guðný Ragnarsdóttir, Guðmunda Jónsdóttir, Bergur Garðarsson, Guðný Svava Bergsdóttir, Haraldur Jónsson, Asdís Ingólfsdóttir, Steindór Haraldsson, Laufey Haraldsdóttir. + Þakka auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar bróður míns, GÍSLA JÓNATANSSONAR, Naustavík. Grímey Jónatansdóttir. + Útför systur okkar, RANNVEIGAR BJARNADÓTTUR frá Hörgsdal á Síðu, verður gerð frá Prestbakkakirkju á Síðu fimmtudaginn 9. júlí nk. kl. 14.00. Fyrir hönd systkinanna, Helga Bjarnadóttir. + ÞORVARÐURÁRMASON forstjóri, Kársnesbraut 9, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 8. júlf kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð Lands- samtakana Þroskahjálpar. Gyða Karlsdóttir, Guðrún Þorvarðardóttir, Helga Þorvarðardóttir, Magnús Þ. Þórðarson, Margrét Þorvarðardóttir, Einar Sveinn Árnason, Vilhelmína Þ. Þorvarðardóttir, Stefán D. Franklín, Þorvarður Karl Þorvarðarson, barnabörn og barnabarnabarn. + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU BENÓNÝSDÓTTUR frá Laxárdal, Grænuhlíð 14. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deildar 32A á Landspfalanum. Sigriður G. Skúladóttir, Egilt G. Vigfússon, Fanney Egilsdóttir, Vífill Sigurjónsson, Friðrik Egilsson, Skúli Egilsson og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug þá samúð og hlýhug sem okkur var sýndur vegna andláts DÝRFINNU VALDIMARSDÓTTUR, Vestmannabraut 61, Vestmannaeyjum. Guðmundur Axelsson, Þóranna Guðmundsdóttir, Daníel Jónsson, Valdimar Guðmundsson, Guðrún Eyland, Stefán Guðmundsson, Axel Guðmundsson, Hafsteinn Guðmundsson, Valdimar Danielsson, Stefán Valdimarsson, Hulda Jakobsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.