Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 23 Breskur blaðamaður: Díana ber ábyrgð á ósættinu við Karl Segir henni stundum ekki vera sjálf- rátt vegna lystarstolsveikinda sinna London. Reutcr. DEILUR um hjónabandsörðug- leika Karls Bretaprins og Díönu prinsessu tóku nýja stefnu í gær er dagblaðið Today birti grein þar sem tekinn er upp hanskinn fyrir Karl og Díana er sögð bera ábyrgð á ósætti þeirra. Höfundur greinarinnar, Penny Junor, er blaðamaður sem fjallar um mál- Alsír: Morðing’i forsetans sagður einn að verki Algeirsborg. Reuter. FIMM lögreglumenn voru felldir í Alsír í gær í mannskæðasta of- beidisverki þar í landi síðan i febr- úar. Talið er líklegt að íslamskir heittrúarmenn hafi staðið að baki tilræðinu. Innanríkisráðherra Als- írs segir að morðingi Mohamed Boudiafs, forseta landsins, hafi verið einn að verki, en rannsókn á morðinu muni samt halda áfram. Lögreglumennirnir fimm voru felldir af tíu mönnum í fyrirsát og er tilræðismannanna nú ákaft leitað. Um 80 menn í öryggissveitum Alsírs hafa verið drepnir síðan í febrúar, þegar stjórn landsins lýsti yfir neyða- rástandi og ógilti kosningar þar sem heittrúarmenn unnu sigur. Stjórnin hefur sakað íslömsku þjóðfrelsisfylk- inguna, ólöglegan flokk heittrúar- manna, um að standa að baki ofbeld- inu. Yfirlýsing Larbi Belkheirs innan- ríkisráðherra um að morðingi Bou- diafs hafi verið einn að verki kom nokkuð á óvart, því skömmu eftir morðið var sagt að fleiri hefðu stað- ið að tilræðinu. Dagblað í Algeirs- borg segist hafa heimildir fyrir því að morðinginn hafí játað hafa framið verkið af trúarlegum ástæðum. Fjöl- miðlar í íran, sem hafa stutt málstað heittrúarmanna, sögðu um helgina að Ali Kafis, hins nýja leiðtoga Als- írs, biðu sömu örlög og Boudiafs. efni bresku konungsfjölskyld- unnar. Hún segir vini Karls hafa hvatt hana til að andmæla bolla- leggingum blaðamannsins Andrews Mortons sem ritað hef- ur bók um hjónakornin þar sem Karli er kennt um deilurnar en skilnaður hefur ekki verið útilok- aður. Junor segir að prinsinn sé mjög vonsvikinn yfir hjónabandinu sem staðið hefur í ellefu ár. Honum finn- ist sem Díana hafí svikið sig í tryggðum með því að leyfa að helg- ustu leyndarmál þeirra yrðu gerð opinber í bók Mortons. „Þetta er svívirðileg árás á mann sem getur ekki, stöðu sinnar vegna, goldið í sömu mynt,“ segir Junor. Hún full- yrðir að prinsinn muni ekki vísa ummælum, sem höfð eru eftir Dí- önu, á bug; hann viti að megrunar- árátta Díönu valdi því að henni sé stundum ekki sjálfrátt. Morton seg- ir að Díana þjáist af sjúkdómnum lystarstol og einnig að hún hafi fimm sinnum reynt að fyrirfara sér vegna þess að eiginmaðurinn sýni henni engan áhuga. Að sögn Junors veitti Díana vin- um sínum leyfi til að tjá sig um hjónabandið við Morton og reynt sé að sverta prinsinn í bókinni. Ju- nor segir að þótt Karl sé vissulega ekki auðveldur í sambúð sé ósann- gjarnt að álasa honum vegna veik- inda eiginkonunnar sem eigi rætur að rekja til æsku hennar. Einnig sé það hreinræktuð illgirni að kenna honum um tilraunir prinsessunnar til sjálfsvígs. Morton sakar Karl um að van- rækja syni sína tvo, William og Harry, en Junor er á öðru máli. „Þegar hann ætlar sér tíma til að vera með þeim kemur venjulega eitthvert babb í bátinn,“ segir hún. „Díana hefur skyndilega pantað tíma hjá tannlækni fyrir þá, þeir hafa verið sendir í klippingu, verða að fara í veislu í London eða í búða- ráp.“ Hún segir um samband Karls við æskuvinkonuna Camillu Parker- Bowles að þau séu aðeins góðir vin- ir og stöðugar áhyggjur Díönu vegna þess séu ekki á rökum reist- ar. konu hans til að skilja við hann. Síðast var hringt í hann fýrir þrem árum en hann segir að umræddir menn hafi ávallt neitað að vita nokkuð um örlög Bería. Stalín lést í mars 1953. Geget- sjorí segist hafa verið í lífshættu vegna faðernisins í júlí sama ár og aðeins sloppið vegna þess að sov- éskir vísindamenn í fremstu röð hafi leitað á náðir Níkíta Khrústsjovs, er var einn arftaka Stalíns, og beðið syni blóðhundsins griða. Gegetsjorí sat inni í sextán mánuði og var ásamt föður sínum sakaður um að vera breskur njósn- ari og vilja snúa aftur til kapítalis- mans. Hann segir að m.a. hafí út- sendarar lögreglunnar látið móður sína verið viðstadda þegar þeir þótt- ust taka hann af lífi í von um að knýja þannig fram játningu. 1954 var honum sleppt úr haldi og starf- aði síðan við vopnagerð, segist m.a. hafa hannað fyrstu sovésku eld- flaugina sem ætluð var kafbátum og hægt að skjóta úr kafi. Um miðjan sjöunda áratuginn var hon- um leyft að setjast að í Kíev. Hann segist óttast að enn fylgist menn úr þeim stofnunum sem tóku við hlutverki KGB með sér. Khrústsjov hræddist uppljóstranir Bería í opinberum skýrslum um síðustu daga Bería er sagt að hann hafi verið handtekinn á fundi forsætis- nefndar kommúnistaflokksins í Kreml og síðar tekinn af lífi. Þessi fundur var aldrei haldinn, að sögn Gegetsjorís. Honum var frestað vegna þess að Khrústsjov óttaðist að upp kæmist um þátt hans sjálfs í að skipuleggja glæpi á vegum öryggislögreglunnar. Þess vegna sendi Khrústsjov herlið til að drepa Bería er var í fararbroddi þeirra sem vildu að rannsókn á þessum málum færi fram. Tveir menn í dómstóln- um sem kvað upp dóm í máli Ber- ía, þeir Níkolaj Sverník, forseti Verkamannasambandsins, og Ní- kolaj Míkhaílov menningarmálaráð- herra viðurkenndu síðar að engin réttarhöld hefðu farið fram, segir Gegetsjorí. Hann telur að orðspor Bería sem álitinn hefur verið annar versti níð- ingurinn í sögu Sovétríkjanna, á eftir Stalín, sé til komið vegna áróð- urs Rússa. „Þeir vilja halda því á lofti að Rússamir hafi verið ágætir en tveir fantar hafi komið frá Ge- orgíu. En hann var ekki sekari en aðrir félagar í stjórnmálaráðinu [æðstu valdastofnun Sovétríkj- anna]. Aðrir voru enn mikilvirkari í ofsóknunum .,. . Hann var mjög hógvær og feiminn maður, þótt undarlegt megi virðast. Mér þótti afar.vænt um hann sem mann og sú afstaða mín hefur ekkert breyst." r Mafían græðir á sameiningu Evrópu Færir út kvíarnar tii Austur-Evrópu Palermo, Sikiley. Reuter. MAFIAN á Sikiley og skyldir glæpahópar á Italíu hugsa sér gott til glóðarinnar í sameinuðu Evrópubandalagi, þar sem landamæraeftirlit verður minnkað og auðveldara verður að flytja fjármagn á milli landa. Þá lítur Mafían í auknum mæli til ríkja Austur-Evrópu, þar sem eftirspurn eftir er- lendri fjárfestingu er gífurleg og litlar líkur á að spurt sé hvaðan peningarnir koma. „Ég held að skipulögð glæpa- félög hafi verið skrefi á undan ríkisstjórnum í alþjóðlegri sam- vinnu,“ segir Vincenzo Scotti, sem var innanríkisráðherra ítal- íu í fráfarandi ríkisstjórn. Nú er varla sú stórborg til í Evrópu þar sem fulltrúar Mafíunnar hafa ekki sett sig í samband við glæpahópa innfæddra. Eitt helsta vandamál Maf- íunnar hefur verið að „hreinsa" gróðann af eiturlyfjasölu og ann- arri ólöglegri starfsemi, sem verður auðveldara með auknu frelsi í fjármagnsflutningum. Sérfræðingar þykjast þegar geta greint aukningu á erlendri fjár- festingu Mafíunnar, eftir því sem ríki EB hafa numið úr gildi höml- ur til að undirbúa hinn sameigin- lega markað árið 1993. Fyrir skömmu voru félagar í Camorra- samtökunum í Napólí handteknir eftir að sanna tókst að þeir hefðu fjárfest í veitingastöðum og kjör- búðum í Þýskalandi og á Spáni með eiturlyfjagróða, en áður var vitað að Camorra-menn hefðu keypt hlut í spilavítum og fast- eignum í Frakklandi. ítalskir sérfræðingar hafa áætlað að Mafían og önnur glæpasamtök velti sem svari um 110 milljörðum dollara, sem er meira en landbúnaður og bygg- ingariðnaðurinn samanlagður og væri um 15 prósent af þjóðar- framleiðslu Italíu. HORNSOFI SEM GEFUR KEPPIHAUTUM OKKAR <§§ L 252. B 205 139.640,00 Tegund: Lundby 6 sæta leðurhornsófinn slær allt út í verði og þægindum. Úrvals leður á slitflötum og 10 LEÐURLITIR EKKIMISSA AF ÞESSU QÓÐ GREIÐSLUKJÖR BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVlK - SÍMI91-681199 - FAX 91-673511

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.