Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 36
£ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 v/.U JUIiHij (IUJÁ.IÚ>: JOHOM VTfl.j-Tl. ■m- Erla Gestsdóttir Að leiðarlokum þakka ég hinum hæsta höfuðsmið himins og jarðar fyrir Erlu Gestsdóttur og að hafa eignast hana að vini, það var mann- bætandi. Foreldrum, eiginmanni, bömum, tengdadóttur og ömmubarni votta ég virðingu mína og samúð. Guð veiti þeim styrk til að bera sorg sína. Blessuð sé minning Erlu Gestsdóttur, guð geymi hana og friður veri með henni. G.Ó. „Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt." Þessi setning úr kvæði Ein- ars Benediktssonar kemur ósjálf- rátt upp í huga okkar þegar við nú komum saman til að minnast Erlu í nokkrum orðum. í hugum okkar verður aldrei annað en birta og hlýja þegar við hugsum um hana. Við kynntumst Erlu fyrir all mörgum árum í gegnum félagsskap eiginmanna okkar og hófst þá sú vinátta sem hefur haldist æ síðan. Erla setti strax sterkan svip á sam- verustundir okkar, því hún var fé- lagslynd með afbrigðum og með einstakri frásagnargleði og ríkuleg- um skammti af látbragðsleik lét hún okkur gleyma stað og stund og mátti þá ekki á milli sjá hver skemmti sér best. Alltaf var hún tilbúin að taka að sér hlutverk „leik- arans“ og skilaði því með sóma. Hún var Gaflari í húð og hár, starfaði og bjó í Hafnarfirði alla tíð og þótti óhemju vænt um samferða- fólkið sitt. Eitt það minnisstæðasta í fari Erlu var að aldrei sagði hún styggðaryrði um nokkurn mann. Hún var sannur og einstakur fé- lagi, ósérhlífin og dugleg. Hún hafði yndi af starfinu sínu en mest og best hugsaði hún um fólkið sitt. Var hún okkur sönn fyrirmynd. Við vitum, að margir munu syrgja Erlu og harma ótímabært fráfall hennar. Við kveðjum hana með þakklæti og trega fyrir yndis- leg kynni. Hún átti það ljós sem mun skína áfram sem perla í minn- ingunni. Fjölskyldu Erlu sendum við sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að gefa henni styrk á þessum erfiðu stund- um. Hvíli okkar kæra vinkona í friði. Guðlaug, Guðný, Anna, Björg, Ester, Katrín, Sigríður og Sigurbjörg. Elskuleg vinkona okkar, Erla Guðrún Gestsdóttir, er nú kvödd hinstu kveðju. Það er þyngra en tárum taki að kveðja jafn kæran vin og vita að við fáum ekki að njóta nærveru hennar oftar. Eftir sautján ára óslitinn vinskap eru margar minningar sem koma fram í hugann nú á þessari stund og allt eru það góðar minningar um ánægjulegar samverustundir okkar með Erlu og Ármanni og börnunum okkar, við margskonar aðstæður í leik og starfi, til dæmis þegar hjálpast var að við bygging- ar, glaðst yfir unnum áföngum eða þegar við áttum saman gleðistundir á heimilum okkar eða í Kjósinni þar sem oft var glatt á hjalla, mikið spilað og sungið, oftar en ekki við eld á fögru sumarkvöldi. Þessara stunda eigum við eftir að sakna og vitum að framvegis verða jól, versl- unarmannahelgi og fleiri tímamót sem við áttum fastar samveru- stundir afar tómleg án Erlu. Við finnum nú hve mikils virði það er að eiga slíka vini til að deila með gleði og sorgum. Það er óþarfi að telja upp kosti Erlu, hún kynnti sig best sjálf, hún var öllum góð, þó sérstaklega böm- um sem öllum þótti vænt um hana. Hún var mjög heilsteypt mann- eskja, hreinskilin og kom eins fram við alla og reyndi aldrei að vera annað en hún sjálf. Hún var mikill gleðigjafi og það sem var meira virði - „traustur vinur sem aldrei brást“. Það var gott að fá að eiga samleið með Erlu og eiga hana fyr- ir vin og fyrir það þökkum við nú. Við kveðjum Erlu með ljóði sem henni þótt vænt um og við sungum svo oft saman. Erla, góða Erla, ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í sðng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kvöldljóð, því kvöldsett löngu er. Hart er mannsins hjarta að hugsa mest um sig. Kvöldið er svo koidimmt, ég kenndi í bijósti um mig. Dýrðlega þig dreymi og drottinn blessi þig. (Stefán frá Hvítadal) Söknuðurinn er sár, við höfum mikið misst, en meiri er missir ást- vinanna og biðjum við að sorg þeirra sefíst með tímanum. Elsku Ár- mann, Hemmi, Steina, Alfa Karit- as, Deddi, Ásta, Jóna og Gestur, megi algóður Guð gefa ykkur styrk í sorginni miklu. Guð geymi elsku Erlu okkar. Helga og Dóri. Hún Erla Gests er dáin. Fyrir okkur Hafnfírðinga er eins og að máttarstólpi hafí hrunið undan húsi við fráfall Erlu og verður björt minning hennar geymd í hjörtum okkar. Horfíð hefur af sjónarsviðinu litríkur og atkvæðamikill persónu- leiki í hafnfírsku félagsmálalífi enda var Erla hrókur alls fagnaðar og átti hjörtu allra þeirra sem hún hafði samskipti við. Erla var fædd 22. október 1948 og var einkabam foreldra sinna sem eru á lífi, en þau em Jóna Guð- -mundsdóttir og Gestur Gamalíels- son en Gestur er fyrrverandi um- sjónarmaður Kirkjugarða Hafnar- fjarðar. Ég kynntist Erlu fyrst sem barn en móðir hennar og amma mín voru miklar vinkonur og var mikill samgangur milli flölskyldna okkar. Leiðir okkar Erlu lágu oft saman en á unga aldri eftir að Erla var orðin fóstra sá hún um gæslu á dóttur okkar en þá var Erla starfs- maður á dagheimilinu að Hörðuvöll- um. Stella dóttir okkar kom syngj- andi heim af dagheimilinu á hveij- um degi með nýtt lag og farsælar minningar og minnist hún Erlu að eilífu og þakkar fyrir það glaðværa viðhorf sem hún hafði að leiðar- ljósi. Erla sinnti alla ævi af alhug fóstruhlutverkinu en hún var for- stöðumaður bamadagheimilisins Smáralundar. Við Björg kynntumst síðar þeim hjónum Erlu og Ármanni í tengslum við JC-hreyfínguna en Ármann hvatti mig til að koma til starfa þar og hefur okkar kunningsskapur ávallt verið tryggur síðan. Enn- fremur náðum við að kynnast fjöl- skyldu Erlu betur en synir okkar Magnús og Hermann voru bekkjar- félagar í Öldutúnsskóla og hefur Hermann ávallt verið aufúsugestur á heimili okkar. Fyrir tveimur ámm hvatti Erla okkur hjónin til að taka þátt í kór- starfí Víðistaðakirkju og við létum tilleiðast en Erla og Ármann hafa um árabil tekið virkan þátt í því starfí. í kómum kynntumst við þeim krafti sem Erla hafði yfír að búa, stjórnkænsku og tónlistarlegri fagmennsku. Það var langur vegur í það að hún Erla hefði lokið ætlunarverki sínu enda börnin ung heima og litli engillinn þeirra, ömmubamið Alfa Karitas. Fjölskylda mín og við Björg þökkum Erlu samfylgdina og ósk- um þess að guðsstyrkur megi vera með Ármanni, börnum.og Jónu og Gesti. Kristinn Arnar Jóhannesson. Núna er elsku Erla okkar dáin. Hún hefur alltaf reynst okkur systr- um svo vel og verið bömunum okk- ar sem besta amma. Börnin skilja ekki af hveiju Guð gerði hana að engli núna af því að þeim þykir svo vænt um hana. Við erum engu nær um það en börnin. Erla var mjög sérstök kona. Hún var alltaf tilbúin að hjálpa okkur þegar á þurfti að halda og hún var sérlega góð við bömin okkar. Erla var mjög skiln- ingsrík og tillitssöm og virtist alltaf geta bjargað okkur ef við vorum á flæðiskeri staddar með eitthvað, þá sérstaklega ef um börnin var að ræða. Aldrei nokkurn tímann höfum við séð slæma hlið á Erlu enda ekki trúlegt að hún hafí haft nokkra því hún var örugglega jafn góð og hjálpleg við alla aðra. I boðum og samkomum var Erla ómissandi því hún var alltaf hrókur alls fagnaðar. Hún gat alltaf komið manni í gott skap jafnvel eftir að veikindin vom farin að hijá hana. Við kveðjum Erlu með trega og söknuði. Elsku Ármann, Hemmi, Steina, Alfa Kar- ítas, Deddi og Ásta, Jóna og Gest- ur, megi guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Helena og Hildur. Þegar lítil 3ja ára stúlka byijaði í leikskólanum var hjartað mjög lít- ið. Hvemig ætli hinir krakkarnir séu? Ég þekkti engan í Smára- lundi, því hann var ekki í mínu hverfí. Jú, ég þekki hana Erlu, sem var forstöðukonan, því hún var í kirkjukómum með henni mömmu. Þá var allt í lagi að fara. Það var lika vel tekið á móti mér. Hún Erla var líka alltaf svo skemmtileg. Hún spilaði oft fyrir okkur á gítarinn og við fengum að syngja með. Hún kunni svo mörg lög. Stundum kom það fyrir að ég var dálítið lítil. Þá fékk ég að tala við Erlu, hún tók í höndina mína og við spjölluðum saman. Ég fékk þá líka að hjálpa til við að passa börnin sem voru ekki eins hraust og ég. Erla skildi svo vel að þá leið mér betur. Svo var það þetta með s-ið og r-ið, stafína, sem ekki vildu koma í munninn minn. Allir sögðu við mömmu: „Þetta kemur bráð- um.“ En af því að ég var svo hávax- in var erfítt að geta ekki talað rétt og fólk hélt að ég væri miklu eldri. Þá kom hún Erla til mömmu og sagðist ætla að sækja um tal- kennslu fyrir mig, svo ekki yrði gert grín að mér. Það gekk fljótt og vel að læra að tala rétt. Ég þakka Erlu minni fyrir það. Það var líka svo gaman að koma í kirkjuna á sunnudögum, þegar Erla var að syngja því hún tók allt- af eftir mér og sagði að ég væri stelpan sín. Þá varð ég montin. Þegar leikskólinn kom í hverfíð mitt hvatti Erla mömmu til að ég færi þangað því þar yrðu krakkarn- ir sem færu með mér í skóla. Mér fannst skrítið að hætta í Smára- lundi, en auðvitað var þetta líka rétt hjá Erlu eins og alltaf. Hún sagði að ég ætti að vera dugleg að koma í heimsókn, ég væri alltaf velkomin. Nú sakna ég Erlu minnar, en ég veit að hún var búin að vera lengi veik. Þess vegna tók Guð hana til sín þangað, sem enginn er veikur en öllum líður vel. Guð blessi Erlu. Hrefna Kristín. Þú fagra tíð, þá allt er grænt og ungt, eldur í sál og bijóstið daggarþungt, kemur sem fugl og syngur - svifur braut í skðgarskaut. Ég átti þig. Nú á ég minnis-ljóð sem andblæ hausts og mánans rökkurglóð. Á hvitum vængjum svifin ertu sjálf með sál og álf. (Hulda) > Löngu áður en ég kynntist Erlu, vissi ég hver hún var. Það sópaði að henni hvar sem hún fór og oft- ast var hún eins og sjálfskipaður leiðtogi og driffjöðrin í öllu, sem gert var. Erla var falleg kona, hafði tigulegt göngulag og stundum hvarflaði að manni, að hún væri af konungakyni. Fyrst kynntist ég henni fyrir al- vöru í söngnum í Víðistaðakómum, síðan í starfínu og aldrei man ég eftir, að hún hafi skorast undan neinu, smáu eða stóru. Fyrir ein + Bróðir okkar, RÍKARÐUR G. HAFDAL, lést 22. júní á heimili sínu í Washington-fylki í Bandaríkjunum. Jarðarförin hefur farið fram. Árni Hafdal, Gunnar Hafdal, Sveinn Hafdal, Elfa Hafdal. Ástkær faðir okkar, JÓN BALDVIN BJÖRNSSON húsgagnasmíðameistari frá Akureyri, andaðist á Droplaugarstöðum föstudaginn 3. júlí. Anna Jónsdóttir, Bjarni Jónsson, Laufey Jónsdóttir. + Konan mín, VALEY BENEDIKTSDÓTTIR, Sandabraut 11, Akranesi, lést laugardaginn 4. júlí. Jónmundur Guðmundsson. jólin sagði hún við mig stríðnislega, þegar kórinn gekk í kirkju, „ég á að leika einleik í kvöld“ og gerði mig svo forvitna og taugaóstyrka, að ég var á nálum út alla messuna. Og viti menn. Þegar athöfninni lauk með sálminum Heims um ból stóð Erla upp ásamt fleiri einleikumm og sló klukknahljóm í þríhom. Svona var Erla. Seinna þegar við unnum saman hafði hún ætíð svolítið sérstakan stíl yfír þeirri vinnu. Hún sagðist ætla að „panta" tíma með mér einni og svo kom hún og við læstum að okkur. Þá dró hún upp úr pússi sínu gos og sælgæti og síðan sátum við og unnum og mauluðum nammi hvor í kapp við aðra. Þetta var allt- af tilhlökkunarefni og við skemmt- um okkur konunglega. Erla var einstaklega velviljuð og illt umtal var henni ekki að skapi. Hún var mannasættir og tókst ávallt að gera gott úr hlutunum. Kom þessi hæfíleiki hennar sér vel í starfínu sem fóstra og síðar sem leikskólastjóri í Smáralundi. Hún hafði sérstakt lag á bömum og trú- lega beitti hún sama góða laginu á okkur öll hin líka. Það er erfítt að sætta sig við, að Erla skulin vera farin en við verðum að lúta þeim vilja almættis- ins eins og öðrum. Við, sem eftir stöndum, drúpum höfði og biðjum fyrir manninum hennar og bömun- um, litla barnabarninu og öldruðum foreldrum, sem sjá á bak einka- bami sínu. Við tínum saman perlur minninganna og geymum þær eins og sjáaldur auga okkar um ókomna framtíð. Kolbrún Oddbergsdóttir. Árið 1968 hefur verið nefnt í sögunni sem sérstakt ár. Við það hefur verið kennd sérstök kynslóð, svokölluð ’68 kynslóð. Það var ár breytinga og umróts og hugsjónir blómstmðu. Þetta margumrædda ár braut- skráðumst við, hópur fóstra frá Fóstmskóla Sumargjafar, sem þá hét, og héldum út í lífíð til að tak- ast á við uppeldi nýrrar kynslóðar og uppbyggingu leikskólastarfs í landinu. Við höfðum þá dvalið saman í skóla í einu fallegasta húsinu í hjarta borgarinnar, Fríkirkjuvegi 11. Vöktum við athygli í miðbænum t.d. fyrir það að bera um hina tor- kennilegustu hluti, og tína laufblöð við tjömina. Þama tengdumst við sterkum vináttuböndum sem haldist hafa æ síðan. Ein í þessum hópi var Erla Gests. Frá fyrsta degi var hún miðpunktur þess sem gerðist í bekknum. Það var alltaf líf og fjör í kringum hana, aldrei nein lognmolla. Ævinlega var eitthvað skemmtilegt að gerast. Jafnvel dagleg ferð með Hafnar- fjarðarstrætó varð viðburðarík og frásagnarverð þegar Erla átti í hlut. Meinleysislegur bréfmiði sem gekk milli manna 1 öftustu borðaröðinni varð uppspretta kátínu og hláturs. Erla hafði einstaka hæfíleika til að segja skemmtilega frá og oft velt- umst við um af hlátri þegar hún sagði frá kynlegum kvistum í Hafn- arfírði eða verkefnum sem henni höfðu verið falin, s.s. eins og að baða bam. Gleði og líf fylgdu henni hvar sem hún fór. Þegar þurfti að koma fram fyrir hönd bekkjarins, hvort heldur sem átti nú að spila á gítar og syngja eða flytja ræðu á hátíðastund, var Erla oftast valin fulltrúi okkar. Hún taldi það heldur ekki eftir sér frek- ar en annað, í hennar augum voru vandamál til að leysa þau og verkin til að vinna. Svo tók lífsstarfið við hjá ár- gangi ’68. Allri sinni starfsævi varði Erla í þágu leikskólastarfs og tókst á við það af sama kraftinum og lífs- gleðinni og allt annað. Síðustu tíu árin var hún leikskólastjóri í leik- skólanum Smáralundi í Hafnarfírði. Þar er hennar nú sárt saknað. Erla var Hafnfírðingur í húð og hár, bjó þar og starfaði alla sína ævi. Hún sinnti ótal trúnaðarstörf- um í heimabæ sínum, ekki síst þeim er lutu að leikskólastarfí. Gleðin fylgdi henni einnig í einka- lífínu við hlið góðs eiginmanns og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.