Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.07.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992 Landsbankinn hættir bankaviðskiptum við Fiskvinnsluna hf. á Bíldudal: Bankínn óskaði eftir að fyrirtækið yrði tek- ið tíl gjaldþrotaskipta Morgunblaðið/Róbert Schmidt Hráefni fyrirtækisins var klárað á föstudaginn var og daginn eftir þurfti togarinn Sölvi Bjarnason BA að sigla til Reykjavíkur með 100 tonn af þorski á markað. * Astæðulaus ákvörðun og aðferðin einsdæmi - segir Matthías Bjarnason, 1. þingmaður V estfirðinga v MATTHÍAS Bjarnason, 1. þingmaður Vestfirðinga, segir að sú ákvörðun Landsbankans að hætta viðskiptum við Fiskvinnsluna á Bíldudal sé ástæðulaus og aðferðin, sem viðhöfð var við að tilkynna þá ákvörðun, sé einsdæmi „Ég er undrandi á því að banki skuli segja fyrirtæki upp öllum við- skiptum eftir vinnutíma á fimmtu- dag með því að einn af starfsmönn- um bankans er látinn hringja í starfsmann Fiskvinnslunnar. Það var ekkert bréf og enginn af aðal- bankastjórunum er sagður við næstu daga. Þetta er alveg einstök framkoma," sagði Matthías Bjama- son í samtali við Morgunblaðið. „Það er fyrir neðan allt velsæmi að fara svona að. Togari félagsins var að koma inn í gærmorgun. Það varð að senda hann suður til Reykjavíkur, en fólkið situr eftir atvinnulaust.“ Matthías sagði að ákvörðun bankans væri ástæðulaus. „Því er ekki að neita að þetta fyrirtæki er skuldsett eins og mörg önnur. Opin- ber aðili, Hlutafjársjóður, á tæpan helming í fyrirtækinu. Byggða- stofnun hefur verið í viðræðum við Landsbankann um lausn á framtíð- arvanda. Einn landsbankastjórinn sagði mér að hann myndi ekki taka neina ákvörðun nema við ræddum saman aftur og ég kalla þetta ekki að standa við orð sín,“ sagði Matthí- as. Að sögn Matthíasar óskuðu hreppsnefndin á Bíldudal og for- svarsmenn Fiskvinnslunnar e<tir því við hann að hann boðaði þing- menn kjördæmisins á fund. Þing- mennimir munu hittast á hrepps- skrifstofunni á Bíldudal klukkan 11 í dag og hefur Matthías einnig óskað eftir að fulltrúar Byggða- stofnunar, viðskiptaráðuneytisins og Landsbankans komi á fundinn. Forstjóri Byggðastofnunar fer á fundinn og sagði Guðmundur Atvinnulíf lamað á Bíldudal Bildudal. ATVINNULÍF á Bíldudal er að mestu lamað. Tvö stærstu atvinnu- fyrirtæki staðarins, Rækjuver hf. og Fiskvinnslan á Bíldudal hf. eru bæði lokuð. Engin vinna hefur verið í Rækjuveri síðan í maí vegna hráefnisskorts. Þá hefur Landsbankinn lokað á bankavið- skipti við Fiskvinnsluna hf., sem er aðal útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtæki staðarins og hefur haft 100 manns á launaskrá, og hætt afgreiðslu afurðalána. Magnús Björnsson sljórnarformaður fyrirtækisins segir að bankinn hafi jafnframt farið fram á það að fyrirtækið yrði lýst gjaldþrota. Magnús Björnsson segir að síð- þessum aðgerðum, aðeins að við- Malmquist í gær að hann myndi væntanlega ræða við aðra helstu hluthafa í fyrirtækinu eftir fund þingmannanna. í gær var ákveðið í Landsbankanum að senda ekki fulltrúa til þessa fundar. Brynjóifur Helgason aðstoðarbankastjóri vildi í gær ekki skýra frá ástæðu þessar- ar ákvörðunar. degis á fimmtudag hafi verið hald- inn fundur í bankastjóm Lands- bankans og tveir af þremur aðal- bankastjórunum hafi setið fund- inn. Þar hefði verið ákveðið að segja upp öllum viðskiptum við Fiskvinnsluna hf. „Síðan hringdi maður úr hagdeildinni og til- kynnti mér að sér hafi verið falið það erfiða verk að tilkynna að búið sé að reka okkur úr viðskipt- um og banna okkur að nota ávís- anahefti og fleira. Þessi maður tilgreindi engar ástæður fyrir skiptum væri lokið og að þeim tilmælum væri beint til okkar að lýsa fyrirtækið gjaldþrota," sagði Magnús. Hann sagði að stjórnar- fundur hefði verið haldinn um kvöldið. Þeir hefðu haft samband við bankaráðsmenn en það hefði engu breytt. Þá hafí verið reynt að ná í aðalbankastjóra Lands- bankans en þeir verið komnir í frí. Forráðamenn fyrirtækisins boðuðu starfsfólkið til fundar á föstudag til að kynna því stöðuna. Stjórn Fiskvinnslunnar hf. Morgunblaðið/Róbert Schmidt Auðir vinnslusalir og upphengdar svuntur starfsstúlkna Fiskvinnsl- unnar hf. Síðastliðinn fimmtudag, eftir lokun afgreiðslustaða, til- kynnti starfsmaður í hagdeild Landsbankans Magnúsi Björnssyni stjórnarformanni Fiskvinnslunnar hf. fyrirvaralaust um lokun allra reikninga Fiskvinnslunnar hf. í bankanum og að afgreiðslu afurðal- ána hefði verið hætt. ákvað þegar í stað að stöðva alla vinnslu fyrirtækisins en hráefni kláraðist á föstudaginn. Togarinn Sölvi Bjarnason BA, sem er í eigu Útgerðarfélags Bílddælinga, dótt- urfyrirtækis Fiskvinnslunnar, kom til Bíldudals daginn eftir með 100 tonn af þorski en varð frá að hverfa og sigldi með aflann til Reykjavíkur og seldi á fiskrnark- aði. Aðspurður um framhaldið sagðist Magnús Björnsson ekki vera bjartsýnn. „Það er ljóst að ekki verður unnið í fyrirtækinu þessa viku en togarinn fer á veið- ar aftur. Við munum reyna að semja um löndum á afla hans annaðhvort hér í nágrenninu eða lengra í burtu. Við verðum að láta hann halda áfram að veiða til að reyna að ná kvótanum," sagði Magnús. Um 100 manns eru á launaskrá Fiskvinnslunnar hf. og útgerðar- innar en það samsvarar um 50% vinnuafls staðarins. Þar af missa 70 vinnuna vegna stöðvunar vinnslunnar. Starfsfólkinu hafði í gær ekki verið sagt upp störfum. Alls voru 23 á launaskrá Rækjuvers hf. og eru nú 11 á atvinnuleysisbótum. A Bíldudal búa um 370 manns. Sveitarstjórn Bíldudalshrepps fundaði um málefni Fiskvinnsl- unnar á föstudaginn og var sam- þykkt að óska eftir fundi með þingmönnum kjördæmisins og stjórn Byggðastofnunnar ásamt fulltrúa Landsbankans og verður fundurinn í dag. Einar Mathiesen sveitarstjóri vildi ekki gefa út neinar yfirlýsingar í gær þegar Morgunblaðið leitaði til hans en sagðist vona að hægt yrði að skýra frá niðurstöðu fundarins síðdegis í dag. Greiðslustaða sveitarfélagsins hefur verið góð þrátt fyrir miklar íjárskuldbind- ingar en víst er að ef engin lausn fínnst á málinu hefur það mikil áhrif á stöðu þess. Fiskvinnslan á Bíldudal hf. á 75% hlutafé í Útgerðarfélagi Bíld- dælinga hf., sem á togarann Sölva Bjarnason BA með 1.643 þorskí- gildistonna kvóta á núverandi fískveiðiári, og Geysi, BA 180 tonna bát sem er á rækjuveiðum. R. Schmidt. Guðmundur Malmquist: Byg'g’ðastofnun hefur ekki bolmagn til að koma Fiskvinnslunni af stað FORSTJÓRI Byggðastofnunar segir að stofnunin hafi ekki fjárhags- legt bolmagn til að gera það sem gera þurfi á Bildudal. Fjárhags- vandi Fiskvinnslunnar sé það mikill. Heildarskuldir Fiskvinnslunnar voru 394 milljónir kr. um síðust áramót, og dótturfyrirtæki hennar, Útgerðarfélag Bílddælinga hf., skuldaði 418 milljónir kr. þannig að heildarskuldir fyrirtækjanna voru 812 milljónir kr. Að frádregn- um veltufjármunum voru skuidirnar 623 milljónir kr. Eigið fé Fisk- vinnslunnar var neikvætt um 59 milljónir um síðustu áramót, sam- kvæmt ársreikningum félagsins, en eigið fé Útgerðarfélagsins var jákvætt um 13 milljónir. Guðmundur Malmquist forstjóri Byggða- stofnunar segir að endursemja þurfi um skuldir fyrirtækjanna svo nemi verulegum fjárhæðum. Landsbanki íslands hefur ekkert gefíð út um ástæður þess að bank- inn lokaði á viðskipti Fiskvinnsl- unnar í bankanum fyrir helgina. Brynjólfur Helgason aðstoðar- bankastjóri sagði í gær að þetta væri mál bankans og fyrirtækisins og eigenda þess og bankinn ræddi það ekki opinberlega. Hann vildi ekki segja hver staða fyrirtækisins væri. „Það segir sig sjálft að staða fyrirtækisins er erfið,“ sagði Brynj- ólfur. Hlutafjársjóður kom inn í fyrir- tækið á árinu 1989. Sjóðurinn yfir- tók kröfur sem bankar, ríkissjóður og viðskiptamenn áttu og breytti þeim í hlutafé. Hlutafjársjóðúr Byggðastofnunar á 48,9 milljóna króna hlutafé af 99,5 milljóna heildarhlutafé í Fiskvinnslunni, eða 49% hlutafjár, og tæpar 15 milljón- ir kr. í Útgerðarfélagi Bílddælinga. Bíldudalshreppur á 29% í Fisk- vinnslunni og meðal annarra hlut- hafa eru Útvegsfélag samvinnu- manna og Olíufélagið hf. Þrátt fyrir þá endurskipulagn- ingu á fjárhag Fiskvinnslunnar sem fram fór 1989 er fyrirtækið nú komi í þrot. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur reksturinn verið erfiður undanfarin ár vegna mikilla og aukinna skulda og fjár- magnskostnaðar og minnkandi tekna vegna samdráttar í afla. Og enn meiri samdráttur í ár, meðal annars vegna þess hvað steinbíts- vertíðin var léleg, gerði síðan út- slagið. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var staðan orðin þannig að ef Landsbankinn hefði ekki gripið í taumana núna hefði hefði öll viðbótarfyrirgreiðsla aukið taphættu bankans. Eigendur fyrir- tækisins munu heldur ekki gera alvarlegar athugasemdir við niður- stöðu bankans, en þeir gagnrýna það hvernig að málum var staðið. Þeir hafí ekki fengið eðlilegan umþóttunartíma. Landsbanka- menn segja á móti að stöðvun hafi lengi við yfirvofandi og hafi ekki átt að koma mönnum á óvart. Fleiri fyrirtæki búa við svipuð rekstrarskilyrði og Fiskvinnslan hf. á Bíldudal. Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar sagði í gær að sem betur fer væru ekki mörg fyrirtæki í jafn slæmri stöðu og Fiskvinnslan, en þau væru til. Hann sagði að þau væru um allt land en vitað væri að samdráttur í þorskveiðum hefði komið verst við sjávarútvegsfyrirtækin á Vest- fjörðum, þau væru háðari þorskin- um en flest fyrirtæki í öðrum lands- hlutum. Brynjólfur Helgason aðstoðar- bankastjóri Landsbankans sagði, þegar hann var spurður hvort von væri á svipuðum aðgerðum í öðrum plássum, að þessi mál væru sífellt í skoðun, sérstaklega mál fyrir- tækja sem stæðu illa. En ekki væri gripið til lokunar viðskipta nema í neyðartilvikum. Vildi Brynj- ólfur ekki nefna ákveðna staði eða landshluta, málin væru í skoðun á öllu landinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.